Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ VALGERÐUR Sverrisdóttir, ráð- herra byggðamála, kvaðst á Alþingi í gær vonast til þess að farsæl lausn fyndist í atvinnumálum á Djúpavogi. „Sú lausn er ekki fundin á þessari stundu en viðræður standa nú yfir milli aðila þar,“ sagði ráðherra. Um- mælin féllu í umræðu utan dagskrár um atvinnumál á Djúpavogi. Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, var málshefjandi umræð- unnar. Hann sagði að óvissa ríkti í at- vinnumálum á Djúpavogi vegna kaupa Eignarhaldsfélagsins Kers hf. á sjávarútvegsfyrirtækinu Festi á Djúpavogi. „Verið er að selja þær veiðiheimildir sem hafa tryggt um- svif í veiðum og vinnslu uppsjávar- fisks á staðnum undanfarin ár,“ sagði hann. „Heimamenn fá enga rönd við reist í kerfi fulkomlega frjáls fram- sals veiðiheimilda án nokkurra teng- inga eða trygginga fyrir byggðirnar.“ Steingrímur sagði að í húfi væru 40 til 50 störf eða allt að 35 ársverk ef fram héldi sem horfði. Hann vitnaði að lokum í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar og spurði hvað liði efndum á ýmsum yfirlýsingum þar, m.a. þeirri að leitast yrði við að styrkja stöðu sjávarbyggða. Ekki leyst á einu bretti Valgerður Sverrisdóttir sagði að vissulega hefði verið óvissa í atvinnu- málum á Djúpavogi að undanförnu. „En vonir mínar standa til þess að farsæl lausn finnist á málum þar. Sú lausn er ekki fundin á þessari stundu en viðræður eiga sér stað milli aðila.“ Ráðherra sagði erfitt að draga álykt- anir um stöðu sjávarbyggða á landinu út frá því sem væri að gerast á Djúpavogi. „Við vitum þó að fleiri sjávarbyggðir eiga í erfiðleikum af mismunandi ástæðum. Þetta ástand er ekki bundið við einn landshluta frekar en annan. Hinu má þó ekki gleyma að í öllum landshlutum eru byggðarlög sem hafa styrkst.“ Ráð- herra sagði ennfremur að ríkisstjórn- in gerði sér fyllilega grein fyrir því að óvissa gæti komið upp í sjávarbyggð- um landsins og að hún myndi áfram leitast við að styrkja stöðu þeirra. Nefndi hún í því sambandi ýmsar að- gerðir sem ríkisstjórnin hefði gripið til s.s.úthlutun byggðakvóta víða um land. „Ég vil að lokum geta þess að Byggðastofnun hefur frá sl. sumri unnið að því að meta stöðu sjávar- byggða í landinu. Sveitarfélögunum hafa verið sendir spurningalistar og staðirnir í kjölfarið heimsóttir til að fá gleggri mynd af ástandinu. Nið- urstaða matsins mun væntanlega liggja fyrir snemmsumars og mun það gera stjórnvöld betur í stakk bú- in til að greiða og taka á þeim málum sem upp kunna að koma.“ Sagði ráð- herra að síðustu að málefni sjávar- byggða yrðu ekki leyst í eitt skipti fyrir öll. Mikilvægt væri á hinn bóg- inn að nýta styrkleika byggðanna. Stóriðja á Austurlandi myndi t.d. skipta gríðarlega miklu máli fyrir landsfjórðunginn, þar á meðal fyrir Djúpavog. Einnig sagði hún miklar vonir bundnar við fiskeldi á Djúpa- vogi og að það myndi skapa mörg störf í framtíðinni. Valgerður Sverrisdóttir við umræður utan dagskrár um atvinnumál Vonast til þess að farsæl lausn finnist Morgunblaðið/Golli Þingmenn og viðskiptaráðherra ræddu óvissu í atvinnumálum á Djúpavogi. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði á Alþingi í gær að ákvörðun Bandaríkjamanna um að stórauka eftirlit með ferðamönnum til landsins væri því miður vitnis- burður um aukna öryggisgæslu í heiminum vegna hryðjuverka og glæpastarfsemi. Hann bætti því við að efasemdir væru þó uppi um að þetta herta eftirlit Bandaríkjamanna myndi gagnast þeim vel. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu um helgina munu reglur um að taka fingraför og ljósmyndir af þeim sem koma til Bandaríkjanna verða hertar frá og með 30. septem- ber nk. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vakti máls á þessu í upphafi þingfundar á Alþingi í gær. Sagði hún m.a. að Evr- ópusambandið íhugaði að gera svip- aðar kröfur og Bandaríkjamenn á Schengen-svæðinu. Þórunn sagði að ástæða væri til að hafa áhyggjur af því hver hefði umræddar upplýsing- ar með höndum og hvernig með þær yrði farið. Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng og hvatti til þess að var- lega yrði stigið jarðar, þegar reglur um aukið eftirlit ætti að auka. Þór- unn spurði síðan utanríkisráðherra um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við þessum hertu reglum. Lítið rætt enn sem komið er Fram kom í máli ráðherra að þess- ar nýju reglur Bandaríkjamanna hefðu lítið verið ræddar á vettvangi ríkisstjórnarinnar. „Dómsmálaráð- herra mun að sjálfsögðu ræða þessi mál við önnur Schengen-lönd á þeim vettvangi,“ sagði hann. Ráðherra minnti jafnframt á að í Bandaríkj- unum hefðu verið samþykkt lög sem gera ráð fyrir því að upplýsingar um lífkenni, þ.e. fingraför og myndir, yrðu í vegabréfum þeirra sem koma til landsins. Bandarísk stjórnvöld teldu á hinn bóginn að þau yrðu ekki tilbúin að taka þær reglur upp fyrr en haustið 2006 „og ég reikna með að önnur ríki séu ekki tilbúin til þess heldur,“ bætti ráðherra við. Utanríkisráðherra sagði að teknar væru myndir af öllum þeim ferða- mönnum sem kæmu hingað til lands, en farið væri með þær upplýsingar skv. íslenskum lögum um persónu- vernd. „Það er okkur mjög í mun að Keflavíkurflugvöllur sé talinn örugg- ur flugvöllur,“ sagði hann. „Auðvitað gerum við okkur öll grein fyrir því að þessi stígur er vandrataður. En við búum við vaxandi glæpastarfsemi og hryðjuverkastarfsemi í heiminum.“ Ráðherra sagði að aukið eftirlit kæmi við frelsi einstaklinga til að ferðast. „Ef einstaklingar vilja ekki ferðast til Bandaríkjanna á þessum forsendum þá geta þeir að sjálfsögðu tekið ákvarðanir um það. En ég held að tími vaxandi öryggiseftirlits sé því miður kominn.“ Öryggiseftirlitið kæmi til með að vera áfram við lýði þótt erfitt væri að sætta sig við það. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um aukið eftirlit með ferðamönnum Tími vaxandi ör- yggiseftirlits því miður kominn ÞINGFLOKKAR Frjálslynda flokksins og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hafa óskað eftir því við forsætisráðherra, Davíð Oddsson, að í Þingvallanefnd verði fulltrúar frá öllum þingflokkum á Alþingi. Sam- kvæmt núgildandi lögum um friðun Þingvalla, frá árinu 1928, er Þing- vallanefnd skipuð þremur alþing- ismönnum. Guðjón A. Kristjánsson, Frjálslynda flokknum og Stein- grímur J. Sigfússon, Vinstri grænum, greindu frá þessum óskum flokkanna í umræðum á Alþingi í gær um nýtt Þingvallafrumvarp ríkisstjórn- arinnar. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að hið friðhelga land á Þingvöllum verði stækkkað úr 40 ferkílómetrum í 237 ferkílómetra. Þingmenn sem þátt tóku í umræðunum kváðust almennt ánægðir með frumvarpið. Frumvarp um Þingvallavatn Fram kom í máli Sivjar Friðleifs- dóttur umhverfisráðherra að hún hygðist á næstu dögum leggja fram á Alþingi frumvarp um verndun Þing- vallavatns. Kvaðst hún gera ráð fyrir því að frumvarpið yrði afgreitt frá ríkisstjórninni á næstu dögum. Þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að leggja það fram á Alþingi og taka það til meðferðar. Allir þingflokkar eigi fulltrúa í Þingvallanefnd LAGT hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga sem gerir ráð fyrir að opinber birting og framlagning álagningar- og skattskráa lands- manna verði lögð af. Fyrsti flutn- ingsmaður frumvarpsins er Sig- urður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Meðflutnings- menn eru ellefu aðrir þingmenn sjálfstæðismanna og einn varaþing- maður Framsóknarflokksins, Páll Magnússon. Í greinargerð frum- varpsins segir m.a. að veigamestu rökin að baki frumvarpinu séu þau að telja verði að birting álagningar- og skattskráa brjóti gegn rétti ein- staklinga til friðhelgis einkalífs. „Fjárhagsmálefni einstaklinga eru meðal viðkvæmustu persónuupplýs- inga í nútímasamfélagi sem eðlilegt og sanngjarnt er að fari leynt.“ Opinber birting álagningarskráa verði lögð af TÓLF þingmenn hafa lagt fram á Al- þingi frumvarp þess efnis að einka- sala Áfengis- og tóbaksverslunar rík- isins, með annað en sterkt áfengi, verði aflögð, en með sterku áfengi er í frumvarpinu átt við áfengi með meiri vínandastyrk en 22%. Fyrsti flutn- ingsmaður er Guðlaugur Þór Þórð- arson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Meðflutningsmenn koma úr Samfylk- ingu og Framsóknarflokki auk Sjálf- stæðisflokks. Í greinargerð frumvarpsins segir m.a. að hið opinbera hafi dregið sig úr atvinnurekstri á mörgum sviðum á undanförnum árum og áratugum. „Nú er svo komið að til algerra und- antekninga heyrir ef ríki eða sveit- arfélög standa í verslunarrekstri. Ein þeirra undantekninga er sala á áfeng- um drykkjum til einstaklinga en Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur enn sem komið er einkaleyfi á að selja almenningi áfengi í smá- söluverslun auk heildsöludreifingar á tóbaki og efni til tóbaksgerðar,“ segir í greinargerð. Þar er jafnframt lagt til að áfengisgjald verði tekið til skoð- unar en það hafi farið lækkandi í ná- grannalöndum. Hér á landi hafi það hins vegar farið stöðugt hækkandi. „Ljóst er að of hátt áfengisverð leiðir til þess að ákveðinn hópur fólks leitar annarra úrræða. Heimabrugg og smygl á áfengi hefur verið vandamál og ljóst er að ákveðin fylgni er milli áfengisverðs og heimabruggunar og smyglaðs áfengis.“ Einkasala ÁTVR á léttu víni verði aflögð LÖGFRÆÐINGUR Stéttarfélags verkfræðinga bendir á í grein í nýj- asta tölublaði Verktækni, að hættur geti fylgt því að starfsmenn fallist á að hafa í ráðningarsamningi sínum ákvæði um vistarbönd, þ.e. að hverfa ekki til starfa hjá samkeppnisaðila í tiltekinn tíma eftir að þeir hætta störfum hjá þeim sem þannig er sam- ið við. Tilefnið er dómur í Hæstarétti í október sl. þar sem starfsmaður var dæmdur til að greiða fyrrverandi at- vinnuveitanda bætur þar sem hann hóf störf hjá samkeppnisaðila áður en tveggja ára umþóttunartími var lið- inn eins og samist hafði um. Verktækni er fréttabréf Verk- fræðingafélags Íslands, Stéttar- félags verkfræðinga og Tæknifræð- ingafélags Íslands og skrifar Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur Stéttar- félags verkfræðinga, umrædda grein. Lára segir í upphafi greinar- innar að færst hafi í vöxt síðustu 5 til 10 ár að atvinnurekendur geri það að skilyrði fyrir ráðningu eða launa- hækkunum að starfsmaður undirriti yfirlýsingu um að þeir muni ekki fara til starfa hjá samkeppnisaðila í tiltek- inn tíma eftir að þeir ljúka starfi hjá viðkomandi fyrirtæki. Í sumum þess- ara samninga séu einnig févítis- ákvæði, þ.e. að starfsmanni beri að greiða fyrri atvinnurekanda tiltekna upphæð vegna starfa hjá nýjum vinnuveitanda. Samið um vistarbönd Í máli sem lögfræðingurinn vitnar til höfðu vinnuveitandi og starfsmað- urinn, sem er rafeindavirki, gert skriflegan ráðningarsamning vegna launahækkunar í maí 2000. Þar var ákvæði um að starfsmaðurinn réði sig ekki til fjögurra tiltekinna fyrir- tækja í tvö ár eftir að hann hætti hjá sínu fyrirtæki. Að öðrum kosti yrði lagt á hann févíti að upphæð 12 þús- und krónur á dag. Maðurinn hætti hjá fyrirtækinu í ágúst 2001 og hóf störf hjá einu þeirra fjögurra fyrir- tækja sem tiltekin voru í samningn- um eftir að hafa verið atvinnulaus um tíma. Fyrrverandi vinnuveitandi manns- ins stefndi honum og krafðist greiðslu bóta. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði rofið samninginn og að hann hefði ekki skert atvinnufrelsi hans með ósanngjörnum hætti. Vinnuveitand- inn krafðist rúmlega þriggja milljóna króna í bætur en Hæstiréttur taldi þær hæfilegar 900 þúsund krónur. Var talið að þar sem stefndi hefði ráð- ið sig sem launaðan starfsmann en ekki stofnað eigið fyrirtæki megi líta til mánaðarlauna hans og hækkunar er hann fékk við samninginn fremur en greiðslu dagsekta. Manninum var einnig gert að greiða 400 þúsund krónur í málskostnað. Málið dæmdu Hrafn Bragason, Garðar Gíslason og Pétur Kr. Haf- stein. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður sýknað manninn af kröfu vinnu- veitandans fyrrverandi. Komst hann að þeirri niðurstöðu að samkeppnis- ákvæðið í ráðningarsamningnum hafi skert atvinnufrelsi mannsins. Hann sé því ekki bundinn af því ákvæði og honum beri því ekki að greiða bætur. Næg vernd í samkeppnislögum Árni B. Björnsson, framkvæmda- stjóri Stéttarfélags verkfræðinga, segir að fyrir fáum árum hafi verið mikið um ákvæði sem þessi í ráðning- arsamningum en þau hafi frekar minnkað síðustu misserin. Stafi það að nokkru leyti af samdrætti og minna hafi verið um ráðningar að undanförnu. Segir hann stéttarfélag- ið fremur mótfallið þessum ákvæðum og bendir á að í samkeppnislögum sé ákveðin vernd fyrir fyrirtækin. Skýrt sé að starfsmenn megi ekki taka gögn eða búnað frá vinnuveitanda þegar þeir hætti störfum þar, slíkt væri stuldur og það ætti að nægja fyrirtækjunum. Einnig sé stundum samið um að starfsmaður megi ekki starfa fyrir viðskiptavin fyrrverandi vinnuveitanda hjá nýjum vinnuveit- anda. Hins vegar hljóti menn alltaf að flytja með sér reynslu og þekkingu þegar þeir færa sig milli vinnuveit- enda eftir langa vist. Fyrirtækin séu því í raun bæði þiggjendur og veit- endur í þessu samhengi. Árni segir að lokum að dómur Hæstaréttar sé sérstakur að því leyti að hann dæmi manninn fyrir samn- ingsrof en hverfi frá ákvæðunum um dagsektir. Segir hættur geta fylgt samningum um vistarbönd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.