Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 13
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
Sumarvörurnar
komnar
OROBLU ráðgjafi verður
í dag kl. 14-18
í Lyf og heilsu Austurveri
og á morgun kl. 14-18
í Lyf og heilsu Kringlu.
Sokkabuxur fylgja
öllum Oroblu vörum
sem kaupauki.
LÖGREGLUMAÐUR hlaut ban-
væn skotsár er lögreglan í Staf-
angri í SV-Noregi reyndi að stöðva
vopnaða ræningja sem rændu
banka í miðborginni í gærmorgun.
Ránið er eitt hið umfangsmesta og
hrottafengnasta sem um getur í
sögu Noregs.
Ræningjarnir, sem taldir eru
hafa verið allt að tíu, komust allir
undan. Nokkru eftir ránið lýsti lög-
reglan eftir fjórum þekktum af-
brotamönnum og birti nöfn þeirra
og myndir af þeim. Samkvæmt upp-
lýsingum TV2-Nettavisen tengjast
fjórmenningarnir svonefndu
Tveita-gengi í Ósló og hafa allir leg-
ið undir grun um að hafa verið við-
riðnir nokkur rán á peningaflutn-
ingabílum í Austur-Noregi. Einn
hinna eftirlýstu hefur áður verið
dæmdur fyrir manndráp og allir
kváðu þeir hafa langa sakaskrá.
Þaulskipulagt
Ránið var greinilega þaulskipu-
lagt en það fór þannig fram, að hóp-
ur manna, allir íklæddir felulita-
búningum með skotheld vesti og
gasgrímur, ruddust um kl. átta að
staðartíma út úr sendiferðabifreið-
um inn í húsnæði NOKAS (Norsk
Kontantservice) við dómkirkju-
torgið í Stafangri, en NOKAS er
dótturfyrirtæki margra norskra
banka og annast m.a. reiðufjár-
flutninga.
Um leið og ránið var framið var
vörubíl ekið fyrir innaksturshliðið
að lögreglustöðinni í miðborginni
og kveikt í honum. Eldurinn
slokknaði þó, en í ljós kom að í bíln-
um voru margir stórir plastbrúsar
fullir af benzíni; það var því greini-
lega ætlun ræningjanna að mikið
bál blossaði upp í vörubílnum.
Lögreglan komst út um annað
hlið og veitti ræningjunum eftirför.
Þeir spöruðu ekki skothríðina á
flóttanum og hæfðu lögreglubílinn
sem fyrstur var á vettvang. Einn
lögreglumaður dó. Ræningjarnir
hleyptu að minnsta kosti 30–40
skotum af, en þeir voru vopnaðir
sjálfvirkum skammbyssum og hríð-
skotarifflum. Á flóttanum hentu
ræningjarnir einnig út gaddamott-
um til að sprengja hjólbarða lög-
reglubíla sem eltu þá.
Flóttabílar ræningjanna fundust
síðar í ljósum logum sunnan við
borgina.
Ekki lá fyrir í gær hve mikla fjár-
muni ræningjarnir hefðu haft upp
úr krafsinu.
Einn ræningjanna
sagður hafa særzt
Stórum hluta miðborgar Stafang-
urs var lokað fyrir umferð vegna
rannsóknar málsins og leitarinnar
að ræningjunum. Þyrlum var beitt
við leitina og landamæra-, hafna- og
flugvallayfirvöldum gert viðvart.
Fréttavefur Aftenposten hefur
eftir Olav Sønderland, lögreglu-
stjóra á Rogalandi, að ræningjarnir
og lögreglan hefðu skipzt á mörg-
um skotum og lögreglumaður hlotið
skotsár sem reyndust banvæn.
Sagði hann einn ræningjanna
sennilega hafa særzt á fæti, en
hann komst samt undan með hjálp
ránsfélaga sinna.
„Við heyrðum háværa smelli.
Fyrst héldum við að þetta væri
bara frá byggingarvinnu, en hávað-
inn hélt bara áfram. Það heyrðust
fleiri og fleiri skothvellir. Rétt utan
við bankabygginguna sáum við tvo
ameríska sendibíla og þriðja bílinn
sem í sátu þungvopnaðir menn. Þá
héldum við að einhvers konar æfing
væri í gangi. En þegar við sáum bíl
með skotgötum gerðum við okkur
grein fyrir að þetta var fúlasta al-
vara,“ hefur Aftenposten eftir
Gunnar Rønnestad, sem starfar á
biskupsstofu Stafangursbiskups-
dæmis, sem er til húsa næst við
bankabygginguna.
Hrottalegt
bankarán í
Stafangri
Lögreglumaður skotinn til bana
AP
Lögreglumaðurinn, sem lét lífið, sat í þessum bíl sem ræningjarnir skutu á þegar þeir flúðu eftir bankaránið í gær.
Sýklavopnaverksmiðj-
ur „voru aldrei til“
Washington. Los Angeles Times.
Roberts lét
þessi orð falla eft-
ir að Colin Powell,
utanríkisráðherra
Bandaríkjanna,
beindi í vikulokin
í fyrsta sinn ber-
orðri gagnrýni að
bandarísku leyni-
þjónustunni fyrir
að hafa látið hon-
um í té það sem nú hefði komið í ljós
að voru gallaðar upplýsingar, sem
hann notaði til að réttlæta innrásina í
Írak.
Powell sagði að „áhrifamest“ af
ásökunum þeim sem hann bar á
ráðamenn í Írak í fyrirlestri sínum í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna 5.
febrúar 2003 hefði verið sú að þeir
réðu yfir leynilegum sýklavopna-
verksmiðjum, földum í gámum sem
fluttir væru á milli staða á vörubíls-
pöllum eða járnbrautarvögnum.
Þessi ásökun hefði greinilega byggzt
á vafasömum upplýsingum frá leyni-
þjónustunni. Skoraði ráðherrann á
rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings
sem nú er að kafa ofan í aðdraganda
Íraksstríðsins að skoða hvernig
þessar gölluðu upplýsingar voru
fengnar.
Þessi ummæli Powells eru kú-
vending frá fyrri ummælum hans um
málið; hann hafði áður aðeins viður-
kennt að sérfræðinga greindi á um
áreiðanleika upplýsinganna, en hafði
aldrei gengið svo langt að gagnrýna
leyniþjónustuna berum orðum eða
vefengja gögnin frá henni.
FORMAÐUR leyniþjónustunefndar
öldungadeildar Bandaríkjaþings
sagði á sunnudag að meintar hreyf-
anlegar sýklavopnaverksmiðjur
Íraksstjórnar Saddams Husseins
hefðu að öllum líkindum „aldrei verið
til“ og gagnrýndi harðlega vinnu-
brögð leyniþjónustunnar í aðdrag-
anda Íraksstríðsins.
Nefndarformaðurinn, Pat Rob-
erts, er repúblikani frá Kansas og er
þekktur fyrir að vera almennt mikill
stuðningsmaður CIA og ríkisstjórn-
ar George W. Bush forseta, en hann
sagði að það hvernig gallaðar upp-
lýsingar leyniþjónustunnar um
meintar færanlegar sýklavopna-
verskmiðjur Íraka hefðu verið not-
aðar hefði verið „niðurlægjandi fyrir
alla“.
Colin Powell
Colin Powell gagnrýnir bandarísku leyniþjónustuna
MIKIL deila hefur nú brotist út í
Ástralíu eftir að ísframleiðandi hóf
sölu á Magnum-íspinnum með
trönuberjavodkabragði. Samtök
fólks sem berst gegn útbreiðslu
vímuefna hafa gagnrýnt tiltækið og
segja, að íspinnar sem þessir venji
börn á alkóhólbragð allt of snemma
á lífsleiðinni. Ástralir megi ekki við
því að slá slöku við með þessum
hætti, áfengisneysla sé mikið
vandamál í landinu. Framleiðandi
íspinnanna segir hins vegar að ekk-
ert áfengi sé í ísnum og að fram-
leiðslunni sé hvort eð er ætlað að
höfða til fullorðinna.
Reuters
Sakleysislegur íspinni
ÍBÚAR Indónesíu gengu að kjör-
borðinu í gær en kosningarnar eru
sagðar með þeim umfangsmestu og
flóknustu sem haldnar hafa verið.
Alls eru 147 milljónir manna á kjör-
skrá og var í gær kjörið nýtt þjóð-
þing, auk þess sem kosið var um
embættismenn á sveitarstjórnar-
sviðinu. Skoðanakannanir benda til
þess að Golkar-flokkur Suhartos,
fyrrverandi forseta Indónesíu, sigri í
kosningunum.
Þetta er í annað skipti sem íbúum
Indónesíu gefst tækifæri til að kjósa
sér þing í frjálsum kosningum frá því
að Suharto var hrakinn frá völdum
fyrir sex árum. Verða endanlegar
niðurstöður kosninganna ekki ljósar
fyrr en eftir þrjár vikur.
Mest spenna ríkti um það hversu
mikið fylgi flokkur Megawati Suk-
arnoputri forseta fengi, en niður-
staðan nú er sögð gefa vísbendingu
um möguleika
hennar á sigri í
forsetakosning-
unum í júlí nk.
Staða Megawati
er raunar ekki
talin alltof sterk
og nýlegar skoð-
anakannanir sýna
að Susilo Bamb-
ang Yudhoyono,
fyrrverandi ör-
yggismálaráðherra, nýtur meira
fylgis en hún.
Þetta mun verða í fyrsta skipti
sem Indónesum gefst tækifæri til að
kjósa sér forseta í beinni kosningu.
Ekki er talið að neinn flokkur hafi
náð að tryggja sér afgerandi meiri-
hluta í þingkosningunum í gær. Ak-
bar Tandjung, leiðtogi Golkar, spáði
því hins vegar að flokkur sinn fengi
30% fylgi í kosningunum.
Íbúar Indónesíu ganga til kosninga
Megawati
Sukarnoputri
Prófsteinn á vin-
sældir Megawati
Jakarta. AP.