Vísir - 25.04.1981, Blaðsíða 3
Laugardagur 25. aprll 1981
Geymt,
en ekki
gleymt
Þaö er ekki hvaö slst viö taflborð-iö sem gott minni kemur i góöar þarfir.
Þegar stór-skákmeistarar á
borö viö Viktor Korchnoi sækja
okkur heim kemst tafláhuginn i
algleyming og sögur af öörum
meisturum stinga upp kollinum.
Rússar hafa nú löngum veriö i
fararbroddi á sviöi skáklistarinn-
ar og átt marga galdramenn á
tafiborðinu. Vafalaust má nefna
þar fyrst Alexander Aljechin,
heimsmeistara frá 1936 tii 1937 og
’37-’46. Hann vann m.a. þaö afrek
aö leika 32 skákir samtlmis viö
fyrsta flokks skákmenn og blind-
andi aö auki. Aljechin var mjög
harður bardagamaöur og sigur-
viljugur. Stööug og mikil
áreynsla varö honum ofviða og
eftirmanni hans, Botwinnik, var
bannaö aö tefla blindskákir af
stjórnvöldum.
„Þér gleymduð hlaup-
árunum”
Eitt af þvi sem góður skákmað-
ur þarf að hafa er afburðaminni.
Sumum er gefið yfirburðaminni
án þess þeir geti þó hagnýtt sér
það við taflborðið. Sagnir eru til
um óvenjugott minni allt frá forn
öld.Seneca, rómverskur speking-
ur sem uppi var um daga Krists,
gat endurtekið án þess að skjátl-
ast, 2000 ljóðlinur, eftir að hafa
heyrt þær einu sinni.
Dæmin sýna að afburöa minni
er ekki alltaf samfara góðum gáf-
um eða menntun. í lok 18. aldar
var negri nokkur i Virginia i
Bandarikjunum, Tom Fuller að
nafni, sem varð frægur fyrir fá-
dæma reiknishæfileika. Hann var
ólæs og óskrifandi.
Hann var eitt sinn spurður hve
margar sekúndur sá maður hefði
lifað, er varð 70, ára, 17 daga og
12 stunda gamall.
Tom Fuller hugsaðisig um i eina
og hálfa minútu og svaraði siöan:
„2.210.500.800 minútur.”
„Vitlaust” hrópaði spyrjandinn
sigri hrósandi, „það eru” og svo
nefndi hann töluna sem hann
hafði sjálfur reiknað út. Gamli
negrinn brosti aðeins góðlátlega.
„Þér hafið gleymt hlaupárunum,
Sir” sagði hann og það reyndist
vera rétt.
Undrabörn
Eins og á flestum öðrum svið-
um hafa einnig komið fram
undrabörn hvað minni snertir.
Má þar t.d. nefna bóndason frá
Frakklandi. Hann gat á þremur
minútum haft töluna 8 upp i 16.
veldi: 281474976710656, en til þess
þurfti þorpskennarinn 11 minútur
og logarithmatöfluna.
Og árið 1919 gerði hinn átta ára
gamli Frank Huxley þing upp-
eldisfræðinga standandi hlessa
með þvi að endurtaka 12 blað-
siðna texta, er honum var lesinn
og vist var, að hann hafði ekki
heyrt áður.
En fremstur i hópi slikra hefur
liklega verið Þjóöverjinn
Fredrich Brauns. Hann stóðst á
ótrúlega stuttum tima 3 doktors-
próf, starfaði siðan i Leipzig i
nokkra mánuði sem læknir en
sneri sér slðan alfarið að þvi að
nota minnið sér til framfæris.
„Hver er kvaðratrótin af
85003052944?” hrópai einn gest-
anna á skemmtun i Dresden.
„92212” svaraði hann um hæl án
þess að hugsa sig um.
„Svindl” hrópaði mannfjöld-
inn.
Brauns kinkaði kolli og brosti.
„Það er rétt, svona fljótt getur
enginn maður reiknað. En þar
sem þessi sami herra spuröi mig
sömu spurningar i Hamborg fyrir
tveimur árum og ég reiknaði
þetta út, gat ég svarað að bragði i
þetta sinnið.”
Brauns þessi kunni 14 tungumál
og var hægt að lesa honum 3
greinar, hverja á sinu málinu og
þýddi hann þær jafnóðum yfir á 4.
málið.
Spyrjið þið bara.”
Að lokum, ein saga af höfundi
Marshallhjálparinnar George C.
Marshall. Hann var yfirhershöfð-
ingi Bandarikjanna i fyrri heims-
styrjöldinni og hafði þá m.a. það
verkefni að svara spurningum
striösfréttaritara. Á einum slik-
um blaðamannafundi hóf hann
fundinn með þvi að segja
„Spyrjið þið bara, herrar minir.”
Og án þess að snerta blað eða
blýant lét hann a.m.k. 60 menn
spyrja sig tvöfalt fleiri spurninga.
Þegarspurningaflóðinu var lokið,
lokaði Marshall augunum i
nokkrar minútur og hóf siðan að
svara. Svörin komu i nákvæm-
lega sömu röð og spurningarnar
höfðu verið bornar upp i. Hann
horfði einatt á þann sem spurt
hafði á meðan hann svaraöi.
Hann notaði um 40 minútur i
þennan blaðamannafund, en ku
hafa svarað með þrumuraustu,
skýrt, nákvæmt og tæmandi.
Þetta ættu allir að geta.
Þeim, sem neita að trúa slikum
sögum, má benda á, að það er
sannað mál, að heilinn getur
numið og munað þrjá milljarða
minniseininga. 1 þetta geymslu-
hús berast stöðugt minnis- og
skynjanaatriði gegnum tauga-
þræði, sem eru mörg þúsund kiló-
metra langir. Þetta er bara
spurning um þjálfun herrar minir
og frúr — um nýtingu orkulind-
anna! Næst þegar Korchnoj kem-
ur, ættu allir að geta lagt á minnið
allar skákirnar sem hann kann þá
að tefla i sjónvarpssal. Hinu skul-
um við þó ekki gleyma, sem einn
ágætur maður benti einu sinni á,
að manninum er gefinn annar
ómissandi hæfileiki, nefnilega sá
að kunna að gleyma.
spennandi staður fyrir börn og fulloröna!
MINI
ein af þeim allra bestu!
Rimini - cin af allra vinsælustu baðströndum
Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólar-
hringinn.
Fyrsta flokks baðströnd, frábærir veitinga-
staðir, fjöldi diskóteka, skemmtistaða og
næturklúbba - allt hjálpast að við að gera
Riminiferðina líflega og skemmtilega frá
morgni til miðnættis - og jafnvel lengur!
Börn og fullorðnir skemmta sér viða saman,
t.d. í tívolí, sædýrasafni, rennibrautasund-
laugum, á hjólaskautavöllum, skemmtigörð-
um og víðar.
Skoðunarferðir til Rómar (2ja daga eða viku-
ferðir), Feneyja, Flórenz, San Maríno og
víðar.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899