Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 37

Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 37 veiða á kvöldin, þú kenndir mér að blóðga og flaka fiskinn, svo elduðum við hann í miðnætursnarl. Ég á svo margar minningar, ég hugsa svo mikið, en ég á engin orð, en, afi minn, ég ætla að geyma þig í hjarta mínu. Karl Aron. Elsku afi minn, mamma sagði mér að þú værir dáinn, farinn til engl- anna, að nú væru englarnir að passa þig. Ég skil ekki, ég er svo lítil, þú varst hjá okkur á sunnudaginn, við fórum á húsbílnum að sækja pizzu. Afhverju? Hvernig? Hvenær? Hvar? Ég skil ekki, afi. En elsku afi minn, þú ert hjá engl- unum og passar okkur öll. Mikið vildi ég af þér læra, að aldrei megi nokkurn særa, því þú ert algjört gæðaskinn, elsku besti afi minn. (Höf. ók.) Bless afi. Ástrós Anna. Þegar Steinunn frænka mín hringdi í mig og sagði mér að Kalli maðurinn hennar hefði orðið bráð- kvaddur fyrr um morguninn trúði ég ekki mínum eigin eyrum. Var nú ekki búið að leggja nóg á hana systur mína og hennar fjölskyldu, þetta var þriðja ótímabæra dauðsfallið í fjöl- skyldunni hennar. Daginn áður hafði öll stórfjölskyldan verið saman kom- in í fermingarveislu og þar voru Steinunn og Kalli. Það voru allir að tala um hvað Kalli liti vel út en fyrir einu og hálfu ári hafði hann greinst með krabbamein og var í heilt ár í framhaldi af því í erfiðri krabba- meinsmeðferð. En nú var bjart framundan og hann virtist kominn yfir þetta og sögðu læknar að þetta væri hreint kraftaverk og gáfu hon- um góðar vonir. Þau höfðu staðið í þessu saman hjónin, eins og í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur, og studdi Steinunn mann sinn með ráð- um og dáð í þessum erfiðu veikind- um. En svo gerist þetta og á maður bágt með að skilja tilganginn. En eins og einhvers staðar stendur eru vegir Guðs órannsakanlegir. Ég kynntist Kalla fyrst fyrir rúm- um þrjátíu árum þegar hann og syst- urdóttir mín hún Steinunn felldu hugi saman. Það sáu það allir í fjöl- skyldunni að þarna var einstakur drengur á ferð og átti hann hug okk- ar allra við fyrstu kynni. Mér finnst alltaf að ég eigi nú eitthvað í henni frænku minni og hef frekar litið á hana sem systur mína en frænku. Hún var fyrsta barnabarn foreldra minna og aldursmunur á okkur ekki svo mikill. Ég hafði passað hana þeg- ar hún var lítil þannig að mér var ekki alveg sama hvaða lífsförunaut hún veldi sér. En Steinunn mín hafði valið rétt því annar eins öðlingur held ég að hafi verið vandfundinn. Við urðum strax ágætis vinir og náð- um ágætlega saman. Kalli var þá sjó- maður sem hann hefur reyndar verið nánast allan sinn starfsaldur og ég sem fyrrverandi sjómaður hafði því margt við hann að spjalla. Kalli og Steinunn stofnuðu sitt fyrsta heimili hér í Reykjavík en eftir nokkur ár fluttu þau til Skagastrandar á æsku- slóðir Steinunnar þar sem Kalli hafði ráðið sig á togara. Þar reistu þau sér fallegt heimili og hafa búið þar allar götur síðan. Hefur alltaf verið jafn gott að heimsækja þau og marga nóttina hef ég gist hjá þeim á ferðum mínum um landið. Á Skagaströnd eignuðust þau hjónin góða vini og veit ég að bæði skipsfélagar Kalla og aðrir Skagstrendingar harma fráfall hans því alls staðar var hann vel lið- inn. Kalli var einn af þeim mönnum sem gat gert allt og þegar hann var í landi gerði hann ótrúlegustu hluti. Hann var smiður bæði á tré og járn, hann var ágætis málari og það sem merkilegast var, hann smíðaði heilu bílana nánast frá grunni og innrétt- aði þá. Það voru margar stundirnar sem hann átti í bílskúrnum þegar hann var í fríi. Kalli og Steinunn voru alla tíð ein- staklega samrýnd hjón. Kalli hafði innréttað húsbíl fyrir nokkrum árum og voru þau búin að ferðast á honum um nánast alla fjallvegi landsins. Þetta var þeirra líf og yndi og veit ég að fyrirhuguð voru ferðalög í sumar. Kalli var elskaður af börnunum sín- um og var þeim góður faðir og fyr- irmynd. Systur minni var hann ein- staklega góður tengdasonur og var hann henni mikil stoð á erfiðum tím- um í lífi hennar og veit ég að hún elskaði hann eins og væri hann henn- ar eigin sonur. Ég veit að Kalli er í góðum hönd- um núna því þeir hafa tekið vel á móti honum tengdafaðir hans og mágur. Á kveðjustund þakka ég fyr- ir að hafa kynnst þessum ljúfa dreng og ef til væru fleiri slíkir væri heim- urinn betri en hann er í dag. Elsku Steinunn mín, ég, Día og dætur okkar sendum þér, börnunum þínum og öðrum aðstandendum inni- legustu samúðarkveðjur okkar og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í þeirri miklu sorg sem þið hafið orðið fyrir. Sverrir Halldórsson. Þvílík harmafregn þegar Kiddý hringdi í mig á mánudagsmorguninn og sagði mér að Kalli væri dáinn. Nei, það gat ekki átt sér stað, við vorum saman í veislu daginn áður. Hann sem stóð uppi sem sigurvegari eftir öll veikindin sem höfðu hrjáð hann. En engu að síður blasti sú staðreynd við að hann var frá okkur tekinn. Það er erfitt að sjá á bak svo traustum og einlægum vini sem svo skyndilega hverfur sjónum okkar. Það getur hver og einn láð mér það þó að ég eitt andartak efist um tilvist almættisins þegar áleitnar spurning- ar leita á hugann. Hvers vegna er ástvinur frá okkur tekinn í blóma lífsins meðan gamalt og örkumla fólk bíður árum saman þess eins að fá að deyja? Það fer eflaust betur á því að okkur er ekki ætlað að skilja tilgang- inn, en við verðum að trúa því að handan grafar sé honum ætlað æðra og meira hlutskipti, sem ég er sann- færður um að hann rækir af sömu samviskusemi og dugnaði og ein- kenndu hann meðan hann var meðal okkar. Með örfáum orðum viljum við kveðja Kalla og þakka honum fyrir allar þær ánægjulegu samveru- stundir sem við áttum með honum. Þegar litið er til baka er margs að minnast, ekki síst þau ferðalög sem við fórum saman í bæði um hálendi og láglendi landsins, þar sem Kalli þekkti hverja þúfu og hvert fjall og hvern þann vegarslóða og troðning sem færir voru og ófærir. Svo mikið er víst að fyrir hans tilstilli höfum við ferðast meira um hálendi landsins og upplifað meira af fegurð þess. Kalli naut þess að ferðast og hafði næmt auga fyrir náttúrufegurð og miðlaði okkur af þekkingu sinni og reynslu. Þessi ferðalög voru að öllu ómetan- leg og minningarnar yndislegar. Mörgum stundum eyddum við sam- an í sumarbústaðnum okkar á Þing- völlum, sem við vorum að endur- byggja. Þær stundir voru ánægjulegar, ekki síst fyrir það að sjá árangur þeirrar vinnu sem við höfðum lagt þar af mörkum. Þar vor- um við saman stuttu fyrir andlátið að viða að okkur efni til frekari fram- kvæmda og spá og spekúlera um framtíðina. En á örskotsstundu breytist allt og ekkert virðist hafa nokkurn tilgang lengur, sorgin hel- tekur mann og hvergi ljósglætu að sjá í tilverunni. Það er þá sem minn- ingarnar um góðan dreng og mikinn vin hjálpar okkur til að takast á við þá sorg og þá þjáningu sem óhjá- kvæmlega umlykur okkur. Þær minningar verða aldrei frá okkur teknar. Kærleikur, umhyggja og drenglyndi munu einkum prýða minningu hans. Við minnumst hans með þakklæti, vinsemd og virðingu. Megi algóður guð blessa og varð- veita fjölskyldu hans, veita henni styrk og halda sinni verndarhendi yfir henni um alla framtíð. Guð geymi góðan dreng. Indriði og Kristjana. Við hjónin ákváðum að skrifa kveðju til Kalla vinar okkar. Ekki grunaði okkur þegar Jonni fór út á sjó núna síðast að hann sæi ekki Kalla vin sinn aftur. Kalli ætlaði að fara á sjóinn núna í júní, ekki seinna en í haust. Hann og Steinunn hafa verið vina- fólk okkar í hartnær 25 ár eða frá því að við fórum að búa hér á Skaga- strönd. Það er svo margs að minnast frá liðnum árum og eigum við bara góðar minningar tengdar þeim hjón- um. Við minnumst hér bara á örfá at- riði sem koma upp í hugann núna þegar hugurinn reikar til liðins tíma. Og viljum við minnast hans í fáum orðum. Hann Kalli var rólegur að eðlisfari og héldu allir að Steinunn réði öllu á þeirra heimili en maður komst fljótt að því að hún réð bara því sem hann vildi að hún réði og ekki orð um það meir. Jonni og hann voru saman til sjós nær allan þennan tíma svo að það var margt brallað á þessum ár- um í innanlandsferðum jafnt sem ut- anlandsferðum og áttum við margar góðar stundir saman. Og er ferðin nú í haust til Prag minnisstæð, og svo ferðirnar hér heima um landið okkar með þau Kalla og Steinunni sem far- arstjóra. Var það alveg yndislegt. Það var svo gaman að ferðast með þeim, þau nutu þess svo að vera úti í náttúrunni. Og voru nú ekkert að flýta sér á milli staða heldur nutu þau náttúrunnar, eins og þegar við fórum í Kverkfjöll og Öskju og Kalli synti yfir Víti með Kristjáni syni okkar. Það var ekki hægt að sjá að þar færi maður sem búinn væri að glíma við krabbamein á háu stigi. Hann og Kristján voru altaf fremstir þegar var farið í göngutúra. Ég gæti haldið svona áfram endalaust en læt hér staðar numið. Við geymum minningu um góðan vin og félaga í hjarta okkar og biðjum algóðan Guð að styrkja Steinunni okkar, Maríu Rós, Steinþór, Gunnar og Karen Petu og litlu barnabörnin hans, tengdabörn og alla ástvini aðra. Vilj- um við kveðja með þessu versi Hall- gríms Péturssonar: Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér. Vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. Kveðja. Guðjón, Guðrún og fjölskylda. Að morgni þess 29. mars barst okkur sú harmafrétt að Kalli hefði látist þá um morguninn, langt um aldur fram. Maður svo sem veit að enginn fær umflúið dauðann en sjaldnast er maður sáttur þegar hann ber að garði svona nærri manni. Einmitt nú, þegar sjúkdóm- urinn sem var að hrjá Kalla virtist vera á undanhaldi. Okkur hafði hnykkt við þegar hann hafði komið veikur heim af sjónum í hittifyrra fyrir jólin og hafði síðan greinst með illvígan sjúkdóm. Þegar við heim- sóttum hann þá á sjúkrahúsið sagði Kalli sínum hæga rómi: „Við hristum þetta af okkur,“ og glotti út í annað. Það var árið 1977 sem Kalli og Steina fluttu norður til Skagastrand- ar og fljótlega upp úr því myndaðist vinskapur milli okkar sem aldrei bar skugga á. Fundum við strax að þarna fór traustur maður. Kalli fór fljótlega á sjóinn og var með okkur á sjónum í fjöldamörg ár. Var hann af- burðasjómaður og gat gengið í nán- ast öll verk um borð í skipi. Fór einu sinni sem vélstjóri einn túr með okk- ur. Gekk Kalli að verki fumlaust og yfirvegað og það sem hann hafði gert þurfti ekki að vinna aftur. Kalli var einstaklega dagfarsprúð- ur maður og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Einhvern veginn var það þannig að manni leið alltaf vel í návist hans. Aldrei heyrðist að Kalli hallmælti nokkrum manni og var einstaklega bóngóður. Það sem hann hafði lofað var staðið við. Kalli og Steina voru mjög samhent hjón en þó svo ólík. Steina sem getur stundum verið nokkuð hávær og sagt hlutina umbúðalaust og svo aft- ur Kalli, þessi rólegheitamaður. Þau bættu hvort annað upp. Þannig var með þau hjón, ef minnst var á annað hvort þeirra þá var ósjálfrátt minnst á hitt líka. Kalli og Steina höfðu ákaf- lega gaman af að ferðast og voru fáir staðir á Íslandi sem þau höfðu ekki komið á. Síðustu tvö sumur höfðum við ferðast með þeim um Norðaust- ur- og Austurland og hálendið. Var þá gott að njóta þeirra traustu og góðu leiðsagnar. Okkur er minnis- stætt þegar við fórum að skoða Hafrahvammagljúfur og sum okkar voguðu að skríða fram á brúnina og kíkja niður. Kemur þá Kalli og nán- ast vegur salt á tánum á brúninni og starir niður og segir svo: „Fjandi er þetta djúpt.“ Ótal atvik koma upp í hugann sem gerðust í þessum ferðum, eins og þegar Kalli synti yfir Víti. Þegar við sáum brýrnar síga á honum út af ein- hverjum Svisslendingi sem spraut- aði vatni inn í bílinn hjá honum á bílastæði við Mývatn. Það var svo sem enginn æsingur í Kalla en manngreyið fékk að heyra kjarnyrta íslensku. Var þetta í fyrsta og eina skiptið sem við sáum að hann hvessti sig virkilega á öllum þessum árum sem við þekktum hann. Gaman var að heimsækja Kalla í bílskúrinn, en þar dvaldi hann löngum stundum. Var hann ágæt- lega laghentur og sjaldan óx honum í augum verk ef eitthvað kom upp á sem þurfti að laga eða breyta í sam- bandi við bílaviðgerðir. Var gaman að fylgjast með Kalla ef minnst var á bíla og ekki sakaði ef þeir voru átta gata tryllitæki, þá var eins og kvikn- aði einhver innri glóð í augunum á honum og hann lifnaði allur við. Bílar voru alltaf mikið áhugamál hjá hon- um. Að hafa átt Kalla að vini öll þessi ár eru forréttindi og minning um góðan dreng sem mun ekki gleymast í hugum okkar. Elsku Steina og fjölskylda, missir ykkar er mikill og biðjum við góðan Guð að styrkja ykkur. Eftir lifir minning um frábæran eiginmann, föður og afa. Við efumst ekki eitt andartak um að þegar að okkar kalli kemur þá mun Kalli taka á móti okkur, bros- andi sínu gamalkunna brosi, og segja hægum rómi: „Eigum við ekki að leggja í hann? Ég veit um fullt af nýjum og flottum stöðum til að skoða.“ Guð blessi minningu Kalla Rós. Finnur og Guðbjörg. Vinur okkar um langa tíð og ljúf- mennið hann Kalli er nú horfinn yfir móðuna miklu. Góðar minningar um ágætan dreng munu þó lifa áfram í hugum okkar sem eftir sitjum. Með kvæðinu Nótt eftir Þorstein Valdi- marsson sendum við Kalla okkar hinstu kveðjur og þökkum liðnar stundir. Velkomin, nótt, sem handan um vötn og heiðar hýming dregur á tinda, svefn yfir brár, og þaggar dagsins þys – unz alkyrr eyrum nær ómur af straumaniði, hljóður blær vakinn í strám og viði – og vegfara þreyttum færir draumanna feginsgjöf, bros eilífrar ástar í augum þínum, skuggsjá hins djúpa geims – og hann krýpur og kyssir klukkublómin smáu, er slóði þinn snart og skína í grasi drifin stjörnudögg. Dóra og Filip. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR BJÖRNSSON húsgagnabólstrari, Ölduslóð 26, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtu- daginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 7. apríl kl. 13.30. Ólafía Helgadóttir, Helga Þóra Ragnarsdóttir, Magnús Pálsson, Birna Katrín Ragnarsdóttir, Björn Ingþór Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma. ÁSTA KETILSDÓTTIR, Mýrargötu 18, Neskaupstað, andaðist á Sjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 3. apríl. Jarðsett verður frá Norðfjarðarkirkju laugar- daginn 10. apríl kl. 14.00. Nanna Gunnarsdóttir, Vilhjálmur Gíslason, Gunnar Gunnarsson, Guðfinna Ásdís Svavarsdóttir, Gylfi Gunnarsson, Ásdís Hannibalsdóttir, Jóna Sigríður Gunnarsdóttir, Þórarinn Ölversson, Víglundur Sævar Gunnarsson, Ína Dagbjört Gísladóttir, Katla Gunnarsdóttir, Emil Thoroddsen, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURÐUR KRISTINSSON frá Hafranesi, Eyjabakka 2, Reykjavík andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að morgni mánudagsins 5. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Anna B. Stefánsdóttir, Víðir Sigurðsson, Hlín Baldursdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Jónas Vignir Grétarsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.