Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 22

Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 22
AUSTURLAND 22 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Egilsstaðir | Hreindýr hafa verið talsvert í byggð í vetur og hafa skógarbændur á Fljótsdalshéraði nokkrar áhyggjur af því að hrein- dýrin muni skemma trjáplöntur í ungskógi. Frá þessu segir á vef Héraðsskóga. Þau svæði sem hafa verið girt og friðuð um nokkurt skeið eru vin- sæl af hreindýrunum og virðist nokkur hætta á að þau dvelji um lengri tíma í ungskógi. Skaði sá er hreindýrin valda á skógi er kannski ekki stórvægileg- ur í hlutfalli við þá miklu skógrækt sem er stunduð á Héraði, hins veg- ar er um tilfinningalegt tjón að ræða og hálfömurlegt að sjá tveggja til þriggja metra há tré sem búið er að urga af allan börk- inn nánast frá rót og upp í topp. Oftast er um að ræða tré sem standa í jöðrunum á skógarsvæð- unum, en svo virðist sem hrein- dýrin fari ekki inn í skógarreitina eftir að trén hafa náð vissri hæð og þéttleika. Algengast er að það séu hópar hreindýrstarfa sem koma í ungskóginn, 10–30 dýr í hóp. Þegar hornin eru að byrja að vaxa vaknar þörfin fyrir að urga þeim við eitthvað og virðist törf- unum lítast afar vel á tré til þeirr- ar iðju Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Hreindýrin sólgin í nýgræðinginn: Skógræktarmenn hafa áhyggjur af skemmdum á ungskógi. Hreindýr valda skaða í ungskógi www.heradsskogar.is Reyðarfjörður | Í liðinni viku voru 24 japönsk ungmenni í heimsókn hjá Grunnskóla Reyð- arfjarðar. Hallfríður Bjarnadóttir, fréttaritari á Reyðarfirði, tók einn af gestunum, Yuko Morizane, tali. Yuko er 19 ára laganemi frá Nakanosho Iyomishima, sem er á eyju sunnarlega í Jap- an. Íbúar þar eru um 30.000 en þar voru þrjú sveitarfélög sameinuð 1. apríl sl. og mun þá sveitarfélagið í heild heita Shikokuchuo. Yuko er einbirni en foreldrar hennar eru fasteignasalar. Hún stundar nám við Háskólann í Ehime sem er 400 þúsund manna bær. Þar leigir hún sér litla íbúð, les lögfræði, heimspeki, ensku, þýsku og hagfræði. Ferðin til Íslands er fyrsta utanlandsferð Yuko og hún hafði aldrei flogið áður. Um Ís- land hafði hún lesið í bókum; um heita vatnið, að eyjan væri mjög vogskorin með langa firði sem skerast inn í landið, um eldfjöllin og jökl- ana. Dagur í lífi Yuko Fer á fætur kl 7.30, morgunmatur er súpa, hrísgrjón, þurrkaður fiskur, mjólk og jap- anskt te. Hjólar í skólann en það tekur um 15 mín. Skólinn er frá kl 8.30 til kl 16. Þegar heim er komið hvílir hún sig en mestur tími hennar fer í nám. Kvöldverður kl. 18–19 og er hann hefðbundinn; hrísgrjón og sushi. Á kvöldin horfir hún á sjónvarp en mestur tími fer þó í lestur námsbóka. Fer að sofa um kl. 23. Helstu áhugamál Yuko eru lestur góðra bóka, kvikmyndir og júdó. Hún fer í bíó a.m.k. einu sinni í mánuði og þá oftast á mið- vikudögum því þá eru bíómiðar ódýrari og kostar miðinn 1000 yen. Á fimmtudagskvöldum er hún í kvöldskóla að læra viðskipafræði og á föstudagskvöldum stundar hún Kendo sem er japönsk bardagaíþrótt upprunnin í skylmingalist samúræja. Notuð eru hlífðarföt en keppendur eigast við með bambusstöngum eða trésverðum og reyna að hæfa andstæðing- inn í höfuð, háls, úlnliði eða hliðar. Hver við- ureign tekur um 3 mínútur og nægja tvö högg til sigurs. Um helgar fer Yuko heim til foreldra sinna. Lítið er um diskó eða pöbba en fólk hittist í lokuðum klúbbum. Sumarfrí í háskólanum er 6–8 vikur en almennt fær fólk ekki nema um tvær vikur í leyfi. Og hvað segir Yuko svo um Íslands- heimsóknina og dvölina á Reyðarfirði? „Ísland er fallegt land og allir svo glaðir og skemmti- legir,“ segir Yuko. „Ég hef aldrei séð svona mikinn snjó og svo sá ég norðurljós stutta stund. Takk, takk fyrir mig.“ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Japönsku krakkarnir höfðu aldrei séð snjó áður en þau komu til Ís- lands: Þau fóru á skíði í Oddsskarði og stóðu sig bara vel. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Tekist á í japanskri glímu: Japanskir gestir í Grunnskóla Reyðar- fjarðar buðu upp á matarveislu og skemmtiatriði, m.a. glímu. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Valdi Reyðarfjörð sem fyrsta áfangastað sinn utan Japan: Laganeminn Yuko Morizane og gestgjafi hennar, Anna S. Einarsdóttir. Fyrsta ferð Yuko út fyrir landsteina Japan Austurbyggð | Lilja Rut Arn- ardóttir, nítján ára Stöðfirðingur og nemandi í fjórða bekk við Menntaskólann á Akureyri, hefur verið valin í landsliðið í efna- fræði. Landsliðið tekur þátt í Ól- ympíuleikum sem fram fara í Kiel í Þýskalandi í júlí næstkomandi. Alls skipa fjórir nemendur á mennta- skólastigi landsliðið, en auk Lilju Rutar eru tveir piltar úr Menntaskólanum í Reykjavík í landsliðinu og einn úr Mennta- skólanum í Hamrahlíð. Lilja hefur verið afbragðs námsmaður alla sína skólagöngu. Hún fékk m.a. hvatningarverðlaun Forseta Íslands árið 2001, en þau voru veitt fram- úrskarandi grunnskólanemendum á land- inu. Frá þessu greinir á vefnum aust- urbyggð.is. Stöðvarfjarðarsnót í efnafræðilandsliði Lilja Rut Arnardóttir frá Stöðvarfirði. Neskaupstaður | Innan skamms verður hafist handa við endurgerð kaupfélagshússins í Neskaupstað, en fyrirhugað er að koma þar upp 15 leiguíbúðum. Kaupfélagshúsið er byggt árið 1948, stórt og mikið hús sem setur sterkan svip á umhverfi sitt. Það hefur þarfnast endurbóta að utan um nokkra hríð og ljóst að þess- ar framkvæmdir munu verða andlits- lyfting fyrir miðbæ Neskaupstaðar. Heppilegur tími núna Það eru Tröllaborgir ehf. í eigu Magna Kristjánssonar og Sigríðar Sjafnar Guðbjartsdóttur, sem hyggj- ast breyta húsinu í leiguíbúðir, en síð- ustu ár hafa verið þar gistiheimili og Tryggvasafn. Gistiheimilið er aflagt en Tryggvasafni hefur verið fundinn annar staður. Að sögn Magna var léleg nýting á þessu stóra húsi og eins og staðan er í dag þá bráðvantar leiguíbúðir í Nes- kaupstað. „Það var því mat allra að þetta væri heppilegur tími,“ sagði Magni í samtali við fréttaritara. Íbúðirnar tilbúnar um næstu áramót Fyrirhugað er að hefja fram- kvæmdir eftir páska og ráðgert að ljúka þeim og útleigu um næstu ára- mót. Nú þegar er töluvert spurt um íbúðirnar hjá Magna og segir hann að það líði varla sá dagur að ekki sé spurt um íbúðir, sérstaklega litlar íbúðir. Byggingarkostnaður er áætlaður um 150 milljónir og er verkið að mestu fjármagnað af Íbúðalánasjóði, sem lánar 90% af byggingarkostnaði. Það fé fæst hins vegar ekki fyrr en að byggingartíma loknum. Nýlega gerðu Tröllaborgir ehf. og Frjálsi fjárfestingarbankinn með sér samn- ing um fjármögnun á byggingartíma og því ekkert að vanbúnaði að hefjast handa. Það er Þormóður Sveinsson arkitekt sem hannar áætlaðar breyt- ingar en húsið var hannað á sínum tíma af Árna Hoff-Möller og Þóri Baldvinssyni arkitektum. Mikil ásókn í leiguhúsnæði í Neskaupstað Svona kemur suðurhlið Tröllaborga til með að líta út. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Með Tröllaborgir í bakgrunni: Ei- ríkur Óli Árnason, deildarstjóri hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum, og Magni Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Tröllaborga, innsigla samn- ing um leiguíbúðir í Neskaupstað. Tröllaborgir í kaupfélagshúsið Egilsstaðir | Það er at hjá körlunum á þökum bæjarins þessa dagana. Verið er að klæða þak Samkaupaverslunar Kaupfélags Hér- aðsbúa og gamla mjólkurstöðin, sem áður fyrr hýsti einnig bakarí bæjarins, Hús hand- anna og fleiri fabrikkur, er nú í uppherslu ut- an dyra sem innan og fær næst inn á sig verk- fræðistofu. Þökin klædd með kurt og pí fyrir vorið Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir    Sparisjóður | Sveinn Árnason mun láta af störfum sem sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norð- fjarðar 1. október nk. Hann tilkynnti stjórn Sparisjóðsins starfslok sín á aðalfundi í síð- ustu viku. Sveinn hefur gegnt starfi spari- sjóðsstjóra frá árinu 1988. Frá þeim tíma hef- ur markaðshlutdeild bankans farið vaxandi og útibú Sparisjóðs Norðfjarðar á Reyðarfirði hefur dafnað.   

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.