Morgunblaðið - 06.04.2004, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 06.04.2004, Qupperneq 44
MINNINGAR 44 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Elsku afi. ... sitji Guðs englar sam- an í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Afi minn, nú ertu farinn. Ég friða hjarta mitt við það að nú líði þér bet- ur, því nú ertu hjá ömmu. Ég og við höfum hugsað mikið til þín undan- farna daga og munum sakna þín mikið. Ég veit að þér líður betur þar sem þú ert núna og fylgist með okk- ur öllum þaðan. Við áttum góðar stundir saman sem við varðveitum í hjarta okkar. Ég bið almættið að varðveita þig og ástvini okkar sem eru hjá þér og veit að amma og pabbi minn taka á móti þér. Við biðjum að heilsa pabba og ömmu og þú knúsar þau frá okkur og segir þeim að okkur gangi vel, þó þau viti það. Ég bið Guð að veita börnum þínum ró í hjarta og við kveðjum með söknuði. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Bless bless, elsku afi og langafi Finnur og fjölskylda. ELÍ RÓSINKAR JÓHANNESSON ✝ Elí Rósinkar Jó-hannesson húsa- smíðameistari fædd- ist á Hlíð í Álftafirði við Ísafjarðardjúp 19. október 1925. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 18. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Kópa- vogskirkju 26. mars. Látinn er góðvinur minn til rúmlega fimm áratuga, Elí Jóhannes- son húsasmíðameistari, síðast búsettur á Álf- hólsvegi 151 í Kópa- vogi. Við andlát hans koma upp í huga mín- um minningar um ótal góðar stundir, sem við hjónin áttum með Elí og Matthildi, hans ágætu konu. Það mun hafa verið árið 1947, sem Elí, eða Elli eins og hann var oftast kallaður, fluttist í Borgarnes, en hann var þá við nám í húsasmíði hjá Jóhanni Snæbjörns- syni húsasmíðameistara, er hafði þá tekið að sér forstöðu trésmíðafyr- irtækis í Borgarnesi og flutti Elli því þangað ásamt lærimeistara sínum. Þar sem svo hagaði til að tré- smíðafyrirtæki þetta var tengt verslunarfyrirtæki því, sem ég starfaði hjá á þessum árum, fór ekki hjá því að við Elli kynntumst fljót- lega og hefur sá kunningsskapur varað æ síðan. Nokkru eftir komu Ella til Borg- arness flutti Matthildur unnusta hans einnig þangað. Giftu þau sig og hófu þar búskap. Fljótlega eftir að Elí og Matthild- ur stofnuðu heimili mynduðust góð kynni með þeim og okkur hjónum og áttum við margar ánægjulegar stundir á þessum árum. Dætur okk- ar tvær, sem þá voru á barnsaldri, urðu mjög hændar að þeim, enda þau hjón mjög barngóð. Elli var á þessum árum jafnan hress í máli og notalegur í viðkynn- ingu, enda eignaðist hann brátt all- marga kunningja á nýja staðnum. Þá minnist ég og þess að ætíð var hann boðinn og búinn að rétta manni hönd ef honum fannst við þurfa. Á þessum árum var enginn iðn- skóli í Borgarnesi og fór Elli því til Reykjavíkur og settist á skólabekk til að nema hin bóklegu fræði. Að þeirri skólagöngu lokinni kom hann aftur til Borgarness og lauk þar iðn- námi sínu með smíði sveinsstykkis, er var útidyrahurð úr tekki með heilmiklum umbúnaði. Má geta þess hér með í leiðinni að hurðin með til- heyrandi var sett fyrir innganginn í Hótel Borgarnes, sem þá var ný- byggt. Fljótlega eftir að kunningsskapur okkar Ella hófst fór ég að inna hann eftir því hvort hann hefði áhuga fyr- ir veiðiskap og væri kannski til í að prófa að fara á silungsveiðar í eitt- hvert stöðuvatnið í nágrenninu. Hann hafði í uppvextinum vanist sjósókn, samhliða bústörfum, og dregið margvíslega fiska úr sjó, en stangveiði hafði hann ekki kynnst. Er skemmst frá því að segja að hann fékk strax ósvikinn áhuga fyrir slíkum veiðiskap og þær urðu all- margar ferðirnar sem við fórum í vötnin upp af sveitum Borgarfjarð- ar. Stundum fleiri saman og stund- um bara tveir einir. Margar góðar minningar á maður frá þessum ferð- um og dvöl okkar við fjallavötnin, enda þótt aflinn kynni að vera mis- jafn eins og gengur í slíkum reisum. Seinna færðum við okkur upp á skaftið og fórum til veiða í Víkurá í Hrútafirði og Miðfjarðará. Varð sú ferð þangað eftirminnileg vegna aflasældar, en það er önnur saga. Er þau Elí og Matthildur fluttust úr Borgarnesi, sem mun hafa verið árið 1953, settust þau að í Kópavogi og vann Elli um tíma á Keflavík- urflugvelli við byggingarvinnu en réðst síðan til umsvifamikils bygg- ingarverktaka í Reykjavík og mun hafa unnið þar uns hann kom á fót sjálfstæðum rekstri í húsabygging- um. Var hann um skeið með allmikil umsvif á því sviði. Fljótlega eftir að þau hjón fluttu í Kópavoginn reistu þau sér íbúðar- hús á Bjarnhólastíg 9 þar sem þau bjuggu fram á níunda áratuginn, en Elli byggði þá hús í vesturhluta Kópavogs þangað sem þau fluttu og bjuggu í allnokkur ár uns þau seldu það og keyptu íbúð á Álfhólsvegi 151 þar sem þau bjuggu þar til Matt- hildur andaðist. Við brottflutning þeirra hjóna frá Borgarnesi dró af eðlilegum ástæð- um úr sambandi okkar við þau, en ef maður var á ferð syðra leit maður oft inn á Bjarnhólastígnum ef tími gafst. Þá komu þau og stundum í heimsókn og tvisvar eða þrisvar fór- um við Elli og kíktum eftir hvort sil- ungurinn væri ekki á svipuðum slóð- um og fyrr á árum í heiðarvötnunum bláu. Eftir að við hjónin fluttumst til Reykjavíkur styrktust kynni okkar við þau Elí og Matthildi á ný er við fórum að hittast oftar. Fórum við saman út að dansa, á þorrablót og í ferðalög. Allt á vegum félags eldri borgara, en við vorum jú öll komin í þann hóp. Áttum við margar ánægjulegar samverustundir, rétt eins og í gamla daga. Eftir lát Matthildar í desember 1997 bjó Elí nokkurn tíma einn í íbúðinni við Álfhólsveginn með dyggum stuðningi barna sinna, en vegna hrakandi heilsu fékk hann inni á dvalarheimili þar sem hann dvaldi síðustu árin. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 18. mars 2004. Eins og ég gat hér að framan hafði Elli á fyrri árum mikla ánægju af útivist og stangveiði og er margs að minnast af þeim vettvangi. Í gömlu myndaalbúmi sem ég á er m.a. mynd af Ella ásamt fjórum fé- lögum okkar, sem ég tók af þeim (sennilega 1950 eða 1951) þar sem þeir standa fyrir utan gangna- mannahúsið við Langavatn í Mýra- sýslu, þar sem við höfðum verið að veiðum. Allir þeir sem á þeirri mynd voru eru horfnir af sjónarsviðinu, sumir fyrir áratugum, var Elli sá síðasti þeirra, sem á myndinni voru, til að kveðja. Við hjónin kveðjum þennan gamla vin með þakklæti fyrir góð kynni á löngu liðnum árum. Börnum hans og fjölskyldum þeirra sendum við inni- legustu samúðarkveðjur. Þorkell Magnússon. Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, ODDUR ÁGÚST BENEDIKTSSON frá Hvalsá í Steingrímsfirði, lést á Hrafnistu Hafnarfirði föstudaginn 2. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Synir og tengdadætur. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, EGILÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Garðvangi, Garði, lést föstudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn 10. apríl kl. 14.00. Baldur Konráðsson, Guðrún Agnarsdóttir, Sigríður Baldursdóttir, Kjartan Valdimarsson, Líney Baldursdóttir, Óskar Guðjónsson, Sævar Baldursson. Bróðir okkar, mágur, frændi og vinur, RÓBERT TÓMASSON frá Færeyjum, Hringbraut 57, Keflavík, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum góða umönnun á hjúkrunadeildinni Víðihlíð, Grindavík. Fyrir hönd annarra vandamanna, Tómas Tómasson, Valdimar Tómasson. Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru MAGÐALENU KRISTÍNAR BRAGADÓTTUR, Tunguseli 3, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Ölduselsskóla. Guðbjörn Karl Ólafsson, Bragi Hlífar Guðbjörnsson, Thelma Dögg Guðbjörnsdóttir, Ólafur Ragnar Guðbjörnsson, María Albertsdóttir, Kolbrún Guðbjörnsdóttir, Helga Kristín Kristvaldsdóttir, Tómas Magni Bragason, Anna Ragna Bragadóttir, Margrét Steinunn Bragadóttir, Valdimar Ólafsson, Hólmfríður Jóna Bragadóttir, Geir Sigurður Sigurjónsson, Björg Ólöf Bjarnadóttir, Ragnar Óskarsson, Bogi Thorarensen Bragason, Sólveig Ásgeirsdóttir, Sigríður Carson, William Steve Carson, Ragna Klara Björnsdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær sonur minn og bróðir okkar, SIGMUNDUR VIGGÓSSON, sem lést laugardaginn 27. mars, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. apríl kl. 13.30. Kristín Guðmundsdóttir, Vigdís R. Viggósdóttir, Lilja Viggósdóttir. Elskulegur mágur og frændi okkar, EINAR GUNNAR ÞÓRHALLSSON, Vogum I, Mývatnssveit, verður jarðsunginn frá Reykjahlíðarkirkju mið- vikudaginn 7. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á fugla- safn Sigurgeirs Stefánssonar, Ytri-Neslöndum. Fyrir hönd aðstandenda, Leifur Hallgrímsson, Gunnhildur Stefánsdóttir, Ólöf Þ. Hallgrímsdóttir Jón Reynir Sigurjónsson, Dagný Hallgrímsdóttir, Þuríður Anna Hallgrímsdóttir, Þórhallur Guðmundsson. Maðurinn minn og faðir okkar, SKARPHÉÐINN ÖSSURARSON, Kleppsvegi 2, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi mánudaginn 5. apríl. Valgerður Magnúsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Magnús H. Skarphéðinsson, Sigurður V. Skarphéðinsson, Jófríður Á. Skarphéðinsdóttir, Halldóra Skarphéðinsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til- greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgun- blaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrif- uðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Birting afmælis- og minningargreina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.