Vísir - 25.04.1981, Qupperneq 20

Vísir - 25.04.1981, Qupperneq 20
20 VtSIR Laugardagur 25. aprll 1981 3. bréf frá kettl- ingnum Depli Ég hitti um daginn 7 ára strák, sem er sér- lega glaður og hress. Hann sagðist heita Kristján Gunnar Þor- varðarson og eiga heima á Húsavik. Um páskana heimsótti Kristján ömmu sina og afa, en þau eiga heima i Kópavogi. — „Ég hef oft áður komið i heimsókn til ömmu og afa i Kópa- vogi”, sagði Kristján og heldur áfram: „Annars á ég margar ömmur og marga afa. Langafi minn á heima á Húsavik eins og við, Kristján Gunnar Þorvarðarson og ég get alltaf heim- sótt hann, þegar ég er heima á Húsavik. Langafi minn orti ljóð- ið, sem ég valdi mér, þegar þú baðst mig að velja ljóð. Hann hefur lika skrifað bækur fyrir börn, ein heitir Berja- bitur. Ég hef lesið hana. — Ertu þá alveg orð- inn læs? — Já, já, ég les heil- mikið. Mér finnst gam- an að lesa og mér finnst lika mjög gaman i leik- fimi. Annars finnst mér mest gaman á skiðum og i fótbolta. Ég keppti á ski ðamóti i vetur og það var skemmtilegt. — Áttu systkini? —Já, ég á tvö. Annað er á þriðja árinu og hitt er á fimmta árinu. Systir min heitir Guð- rún Sigriður og bróðir minn heitir Arnar. Þau eru lika með okkur i heimsókninni hér i Kópavogi. Það er mjög gaman hérna. Ég var i fótbolta með strákum hérna skammt frá núna rétt áður en þú talaðir við mig. SUMARGESTIR Ljóðið i dag velur Kristján Gunnar Þorvarðar- son, Baughóli 18, Húsavik. Hann velur ljóð eftir langafa sinn, Pál H. Jónsson og það heitir Sum- gestir. Og rétt um það bil sem blöðin úr brumunum spretta á trjánum i krónurnar koma þrestir og kvaka þar heilar nætur, en sunnan að sumargestir og setjast um kyrrt i bænumj og amma tekur að yngjast og afi léttist i spori, þvi alls staðar minnir eitthvað á ylinn frá gömlu vori. Á þessum tveimur myndum eru tiu atriði, sem ekki eru eins. Getið þið fundið þau? í dag birtist síöasta bréfið frá kettlingnum Depll sem átti heima um tíma í Gullfiskabúðinni. Þar eiga heima kettir, sem fástgefins, ef keypt- ar eru vörur í búðinni. Depill var búinn að bíða lengi eftir að einhver vildi taka hann að sér og loks kom að því að Depill gekk út. Frá því segir f þriðja bréfinu hans. Þess vegna sjáið þið hann ekki ef þið farið í Gullfiska- búðina. En þið sjáið sjálf- sagt ei nhverja ketti samt. Heilir og sælir, krakkar. Það fór eins og mig grunaði. Nú er ég ekki lengur í Gullf iskabúðinni. Einn daginn kom inn í búðina maður með grátt hár og gleraugu. Hann staðnæmdist fyrir utan glerið á búrinu okkar og horfði á okkur kisurnar, sem vorum inni. Það var ég, litlu kettlingarnir þrír og einn stálpaður kett- lingur, sem kom hingað f gær. Maðurinn með gráa hárið horfði lengi á okkur Ég heyrði að hann sagði við afgreiðslumanninn: „Ég sá, að hann brosti til mía þessi köttur. Þetta hlýtur að vera merkis- köttur." Hann var að tala um mig. Gat það verið að ég væri merkisköttur. Það hlaut að vera eitthvað mjög merkilegt að vera merkisköttur. Ég var yf ir mig ánægður. Ég skyldi svo sannarlega reyna að standa mig, fyrst maður- inn hafði trú á mér. Svo hélt hann á mér út úr búðinni og út í bíl, sem stóð fyrir utan. Þaðan ók- um við sem leið lá út á flugvöll. Þar stigum við upp í glæsilega flugvél og ég var á leið til míns nýja heimilis, og það var ein- hvers staðar i nánd við stað, sem heitir Akureyri, því að gráhærði maðurinn hafði keypt farseðil þangað. Ég var settur í sérstakan kassa, áður en lagtvar af stað. Ég sá því ekki mikið út á leiðinni. En það kom ekki að sök, ég var í sjöunda himni yfirþví að vera á leiðinni heim. og ég tókeftir því að hann horfði mikið á mig. Ég reyndi að vera sætur á svipinn, því að satt að segja er ég orðinn leiður á dvölinni hérna. Ég brosti meira að segja til manns- ins með gráa hárið. Maðurinn gekk svo að afgreiðsluborðinu. Ég sá, að hann var að kaupa fiskamat. Nokkru seinna kom svo afgreiðslu- maðurinn að glerbúrinu okkar kattanna og opnaði dyrnar. O, ég var svo spenntur. Ég gat varla hamið mig, ég stökk niður úr hillunni, sem ég sat á. Og viti menn, afgreiðslu- maðurinn teygði höndina í áttina til mín. Ég stökk á móti honum og út um dyrnar og beint í fangið á gráhærða manninum. Honum brá fyrst, en svo strauk hann mér hlýlega. 1 jSj „ Umlfft: Anna K. Brynjúlfs- dóttir Gledilegt sumar Bless, krakkar Ég hef haft umsjón með þessari siðu, „Hæ krakkar”, frá þvi húnhóf göngu sina á árinu 1977, en mun láta af þvi starfi nú um mánaðamótin. Þetta er þvi siðasta siðan, sem ég mun annast. Ég vil færa öllum þeim fjölmörgu börnum, sem lagt hafa til efni i siðuna á liðnum árum, bestu þakkir fyrir gott framlag. —Anna. Mest gaman í fótbolta og á skídum

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.