Vísir - 25.04.1981, Blaðsíða 12

Vísir - 25.04.1981, Blaðsíða 12
12 VlSIR Laugardagur 25. april 1981 GRÝLUR & GUMAR Svo einkennilegt sem þaö nú er, þá eiga Reykvikingar eöa aörir Stór-Reykvikingar sér ekki almennileg félagsheimili ef frá er taliö heimili þeirra Sel- tirninga. Ennfremur má þaö furöu gegna aö eins fjölmenn samtök og félag Islenskra hljömlistamanna eru, hafi ekki fyrir löngu byggt samkomusal þar sem lifandi tönlistarflutn- ingur á höföi sinu aö halla. Hvaö meö þaö nú eru Samtök alþýöu- tónskálda og tónlistarmanna komin hálfa leiö I félags- heimilaáætlunum slnum þvl samtökin hafa fest kaup á hús- næöi undir starfsemi slna og eru I óöa önn aö safna og safna fyrir þeim skuldum sem hrannast upp. beir hafa veriö duglegir I söfnuninni strákarnir. Strákarnir !!! En hvaö meö stelpurnar? Ekki eru þetta karlasamtök eöa hvaö. Þaö get- ur ekki veriö SATT. SATT stelpur Já, strákarnir hafa veriö og eru enn I meirihluta en stelpurnar, eru aö sækja I sig veöriö, blessaöar grýlurnar þvl nú er fyrsta kvennahljómsveitin komin á legg og þær láta ekki aö sér hæöa valkyrjurnar I Grýlun- um. bau hafa veriö ófá SATT kvöldin sem haldin hafa veriö en tónleikarnir nú, laugardag- inn 18. aprll I Austurbæjarblói sýndu, svo aö ekki veröur um villst aö upp er runniö skeiö þar sem vænta má hressra tónleika I anda þess sem var þegar best lét um og uppúr 1969. Aösóknin aö tónleikunum I Austurbæjarblói 18.04 var sllk aö bæta þurfti viö öðrum tón- leikum til aö metta þörfina, og stemmningin var sllk aö undir- ritaöur man vart sllka „fllingu” I seinni tiö. Viö gömlu hipparnir sem I salnum vorum, fundum gamla góöa strauminn sem gjarnan fór um mann hér áöur fyrr á góöum tónleikum og and- rúmsloftiö I Austurbæjarbiói var rafmagnaö allan tlmann á fyrri tónleikunum þó ýmislegt hafi fariö úrskeiöis hvaö hljóö- blöndun og „sound” snerti. ,,Þursinn þrumaði” Egill Ólafsson opnaði tónleik- ana meö þvi aö klappa og humma ryþma þulu á djassvlsu en fólk gekk I salinn, eftir dá- góöa biö I anddyrinu. Þaö voru slðan Utangarösmenn sem keyröu fyrstu tónana en ekki vildi betur til en svo aö raf- magniö fór af sviöinu hægra megin strax I ööru laginu og setti þaö dagskrána úr skorö- um. Maggi trommari hélt spil- inu áfram meöan menn reyndu aö koma rafmagninu á bassann hjá Rúna og gitarnum hjá Mikka I gagniö. Bubbi kyrjaöi blústóna af innlifun og hélt stuö- inu gangandi. Loksins kom raf- magn á hægri vænginn og Utan- garösmenn keyröu gúanórokkiö á fullu. Tónlist þeirra er komin nær þungu rokki I seinni tiö en áöur var og þó dúndriö væri ágætt, náöi þéttleikinn aldrei að fylla hljómkerfiö. „Hljómur- inn” var fremur sundurlaus vegna lélegs jafnvægis milli hljóöfæra og söngkerfis. Söngurinn náöi aldrei aö hljóma tær I gegnum tónhjúpinn allt kvöldiö. Þrátt fyrir þessa ann- marka var fólkiö I salnum kom- iö til aö skemmta sér og voru áheyrendur misjafnlega vel eöa illa „skemmtilegir” er þeir hentust um salinn eöa veittu til- finningum slnum útrás þar sem þeir sátu vltt og dreift um sal- inn. Utangarösmenn sköpuöu góöa stemmningu og þegar þeir yfirgáfu sviöiö birtist Egill Ólafsson og kynnti hljómsveit Einars „pönk” Benediktssonar, umboösmanns Utangarös- manna. Purrkur Hljómsveitin nefnist Purrkur Pillnikk og vöktu þeir athygli manna meö hinum stuttu þrl- og fjórhljómalögum slnum og „ræöum” þeim sem Einar flutti viö undirleik tríósins. 1 textum Purrksins endurspeglast ör- vænting nútlmamannsins I þjóö- félagi vesturlanda þar sem þekkingin bendir helst til þess aö útrýming mannkyns sé á næstu grösum. Flutningur þeirra félaga kom greinilega ýmsum I salnum I opna skjöldu þvl Einar talar textann mikiö fremur en aö syngja hann I eiginlegri merkingu og hefur jafnframt I frammi áhersluauk- andi látbragö. Aö flutningi Purrksins loknum tilkynnti Egill endurkomu jafnaldra slns I framlinu poppara en þaö er Pétur Kristjáns sem leiöir hljómsveitina Start. Þeir félag- ar fluttu aö mestu lög breskra og ástralskra þungarokk hljóm- sveita auk þess sem þeir fluttu lag af sinni fyrstu plötu. Greinilegt var aö þeir áttu hóp aödáenda i salnum sem fagnaöi flutningi þeirra. Ég heföi þó kosiö aö heyra Start flytja fleiri frumsamin lög en raun bar vitni þetta laugardagskvöld. Með pálmann... Eftir leik Start hefði átt aö vera hlé samkvæmt formúlunni en allt tónleikahaldiö var þá þegar komiö framúr áætluöum tlma svo aö Egill kynnti hljóm- sveitina bey sem vakiö hefur mikla athygli undanfariö. Þeyr hefur unniö aö gerö nýrrar plötu og fluttu „þeyr” ýmist lög af væntanlegri smásklfu, breiö- skífu og plötu þeirri er út kom fyrir jólin meö þeim. An efa má segja aö „Þeyr” hafi staðiö meö pálmann i höndunum á þessum tónleikum. Flutningur þeirra var meö afbrigöum góöur og ef undan er skilin slæm hljóö- blöndun söngs á tónleikunum I heild, aö þá komust „Þeyr” lang best frá sinu þetta kvöld. Þéttleikinn var mjög góður og tónlistin komst vel til skila. Steini fyrrverandi Eikarmaöur hefur haft góö áhrif á hljóm- sveitina og trúi ég að hljóm- sveitin eigi sitthvaö i pokahorn- inu sem koma mun á óvart á næstunni. Grýlur. Grýlurnar voru tvimælalaust sú hljómsveit sem flestir biöu eftir meö eftirvæntingu og spennu I brjósti. Stelpurnar hafa trúlega verið æöi tauga- strektar sjálfar er þær tróðu á sviö I fyrsta skipti. Nikki Róberts bar Grýlu sjálfa, „symbol” hljómsveitarinnar inná sviöiö og á eftir honum og Grýlu, komu fjórar ungar grýlur og tóku sér stööu á sviöi u. Ragnhildur „testaöi mlkró- fóninn” og svo hófst tónlistar- flutningurinn. Ragga sló planóiö, Herdis Hallvarösdóttir þandi bassann, Inga Rún strauk gltarinn og Linda baröi húöirnar. Þaö var greinilega mikil spenna i salnum og hin nýja tónleikakynslóö var sannarlega komin til aö sjá og heyra Grýlurnar leika og syngja. í fyrstunni voru stelpurnar nokkuö strekktar, en er á leiö slakaöa nokkuö á spennunni. Ragga var samt sú eina þeirra sem reglulega gat slakaö á. Bassaleikurinn þótti mér nokkuölipur en gitarinn kafnaöi nokkuö i lélegri hljóðblöndun eöa feimnislegu spili nema hvorutveggna hafi verið. Trommuleikarinn bar merki einfaidleika og kraftleysis. Vel má vera að þetta hafi stafað af spennu einni saman enda meö ólikindum að hægt væri að smala saman I kvennaband á svo stuttum tima. Stelpurnar stóðu sig samt ágætlega, þó margt megi gagnrýna. Ég ætla að láta þá gagnrýni biða betri tíma en óska Grýlunum alls hins besta i þessum endalausa tón- listarheimi Leppalúða. Leppalúðar Og þar sem Leppalúðar eru komnir á blað, að þá voru það Fræbbblarnir sem enduðu tón- leikana I Austurbæjarbiói kl. rúmlega 21.00 þetta laugardags- kvöld. betta voru mestu mistök kvöldsins. Ekki það aö Fræbbb- larnir hafi veriö lélegastir, þvert á móti þeir eru alltaf aö veröa betri og betri meö hverri framkomunni. Máliö er bara einfaldlega þaö aö Fræbbblar- nir hafa þann einstaka hæfi- leika, aö eiga mjög auövelt meö að fá fólk uppá móti sér. Mikill fjöldi tónleikagesta reis þvl úr sætum sinum og gekk út er Fræbbblarnir hófu leik sinn. Það komst á leiðinlegur losara- bragur I enda þessara tónleika sem heföu vel getaö endaö meö þrumu keyrslu. Fólk gekk út á meöan Valli söng FIH, Iöja- grænir Fræbbblar og Stebbi lék fótbrotinn á trommurnar meö aðstoö Magga trommara Utan- garösmanna. Aldrei hef ég heyrt eins pottþéttann ryþma- leik hjá Fræbbblunum. baö eina sem spillti fyrir var hinn ramm- falski bassi Steindórs. Hvað sem ööru llöur aö þá voru þessir tónleikar SATT mög þarfir, og sanna enn einu sinni þörfina á góöum staö sem legg- ur aöaláhersluna á lifandi tón- listarflutning. -jg- „Egill hummaöi ryþma á djassvlsu...” Þeyr stóö meö pálmann 1 höndunum Bubbi hélt stuöinu gangandi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.