Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 19

Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 19 m tímarit um mat og vín kemur út átta sinnum á ári og er dreift án endurgjalds til allra áskrifenda Morgunblaðsins - fæst einnig í öllum helstu bókaverslunum GraskersfræolíaJarðhnetuolíaÓlífuolía Pumpkinseed Oil Organic Certified Product Erdnuss Öl Nativ Crespi, Ramoscello Olio Extra Vergine Di Oliva ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M BL 2 36 28 03 /2 00 4 Kemur næst 7. apríl Vesturbær | Páskaeggjaleit Félags sjálfstæðismanna í Nes- og Mela- hverfi var haldin á laugardaginn við grásleppuskúrana á Ægisíðu. Þetta var í fimmta sinn sem hverfafélagið stóð fyrir páskaeggjaleit í hverfinu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi ávarpaði gesti og kynnti dagskrána. Margir lögðu leið sína á Ægisíðuna þrátt fyrir dyntótt veður og börnin skemmtu sér vel við leit að fagurlega skeyttum hænueggjum og fengu að launum súkkulaðiegg. Eftir það hófst húlahopp-keppni og var keppt í fjórum aldursflokkum og fengu sigurvegarar stór páskaegg í verðlaun fyrir góða frammistöðu. Ýmis leiktæki voru á staðnum sem börnin höfðu ánægju af. Jafnframt var boðið upp á andlitsmálningu og var það mjög vinsælt hjá yngri kynslóðinni og fóru margir heim með bros á vör með egg í körfu og fagurlega skreytt andlit. Morgunblaðið/Sverrir Margt til dundurs: Börnin á Ægisíðunni skemmtu sér vel, enda var margt hægt að gera sér til skemmtunar í páskaeggjaleitinni. Páskaeggjaleit á Ægisíðunni Garðabær | Hofsstaðaskólakórinn sýndi á dögunum nýjan söngleik eftir Hildi Jóhann- esdóttur tónmenntakennara. Söngleikurinn heitir Halldóra fer út af sporinu og fjallar um stúlkuna Halldóru sem tekur upp á því að ýkja allt hressilega til að fá meiri athygli frá bekkjarsystkinum sínum. Hin glæsilega og hæfileikaríka unga söngkona Thelma Lind Waage fór með hlutverk Halldóru. Öllum nemendum skólans var boðið á frumsýningu söngleiksins og um kvöldið var opin sýning. Báðar sýningarnar tókust mjög vel og þóttu kórmeðlimir allir standa sig af stakri prýði. Sýningarnar voru liður í þemaviku skól- ans sem var vikuna 22.–27. mars. Í þema- vikunni var fjallað um leiðarljós skólans en í því er lögð áhersla á virðingu, vellíðan og vinsemd. Þemavikan er jafnframt opin vika í skólanum, en þá eru foreldrar hvattir til að heimsækja skólann og taka þátt í skóla- starfinu. Nánar er fjallað um þemavikuna á vef Hofsstaðaskóla, www.hofsstadaskoli.is. Söngleikur á þemadög- um Hofsstaðaskóla Seltjarnarnes | Gert er ráð fyrir því að fullkomið mötuneyti verði tilbúið fyrir nemendur Mýrarhúsa- skóla næsta haust. Byggingar- nefnd Mýrarhúsaskóla hefur mælt með því að slíkt mötuneyti verði útbúið og leitað hefur verið til Önnu Margrétar Hauksdóttur arkitekts um útfærsluleiðir en fyr- irhugað er að staðsetja mötuneytið þar sem eldhús skólans var upp- stjóri fagnar ákvörðun byggingar- nefndar og segist telja forgangs- röðun hennar rétta. Hann telur afar ánægjulegt að til standi að út- búa mötuneyti við skólann. „Með því er komið til móts við áherslur foreldraráðs skólans með vegleg- um hætti,“ segir Jónmundur, en hann telur að þegar farið var af stað með matarbakka í byrjun árs 2002 hafi alltaf verið ljóst að verið væri að brúa ákveðið bil þar til unnt yrði að taka ákvörðun um matarmál skólans á grundvelli reynslu og til lengri tíma litið. „Nú tel ég forsendur hafa skapast með breytingu á stjórnskipulagi skól- anna og nýrri framtíðarsýn á skólamálin. Ég tel að með mötu- neyti takist enn betur að mæta þörfum nemenda fyrir holla nær- ingu og góðan aðbúnað.“ haflega ráðgert. Eldað verður fyrir alla nemendur skólans í mötuneyt- inu en líklegt er að nemendur borði í tvennu lagi eins og verið hefur. Í sumar verður einnig ráðist í að endurnýja lagnir í kjallara gamla skólans en slíkt er talið nauðsyn- legt áður en hugað verður að frek- ari endurnýjun á innviðum húss- ins. Jónmundur Guðmarsson bæjar- Nemendamötuneyti í Mýrarhúsaskóla Fræðslukvöld | Félagsmiðstöðin Ból í Mosfellsbæ stóð á dögunum fyrir fræðslu- kvöldi í samvinnu við Alþjóðahúsið. Mark- mið fræðslunnar var að skapa opna og gagnrýna umræðu um mannréttindi, stað- almyndir, fordóma og menningu í víðu sam- hengi. Að sögn talsmanna Bóls var umræð- an svo sannarlega þörf og er stefnt á að fylgja henni vel eftir. Fræðslan var sett upp á skemmtilegan hátt til að ná til unglinganna og voru þeir að sögn mjög ánægðir með kvöldið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.