Vísir - 25.04.1981, Síða 6
6
Laugardagur 25. april 1981
KfSZR
Fráfarandi stjórn við upphaf aðalfundarins.
Afkoma Flugleida skánar:
Tapiö minnkaöi um
65% fra fyrra ári
Kristjana Milla kosin í stjórn Flugleiða
Innanlandsflugið.
Afkoma innanlandsflugsins
var áfram neikvæð á árinu og
nam hallinn 8,9 milljonum
króna.
„Það er hryggileg staðreynd,
að á siðastliðnum fimm árum
hefur aldrei náöst aö reka
innanlandsflugið hallalaust”.
Sigurður sagði ennfremur, að
verðlagshöftum væri um að
kenna, hvaö reksturinn væri
erfiður.
„Fargjöldin hefðu þurft aö
vera 16,6 prósent hærri siðustu
fimm árin til aö endar næðu
saman”.
Reksturinn á öðrum eining-
um, sem tengjast rekstri Flug-
leiöa eðaeru teknar sem sjálf
stæð fyrirtæki,en Flugleiöir eru
aöili aö eignarlega, gekk mis-
vel. Halli varð á rekstri Hótels
Esju og á Ferðaskrifstofunni
Orval. Rekstur Air Bahama
hefur veriö færður niður i algert
lágmark og Arnarflug hefur
ekki farið varhluta af þeim
erfiðleikum, sem eru I flug-
rekstri. Hins vegar varö hagn-
aöur af rekstri Cargolux og
einnig af Bilaleigu Loftleiða og
Hótel Loftleiðum.
„Vona að við getum
litið bjartari augum
fram á veginn eftir
þetta ár”.
Flugleiöir hafa á undanförn-
um árum tekið að sér verkefni
erlendis og hafa bætt við sig
verkefnum nýlega. Félagið
hefur leigt tvær DC-8 vélar til
Saudi Arabiu. Þá er félagið með
tvær flugvélar á leigu i Lybiu.
Nú I mánuðinum tókst að leigu-
selja eina Boeing 727 til Nigeriu
og Flugleiðir sjá um rekstur á
tveimur DC-8 vélum i vöruflutn-
ingum i Indlandi.
Þessi verkefni hafa verið féla-
inu hagstæð og útvegað mörg-
um mönnum atvinnu.
A6 lokum sagði Sigurður |
Helgason um framtiðarhorf-
urnar:
„Rekstur félagsina siðastliðin
tvö ár hefur verið afar erfiður
sem kunnugt er. Þvi miöur eru
erfiðleikarnir ekki fyllilega að
baki, en ég vona að meiri
árangur náist I rétta átt á þessu
ári en þvi siðasta og að viö get-
um litið bjartari augum fram á
veginn eftir þetta ár”. —ATA
Axel Einarsson, Einar Sigurðsson og ólafur Johnson bera saman
bækur sinar.
örn Ó. Johnson i ræðustól. — (Visism: GVA)
lantshafsrekstrinum nam um 61
milljónum króna.
Evrópuflugið.
Afkoma Evrópuflugsins var
léleg, miðað við fyrri ár. þó
hagnaður hafi numið einni og
hálfri milljón króna. Astæöan
fyrir verri afkomu er meðal
annars sú, að vegna samdráttar
á Norður-Atlantshafinu lendir
sifellt meiri stjórnunar- og
markaðskostnaður á Evrópu-
fluginu. Evrópuflugið nýtur
ekki lengur góðs af hagkvæmni
stórreksturs á Norður-Atlants-
hafinu.
Þá varð átta prósent sam-
dráttur á flutningum á þessum
leiöum, en Flugleiðir halda uppi
reglubundnu áætlunarflugi milli
Islands og sex staöa f Evrópu
allt árið, og til tiu viðkomustaða
á sumrin.
Ekki rúm fyrir fleiri
flugfélög!
Sigurður tók það fram, að þaö
væri skoðun Flugleiða að ekki
væri rúm fyrir nema eitt is-
lenskt flugfélag á millilanda-
leiðum, enda væri það sú stefna,
sem önnur lönd heföu markað,
svo sem Norðurlöndin. „Sann-
leikurinn er sá, að Islenski
markaðurinn er engan veginn
til skiptanna og ég tel aö með
þeirri starfsemi, sem félagiö
hefur haldið uppi, hafi verið
mjög vel á þessum málum
haldið og þessari þjónustu sinnt
með hinum mesta sóma”.
Kristjana Milla Thorsteinsson
var kosin I stjórn Flugleiða á
aðaifundi féiagsins I gær.
Kristjana Milla hefur sem
kunnugt er vakiö athygli fyrir
harðra gagnrýni á Fluglciðir og
ekki sfst forstjóra Flugleiöa,
Sigurð Helgason. Kjósa átti
fjóra menn f stjórnina að þessu
sinni og komu aðeins fram tii-
iögur um fjóra, þannig að
stjórnin var sjálfkjörin.
Áður en stjórnarkjörið fór
fram, var borinn undir fundar-
menn samningur, sem stjórn
Flugleiöa og fjármálaráðherra,
fyrir hönd rikissjóös, höfðu gert
með sér. 1 samningnum var gert
ráð fyrir að fjármálaráðherra
skipaði tvo menn i níu manna
stjórn Flugleiöa.
örn ö. Johnson mælti ein-
dregið með þvi fyrir hönd
stjórnar Flugleiða, að fundar-
menn samþykktu samninginn,
og Kristjana Milla Thorsteins-
son lýsti þvi yfir, að hún og Fjöl-
eignarmenn myndu greiða hon-
um atkvæöi sitt. Útkoman i at-
kvæöagreiöslunni varð sú, aö
handhafar rúmlega 99 prósent
hlutafjárins greiddu samningn-
um atkvæði sitt.
Fréttaljós
Axel
Am mendrup
skrifar
Úr stjórninni áttu að þessu
sinni að ganga þeir örn Ó. John-
son, Siguröur Helgason, Alfreð
Glslason, Óttarr Möller og
Sigurgeir Jónsson. Alfreð Gisla-
son lýsti þvi yfir, að hann gæfi
ekki kost á sér i stjórn, en bað
menn aö veita konu sinni,
Kristjönu Miliu, brautargengi.
Tillaga kom fram um fjóra
menn i ötjórn. þau Sigurð
Heigason, Kristjönu Millu Thor-
stemsson, Orn Ó. Johnson og
Ottarr Mölier óg voru þau sjálf-
kjörin.
Bergur G. Gislason sem unnið
hefur gott og mikiö starf i þágu
Flugleiöa, bauöst til að vikja úr
stjórninni til aö hleypa að full-
trúa rikissjóös, en Bergur hafði
átt að sitja i stjórninni I eitt ár
til viðbótar.
Er aðalfundur hafði kjörið
stjórnina, var tilkynnt hverjir
yröu fulltrúar rikissjóös, þeir
Rúnar B. Jónasson, deildar-
stjóri og Kári Einarsson, yfir-
verkfræðingur.
Aðhald og markvissar
aðgerðir.
1 ársskýrslu Flugleiða, sem
Sigurður Helgason, forstjóri,
flutti kom fram, að tapið á
rekstrinum hafði minnkaö
mikiö frá árinu áður. Rekstrar-
tapið árið 1979 nam næstum
nitján milljónum doilara, en 6,5
milljónum dollara árið 1980.
Þannig minnkaði rekstrartapiö
um 65,6 prósent á milli áranna.
Siguröur sagði að rekstur
félagsins á siðast ári hefði ein-
kennst ööru fremur af aðhaldi
og markvissum aögerðum til að
rétta hag þess eftir áföllin sem
urðu 1979. Það heföi að hluta til
tekist, en enn væri mikiö verk
eftir óunniö.
„Afkoma félagsins er þvi
miöur ekki glæsileg á árinu 1980
og til þess taps liggja nokkrar
megin ástæður”, sagði Sig-
urður. Þær helstu taldi hann
vera veröbólguna, gengistap,
háa vexti, efnahagsástandið á
vesturlöndum, viðtækar sam-
dráttaraögeröir félagsins, sem
fólu i sér timabundin útgjöld,
áframhaldandi tap á innan-
landsflugi og Norður-Atlants-
hafsflugi, og að ekki tókst að
selja Boeing 727-100 flugvél,
sem umfram var I flugrekstrin-
um.
Norður-Atla ntshaf ið.
Sigurður kvað stöðuna á
Noröur-Atlantshafsflugleiðinni
ekki hafa batnað og að ekki sé
útlitið bjartara framundan þar
en verið hefur. Rekstur flestra
ef ekki allra flugfélaga á þeirri
flugleið er enn meö halla.
„Ég held að menn verði að
gera sér grein fyrir þvi i eitt
skipti fyrir öll, að sú aðstaða,
sem hér.var áður fyrr til arð-
vænlegs fiugrekstrar með far-
þega yfir Atlantshafið, milli
endastöðva i Bandarikjunum og
meginlands Evrópu á vegum Is-
lensks flugfélags, er ekki lengur
fyrir hendi”, sagði Sigurður.
Hann sagði að þaö yrði þó
augljóslega aö sjá fyrir þörfum
Islendinga fyrir samgöngur
milli Islands og Bandaríkjanna,
hvaö svo sem yrði um hið hefð-
bundna Norður-Atlantshafsílug.
Tap Flugleiöa á Noröur-At-