Vísir - 11.05.1981, Side 31
31
Manudagur 11. maí 1981
VÍSIR
Jón 09 Valur
íslandsmeistarar
I tvímennlngl
Eins og kunnugt er af fréttum
sigruðu Jón Baldursson og Val-
ur Sigurðsson frá Bridgefélagi
Reykjavikur glæsilega i
Islandsmótinu i tvimennings-
keppni, sem haldið var nýlega i
Domus Medica.
Raunar átti Bridgefélagið
átta af tiu efstu pörunum, sem
er svipað hlutfall og undan farin
ár.
Röð og stiga efstu para var
annar þessi:
stig
1. Jón Baldurss. —
ValurSigurðss. 1445
2. Guðm. Hermannss. —
Sævar Þorbjörnss. 1379
3. Asmundur Pálls —
Karl Sigurhj.s. 1360
4. Guðm. P. Arnars. —
Sverrir Armannss. 1360
5. Eirikur Jónss. —
Páll Valdimarss. 1336
6. Sigurður B. Þorsteinss. —
Gisli Hafliðas. 1323
7. Ingvar Haukss. —
OrwelleUtley 1308
8. Hjalti Eliass. —
ÞórirSigurðss. 1294
9. Sigurður Sverriss. —
HrólfurHjaltas. 1290
10. Jóhann Jónss. —
Stefán Guðjohnsen 1288
Það þarf bæði góða spila-
mennsku og heppni til þess aö
vinna tvimenningsmót með
slikum yfirburðum og hér er
sýnishorn af góðu spili hjá Jóni
og Vali.
Vestur gefur/allir á hættu
K D
A G 8 7 6 3
9 6
K G 7
A 10 8 7 5 4 9
10 5 4 K 9 2
A 7 K D 3 2
A 2 D 9 6 4 3
G 6 3 2
D
G 10 8 5 4
10 8 5
Jón og Valur sátu a-v en and-
stæöingar þeirra voru ekki af
lakari endanum, eða Reykja-
vikurmeistararnir i tvimenn-
ing, Asmundur Pálsson og Karl
Sigurhjartarson.
Sagmr tók fljótt af, Valur i
vestur opnaði á einum spaða,
Asmundur sagði tvö hjörtu og
Jón doblaði.
Jón spilaði út spaðaniu, Valur
drap á ás og spilaði laufaás og
meira laufi (betra hefði ef til vill
verið að spila laufatvist). As-
mundi leist ekki á að svina lauf-
inu, hann tók þvi á kónginn og
spilaði trompi á drottninguna.
Jón drap á kónginn, spilaði
laufi, Valur trompaði og spilaði
spaða. Jón trompaði, spilaði tig-
ulkóng,og meiri tigli. Enn kom
spaði og vörnin hlaut að fá einn
trompslag i viðbót. Það voru 500
til a-v og 19 stig af 22 möguleg-
um.
Ég fékk nefnilega sömu útreið
hjá Guðlaugi og Erni, en núllið
fengu Hjalti og Þórir. Þórir
varð fimm niður doblaða á hætt-
unni og tapaði 1400.
islandsmeistararnir i tvimenningskeppni 1981 Jón Baldursson og Valur Sigurðsson að spila við Orwelie
Utley og Ingvar Hauksson, sem höfnuðu i 7. sæti. Fjöldi áhorfenda fylgdist með keppninni.
Útboð
Hitaveita Eyra óskar eftir tilboðum i
eftirtalin verk:
1. Dreifikerfi hitaveitu á Stokkseyri.
Pipuviddir eru p 20 — ó 150 mm og pipu-
lengd alls um 5500 m.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Eyra, Hafnargötu 10 Stokkseyri,
mánudaginn 25. mai 1981 kl. 14.00.
2. Dreifikerfi hitaveitu á Eyrarbakka.
Pipuviddir eru p 20 — p 150 mm og pipu-
lengd alls um 5500 m.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Eyra, Hafnargötu 10 Stokkseyri,
miðvikudaginn 27. maí 1981 kl. 14.00.
Ctboðsgögn verða afhent i Reykjavik á
verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álfta-
mýri 9 og á Stokkseyri á skrifstofu Hita-
veitu Eyra frá og með þriðjudeginum 12.
mai 1981 gegn 500.- kr. skilatryggingu
fyrir hvort verk.
C
lANDSVIRKJDH
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboð-
um í samsetningu og reisingu stálturna á
hluta af 220 kV háspennulinu milli Hraun-
eyjafoss og Brennimels (Hrauneyjafoss-
linu 1), i samræmi við útboðsgögn 427.
Sá hluti linunnar sem hér um ræðir nær
frá Hvitá að Sköflungi, samtals um 31 km.
Á þessum hluta verða 88 stagaðir turnar
og 3 hornturnar. Verklok eru 15. septem-
ber 1981.
Ctboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68, 108
Reykjavik, frá og með 11. mai 1981, gegn
skilatryggingu að upphæð kr. 300.-
Tilboðum skal skila á skrifstofu Lands-
virkjunar fyrir kl. 11.00 föstudaginn 12.
júni 1981, en þá verða tilboðin opnuð i
viðurvist bjóðenda.
svo ipcfiiiy Svarthóioi
MINN MAÐUR I RÁÐUNEYTINU
Um sinn hefur verið háð
kjaradeila milli rikisins og
fóstra og hefur striðið staðið
milli Þrastar ólafssonar i Qár-
málaráðuneytinu og þeirra
aðila, sem gæta barna á rikis-
spítölum og viðar. Þaö er nefni-
lega orðið þannig i okkar
blessaða þjoðfélagi, aö börn eru
aö verða stór aöili á vinnu-
markaði sem fylgifé þeirra,
scm þurfa að inna störf af hönd-
um i mörgum bráðnauösynleg-
um stofnunum. Að skandina-
vfskri fyrirmynd er lögð áhersla
á, að mæður geti gengið i hvaða
vinnu sem er, þótt þær eigi tvö
eða fleiri börn á fyrsta og öðru
ári, enda ekki búið að láta svo
litið út af atvinnuréttindum
þeirra, og þó einkum frium
þeirra, þegar þær eru barnshaf-
andi og frium barnsfeðra
þeirra, sem þurfa að vera við-
staddir fæðingar, þótt náttúran
krefji þá ekki um annað en vera
viðstadda gctnaðinn sjálfan, en
jafnvel það er að veröa óþarfi.
Hin miklu barnamál á vinnu-
markaöi hafa lcitt af sér stétt
kvenna, sem auðvitað eiga lika
börn og þurfa að sjá fyrir þeim,
en hafa að atvinnu að gæta
barna annarra foreldra á vinnu-
stööum eða sérstökum heimil-
um, sem útivinnandi konur fá
niðurgreidd af þeim konum,
scm vinna heima við uppeidi
barna sinna. Og barnagæsl-
urnar eru þegar orðnar sér
meðvitaðar um launaflokka og
keppa nú einum flokki hærra en
þærhafa haft, enda er lifiö sam-
keppni, þótt reynt sé að gera
alla jafna. Virðast samkeppnis-
greinar ekki lengur vera aðal-
lega á framleiöslustigum,
heldur á vettvangi launaflokka.
Inn i þéssa deilu hefur svo
blandast maður, sem fyrir hönd
fjármálaráðuneytis hefur verið
að hamla gegn samkeppni um
launaflokka, vegna þess að um
leiöog hann gæfi eftir, væri voð-
inn vis upp allan launastiga
BSRB. Nú vill svo til, að þessi
maöur, Þröstur ólafsson, er
gamall og gildur kenninga-
smiður um ótviræðan rétt
launafólks til betri kjara. En
hann situr hins vegar i þessu
dæmi svolitið úti I horni, vegna
þess að fjármálaráöuneytið,
sem jábróðir hans, um allan rétt
launafólks stjórnar, sér ekki
hvaða nauður rekur fóstrur til
að krefjast nýs launaþreps
eftir að samningum við BSRB
er lokið i bili.
Þröstur Ólafsson vill eðtilega
ekki veröa valdur að þvi, eins og
ástatt er, aö BSRB hcllist af
fullum þunga yfir fjármála-
ráðuneytið með launastigapóli-
tik sína uppstokkaða. Hann er
þvi að ströggla við fóstrur þessa
dagana og fær bágt fyrir. En
þetta er minn maður í ráðuneyt-
inu, vegna þess aö menn veröa
aö hafa einhverja reglu i húsum
sinum, jafnvel þótt Marx, sem
þekkti að visu ekki til fóstra a
þvistigi, sem þær eru I dag, hafi
haldiö því fram, aö auöurinn
ætti að ganga til þeirra, sem
ynnu fyrir honum.
Nú er ljóst að Þröstur ólafs-
son umgengst ekki aðra en þá,
sem standa eiliflega i mikilli
kjarabaráttu. Hann á þvi i vök
að verjast í partium, ef hann
hefur tima til að sækja þau, af-
mælisveislum og jarðarförum,
ef um eitthvaö slfkt er aö ræða,
vegna þess að baráttufélagar
hans um hærri launaþrep,
meira timakaup, og stærri getn-
aðarfri, skilja alls ekki, að
slíkur maöur skuli hafa
ábyrgðartilfinningu til að bera,
sem meinar honum aö semja
BSRB út I villtan kaupkröfu-
hasar.
Aftur á móti má Þröstur
Ólafsson vita þaö, að Svarthöfði
styöur þessa baráttu hans og
telur hana til skynsamlegra at-
hafna. En slik yfirlýsing jafn-
gildir náttúrlcga þvi, aö hann
mun varla voga sér út fyrir dyr
næstu vikurnar, nema hann sé
svona ámóta þykkur á skrápinn
og þeir menn, sem vilja hafa
nokkra sannfæringu utan og
ofan viö launaþrepin. Um
barnapössunarpiur er það aftur
á móti að segja, að þær geta
varla látið dug að óska eftir
nýju launaþrepi. Þær vantar
félagsmálapakka og stúdents-
próf, sem jafngitdir þvi, að
innan tiðar verði konum bannaö
að eiga börn nema hafa náð
stúdentsprófi i samfaralist og
uppeldisfræðum. Svarthöfði