Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 1

Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 1
Keflavík 2 Snæfell 1 Keflvíkingar tóku forystu í glímunni við Snæfell | Íþróttir Undrið tónlist Rætt við píanósnillinginn Marc-André Hamelin | Miðopna Teppi handa hetjum Íslenska bútasaumsfélagið styður veik börn | Daglegt líf STOFNAÐ 1913 96. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is „VIÐ munum aldrei leyfa, að hann verði handtek- inn, hvorki af Bandaríkjamönnum, Bretum né nokkrum öðrum,“ sagði aðstoðarmaður sjítaklerks- ins Moqtada Sadr í gær en stuðningsmenn hans hafa háð mannskæða bardaga við bandaríska hermenn í Bagdad og Najaf síðustu tvo daga. Óttast er, að hugsanleg handtaka Sadrs geti kynt undir enn meiri átökum í Írak. CNN sagði í gær, að John Abizaid, yfirmaður bandarísks herliðs í Mið-Austurlöndum, hefði farið fram á að eiga þess kost að fjölga í herliðinu í Írak. Talsmaður banda- rísku herstjórnarinnar í Írak tilkynnti í gær, að ítrekuð hefði verið skipun um handtöku Sadrs en sagt er, að hann haldi til í mosku í borginni Kufa og gæti hans fjölmennt, vopnað lið. Ágreiningur með sjítum Ljóst er, að mikill ágreiningur er með æðstu mönnum sjíta en Ali Sistani erkiklerkur hefur skorað á trúbræður sína að gæta stillingar. George W. Bush Bandaríkjaforseti ítrekaði í gær, að enn væri stefnt að því að færa völdin í hendur Íraka 30. júní en ný skoðanakönnun Pew- stofnunarinnar í Bandaríkjunum sýnir, að í fyrsta sinn er meirihluti landsmanna andvígur stefnu Bush í Írak eða 53%. Telja 57%, að hann hafi enga skýra stefnu í málefnum landsins. Segjast munu verja sjítaklerk Bagdad. AP, AFP.  Segir/16 Fylgismenn hins rót- tæka sjítaklerks á þaki ráðhússins í Basra. INNGANGA Eistlands í Evrópusambandið, ESB, mun verða þúsundum Finna hvatning til að flytja suður yfir Finnska flóa og setjast að hjá frænd- þjóðinni Eistum. Lágt verð á lífsnauðsynjum og lít- il skattheimta eru meðal þess sem helzt gerir Eist- land aðlaðandi kost fyrir Finna, unga sem aldna, samkvæmt upplýsingum frá finnska innanríkis- ráðuneytinu. Eistneska blaðið Eesti Pävaleht hefur eftir Janne Anttikainen í finnska innanríkisráðuneytinu að við því megi búast að þúsundir Finna muni flytja suður yfir sundið á næstu árum. Hún spáir því að yngra fólk, sjálfstæðir atvinnurekendur og ellilífeyrisþegar séu þeir hópar sem Eistland hafi mest aðdráttarafl á. Talsmaður Finnsku stofnunarinnar í Tallinn, Milena Salonen, tjáði AFP ennfremur að Finnar sýndu Eistlandi æ meiri áhuga. „Það er fólk af öll- um stigum sem er að spyrjast fyrir um möguleika á vinnu og húsnæði í Eistlandi,“ segir Salonen. Eesti Pävaleht vitnar í könnun sem gerð var í fyrra, en samkvæmt henni sýndu 16% vinnandi Finna, þ.e. um 400.000 manns, því áhuga að leggja stund á vinnu eða nám í Eistlandi. Þessar horfur á fólksflutningum frá einu hinna eldri og ríkari landa ESB til eins af löndunum sem fá aðild 1. maí í vor, ganga þvert á spár um hugsanlega fólksflutninga frá hinum fátæku fyrrverandi kommúnistaríkjum til Vestur-Evrópu eftir stækkun ESB til austurs. Finnar til Eistlands Tallinn. AFP. NORSKA lögreglan lýsti í gær eftir kunnum glæpamönnum vegna hrottalegs bankaráns í Stafangri en ræningjarnir, sem voru átta og jafnvel tíu, urðu einum lögreglumanni að bana er þeir skutu á lögreglubíla. Er mikill óhugur í Norðmönnum vegna þessa atburðar. Gífurleg leit stóð í gær yfir að ræningjunum en talið var, að einn þeirra hefði særst á fæti. Var öllum vegum til borg- arinnar og í nágrenni hennar lokað en bankaræningjarnir flýðu fyrst á þremur bílum, sem síðar fundust í ljósum log- um. Sást til þeirra á mikilli ferð í veggöngum og að því er fram kemur í norskum fjöl- miðlum þykir það benda til, að einhver Stafangursbúi hafi ver- ið með í ráðum og vitað, að frí var í flestum skólum borgar- innar. Ella hefðu bílarnir ekki komist greiðlega um göngin vegna mikillar umferðar. Lögregluna grunar, að svo- kallað Tveita-gengi, alræmdur glæpaflokkur í Ósló, hafi staðið að ráninu en gengið er þekkt fyrir hrottaskap og bíræfin rán. Talið er, að ræningjarnir hafi komist yfir mikið fé í rán- inu en ekkert hefur þó verið gefið upp um það. Hefur lög- reglan lýst eftir tveimur mönn- um vegna bílstuldar í Ósló en þeir eru taldir hafa tekið þátt í ráninu. Leitar hún einnig fjög- urra annarra manna úr fyrr- nefndu glæpagengi. Óhugur í Norðmönnum Mikill óhugur er í Norð- mönnum vegna atburða gær- dagsins og þá ekki síst vegna dauða lögreglumannsins Arne Sigve Klunglands. Hannes Þ. Sigurðsson, sem spilar fótbolta með Viking Stavanger, sagði í gær í samtali við Morgunblað- ið, að fólk væri mjög slegið vegna þessa atburðar, einkum dauða lögreglumanns, en héldi þó ró sinni. Sagði hann, að lög- reglan leitaði glæpamannanna ákaft og hefði meðal annars lokað ýmsum svæðum í borg- inni vegna leitarinnar, meðal annars útivistarsvæðum há- skólans. Bankaræningja og morðingja ákaft leitað Norðmenn harmi slegnir vegna dauða lögreglumanns Ljósmynd/Stavanger Aftenblad RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur ákært fyrrverandi aðal- gjaldkera Landssíma Íslands hf., Sveinbjörn Kristjánsson, fyrir rúmlega 261 milljónar króna fjárdrátt hjá Landssíma Íslands. Fjórir aðrir sakborn- ingar sæta þá ákæru fyrir aðild sína að málinu. Aðalgjaldkerinn er ákærður fyrir brot á 247. grein almennra hegningarlaga sem kveður á um allt að 6 ára fangelsi fyrir fjár- drátt. Meðákærðu er gefin að sök hylming samkvæmt 254. gr. hegningarlaga sem kveður á um allt að 4 ára fangelsi, en pen- ingaþvætti til vara samkvæmt 264 gr. hegningarlaga sem kveð- ur á um allt að 4 ára fangelsi. Tveir hinna ákærðu, Kristján Ra. Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon, eru ákærðir fyrir að hylma yfir fjárdrátt fyrrverandi aðalgjaldkera Landssímans og er fjárhæðin 120 til 130 milljónir króna. Einnig eru þeir ákærðir fyrir móttöku og ráðstöfun fjár- muna til einkanota. Kerfisbundnar rangfærslur Ákæran er í 97 liðum. Málið verður þingfest fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur 14. apríl þar sem ákærðu verður gefinn kost- ur á að tjá sig um sakarefnið. Efnahagsbrotadeild Ríkislög- reglustjóra hóf síðla maímánað- ar í fyrra víðtæka rannsókn á stórfelldum fjárdrætti fyrrver- andi aðalgjaldkera Landssíma Íslands en upp komst um málið þegar innri endurskoðun félags- ins tók út ákveðna þætti bók- halds þess sem sýndu að kerf- isbundnar rangfærslur voru í bókhaldshugbúnaði fyrirtækis- ins. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í kjölfarið þrjá menn í gæsluvarðhald vegna lögreglu- rannsóknar á meintum auðgun- arbrotum þeirra en tveir hinna síðarnefndu báru því við að þeir hafi tekið við meginhluta fjárins sem lánsfé í nafni fyrirtækis sem þeir áttu. Forstjóri Símans hef- ur vísað því alfarið á bug að Sím- inn hafi nokkru sinni stundað slíka lánastarfsemi. Á blaða- mannafundi sem Síminn efndi til í desember síðastliðnum kom fram að aðalgjaldkeri Landssím- ans væri grunaður um að hafa svikið 261 milljón króna út úr fyrirtækinu og notað samtals um 10 þúsund færslur til að hylja slóð sína. Ákært í einu stærsta fjársvikamáli sem um getur hér á landi Fimm ákærðir fyrir fjárdrátt og hylmingu Eftir ránið í Norsk Kontaktservice í Stafangri, sem er sameiginleg fjárhirsla bankanna þar í borg, flýðu ræningjarnir á þremur bílum, sem þeir kveiktu í er þeir héldu flóttanum áfram á öðrum bíl eða bílum. Er leitin að ræningjunum og morðingjum lögreglu- mannsins einhver sú umfangsmesta í norskri sögu. Brennandi flóttabílar  Hrottalegt/13  Mikið áfall/4 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.