Vísir - 15.05.1981, Side 8
8
Föstudagur 15. mal 1981
VtSIR
VÍSIR
útgefandi: Reykjaprent h.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
Fréttastjóri: Saemundur Guðvinsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð-
mundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Árni Sigfússon,
Frlða Astvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Sigþórsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttlr, Magdalena Schram, Páll Magnússon, Sigurjón
Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaður á
Akureyri: GIsli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur
O. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés-
son. Útlitsteiknun: Gylfi Kristjánsson, Magnús Olafsson. Safnvörður:
Eirikur Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjórn: Síðumúla 14, sími 86611, 7 línur
Auglýsingarog skrifstofur: Síðumúla 8, símar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, sími 86611.
Askriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð í lausasölu 4 krónur
eintakið.
Vísir er prentaður í Blaðaprenti, Siðumúla 14.
Haldlítill „happdrættisvlnnlngur”
[ Vísi f gær var sagt frá þeirri
Eitt þeirra töfrabragða sem
ríkisstjórnin hefur troðið upp
með, er að láta það boð út ganga
að breyta megi lausaskuldum
vegna íbúðakaupa í föst lán.
Þegar þessi tilskipun var gef in út
um áramótin. tóku margir henni
með fögnuði, enda fer það ekki
milli mála að stór hópur fólks,
einkum ungt fólk, hefur reist sér
hurðarás um öxl vegna húsnæðis-
kaupa eða bygginga. Þessi þjóð-
félagshópur er skuldugur upp
fyrir haus og stritar myrkranna
á milli og gerir lítið annað en að
matast og sofa f hálfköruðum
íbúðum.
Til skamms tíma komust menn
útúr þessum vítahring á tiltölu-
lega fáum árum, vegna þess að
verðbólgan eyddi skuldunum og
vextir voru hóflegir. Þetta hefur
breyst með hinni nýju vaxta-
stefnu og þeirri verðtryggingu
sem upp hef ur verið tekin víðast
hvar. Er þá ekki mirinst á þá
afdrifarfku breytingu á skatta-
lögunum, þegar vaxtafrádrátt-
urinn var skertur.
Menn þóttust því hafa himin
höndum tekið, þegar ríkisstjórn-
in lét þau boð út ganga, að nú yrði
hlaupið undir bagga með íbúða-
byggjendum og -kaupendum og
skuldabyrðinni létt af þeim með
löngum og hagstæðum lánum.
En ekki er allt sem sýnist.
reynslu sem ungur maður varð
fyrir, þegar hann hugðist snúa
sér til síns banka og fara fram á
skuldabreytingu. ,,Þeir sögðu
mér, að þar sem ég skuldaði
bönkunum út af fyrir sig ekki
yfir 20 þúsund krónur, fengi ég
ekki lánabreytingar þar. Ég var
þó með lausaskuldir í bönkum og
sparisjóðum um áramótin upp á
33 þúsund krónur, fyrir utan allt
annað, en nú kemur í Ijós að
maður verður að skulda 20
þúsund eða meira annað hvort
bara í bönkum eða bara í spari-
sjóðum".
Þar með var sá „happdrættis-
vinningur", sem þessi ungi
maður taldi sig eiga vísan
fokinn út í veður og vind.
Nú hafa bankamenn upplýst
blaðiðað þessi f rásögn sé málum
blandia og það sé vilji banka og
sparisjóða að hlaupa undir bagga
hjá fólki, þótt svo standi á, eins
og að framan er lýst.
Á hitt er einnig bent, sem
skiptir auðvitað höfuðmáli, að
þessar skuldabreytingar eru alls
ekki sá „happdrættisvinningur"
sem látið er í veðri vaka.
Vaxtaaukalán bera nú 43%
vexti og forvextir af víxlum eru
33%. Ef menn vilja breyta
slíkum lausaskuldum í lengri lán
samkvæmt formúlu ríkis-
stjórnarinnar^er boðið upp á 2,5%
vexti og fulla lánskjaravísitölu á
lánið sem nú er 55 til 58%. Skuld-
arinn fær að vísu meira svigrúm
til aðgreiða skuldir sínar á lengri
tíma, en greiðsluupphæðin marg-
faldast að sama skapi. Þannig
reiknast mönnum til að miðað við
10 þús. kr. lán, þurfi skuldari að
greiða 5 milljónir króna þegar
upp er staðið eftir sex ár —
hálfan milljarð gamalla króna.
Það er dálagleg upphæð og
skammvinnur „happdrættis-
vinningur".
Hin miskunnsama hönd og
örlæti rfkisstjórnarinnar hefur
ekki önnur áhrif en þau að ýta
skuldasúpunni á undan sér og
hlaða utan á hana með þeim
afleiðingum að andvirði íbúðar-
innar dygði ekki einu sinni til að
greiða þær skuldir upp.
Það þarf vissulega að gera
fólki kleift að eignast þak yfir
höf uðið. Sú stef na á rétt á sér. En
töfrabrögð eru haldlaus og þeijar
það lánshlutfall, sem Bygginga-
sjóður getur boðið upp á til hins
almenna húsbyggjenda, er auk
þess skipulega rýrt, þá er Ijóst
að stjórnvöld vinna þvert gegn
þeirri stefnu.
Það eru engir „happdrættis-
vinningar" boðnir í húsnæðis-
málum. Allt tal um hagstæðar
skuldabreytingar reynist öfug-
mæli
Fl ökk uí h e ilú hárvá i fls
og hræðsluáróðurs
p
„Ástæðan til þess, að
núverandi ríkisstjórn
verður að vikja, er þátt-
taka Alþýðubandalagsins
í henni. Sá flokkur mis-
nota r völd sín á svo hrika-
legan hátt, að þjóðin get-
ur ekki þolað það leng-
ur", segir Benedikt
Gröndal alþm. í grein
sinni.
Þaö veröur handagangur I
öskjunni á Alþingi út næstu
- viku, en þá veröur þingi aö
ljúka, þvi' að hópur af forustu-
mikinum þingsins fer þá i opin-
bera heimsókn austur I Sovét-
riki,. Þaö er margt, sem ræöur
gangi mála i Islenskum stjórn-
málum!!
Oft hefur verið mikið óðagot á
þingi slðustu daga fyrir þing-
lausnir, og er þaö ekki nýtt.
Hins vegar hefur sjaldan eða
aldrei verið flutt eins mikiö af
málum.sem ráöherrar halda að
unnt sé að lögfesta á nokkrum
dögum. Þetta sýnir reynsluleysi
þeirra og ofstopahátt, en hinir
reyndari, Gunnar, Olafur og
Friöjón, taka ekki þátt I þessu
kapphlaupi. Þótt aöeins væru
tekin þau frumvörp, sem Hjör-
leifur Guttormsson iönaðarráö-
herra hefur lagt fram siðustu
daga, mundi þingiö meö fullum
vilja ekki afgreiöa þau mál á
minna en 2-3 mánuöum.
Hvaö sem þessu líöur, blifur
sú staöreynd, að rikisstjórnin
situr sem fastast og viröist ætla
að gera það a.m.k. fram á
haust. Ytri aðstæöur eru nú
hagstæöar og stjórnarandstæð-
an hefur ekki mannaö sig til að
undirbúa og benda á aöra
hugsanlega stjórn, sem gæti
tekiö viö völdum á einni nóttu,
það er án langrar stjórnar-
kreppu.
Stefna að einangrun
íslands.
Astæðan til þess, að núver-
andi rlkisstjórn verður aö vlkja,
er þátttaka Alþýðubandalagsins
i henni. Sá flokkur misnotar
völd sin á svo hrikalegan hátt,
að þjóðin getur ekki þolaö þaö
lengur.
Alþýöubandalagið er flokkur
ncitunarvalds og hræðsluáróð-
lurs. Þessi tvö orð lýsa full-
komlega stefnu flokksins i
ríkisstjórn. Hvort tveggja hefur
sama tilgang: að einangra
island sem mest frá öðrum
frjálsum rikjum og þjóna al-
þjóðamarkmiðum kommúnism-
ans.
Þjdna alþjóðamark-
miðum kommúnismans
Athugum nokkur atriöi:
1) Alþýöubandalagiötryggöi sér
■i wm wm wm t1 mt mm m
nenunarvald I rikisstjórninni
og getur stöðvað framgang
þeirra mála, sem það vill ekki
að nái fram. Ekki er vitað,
hvað þeirkunna aðhafa kæft i
fæðingu innan stjórnarinnar
fyrir utan þau mál, sem opin-
ber eru.
2) Alþýðubandalagið hefur
stöðvaö flugstöövarbygging-
una og hótar að stöðva oliu-
framkvæmdir I Helguvlk.
Bandalagið mundi stööva
allar framkvæmdir á Kefla-
vikurvelli, leggja niður öll
viðskipti við Varnarliðið og
alla vinnu, ef ólafur
Jóhannesson stæði ekki eins
og klettur i vegi fyrir þvi.
3) Iðnaðarráöherra hefur vis-
vitandi unnið að þvi að spilla
svo orðspori Islendinga, að
erlendir aðilar vilji ekki eiga
við okkur samstarf. Þetta er
bókstaflega i samræmi við
kenningar kommúmsta
erlendis. Þetta er alvarlegur
þjóðarskaði, hvort sem menn
nú vilja meiri eða minni sam-
vinnu viö erlenda aðila.
3) Iönaðarráðherra hefur með
stjórnleysi og skriffinnsku
tafið þróun þjóðarinnar i iðn-
aðar- og orkumálum um
a.m.k. tvö ár.
4) Alþýðubandalagið hefur bar-
ist fyrir þvi að þjóðin yrði
áfram háð Sovétrikjunum um
oliukaup og gegn þvi aö einnig
væri keypt af Bretum, Norð-
mönnum og fleirum.
5) Alþýöubandalagið hefur beitt
neitunarvaldi gegn þvi, að
Island gangi I Alþjóðaorku-
stofnunina, þar sem f rjáls riki
vinna saman I orkumálum.
6) Alþýðubandalagiö hefur bar-
ist harkalega gegn öllum frið-
samlegum lausnum á land-
helgi sdeilum, siðast Jan
Mayenmálinu, en hefur ekki
getað valdið tjóni á þessu
sviði vegna staðfestu forustu-
manna hinna flokkanna.
7) Alþýðubandalagið hefur 1
frammi skipulega herferð
gegn utanrikisstefnu þeirrar
stjórnar, sem það sjálft situr
i.
Hvers konar st jórn í stað-
inn?
1 stað núverandi rikisstjórnar
á að mynda stjórn Sjálfstæðis-
flokks, Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks. Þar er traustur
meirihluti.
Þetta hefur enn ekki tekist
vegna klofnings i Sjálfstæöis-
flokknum og óvildar milli
Gunnarsarms og Geirsarms.
Það er að vlsu ekki mitt hlut-
verk að segja sjálfstæðismönn-
um fyrir verkum og það ætla ég
mér ekki. En vegna þess hve
stjórnarskipti eru mikilsverð,
bendi ég aðeins á þetta:
Forustumenn Sjálfstæðis-
flokksins mundu sýna stjórn-
visku og þroska ef þeir ákvæðu
að fallastá að Gunnar Thoddsen
yrði forsætisráðherra áfram.
Einmitt það mundi gefa þeim
æskilegar aöstæður til að leysa
öll önnur forustuvandamál frið-
samlega og vel.
Af þessum hugleiðingum má
sjá, að það er á valdi Sjálfstæð-
isflokksins, Gunnars- og Geirs-
manna, að gera nauðsynlega-
breytingu. Það er á ábyrgð
þeirra, sem kommúnistar sitja
áfram I rlkisstjórn tslands og
grafa undan sjálfstæði þjóðar-
innar.