Morgunblaðið - 06.04.2004, Qupperneq 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 21
Borgartún 26
sími 535 9000
Öll Mont Blanc
farangursbox
á tilboði
kr. 32.900,-
meðan birgðir endast
Keflavík | Árshátíð Heiðarskóla í
Keflavík var þrískipt að þessu
sinni. Yngstu bekkirnir komu sam-
an um morguninn, miðstigið um
hádegisbilið og elstu börnin um
miðjan dag. Yngstu árgangarnir
sýndu mörg skemmtileg atriði á
sal skólans. Flestir nemendur tóku
þátt í þessum atriðum. Síðan fór
allur hópurinn ásamt gestum í
íþróttahúsið í leiki og dans.
Hver árgangur miðstigsins
sýndi einstök skemmtiatriði og má
þar nefna tískusýningu, söng og
leikrit. Þá sýndu nemendur í 7. til
10. bekk söngleikinn Drauminn,
sem þau sömdu ásamt kennurum.
Einnig sýndi nemandi úr 10. bekk
dans, ásamt dansfélaga sínum við
mikinn fögnuð gesta. Að skemmti-
atriðum loknum var diskótek fyrir
krakkana og farið í leiki.
Á árshátíð elstu nemenda voru
Draumurinn og danssýningin end-
urtekin og hljómsveitir skipuðum
nemendum skólans héldu tónleika.
Í hléi var kökuhlaðborð í boði for-
eldra og nemenda. Foreldrar,
nemendur og starfsfólk skólans
voru mjög ánægð með þennan dag
og hvað foreldrar sýndu þessari
hátíð skólans mikinn áhuga.
Þrískipt árshátíð Heiðarskóla
Árshátíð: Yngstu börnin komu fram með ýmis atriði og léku listir sínar, meðal annars með fiðluleik.
Grindavík | Síðasta helgi var stór helgi
fyrir Grindavíkurmeyna Helgu A. Gests-
dóttur, en á laugardaginn varð hún tvö-
faldur Íslandsmeistari í körfubolta ásamt
félögum sínum í áttunda og níunda flokki
í Grindavík þegar Grindvíkingar kepptu
á móti Kormáki frá Hvammstanga. Á
sunnudaginn fermdist svo Helga í Grinda-
víkurkirkju.
„Þetta er mjög góð tilfinning,“ segir
Helga sem segist ætla að halda ótrauð
áfram í körfuboltanum, en hún hefur æft
með Grindavík í tvö ár. Hún segir enn
óljóst hvað hana langi til að verða, en
nokkuð klárt sé að hana langi til að halda
áfram í körfunni. „En ég er ekki viss um
hvað ég vil verða. Ég fer þó örugglega í
framhaldsskóla og eitthvað áfram þegar
ég er búin í grunnskólanum̧“ segir Helga.
Fótboltinn verður líklega á dagskrá hjá
Helgu í sumar, en hún hyggst kíkja á að
æfa fótbolta með Grindavík á meðan hún
tekur sér hlé frá körfuboltanum. „Við æf-
um fjórum sinnum í viku í körfuboltanum.
Það er ekkert mál, það er mjög gaman.
Það er svolítið erfitt ef fólk er bæði í
körfubolta og fótbolta, það eru sumar
stelpur í báðum, en ég tek frekar fótbolt-
ann á sumrin og körfuboltann á veturna.
Mér þykir mjög gaman að íþróttum.“
Helga segir uppáhaldsíþróttamanninn
sinn vera David Beckham.
Helga hefur líka gaman af hestum og
fór í útreiðartúr í gær til að fagna vel
heppnaðri en strangri helgi. Hún segir
gott að komast á bak öðru hvoru. „Það er
skemmtilegt að fara í útreiðatúr og vera
úti í ferska loftinu,“ segir Helga að lok-
um.
Annasöm helgi hjá
Grindavíkurmær
Keflavík | Sögulegu ankeri hefur
verið komið fyrir á landfylling-
unni neðan við Ægisgötu í Kefla-
vík. Ankerið er af Brúarfossi sem
Eimskipafélag Íslands lét smíða í
Danmörku árið 1927 og átti í 30
ár. Brúarfoss var eitt af farsæl-
ustu skipum félagsins fyrr og síð-
ar.
Í einni ferðinni fyrir vestan
brotnaði önnur flauan af an-
kerinu í blágrýtinu í Aðalvík.
Karvel Ögmundsson, útgerð-
armaður í Njarðvík, keypti síðar
ankerið og notaði það sem legu-
færi í Njarðvíkinni, fyrir bátinn
Vöggu GK 204. Karvel lét síðan
taka ankerið á land og á síðustu
árum hefur það legið við smá-
bátahöfnina í Keflavík eða þar til
því var komið fyrir á landfyll-
ingnni.
Ankerið er sannarlega þögull
minnisvarði liðins tíma.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Þögull
minnisvarði
liðins tíma
Keflavík | Farþegum um Flugstöð Leifs
Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 13% í
marsmánuði miðað við sama tíma í fyrra,
úr rúmlega 87 þúsund farþegum árið 2003
í tæplega 99 þúsund farþega nú. Fjölgun
farþega til og frá Íslandi nemur rúmlega
9% milli ára. Farþegum sem millilenda
hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið
fjölgar þó hlutfallslega enn meira eða um
34%.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs
Eiríkssonar fjölgað um tæplega 21% það
sem af er árinu miðað við sama tíma árið
2003, eða úr um 209 þúsund í um 252 þús-
und.
Þetta kemur fram á vef flugstöðv-
arinnar, www.airport.is.
Farþegum um
Leifsstöð fjölgar
Keflavík | Útilistaverk Erlings Jónssonar „Stjörnu-
þokusmiður“ verður afhjúpað á Ljósanótt en Spari-
sjóðurinn í Keflavík hefur kostað stækkun þess og
mun láta koma því fyrir við austurhlið bankans. Verk-
ið er sprottið úr skáldskap Kristins Reyrs og síðast-
liðið þriðjudagskvöld var bókmenntakvöld í Listasafni
Reykjanesbæjar þar sem verkið var kynnt.
Ár hvert efnir Bókasafn Reykjanesbæjar til Er-
lingskvölds, til heiðurs Erlingi Jónssyni listamanni.
Að þessu sinni var kvöldið helgað Kristni Reyr í tilefni
af útilistaverki Erlings Jónssonar. Var hans minnst í
tali og tónum. Það var Bigir Guðnason, forsprakki
áhugahóps um stofnun Listasafns Erlings Jónssonar,
sem sagði frá tilurð listaverksins.
Að kynningu lokinni minntust félagar í málfunda-
félaginu Faxa Kristins Reyrs en hann var gerður að
heiðursfélaga árið 1965, enda meðal frumherja í félag-
inu. Dagný Jónsdóttir sópransöngkona og Ragnheið-
ur Skúladóttir píanóleikari fluttu 4 lög eftir Kristin
Reyr, við hans eigin texta, og fjórir félagar í Leik-
félagi Keflavíkur fluttu ljóð og leiklásu verkið „Vopna-
hlé“.
Erlingskvöld var vel sótt og gestir mjög ánægðir
með kvöldið, ekki síst niðjar Kristins Reyrs sem allir
voru viðstaddir.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Stjörnuþokusmiður: Gunnar Sveinsson, félagi í Málfundafélaginu Faxa, minntist Kristins Reyrs. Við hlið
hans er listaverk Erlings Jónssonar, Stjörnuþokusmiður, sem sprottið er úr skáldskap Kristins Reyrs.
Stjörnuþoku-
smiður afhjúp-
aður á Ljósanótt
Vopnahlé: Félagar úr Leikfélagi Keflavíkur, þau
Guðný Kristjánsdóttir, Anna Þóra Þórhallsdóttir,
Brynja Aðalbergsdóttir og Ómar Ólafsson, leiklásu
Vopnahlé eftir Kristin Reyr á Erlingskvöldi.