Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Gjafakort er…
…góð lausn að fermingargjöf
Gjafakort Kinglunnar fást á
þjónustu-borðinu á 1. hæð við
Hagkaup. Þau gilda í öllum
verslunum Kringlunnar*
og fást í fjórum verðflokkum:
10.000 kr., 5.000 kr., 2.500 kr.
og 1.000 kr.
*Gildir ekki í VÍNBÚÐINNI.
SKYLMINGAR, ljóðalestur og hljóð-
færaleikur var meðal þess sem fór
fram við borgaralega fermingu á
vegum Siðmenntar í Háskólabíói á
pálmasunnudag, þar sem áttatíu og
fimm ungmenni voru fermd. Þetta
var í sextánda skipti sem borgaraleg
ferming fer fram á Íslandi, en frá
upphafi hafa alls 662 börn verið
fermd á vegum Siðmenntar.
Lífsnauðsynlegt að hafa val
Hope Knútsson, formaður Sið-
menntar, segir að fjöldi þeirra sem
kjósi að fermast borgaralega hafi
vaxið smám saman á undanförnum
árum. Fyrstu árin hafi börnin verið
milli 10 og 20, en síðustu tvö ár hafi
þau verið um 90 talsins. Ferming-
arathöfnin er útskriftarhátíð eftir
þriggja mánaða námskeið þar sem
fjallað er um siðfræði, mannleg sam-
skipti, gagnrýna hugsun, ábyrgð,
frelsi og mannrétt. „Mér finnst lífs-
nauðsynlegt að hafa val í lífinu, því
það eru ekki allir eins. Aðalreglan á
námskeiðinu hjá okkur er að það er
allt í lagi að vera öðruvísi. Þetta er
valkostur sem kemur í veg fyrir að
krakkar standi upp og ljúgi – segist
vera með trú sem þau eru ekki viss
um. Það eru ekki mörg 13 ára börn
sem vita nákvæmlega hverju þau
munu trúa til lífstíðar. Við berum
mikla virðingu fyrir börnum sem
fermast í kirkju vegna einlægrar
trúar, það er ekkert að því,“ segir
Hope.
85 ungmenni fermdust borgaralegri fermingu í Háskólabíói á pálmasunnudag
„Allt í lagi að vera öðruvísi“
Ljósmynd/Anna Fjóla Gísladóttir
„ÞETTA er mikið áfall og allir í bænum eru mjög
uppteknir af þessum skelfilega atburði,“ segir
Rósa Óskarsdóttir, en hún er ein af um 200–300
Íslendingum sem búa í Stafangri og næsta ná-
grenni, en vopnað bankarán var framið þar í gær-
morgun. Talið er að glæpagengi hafi staðið að
ráninu en þjófarnir komust á brott með ránsfeng-
inn og er mikill viðbúnaður í bænum af hálfu lög-
regluyfirvalda.
Rósa, sem hefur búið ásamt eiginmanni sínum
Bjarti Stefánssyni í Stafangri í 20 ár, var í
vinnunni þegar ránið var framið en heimili hennar
er við miðbæinn, skammt frá ránsstaðnum. Hún
segir lögreglumenn úti um allt og hefur lögreglan
í Stafangri fengið aðstoð annarra lögregluemb-
ætta vegna málsins, t.d. frá Ósló. „Það átti enginn
von á því að rán sem þetta yrði framið hérna.
Þetta er hlutur sem maður átti ekki von á. Það
hefur ekkert í líkingu við þetta gerst hér áður.“
Skrítin tilhugsun
Kristján Kjartansson, sem búið hefur í Staf-
angri í 5 ár, segir að fólk í bænum sé nokkuð
skelkað eftir ránið, sérstaklega í ljósi þess að
ræningjarnir komust undan.
„Stafangur er auðvitað ekki stór bær og fólk er
að velta fyrir sér hvernig annað eins geti gerst í
þessum litla bæ,“ segir Kristján. „Ég skil varla
ennþá sjálfur að þetta hafi gerst hérna, að það séu
ræningjar að nota vopn í mjög vel skipulögðu
ráni. Þetta er ekkert sem gerist á hverjum degi
hérna. Það er skrítið að hugsa til þess að lög-
reglumaður hafi verið drepinn. Ég vinn sem dyra-
vörður og hef tekið námskeið hjá lögreglunni.
Þess vegna er ennþá undarlegra að hugsa um
þetta.“
Kristján segir að ákveðnum svæðum í bænum
hafi verið lokað og að lögreglumenn séu víða á
ferli. „Allt í einu uppgötvar maður hvað þessi
glæpaheimur er orðinn harður. Hér er strax farið
að tala um að lögreglan fái að bera vopn.“
Um lítið annað talað
Hannes Þ. Sigurðsson, sem spilar með fótbolta-
liðinu Viking Stavanger, segir að um lítið annað
hafi verið talað í Stafangri í gær en ránið. Hann
segir fólk sem hann hafi rætt við vera slegið yfir
dauða lögreglumannsins en annars sé fólk al-
mennt rólegt. Hann býr rétt utan við Stafangur
en fékk fréttirnar af ráninu er hann kom á æfingu
um morguninn. „Það er búið að loka nokkrum
svæðum í miðbænum og verið er að leita ræningj-
anna á ákveðnum svæðum,“ segir Hannes. Hann
nefnir sem dæmi að útivistarsvæði við háskólann
hafi verið lokað almenningi. „Ég held að fólk sé
ekki mjög hrætt út af þessu. Það er auðvitað
hræðilegt að lögreglumaðurinn skuli hafa dáið, en
annars er almenningur ekki stressaður yfir
þessu.“
Stafangur, sem er svipað stór og höfuðborg-
arsvæðið hér, hefur hingað til sloppið við stór rán
af þessum toga. „Íbúar í Stafanger eru ekki vanir
að þar séu framkvæmd svona stór rán. Ránið var
framið á háannatíma og því þykir gott að engir al-
mennir borgarar hafi slasast er ræningjarnir
lögðu á flótta, skjótandi í allar áttir.“
Fjöldi Íslendinga býr í Stafangri þar sem vopnað rán var framið í gær
Mikið áfall í litlum bæ
Ljósmynd/SCANPIX
Hermaður stendur vaktina við dómkirkjutorgið í
Stafangri á meðan lögreglumenn rannsaka
bankann þar sem ránið var framið í gærmorgun.
FLUGMAÐUR flugvélarinnar sem
hlekktist á í flugtaki við Stóru-Bót í
Rangárvallasýslu á sunnudag telur
sig hafa fengið óvæntan meðvind með
fyrrgreindum afleiðingum. Flugvélin,
sem er eins hreyfils og fjögurra sæta
af gerðinni Jodel DR 220, er mikið
skemmd ef ekki ónýt en flugmaðurinn
og þrír farþegar hans sluppu við al-
varleg meiðsli.
„Ég tók af stað í logni að ég hélt, en
tel mig hafa fengið óvæntan meðvind
sem varð til þess að vélin náði ekki að
fljúga á brautinni,“ sagði flugmaður-
inn sem óskaði nafnleyndar. Með
flugmanninum var 11 ára fósturdóttir
hans og einn farþegi með 13 ára syni
sínum. „Allir komust heilir út úr vél-
inni og héldu ró sinni. Við löbbuðum
upp í sumarbústað minn skammt frá
og ég lét vita af óhappinu. Það þótti
ekki ástæða til að kalla á sjúkrabíl en
farþegarnir fengu far í bæinn með
vinafólki sem átti leið hjá.“
Flugmaðurinn sagði annað hjól vél-
arinnar hafa rekist í barð utan við í
flugbrautina og hafi það dregið úr
hraða hennar. Síðan hafi hún flækst í
girðingarvír sem dró enn frekar úr
hraðanum. Girðingarvírinn hafi hins
vegar ekki verið nein orsök óhapps-
ins.
Fékk óvæntan
meðvind í flugtaki
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Flugvélin er talin mikið skemmd, ef ekki ónýt, og verður flak hennar rann-
sakað hjá rannsóknanefnd flugslysa í Reykjavík.
NOKKUR kurr hefur verið meðal
stuðningsmanna liðs Borgarholts-
skóla í spurningakeppni framhalds-
skólanna vegna tveggja spurninga í
úrslitakeppninni gegn Vezlunarskól-
anum og að sögn aðstoðarskóla-
meistara skólans hefur nokkuð verið
um að hringt hafi verið og kvartað.
Keppendur og þjálfarar liðs
Borgarholtsskóla fóru yfir málin
með dómara keppninnar í gær og
segjast sætta sig við úrslitin og vilja
ekki sjá eftirmál vegna hennar.
Deilurnar standa um tvö atriði
Stefán Pálsson dómari segir
óánægjuna einkum koma frá þeim
sem standi fyrir utan liðið. „Þetta
eru tvö atriði sem deilurnar standa
um. Annars vegar eru einhverjir
sem hafa hnotið um það að við
spurðum í hvaða borg Sing Sing
fangelsið væri. Verzlingar svöruðu
því til að það væri í New York. Sing
Sing fangelsið er í New York fylki,
20 kílómetra frá Bronx þannig að
þetta er úthverfi.
Hitt málið er stærra. Mér heyrist
að sumir einleikarar Sinfoníuhljóm-
sveitarinar hafi eitthvað misskilið
það. Þar var ekki spurt um á hvaða
hljóðfæri konsertmeistari spilaði.
Það var spurt hvaða hljóðfæraleik-
ari í sinfoníuhljómsveit væri nefnd-
ur konsertmeistari. Það var ákveðið
fyrir keppnina að kallað væri eftir
svarinu að það væri sá sem spilaði á
1. fiðlu. Við ákváðum fyrirfram
hvaða svör væru tekin gild en rétt
svar kom ekki. Eftir á að hyggja
hefði orðalagið mátt vera skýrara
en ég stend fyllilega á því að ég hafi
úrskurðað rétt,“ segir Stefán.
Sæmundur Ari Halldórsson einn
þjáfara liðs Borgarholtsskóla segir
liðið ekki ætla að kæra úrslitin.
Svona keppnir ráðast á meðan þær
eru í gangi. Við gerum okkur grein
fyrir því að við áttum að vinna
keppnina á meðan hún átti sér stað.
Við gerðum það ekki og við bara
tökum því. Þetta er umræða sem
einhverjir virðast vera að blása upp
og okkur finnst það afskaplega mið-
ur,“ segir Sæmundur Ari.
Lið Borg-
arholtsskóla
sættir sig við
úrslitin
ÞEIR notendur, sem nýta sér leit-
armöguleikann Draumaeignina á
fasteignavefnum, geta nú fengið
SMS-skilaboð um leið og eign, sem
uppfyllir leitarskilyrði, kemur inn á
vefinn. Tengill á eignina er settur í
eignamöppu viðkomandi sem er búin
til við skráningu. Hana er hægt að
skoða með því að smella á viðeigandi
hnapp í vinstra dálki. Til að panta
SMS-þjónustuna er smellt á hnapp-
inn Draumaeignin vinstra megin á
síðunni og þá opnast innskráningar-
síða. Þar er gefið upp nafn og net-
fang og smellt á Nýskráning ef not-
andi er ekki þegar skráður. Í
framhaldi fær hann sendan tölvu-
póst með lykilorði. Þá er hægt að
tengjast Draumaeigninni og skil-
greina leit og gefa henni nafn. Þeir
sem þegar eru skráðir notendur nota
gamla lykilorðið.
Gefa þarf upp farsímanúmer og
velja hversu mörg skilaboð notand-
inn vill fá dag hvern. Þegar leitin er
vistuð með því að smella á hnappinn
Skrá leit opnast síða þar sem far-
símanúmerið birtist og smellt er á
Áfram. Í framhaldi berst notandan-
um lykilnúmer sem hann þarf að slá
inn til að virkja þjónustuna. Þetta
þarf einungis að gera einu sinni.
Hvert SMS-skeyti kostar 49 krónur.
Ný SMS-
þjónusta á
fasteigna-
vef mbl.is