Vísir - 25.04.1981, Blaðsíða 14
14
VlSÍR
Laiigardagur 25. april 1981
Stuttar
FerðamálaráO gefur út
fréttablað sem nefnist
Feröamál og er fyrsta tölu-
blað þessa árs nýkomið út.
Þar er að finna ýmsar upplýs-
ingar um feröamál innanlands
og utan og hér á eftir eru tekin
upp nokkur atriði úr frétta-
blaöinu.
Samkeppni
um fiskrétti
1 Noregi kvarta erlendir
ferðamenn undan þvf, eins og
hér á landi, að alltof sjaidan sé
fiskur á boðstólum á veitinga-
húsum. t tilefni af 50 ára
afmæli sinu efndi Norsk Kale-
forbund (norska veitinga-
h ú s a s a m b a n d i ð ) til
verölaunasamkeppni um
bestu uppskriftirnar á fisk-
réttum, er norskir veitinga-
staðir gætu framreitt. Þetta
gæti um leið orðiö gestum
þeirra hvatning til að borða
riskrétti oftar. Danskur
rafvirki vann fyrstu verðlaun
en alls bárust um 60 upp-
skriftir i samkeppnina.
Kvikmynd
um
Norðurlönd
Undirbúningur er hafinn að
gerð nýrrar sameiginlegrar
kynningarkvikmyndar fyrir
Norðurlöndin öll, sem notuð
veröur til sýningar I Banda-
rikjunum og ef til vill viöar.
Fritz Kahlenberg hefur verið
ráðinn til að gera þessa kvik-
mynd, en sá hinn sami ann-
aðist gerð myndarinnar
„They Shouldn’t Call Iceland,
Iceland” sem og siðustu sam-
norrænu myndarinnar, sem
fullgerð var árið 1973.
Ráðunautur
um landið
Ákveöiö hefur verið, að
ráðunautur feröist um landið i
mánaðartima i vor á vegum
Ferðamálaráðs og i samvinnu
við Samband veitinga- og
gistihúsaeigenda og Sam-
band ; islenskra sveitarfélaga.
Skai hann vekja athygli
sveitarfélaga, gisti- og
veitingastaða og annarra
þjónustuaðila ferðafólks á
ýmsu þvi er betur mætti fara i
móttöku og aðbúnaöi
ferðamanna, er þá
heimsækja, og veita leiðbein-
ingar um úrbætur.
Nú verða
allir með
Feröamálaráð tslands og
Iðntæknistofnunin efna til
samkeppni um gerð minja-
gripa i þeim tilgangi að fá
hagleiksfólk, leikmenn sem
hönnuði, til að hrinda hug-
myndum sinum um minja-
gripi I framkvæmd.
Skila skal gripum
fullgerðum ásamt nákvæmum
teikningum, verklýsingum
og framleiösluverði til Ferða-
málaráös fyrir 15. júni. Þar
liggja einnig frammi keppnis-
gögn, sem og hjá Ramma-
gerðinni og lslenskum
heimilisiðnaði.
Gestir þyrptust að Islenska borðinu þar sem Sylvia Briem, klædd fslenskum búningi, sá til þess að allir
gætu smakkað á gómsætum réttunum.
Internationale Tourismus-Börse:
Stærsta feröa-
kaupstefna heíms
haldin i Berlín
Stærsta kaupstefna i heimin-
um á sviði feröamála er haldin
árlega i Berlln og þangað sækir
mikill fjöldi ferðaheildsala og
smásala til að afla nýrra
sambanda og treysta fyrri
tengsl.
1 ár fór þessi kaupstefna fram
um mánaðamótin febrúar/mars
og frá Islandi tóku þátt I henni
Ferðamálaráð, Feröaskrifstofa
Harðar Erlingssonar, Atlantik,
Úrval, Samvinnuferðir-Land-
sýn og Flugleiðir.
Norðurlöndin héldu sameigin-
legan blaðamannafund einn
morguninn meðan á kaupstefn-
unni stóö og var boöið upp á
morgunverð. Hvert land hafði
eigið borð með ýmsum sérrétt-
um frá viökomandi landi og
þótti islenska borðiö I engu
standa borðum hinna að baki.
Tæplega 200 blaðamenn og ljós-
myndarar blaða og sjónvarps
komu I þetta boð sem þótti tak-
ast með miklum ágætum.
Útlán Ferðamálasjóðs námu 525 milljónum:
Mest var lánaó
til Vestfjarða
tJtlán Feröamálasjóös á
slðasta ári námu samtais 525,5
milljónum gkróna. Af einstóK-
um landshlutum fór mest til
Vestfjarða eða 165 milljónir. Þá
fóru 90 milljónir til Vesturlands
og 80 milljónir i Norðurland
eystra. Þar næst kemur
Reykjavik með 50 milljónir, sið-
an Austurland með 48, Norður-
land vestra 43, Suðurland og
Vestmannaeyjar 29.5 og i
Reykjaneskjördæmi voru lán-
aðar 20 milljónir.
Þegar litið er á útlán sjóðsins
frá árinu 1977 til 1980 kemur i
ljós, að þótt lánsupphæð hafi i
heild sexfaldast á þessum ár-
um, hafa lánin i raun farið lækk-
andi frá 1978. Ef útlán þessara
ára eru öll reiknuð á verðlagi
ársins 1977 kemur i ljós að það
ár voru lánaöar 87 milljónir, ár-
ið eftir 168,9, áriö 1979 162
milljónir og á siðasta ári 154
milljónir.
Sæmundur
Guðvinsson
skrifar
Járnbrautar-
ferðir á
N orðurlöndum:
í bígerd
að taka
upp sam-
keppni við
Interrail
Margir kannast við hin
svonefndu Interraii kort sem
gera ungu fólki undir 26 ára
aldri kleyft að feröast með járn-
brautum um Evrópu með mikl-
um afslætti. Þessi kort hafa not-
ið mikilla vinsælda, enda ódýr
og þægilegur ferðamáti.
Nú standa vonir til að sérstök
afsláttarkort fyrir fólk undir
26 ára verði tekin upp hjá
járnbrautum i Noregi, Sviþjóð,
Danmörku og Finnlandi. Lengi
hefur verið unnið að þessu máli
á vegum Norðurlandaráðs og er
þetta hugsað sem svar við
Interrail kortunum og dýrum
flugfargjöldum milli
Norðurlandanna. Jafnframt er
þetta liður i þeirri viðleitni að
auka ferðalög innan
Norðurlanda.
Menningarmálaskrifstofa
Noröurlandaráðs hefur boðiö
norrænu járnbrautunum sam-
starf um sölu á „nord-
turist-billet” fyrir ungt fólk.
Taki þær upp sölu á slikum
kortum við vægu verði, býðst
skrifstofan til, i samvinnu við
Norræna ferðamálaráöið, að
skipuleggja ákveðna feröa-
möguleika milli staða og landa
með gistingu og upplýsingum
um áhugaverða staði til skoöun-
ar. Þessum upplýsingum á
siðan að dreifa i skólum og hin-
um ýmsu samtökum ungs fólks
á Norðurlöndum. Þeir á menn-
ingarskrifstofunni segja, aö
hver hundraðkall sem eytt sé i
farseöil kalli á tvo hundrakalla
til viöbótar i mat, gistingu,
skemmtanir og fleira. Búist er
viö, að menntamálaráöherrar
Norðurlanda muni geta tekið
málið til afgreiöslu á fundi sin-
um i Þórshöfn i júni.
Þótt engar járnbrautir séu á
Islandi kemur þetta kerfi sér að
sjálfsögðu vel fyrir unga Islend-
inga sem geta notfært sér það i
járnbrautarferðum um hin
Norðurlöndin.
Hópferdir til New York
Eftir að John Lennon var
skotinn til bana I New York og
reynt var aö drepa Reagan for-
seta hefur mikið verið rætt og
ritaö um tiðni morða og annarra
stórglæpa I Bandarikjunurn.
Margir hafa þóst þess fullvissir
eftir öll þessi skrif, ab það sé
sama og sjálfsmorö aö gera sér
ferð til Bandarikjanna.
Hvarvetna biði morðingjar,
þjófar og nauðgarar á hverju
götuhorni, viöbúnir aö kasta sér
yfir hvern þann sem hættir sér
út fyrir hússins dyr.
Sem betur fer er þessu ekki
svo fariö, langt þvi frá. Milljónir
feröamanna heimsækja Banda-
rikin á ári hverju og langflestir
þeirra koma heim i ómyrku
ásigkomulagi og án þess að hafa
orðið fyrir áreitni af nokkru
tagi. Sannleikurinn er nefnilega
sá,að óviða I veröldinni finnst
elskulegra og viðmótsþýðara
fólk en einmitt þar vestra.
Astæða þess að þetta er gert
að umtalsefni hér er sú, aö ég
hefi orðið þess var eftir
fyrrnefndar skotárásir, að
margir landar sem aldrei hafa
komið vestur um haf eru
sannfæröir um að lifshætta sé að
koma til New York. En sá sem
ekki hefur komiö til New York
fer mikils á mis.
Þegar rætt er um aö fara til
New York er vanalega átt við
Manhattan. Meira ab segja þeir
sem búa I öðrum borgarhverf-
um tala um að fara til New York
þegar þeir fara á Manhattan.
Það svæði á Manhattan sem
flestir ferðamenn verja tima
sinum á er um hálf mila á
breidd og liðlega mila á lengd.
Mörkin eru i kringum 59. stræti i
norður og 33. stræti i suður,
Third Avenue i austri og Eight
Avenue i vestri. A þessu litla
svæði eru tvær stærstu brautar-
stöðvarnar, skrifstofur flug-
félaga, allar helstu verslanir,
leikhús og næturklúbbar, þekkt-
ustu hótelin sem og Times
Square, Rockefeller Center,
Carnegie Hall, Madison Square
Garden, svo dæmi séu nefnd.
Það þarf þvi ekki að eyða
miklum tima i ferðalög milli
borgarhluta, alit er innan seil-
ingar. Eins og gefur að skilja er
mikill mannfjöidi samankom-
inn á þessu litla svæði og þar
þýðir ekki aö hegða sér á götum
úti eins og i Austurstræti:
hópast saman til skrafs og ráða-
gerða. Það er lika betra að vera
á verði gegn mönnum sem aka
fatahengjum á hjólum milli
verslana. Þeir fara hratt yfir á
gangstéttunum og þegar heyrist
hrópaö „Watch it” er betra að
lita i kringum sig svo ekki verði
árekstur við fatasendlana.
Hópferðir til NY
Litiö er um hópferðir héðan til
Mnur Vnrlr ó trnAnm fnrRo olr
stofa, en mörgum þykir eflaust
öruggara að njóta leiðsagnar
fararstjóra i sinni fyrstu ferð
þangað og alltaf er gott að geta
leitað aðstoðar fararstjóra.
Flugleiðir bjóða nú hópferðir
til New York á hagstæðu verði
fram til 29. mai og er bæði um
að ræöa viku- og helgarferöir.
Verð á vikuferö er frá um 4.600
krónur á mann I tvibýli. Innifal-
ið I verði er flugferðir, gisting,
morgunveröur, akstur til og frá
flugvelli, skoðunarferðir um
borgina og leiðsögn islensks far-
arstjóra.
Þetta er mjög hagstætt verð
og voriö er einn besti timinn til
að heimsækja New York. Hægt
er að velja um gistingu á Loew’s
Summit, sem er á Lexington
Avenue og 51. stræti og Prince
George, en það hótel er niðri i
28. stræti. Við mælum meö
Summit, enda er það betur staö-
sett.