Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 28

Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 28
LISTIR 28 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ LEIKFÉLAG Kópavogs ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar valið er til sýninga þetta verk franska rithöfundarins Boris Vian. Hann var mikilvirkur skáldsagna- og smásagnahöfundur, þýðandi, leik-, ljóðskáld og söng- textahöfundur auk þess að skrifa tón- listargagnrýni og greinar. Smúrtsinn heitir á frummálinu „Les bâtisseurs d’empire oú le schmürz“, sem hægt er að leggja út í samhengi við ritunar- stað og -tíma verksins sem Nýlendu- veldisfrömuðurnir eða smúrtsinn. Þegar Þíbilja frumflutti verkið hér á landi og sýndi í Vesturbæjarskólan- um árið 1989 var notast við titilinn Að byggja sér veldi eða smúrtsinn. Gagnrýnendur hafa gjarnan ein- blínt á að titillinn vísi til nýlendu- stríðs Frakka í Indókína, en þeir töp- uðu orrustunni við Diem-Bien Phu 1954, og ef til vill jafnframt til sjálf- stæðisbaráttu Alsírbúa sem blossaði upp að nýju 1957, sama ár og leikritið var sýnt í fyrsta skipti, og lauk fimm árum síðar með fullum sigri þeirra á nýlenduherrum sínum. Aðrir hafa bent á að verkið feli í sér mun fjöl- breyttari túlkunarmöguleika og hægt sé að túlka efni þess í ljósi goðsagna og sálfræðiþenkinga ýmiskonar. Það er líka endalaust hægt að velta fyrir sér hvað persóna smúrtsins táknar, þó að það liggi beinast við að sjá í illri meðferð hann samjöfnuð við kúgun nýlenduherranna á undirsátum sín- um. Stíllinn er einhvers konar síð- absúrdismi, Vian er hér farinn að þróa formið í átt frá hreinum fárán- leika og samtölin eru rökleg innan þess ramma sem hann setur sér. Hér er eins og Hörður Sigurðarson leikstjóri hafi kosið að undirstrika sem mest grimmdina í verkinu, enda af nógu að taka. Hin spaugilega hlið, sem vissulega er til staðar, lýtur í lægra haldi þó að hún sé vissulega til staðar og áhorfendur kími oft á tíð- um. Það er vissulega hægt að fallast á þessa túlkun því hún leggur áherslu á athyglisverðasta þáttinn í verkinu, ofbeldið sem vesalings smúrtsinn verður stanslaust að þola og er senni- lega ástæðan fyrir því að verkið náði eins mikilli útbreiðslu og raun ber vitni. Það tekst mætavel að skapa hæfi- lega umgjörð fyrir verkið í þeirri að- stöðu sem Leikfélag Kópavogs hefur komið sér upp og búningar eru ein- staklega vel unnir að hætti L.K. Sum- ir helstu kraftar félagsins fá hér upp- lagt tækifæri til að þróa sig sem leikarar með því að takast á við kröfuharðara verkefni í persónu- sköpun en allajafna gefst færi á. Helgi Róbert Þórisson skilar föð- urnum af miklu öryggi, hann skilar kjarnyrtum textanum framúrskar- andi vel þó að það væri á mörkunum að hann lifði sig nægilega vel inn í hlutverkið til að halda uppi löngum einræðum. Huld Óskarsdóttir gaf honum ekkert eftir sem frúin, hún hefur svo ríka hæfileika sem gaman- leikkona að kímnin skein í gegn um hörkuna og hún nær að sýna þessa tvo ólíku fleti á persónunni á sama tíma. Það vantaði herslumuninn að Lovísa Árnadóttir væri nógu einbeitt sem dóttir þeirra, Zenóbía, til að kar- akterinn væri trúverðugur, þó að for- sendurnar fyrir persónusköpuninni væru vel valdar hjá Lovísu og leik- stjóranum. Það vantaði eitthvað upp á að Bulla skilaði sér nógu vel í með- förum Ágústu Evu Erlendsdóttur, hún minnti of mikið á einhvern kar- akterinn í hryllingsleikritinu sem leikið var hjá L.K. fyrir örfáum árum til að hitta í mark hér og gervið var of stílfært til að falla að heildarstíl verksins. Lítið hlutverk nágrannans var vel af hendi leyst af Gísla Birni Heimissyni og það var ótrúlegt hvað Snorri Engilbertsson þoldi barsmíð- arnar sem dundu á honum endalaust í hlutverki smúrtsins. Látbragð hans allt var til fyrirmyndar en það hvarfl- aði ósjálfrátt að manni að hann hlyti að vera allur blár og marinn fyrir vik- ið þrátt fyrir að búningahönnuðir hefðu gert sitt besta til að sveipa hann einhvers konar hlífðarlagi. Þessi sýning kom mjög skemmti- lega á óvart, ekki síst vegna þess að leikritið er ennþá jafn áhrifamikið og þegar það sást fyrst á fjölunum og að nálgun leikstjórans og túlkun flestra leikaranna gaf skemmtilega sýn á möguleikana sem felast í verkinu. Grimmd og kúgun LEIKLIST Leikfélag Kópavogs Höfundur: Boris Vian. Þýðing: Friðrik Rafnsson. Leikstjóri: Hörður Sigurðarson. Búningar: Sara Valný Sigurjónsdóttir og Þórunn Eva Hallsdóttir. Leikmynd: Hörður Sigurðarson og Þorleifur Eggertsson. Ljós: Skúli Rúnar Hilmarsson. Hljóð: Hörður Sigurðarson. Leikarar: Ágústa Eva Erlendsdóttir, Gísli Björn Heimisson, Helgi Róbert Þórisson, Huld Óskarsdóttir, Lovísa Árnadóttir og Snorri Engilberts- son. Föstudagur 12. mars. SMÚRTSINN Sveinn Haraldsson ÁRIN 1706–1709 Dvaldi Georg Friedrich Händel (1685–1759) á Ítal- íu (Florens, Róm Feneyjum og Na- pólí) hvar hann kynntist nokkrum af þekktustu tónskáldum samtímans svo sem Corelli, Scarlatti-feðgum og Vivaldi. Á þessu tímabili samdi hann sín fyrstu stóru kirkju- og leikhús- verk m.a. hinn stórkostlega Davíðs- sálm 110 Dixit Dominus sem hann samdi 1707. Verkið er að öllum lík- indum samið miðað við ákveðna flytj- endur og þeir hafa ekki verið af verri endanum því verkið sem er fyrir fimm radda kór, fimm einsöngvara og hljómsveit er gífurlega kröfuhart til flytjenda. Sópranraddirnar og tenórinn liggja hátt og illa og því þarf góðar og háar raddir til að flytja verkið svo vel sé. Það má því segja að það hafi verið dálítið djarft af Söng- sveitinni Fílharmóníu að ráðast í flutning verksins því sópraninn, sér- staklega 1. sópran, og tenórinn réðu illa við hæðina og voru ansi oft óhrein og undir tóni þegar tekið var á. Að þessum göllum frátöldum var flutn- ingur kórsins góður og ákveðinn. Einsöngvarar voru Xu Wen (1.) sópr- an, Hlín Pétursdóttir (2.) sópran, Sesselja Kristjánsdóttir messósópr- an, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Davíð Ólafsson bassi. Öll skiluðu þau sínu vel og mig langar sérstaklega að nefna flutning Sesselju á Virgam virtuis tuae sem var mjög fallegur. Flutningur Xu Wen á Tecum prin- cipium var góður nema að að mati undirritaðs var fullmikið víbrato á röddinni fyrir þessa tegund tónlistar. Einsöngvarakvintettinn í Dominus a dextris tuis var góður nema að sópr- anarnir sungu sig ekki saman og virt- ist Xu eiga eitthvað í erfiðleikum með hæðina, koleratúrinn varð eitthvað skrítinn á köflum. De torrente var fallega sungið og doxologian Gloria Patri var glæsileg nema kórsópran- inn og tenórinn voru of oft óhrein og tenórinn orðinn stífur undir lokin. Messa á stríðstímum eða Missa in tempore belli samdi Joseph Haydn (1732–1809) árið 1796 á sama tíma og Austurríki stóð í stríði við Frakka. Messan er líka nefnd Pákumessan vegna áhrifamiklu pákuslaganna í lokakaflanum sem hljóma eins og stríðstrumbur í fjarlægð. Messan er mun aðgengilegri en fyrra verkið á efnisskránni. Einsöngvarar í verkinu voru þau Hlín, Sesselja, Eyjólfur og Davíð. Í Kyrie-kaflanum var kórinn hreinn og ákveðinn, sólókvartettinn góður með góðu jafnvægi milli radda og fallegt sópran sóló. Glorian var glæsileg með fallega mótaðri dynam- ik hjá kórnum og einsöngvurum. Davíð Ólafsson söng einstaklega fal- lega og vel í Qui tollis. Trúarjátningin eða Credo var einnig vel fluttur kafli með myndarlegum og vel fluttum kórköflum og fallega hljómandi sóló- kvartett. Sesselja átti virkilega fínan kafla í upphafi Sanctus svo og Eyjólf- ur í Hósanna. Mjög gott jafnvægi var hjá einsöngvurunum í Benedictus- kaflanum með sínum sérstaka gang- takti „þegar sonurinn kemur í nafni Drottins“ í Qui venit in nomine Dom- ini. Agnus Dei kaflinn er mikilfeng- legur með sínum trumbuslögum og lúðrablæstri sem virkar eins og her- inn sé í viðbragðsstöðu í fjarlægð og lúðrarnir og trommurnar berast til eyrna hlustenda og færast nær. Þessi kafli er mjög áhrifaríkt ákall um mis- kunn og frið. Sólókvartettinn í frið- arbæninni var virkilega fínn. Messan var vel flutt í heild sinni. Kórinn allt annar en fyrir hlé enda mun aðgengi- legra verk, vel samtaka og fallega mótaður söngur. Einsöngvarakvart- ettinn alveg heillandi með hárfínu jafnvægi milli raddanna í samsöng- num og allar einsöngsstrófur virki- lega góðar. Hljómsveitin var góð og Óliver Kentish stjórnaði öllu saman af mikilli natni og næmni fyrir tón- listinni. Glæsilegir kammertónleikar Síðustu tónleikar Tríós Reykjavík- ur á þessu starfsári voru í Hafnar- borg sunnudaginn 28. mars. Á þess- um tónleikum fékk tríóið til sín góða gesti þau hjónin Almitu Vamos fiðlu- leikara og Roland Vamos víóluleik- ara. Annað sérstakt við þessa tón- leika var að þau frumfluttu nýtt verk samið sérstaklega fyrir tríóið eftir erlent tónskáld en fram til þessa hafa einungis íslensk tónskáld samið fyrir þau. Fyrsta verkið á efnisskránni var Serenada fyrir tvær fiðlur og víólu Op 12 eftir Zoltán Kodály (1882– 1967). Eins og sést er serenadan samin fyrir óvenjulega hljóðfæra samsetningu. Serenadan er samin 1919–1920 í þremur þáttum. Hún er mjög rík af laglínum eða stefjum og sniðugum hugmyndum og undir miklum þjóðlegum áhrifum. Verkið var mjög vel flutt af þeim Guðnýju, Almitu og Roland og fallegur hljóm- ur í hljóðfærunum. Hið fárveika tremolo i 2. þætti hríslaðist mystiskt um salinn og samtölin milli hljóðfær- anna voru virkilega vel útfærð og all- ar laglínur flutu létt og hrífandi. Annað verkið á efnisskránni var frumflutningur á Tríó nr. 2 sem Ger- ald M. Shapiro (f. 1942) samdi fyrir tríó Reykjavíkur (2003–2004). Verkið sem er í fjórum köflum er fallegt, vel unnið og lagrænt. Þar gætir ýmissa áhrifa svo sem af djassi, minimalisma og einnig mátti heyra smá dixeland í 4. þætti. Það er virkilega vel í eyru fallandi og engin tilraunastarfsemi í gangi heldur flýtur allt í góðu sam- hengi hvað við annað. Flutningurinn var virkilega samæfður og vandaður. Flytjendum og tónskáldi var lengi klappað lof í lófa. Þriðja og síðasta verkið var Píanó- kvintett í A dúr opus 81 eftir Antonin Dvorák (1841–1904). Verkið er samið á tímabilinu 18. ágúst til 3. október 1887 og frumflutt í Prag 6. janúar 1888 og er í fjórum þáttum. Samleik- ur þeirra fimmmenninganna var glæsilegur með mikilli breidd í styrk- leika, spilamennskan öll yfirveguð og samtaka (utan smáónákvæmni í 2. þætti). Mjög gott jafnvægi var á milli hljóðfæranna, píanóleikurinn var skýr og féll vel að strengjunum. Kórsöngur og kammertónlistTÓNLISTLangholtskirkja KÓRTÓNLEIKAR Söngsveitin Fílharmónía. Xu Wen sópran, Hlín Pétursdóttir sópran, Sesselja Krist- jásndóttir messósópran, Eyjólfur Eyjólfs- son tenór og Davíð Ólafsson bassi ásamt hljómsveit. Konsertmeistari Zbigniew Dubik. Stjórnandi Óliver Kentish. Verk eftir G.F. Händel og Joseph Haydn. Laug- ardagurinn 27. mars 2004 kl. 17.00. Hafnarborg KAMMERTÓNLEIKAR Tríó Reykjavíkur (Guðný Guðmundsdóttir á fiðlu, Gunnar Kvaran á selló og Peter Máté á píanó). Gestir: Almita Vamos á fiðlu og Roland Vamos á víólu. Flutt verk eftir Z. Kodály, G. M. Shapiro og A. Dvor- ák. Sunnudagurinn 28. mars 2004 kl. 20.00. Jón Ólafur Sigurðsson Morgunblaðið/Ásdís Tríó Reykjavíkur ásamt Vamos- hjónunum. ÞRÍR nemar á lokaári nútímadans- brautar við Listdanskóla Íslands sigruðu í alþjóðlegri danskeppni í Berghausen í Þýskalandi á dög- unum. Margrét Lilja Vilmundardóttir, Snædís Lilja Ingadóttir og Þórunn Bjarnadóttir tóku þátt í keppni nemenda á framhaldsstigi og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu 14 keppi- nauta sína með glæsibrag, en þær sömdu atriðið og dönsuðu sjálfar við tónlist rokksveitarinnar Radio- head. „Verðlaunin voru peningaverð- laun sem borgarstjórinn í Berghausen afhenti og svo fengum við gjafabréf á dansföt og boð um að taka þátt í dansnámskeiði í Þýskalandi,“ sagði Margrét í sam- tali við Morgunblaðið en sagði þær ekki hafa getað þegið boðið um námskeiðið þar sem þær Þórunn væru önnum kafnar við nám sitt í Listdansskólanum og Mennta- skólanum í Reykjavík og Snædís starfaði við listskautaþjálfun. Morgunblaðið/Golli Snædís Lilja Ingadóttir, Margrét Lilja Vilmundardóttir og Þórunn Bjarnadóttir. Sigruðu í danskeppni í Þýskalandi Lovestar eftir Andra Snæ Magna- son er komin út í kilju. Sagan gerist í framtíðinni þegar alþjóðlega stórfyr- irtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið – markaðssett dauðann, komið skipulagi á ástina og reist stórfenglegasta skemmtigarð sögunnar í Öxnadal þar sem LoveStar blikkar bak við ský. Indriði og Sigríður eru handfrjálsir einstaklingar í þessu hátæknivædda samfélagi. Þau telja sig hafa fundið ástina upp á eigin spýt- ur þar til hræðilegt bréf berst frá stór- veldinu. Á sama tíma er LoveStar sjálf- ur um það bil að gera stærstu uppgötvun allra tíma og stemnings- deildin hefur stórfenglegar áætlanir um hvernig megi fullkomna LoveStar- veldið. Og tíminn er naumur … Bókin hlaut Menningarverðlaun DV og var tilnefnd til Íslensku bókmennta- verðlaunanna. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 275 bls., prentuð í Danmörku. Jón Sæmundur Auðarson gerði kápu. Verð 1.799 kr. Nýjar kiljur Annað tækifæri eftir metsöluhöf- undinn James Patterson er kom- in út í kilju. Þýð- andi er Magnea J. Matthíasdóttir. Bókin kom út í inn- bundinni útgáfu í haust. Spennusög- umeistarinn James Patterson leiðir lesendur inn í skelfilega undirheima í annarri bókinni um Kvennamorð- klúbbinn. Óhugnanleg morð sem hafa sett San Francisco á annan endann virðast ótengd að öðru leyti en hvað þau eru hrottafengin. En rannsóknarlögreglukonan Lindsay Boxer finnur á sér að einhver þráður liggur á milli þeirra. Hún kallar sam- an vinkonur sínar í Kvennamorð- klúbbnum til að vita hvort þær geti fundið hann. Þær komast brátt að því að morðin eru tengd og egna gildru sem morðinginn fær ekki stað- ist. James Patterson er höfundur fjölda alþjóðlegra metsölubóka en aðeins ein þeirra hefur komið út á ís- lensku, Fyrstur til að deyja. Annað tækifæri er sjálfstætt framhald hennar. Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin er 240 bls., prentuð í Danmörku. Verð: 1.590 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.