Vísir - 25.04.1981, Qupperneq 19
Laugardagur 25.1 ápríl 1981 Wiit
Jóhannesarpassían
Polifónkórinn
Jóhannesarpassian
eftir J.S. Bach
Flutt á tónleikum I Háskólabiói I
april 1981
Flytjendur:
Pólýfónkórinn i Reykjavik
Kammersveit, konsertmeistari
Rut Ingólfsdóttir
Helztu einsöngshlutverk: Jón
Þorsteinsson (guöspjallamaöur
og tenor-arfur) Graham Titus
(Kristur), Anne Wilkens (alt--
ariur), Eiisabet Erlingsdóttir
(sópran-ariur), Magnús Torfason
(Pétur), Hjálmar Kjartansson
(Pilatus), Kristinn Sigmundsson
(bassa-aríur).
Stjórnandi Ingólfur Guöbrands-
son
Ýmislegt kann að þykja orka
tvimælis i sambandi viö þennan
glæsilega flutning Jóhannesar-
passiunnar. Mönnum kann aö
þykja verkiö betur fallið til flutn-
ings i kirkju en kvikmyndahúsi.
Kórinn var til muna stærri en
Bach haföi nokkurn tima á aö
skipa, og er raunar vafalaust, að
verkiö er hugsað fyrir vel skip-
aðan kirkjukór aöeins, en ekki
söngsveit, sem skipuö er mikiö á
annað hundraö manns. Austur-
landabúningarnir, sem söngfólkið
skartaöi, heföu einnig væntanlega
komiö tónskaldinu „spánskt”
fyrir sjónir.
Passian er eitt af öndvegis-
verkum prótestantlskrar kirkju-
tónlistar. Þeim oröum, sem guö-
spjalliö hefur eftir tilteknum per-
sónum pislarsögunnar, er að visu
skipt milli einsöngvara. og upp-
hrópanir mannfjöldans lagöar I
munn kórnum. En þar meö lýkur
„realisma” þessarar tónsetn-
ingar. Ariurnar fela i sér hugleið-
ingar þýzkra átjándu aldar
manna um pislardauöa Jesú.
Sálmarnir, sem sungnir eru undir
alþekktum kórallögum Lúters-
trúarmanna, eru svipaös efnis.
Hvort tveggja eru innskot tón-
skáldsins i pislarsöguna, sem er
buröarás verksins, — innskot
dökkklæddra og dálitiö strangtrú-
aðra Þjóöverja ekki bakþankar
þess Iitklædda tsraelslýös, sem
krafðist þess, aö Kristur væri
krossfestur, en Barrabas látinn
laus. Rökrétt framhald þeirrar
hugmyndar, sem hér hlýtur aö
liggja að baki, heföi veriö, að
kórnum hefði veriö skipt i tvennt,
og heföi annar helmingurinn, lit-
klæddur, sungiö þau orö, sem
mannfjöldanum i Jerúsalem og á
Golgata eru eignuö, hinn helm-
ingurinn útleggingar siöari tima
manna á þeim atburöum, sem
þarna eru söguefni. Á sama hátt
heföi þá veriö greint á milli sögu-
persóna og söguskýrenda I hópi
einsöngvara.
Pislarsaga Krists, eins og hún
er sögö i Jóhannesarguöspjalli
(meö stuttum innskotum úr Matt-
heusarguöspjalli), er rauöi
þráöur þessa verks, eins og fyrr
var sagt, og á þann þráö eru
þræddar þær tónlistarperlur,
ariur og kórsöngvar, sem skapa
iistgildi verksins. Texti sumra
þeirra er ef til vill ekki mikils
veröur, enda telur tónskáldiö sér
sýnilega frjálst aö fara meö hann
aö vild og láta tónlistina sitja I al-
geru fyrirrúmi. En i tónsetningu
biblíutextans er þessu öfugt fariö.
Þar er þess gætt fyrst og fremst
aö sagan komist til skila, tónlistin
gefur oröunum aöeins auknar
áherzlur og nýjan lit Þessa sögu
hafa Islendingar lesið á móöur-
máli sinu I nærri fjórar aldir, og
fyrir nærri fjórum áratugum var
hún fyrst flutt íslendingum I
þessu verki, og haföi þýzkumæl-
andi maður, dr. Urbancic, sam-
hæft tónlistina og islenzkan texta
guðspjallsins, látið þýöa textana
viö ariurnar, en valiö vers úr
Passiusálmum Hallgrims
Péturssonar til að syngja viö
sálmalögin. Allt þetta held ég aö
hafi veriö mjög vel af hendi leyst,
þó að ef til vill megi finna á þvi
smáhnökra, sem auðvelt væri aö
lagfæra. Tvimælalaust tel ég, aö
þetta verk eigi aö flytja á móöur-
máli I hverju landi, og óneitan-
lega er undrunarefni aö heyra Is-
lenzkan mann segja Islendingum
pislarsöguna á þýzku eins og hér
var.
Um sumt af þvi, sem hér hefur
verið sagt, kunna aö vera deildar
meiningar, og er þaö aö vonum.
En um stórhug, áræöi, metnaö
fórnfýsi og atorku Ingólfs Guð-
brandssonar verður ekki deilt. Og
allt er þaö af hinu góöa. Kórinn
var mjög vel æföur og söngur
hans oft glæsilegur, þó aö ef til
vill megi segja, aö á einstaka staö
hafi um of veriö dvalið viö minni
háttar atriði á kostnaö heildar-
innar. Hef ég þá i huga t.d. hraöa-
val á lokakórnum (Ruht wöhl)
sem olli þvi, aö þessi dásamlega
tónsmiö virtist allt I einu óhóflega
löng og endurtekningasöm. En
kórsöngurinn var annars mjög
blæfagur og styrkleikahlutföll
radda betri en hér er titt I blönd-
uöum kórum. Leikur hljóm-
sveitarinnar var einnig mjög
góöur, þó aö varla geti fariö milli
mála, aö Ingólfur er stórum meiri
kórstjóri en hljómsveitarstjóri.
t hópi einsöngvaranna var
hvert rúm vel skipaö. Jón Þor-
steinsson skilaöi hinu erfiöa hlut-
verki guðspjallamannsins meö
þeirri hógværu alúö, sem þar á
viö, en náöi sér varla á strik aö
sama skapi i ariunum. Þar á viö
annar söngstill og erfitt aö sööla
um svo snögglega sem hér var
þörf á, enda mun mega kalla hlut-
verk guðspjallamannsins sæmi-
legt dagsverk söngvara. Erlendu
söngvararnir, Anne Wilkens og
Graham Titus, voru einnig
ágætir, og einkum var alt-arian
„Es ist vollbracht” (Þaö er full-
komnaö) mjög áhrifamikil.
Kristinn Sigmundsson fór vel meö
bassa-ariurnar tvær, einkum hina
siöari, þótt litt reyndur sé I slik-
um stórræöum. Hann er mjög
vaxandi söngvari.
1 heild voru þessir tónleikar
glæsilegir eins og vikiö var aö I
upphafi þessara orða, enn eitt
mikilsvert framlag Ingólfs Guð-
brandssonar og Pólífónkórsins til
tónlistarflutnings og kristilegs
stórhátíðahalds i landinu, þótt sitt
kunni aö sýnast hverjum um
framkvæmd þeirra I einstökum
atriöum.
Jón Þórarinsson
Einkunn:i
STOR-
SLYS
Charlotte (Mia Farrow) leitar huggunar hjá dúkkum sfnum í Fellibylnum.
Háskólabió: Fellibylur-
inn
Leikstjóri: JanTroell
Aðalhlutverk: Jason
Robards/ Mia Farrow
og Max Von Sydow
Bandarísk/ árgerð<l979.
Ekkert viröist hafa veriö
sparað til myndarinnar Felli-
bylurinn og nær hver einasti
maður sem nálægt gerö hennar
kom er margrómaður fyrir vel
unnin störf i sinni grein. tJtkom-
an er hins vegar ekkert nærri
þvi aö uppfylla þær vonir sem
bundnar eru við slikt einvalalið.
Likast til er hægt að kenna
handritshöfundi, Lorenzo
Semple Jr. um hve illa fer.
Sagan um skólastúlkuna Char-
lotte (Mia Farrow), ást hennar
á Ky rrahafseyjabúanum
Matangi, og ást Bruckners föð-
ur Charlottu á henni vekur ákaf-
lega li'tinn áhuga áhorfandans.
Enþaö er eins og fleiri hafiekki
veriö I essinu sinu, til dæmis er
kvikmyndataka Sven Nykvist
ekki i sam a gæöaflokki og búast
má viö af hans hálfu.
Myndin dregur nafn sitt af
voöalegum fellibyl og flóööldu
sem ganga yfir eyjuna þar sem
ástamálin hafa gerjast. Slikar
hamfarir eiga að öðru iöfnu að
hræra áhorfandann til annarra
tilfinninga en feginleika, en við
að horfa á Fellibyl má óneitan-
lega finna til nokkurs léttis
þegar meiri hluti hrútleiðin-
legra persóna hverfur af sjónar-
sviðinu. Gallinn er bara sá að
sumar leiðindaskjóðurnar kom-
ast lifs af.
Leikstjóri Fellibylisins, Jan
Troell, er þekktastur hér á landi
fyrir Vesturfarana, en hann
hlaut að vonum mikiö lof fyrir
þá. Eitthvaö virðast honum
vera mislagðar hendur, þegar
Fellibylurinn er borinn saman
við Vesturfarana, þvilikur
reginmunur er á gæöum þess-
arra tveggja mynda. Góöir leik-
stjórar hafa svo sem lent i
viðlika ógöngum sem Fellibyl-
urinn er, svo aö nú er bara aö
biöa og vona aö þessi mynd sé
einstakt óhapp hjá Jan Troell.
— SKJ.
hvað,
hvar...?
Forráöamenn Gamla BIós
hafa veriö ólatir viö aö bjóöa
yngri kvikmyndahúsgestum
jpp á gamanmyndir frá Walt
Disney fyrirtækinu. Sýning
3innar slikrar, Geimkattarins,
óófst um páskana. Kettir eru
semsagt ekki bara úti i mýri,
iieldur hafa þeir lagt geiminn
andir sig... Áhugaverðasta
Billy Kramer.
páskamyndin I ár er Kramer vs,
Kramer sem sýnd er i Stjörnu-
biói. Myndin fjallar um skilnað
og deilur hjóna um yfirráöarétt
yfir einkasyninum. Helsti galli
myndarinnar er sá aö orsakir
skilnaöarins fá helst til yfir-
boröslega umfjöllun, en afar
þung áhersla er lögö á til-
finningamálin, svo aö stöku
sinnum jaörar viö væmni. Smá-
vægilegir gallar breyta þvi ekki
aö myndin er ákaflega áhuga-
verö...
I Regnboganum gefur aö lita
Times Square, hressilega mynd
um ævintýri ungiingsstelpna og
einnig hinn margfræga Ffla-
mann, myndina um meöferö
mannkynsins á þeim sem fyrir
útlitssakir mega kailast viöund-
ur... Börn eru einhverjir áhuga-
sömustu biógestirnir, og um
þessar mundir er séö vel fyrir
þörfum þeirra. Tónabió sýnir
Húsiö I óbyggöunum (The
Wilerness Family) um fjöl-
skyldu sem tekur lifiö I óbyggö-
unum fram yfir stressiö I stór-
borginni... tslenska myndin
Punktur punktur komma strik i
Laugarásbiói er bæöi viö hæfi
barna og fullorðna, og þeir sem
ekki hafa séð hana nú þegar
ættu aö fara aö hugsa sér til
hreyfings þvi allar likur eru á aö
sýningum á myndinni I Reykja-
vik taki aö fækka... Austur-
bæjarbió sýnir geimfantasluna
Hclför 2000.. t Nýja bió skylm-
iast feögarnir Beau og Lloyd
Bridges af kappi I gamanmynd-
linni Maöurinn mcð stálgrim-
una.. Borgarbióið býður uppá
gamanmyndina Smokey and the
Judge...