Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 29
Listasafn Íslands kl. 12.10–
12.40 Rakel Pétursdóttir safn-
fræðingur verður með leiðsögn um
sýninguna Íslensk myndlist 1900–
1930.
Stofa 103 í Lögbergi kl. 15 Dr.
Margrét Jónsdóttir heldur fyr-
irlestur á vegum Stofnunar Vigdís-
ar Finnbogadóttur. Fyrirlesturinn
nefnist „Textar kinn við kinn: um
tvímálaútgáfu af Yermu eftir Fed-
erico García Lorca.“ Hann fjallar
um tvímálaútgáfu af Yermu eftir
Federico García Lorca sem brátt
kemur út á vegum Stofnunar Vig-
dísar Finnbogadóttur. Þýðingin er
samvinna Margrétar Jónsdóttur og
Karls Guðmundssonar en formáli,
nótur við útgáfu og verkefni fyrir
nemendur eru verk Margrétar
Jónsdóttur. Í fyrirlestrinum fjallar
Margrét um forsendur tvímála-
útgáfunnar og hvernig leitast er
við að flétta saman tungumálanám
og bókmenntakennslu.
Dr. Margrét Jónsdóttir er sérfræð-
ingur við Háskólann í Reykjavík og
vararæðismaður Spánar á Íslandi.
Jón forseti kl. 21 Skálda-
spírumenn efna til upplestr-
arkvölds í samvinnu við Rit-
hring.is. Hildur Helgadóttir,
Hjörvar Pétursson og Gunnar
Randversson lesa úr nýjum verk-
um sínum en auk þeirra er öllum
frjálst að lesa upp ljóð og aðra
stutta texta.
Smiðjan Listhús Ármúla 36 kl.
20 Myndlistarmaðurinn G.R. Lúð-
víksson opnar sýningu. Sýningin,
sem ber heitið „Hin fyrsta freist-
ing“, uppistendur af máluðum
verkum.
Eins og heiti sýningarinnar ber
með sér þá er eplið í fyrirrúmi, en
eplið er fyrsta freisting sem Guð
lagði fyrir manninn.
Sýningin stendur aðeins í eina
viku.
Fiskbúðin Freyjugötu 1 kl. 16 til
18 Birna Þórðardóttir mun árita
og lesa upp úr ljóðabók sinni
Birna/BIRNA.
Tilvalið er að njóta ljóðalesturs um
leið og náð er í hinn daglega fisk,
enda fátt þjóðlegra en fiskur og
ljóð, segir í kynningu.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
afmælis-
tilboð
Þann 5. apríl 1944 hóf Þorvaldur Guðmundsson
rekstur matvöruverslunarinnar Síld & fiskur.
Fljótlega hóf hann framleiðslu kjötvara undir
vörumerkinu Ali sem síðan hafa verið tíðir gestir
á matborðum Íslendinga.
Ali kjötvörur byggja á sterkri hefð vöruvöndunar
og nýsköpunar þar sem kappkostað er að neytandinn
upplifi gæði íslenskra landbúnaðarafurða, auk þess
sem áhersla er lögð á nýjungar og framþróun í
vöruframboði Ali. Við trúum því að neytendur sækist
eftir þessum eiginleikum í þeim kjötvörum sem þeir
kaupa og leggjum okkur fram um að standast
væntingar þeirra.
Um leið og Ali þakkar Íslendingum fyrir samfylgdina
síðustu 60 árin vonast fyrirtækið til þess að eiga
ánægjuleg viðskipti við neytendur á komandi árum.
Í tilefni tímamótanna efnir Ali til afmælisveislu í
samvinnu við smásöluverslanir um allt land.
1 9 4 4 - 2 0 0 4
sextíu ára
hunangsreyktar kótilettur
pepperoni
spægipylsa bacon
skinka
Vörur á afmælistilboði til 20. apríl:
A
ug
l.
Þ
ór
h.
17
17
.5
9
EDDA útgáfa og Fréttablaðið
standa að ljóðasamkeppni dagana
16.–23. apríl. Samkeppnin er ætluð
öllum sem fæddir eru árið 1974 og
síðar.
Dómnefnd skipa Kolbrún Berg-
þórsdóttir, Kristján B. Jónasson og
Þorvaldur Þorsteinsson og velja
þau átta ljóð og ljóðskáld sem les-
endur Fréttablaðsins geta svo valið
úr í símakosningu.
Edda útgáfa veitir þeim skáldum
sem komast í fjögurra ljóða úrslit
myndarleg bókaverðlaun og gefur
út sigurljóðið.
Ljóða-
samkeppni
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
SMS
tónar og tákn