Morgunblaðið - 06.04.2004, Qupperneq 26
LISTIR
26 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÓVENJUMIKIÐ af íslenskri mynd-
list var boðið upp á uppboði hjá
Bruun Rasmussen-uppboðshúsinu í
Kaupmannahöfn í síðustu viku.
Meðal verka sem stóð til að bjóða
upp var verk sem talið var eftir Jó-
hannes Kjarval, en leikur nú grunur
á um að sé falsað, eins og greint var
frá í Morgunblaðinu í síðasta mán-
uði. Nokkur íslensku verkanna á
uppboðinu seldust þó á afar háu
verði, að mati Jóhanns Ágústs Han-
sens, listmunasala hjá Galleríi Fold
sem staddur var á uppboðinu. „Ég
bauð í nokkur verk þarna, bæði fyr-
ir viðskiptavini mína og fyrir mig
persónulega. Ég fékk þó engin
þeirra, því þau seldust á svo háu
verði,“ sagði hann í samtali við
Morgunblaðið.
Uppboðið fór fram hinn 31. mars
sl. undir yfirskriftinni North Atl-
antic Art, Hans Henrik Lerfeldt &
Contemporary Art. Meðal verka
sem boðin voru upp voru málverk
eftir nokkra af „gömlu meisturum“
Íslands, þar á meðal Kjarval, Ás-
grím Jónsson og Þórarin B. Þor-
láksson, en einnig nokkuð óvenjuleg
módelmynd eftir Þorvald Skúlason
og skúlptúr eftir Sigurjón Ólafsson.
Að sögn Jóhanns seldust tvö af
verkum Þórarins B. Þorlákssonar á
óvenjulega háu verði. „Annað
þeirra, klassísk Þingvallamynd eftir
Þórarin, var metið á 15.000 danskar
krónur, sem við höfðum reyndar
metið talsvert hærra hér í Galleríi
Fold nokkru áður,“ segir Jóhann.
„Það seldist hins vegar á 48.000
danskar krónur, eða tæpar 570.000
íslenskar krónur, sem við bætast
um það bil 31% í gjöld og virð-
isaukaskatt, sem kaupandinn þarf
einnig að greiða. Önnur mynd Þór-
arins, af Eyjafjallajökli, var metin á
15–20.000 danskar krónur, en seld-
ist á 38.000. Þetta þykir mér mjög
hátt verð, hátt í tvöfalt hærra en
verðmat Bruuns Rasmussens og
hátt í 50% hærra en það verðmat
sem við í Fold gerðum.“
Jóhann segir það verð sem greitt
var fyrir sumar íslensku myndanna
talsvert hærra en fengist hefur fyrir
íslenska myndlist að undanförnu.
„Ég held að það hafi verið Íslend-
ingar sem voru að kaupa þessi verk
og ef þetta er raunin, þá finnst mér
það benda til þess að markaðurinn
sé aðeins að taka við sér eftir nokk-
ur dimm ár í kjölfar fölsunarmáls-
ins, sem lækkaði verð á íslenskri
myndlist nokkuð.“
Ólafur dýrari en Þórarinn
Verk eftir nokkra núlifandi ís-
lenska myndlistarmenn voru einnig
boðin upp, þar á meðal eftir Baltas-
ar og Kristján Davíðsson.
Einnig var boðið upp lítið olíu-
málverk eftir Ólaf Elíasson frá
árinu 1992. Mynd Ólafs var seld á
nokkuð hærra verði en hún var met-
in á, 68.000 í stað 60.000 danskra
króna.
Það samsvarar rúmum 800.000 ís-
lenskum krónum.
Íslensk myndlistarverk seljast á háu verði á uppboði hjá Bruun Rasmussen
Myndlistarmark-
aðurinn tekur við
sér eftir lægð
Þingvallamynd eftir Þórarin B. Þorláksson, sem seldist á 48.000 danskar
krónur á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn í síðustu viku.
SÍÐASTA vika sló öll met í aðsókn að
sýningum í Borgarleikhúsinu, að sögn
Sigrúnar Valbergsdóttur, kynningar-
fulltrúa Leikfélags Reykjavíkur.
Tæplega 5.500 manns komu til að sjá
16 viðburði í húsinu frá þriðjudegi til
sunnudagskvölds, á þremur leiksvið-
um. Þar af voru fjórar sýningar á
Chicago. Söngleikurinn hefur nú ver-
ið sýndur 30 sinnum og áhorfendur
farnir að nálgast 16.000.
Aðrar sýningar á fjölum Borgar-
leikhússins þessa dagana eru Lína
Langsokkur – 56 sýningar búnar og
áhorfendur 29.000 eða tíundi hver íbúi
á Íslandi – Sporvagninn Girnd, Sekt
er kennd, Draugalest og kabarettinn
Paris at night. Í síðustu viku voru
einnig fjórar sýningar á vegum dans-
skóla Eddu Scheving og Jazzballett-
skóla Báru í Borgarleikhúsinu. Sýn-
ingum á söngleiknum Grease fer að
ljúka og eru síðustu sýningar á dag-
skrá í apríl.
Um helgina lauk sýningum Ís-
lenska dansflokksins á Lúnu og
sömuleiðis tónleikaröðinni 15:15 á
vegum Caput-hópsins.
Næsta frumsýning á Nýja sviði
Borgarleikhússins verður 5. maí, það
er Belgíska Kongó, nýtt verk eftir
Braga Ólafsson. 13. maí verður Don
Kíkóti frumsýndur á Stóra sviði og
þar fer Halldóra Geirharðsdóttir með
titilhlutverkið.
Það er páskafrí í leikhúsinu og það
er lokað frá 9.–12. apríl.
Aðsókn-
armet sett í
Borgar-
leikhúsinu
KUBBURINN er heiti nýs gallerís
á vegum myndlistardeildar Listahá-
skóla Íslands, sem opnað verður í
húsnæði skólans í dag. Sýningardag-
skrá gallerísins er ætlað að end-
urspegla starfsemi deildarinnar með
sýningum nemenda, gestakennara
og annarra aðila er tengjast Listahá-
skólanum og verður það opið al-
menningi alla virka daga.
Rekstur á opinberri aðstöðu til
sýninga og flutnings á sviði mynd-
listar, leiklistar og tónlistar hefur
staðið til frá stofnun skólans. Nýlega
hafa verið gerðar breytingar á hús-
næði skólans í Laugarnesi og þar
með gefist kostur á að opna slíka að-
stöðu. Að sögn Kristjáns Steingríms
Jónssonar, deildarforseta myndlist-
ardeildar Listaháskóla Íslands,
skapast með galleríinu leið fyrir
nemendur til að kynna sig og verk
sín. „Við munum líka nota þennan
sal sem kennslutæki við að setja upp
sýningar og kenna jafnvel sýning-
arstjórnun og gerð sýninga. Enn
fremur má segja að þetta sé kynn-
ingarvettvangur fyrir skólann og
starfsemi hans út á við,“ segir hann.
Opnunarsýning Kubbsins ber
heitið „Mitt á milli, meðal annarra“,
en þar eiga verk þrír fyrrverandi
nemendur skólans, þau Sirra Sigrún
Sigurðardóttir, Særún Stefánsdóttir
og Unnar Örn Jónsson. Þau tilheyra
yngstu kynslóð listamanna og voru
um svipað leyti í námi hérlendis, sem
lauk fyrir nokkrum árum.
„Við vildum opna þennan vettvang
með fólki sem hefði tengsl við skóla-
umhverfið – þau eru það nýlega út-
skrifuð,“ segir Kristján Stein-
grímur. „Við ætlum jafnframt að
halda eins konar innanhúss-
ráðstefnu þar sem þessir þrír lista-
menn tala um reynslu sína eftir að
námi lauk, en þau hafa öll farið mjög
mismunandi leiðir eftir námslok hér
heima. Markmiðið er að þau geti
miðlað reynslu sinni til væntanlegra
listamanna sem útskrifast frá skól-
anum í vor.“
Verkin á sýningunni eru nýjar
innsetningar unnar í fjölbreytt efni
þar sem notaðar eru ljósmyndir,
skúlptúr, teikningar og texti og
fleira. Hún stendur til 23. apríl og er
opin alla virka daga frá kl. 9–16.
Kubburinn, nýtt gallerí á vegum myndlistardeildar Listaháskólans opnað
Morgunblaðið/Rax
Sirra Sigrún Sigurðardóttir við uppsetningu verks síns á sýningunni í Kubbnum.
Kynningarvettvangur fyrir skólann
Lagaskuggsjá hef-
ur að geyma ellefu
ritgerðir um lög-
fræðileg efni eftir
Pál Sigurðsson
prófessor í lög-
fræði við Háskóla
Íslands. Meiri hluti
greinanna birtist
nú í fyrsta sinn.
Þær spanna langt tímabil íslenskrar
réttarsögu og réttarþróunar og er þeim
ætlað að endurspegla mikilvæga
drætti lagaumhverfis okkar nú um
stundir jafnt sem fyrr á öldum.
Af viðfangsefnum einstakra greina
má nefna fjölþjóðlega samræmingu
réttarreglna á sviði viðskiptaréttar, rétt-
inn til eigin myndar í ljósi einkalífs-
verndar, lögfræðileg álitaefni varðandi
hljóðritanir símtala og annars talaðs
máls, meiðyrðamál Kristmanns Guð-
mundssonar rithöfundar gegn Thor Vil-
hjálmssyni rithöfundi í ljósi nýrrar þró-
unar í meiðyrðamálum, og trúarbrögð
og mannréttindi, þar sem m.a. er
fjallað um trúfrelsi og jafnræði trú-
félaga á Íslandi. Þá má nefna ritgerð
um réttinn sem þátt þjóðmenningar og
greinar um réttarsöguleg efni, þ. á m.
um rétt norrænna manna á Grænlandi
til forna. Á ensku er grein um meg-
indrætti íslensks samningaréttar, en
um það efni hefur ekki verið ritað áður
á því tungumáli.
Útgefandi og dreifing: Háskóla-
útgáfan. Bókin er 356 bls., innbundin.
Verð: 5.900 kr.
Lög