Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 24
DAGLEGT LÍF
24 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Óhætt er að fullyrða að ómæld og óeig-ingjörn vinna liggi að baki verkefninuTeppi handa hetjum, sem félagar í Ís-
lenska bútasaumsfélaginu standa fyrir. Á síð-
asta ári fengu 46 langveik börn teppi frá félag-
inu og í ár eru teppin 18. „Þetta var afskaplega
vel þegið,“ segir Borghildur Ingvarsdóttir, ein
stjórnenda verkefnisins. „Við létum teppin í
hendurnar á Umhyggju, Félagi til stuðnings
langveikum börnum í fyrra og báðum stjórn-
endur þar að ráðstafa teppunum til þess hóps
barna, sem þeim fannst að ættu helst skilið að
fá þau svona í fyrsta sinn að minnsta kosti og
það voru Einstök börn, sem fengu teppin.“
Þetta var í fyrsta sinn sem teppi voru afhent
en ætlunin er að gefa teppi á hverju ári. Hug-
myndina á Dagbjört Guðmundsdóttir, en hún
kynntist því á sjúkrahúsi í Noregi að veikum
börnum er gefið teppi. „Nafnið, Teppi fyrir
hetjur, var hugsað til heiðurs börnunum því
þau eru hetjur og þau og fjölskyldurnar standa
sig frábærlega í veikindunum,“ segir Borghild-
ur. „Aðstandendum og börnunum þykir vænt
um þessa gjöf og höfum við lagt ríka áherslu á
að börnin velji sín teppi sjálf. Þau fara í gegn-
um bunkann og velja sér sitt teppi. Mér skilst
að þau séu mjög ákveðin þegar þau sjá „sitt“
teppi, og segja „ég vil þetta og ekkert annað.“
Það eru bæði einstaklingar, klúbbar og hóp-
ar í Íslenska bútasaumsfélaginu, sem koma
saman og sauma teppi og gefa en vinnan við
hvert teppi getur tekið allt frá einni kvöld-
stund í nokkra mánuði.
BÚTASAUMUR | Teppi handa hetjum
Börnin velja teppi
Teppi: Þessi listaverk koma til úthlutunar í ár í verkefninu Teppi handa hetjum.
Saumaskapur: Guðný Benediktsdóttir og
Sigrún Magnúsdóttir Kelleher eiga heið-
urinn að þessu teppi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndarskapur: Dagbjört Guðmundsdóttir og Borghildur Ingvarsdóttir eru hér með teppi sem
þær saumuðu sérstaklega fyrir verkefnið Teppi handa hetjum.
ALLTAF þegar einhver kemur í heimsókn
eða sér þig í fyrsta sinn, byrja vangaveltur
um hverjum þú líkist. Strax fyrsta morguninn
þinn, biðum við spennt eftir ömmum þínum í
heimsókn. Ömmur þekkja nefnilega oft ung-
barnasvipi og nú var stóra spurningin: Hverj-
um líkist barnið? Fyrsta kenningin var sú að
augun væru frá mér en restin frá pabba þín-
um. Á öðrum eða þriðja degi breyttist þetta
reyndar en þá voru augabrýrnar sagðar frá
mér en restin frá pabba þínum!
Tengingin við mig fór því
hverfandi en auðvitað fannst
mér þú fyrst og fremst falleg-
asta barnið sem ég hefði séð.
Vinkona mín sem á þrjú börn
sagði einmitt við mig: „Ég
hugsa oft hvernig það sé að
eiga barn sem líkist manni
sjálfum.“ Þrátt fyrir að eiga
þrjú börn, er ekkert þeirra líkt
henni, þau eru öll með sterkan
svip frá pabba sínum.
Alla meðgönguna hafði ég
haldið því fram að þú yrðir eins og pabbi
þinn. Ég hafði þetta sterklega á tilfinning-
unni. Það hefur svo komið á daginn að þú
virðist fyrst og fremst líkjast honum og hans
fjölskyldu, margir segja þig líka föðurömmu
þinni. Ég gríp samt alla glóðvolga sem segj-
ast sjá svip með þér og mér og segi nátt-
úrlega öllum frá því ef einhver nefnir eitt-
hvað í þá átt. Í fyrstu eða annarri
ungbarnaskoðuninni þinni, spurði ég hvenær
augnliturinn færi að skýrast. „Ég held nefni-
lega að hún verði með blá augu,“ sagði ég,
sem fyrst og fremst væri þá tenging við mig.
„Það getur nú breyst og verið á alla kanta,“
svaraði hún. „Sumir segja að augnliturinn
komi ekki alveg í ljós fyrr en um eins árs.“
Þetta var að sjálfsögðu ekki það svar sem ég
vildi, en sem betur fer fóru blá augu að koma
nokkuð snemma í ljós og því fer þeim fjölg-
andi sem tala um að þú sért með augun mín.
Hárliturinn er annað sem við veltum vöngum
yfir. Ég taldi nokkuð víst að þú yrðir sköllótt
þegar þú fæddist, enda erum við pabbi þinn
bæði ljóshærð og fæddumst nokkurn veginn
sköllótt. Fyrsta setningin mín við pabba þinn
þegar þú fæddist var hins vegar: „Hún er
með hár!“ enda fæddistu með nokkuð góðan
lubba. Þar sem hárið á þér virðist hins vegar
bæði dökkt og ljóst, vitum við ekki enn á
hvorn veginn þetta fer. Ég held að þú verðir
að einhverju leyti rauðhærð. Alltaf þegar ég
segi það svarar pabbi þinn: „Nei, guð minn
góður!“ enda held ég að hann sjái þá fyrir sér
rautt hár, útstæð eyru, freknur, þykk gler-
augu og jafnvel einelti í skóla! Ég bendi hon-
um hins vegar á alla litla sæta krakka sem ég
sé með rautt hár og segi: „Sérðu t.d. hvað
þessi er sætur!“ Mér fyndist þú voðalega sæt
með rautt hár!
DAGBÓK MÓÐUR
Hverjum
líkist þú?
Meira á fimmtudag.
1 4 4 4
Ertu að leita
þér að nýjum
skóm?
Pappírstætarar
margar stærðir og gerðir.
Plasthúðunarvélar
fjölbreytt úrval.
Járngorma
innbindivélar
margar stærðir og gerðir.
ÞEKKING • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s