Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 49 BORIST hefur athugasemd við frétt- ir af launamuni kynjanna hjá sveit- arfélögunum frá Hildi Jónsdóttur, jafnréttisráðgjafa Reykjavíkurborg- ar: „Af nokkrum fréttaklausum í Morgunblaðinu að undanförnu mætti ætla að ágreiningur væri á milli Reykjavíkurborgar og ParX Við- skiptarágjafar IBM um túlkun á nið- urstöðum úr könnunum sveitarfélaga á kynbundnum launamun. Tilefni fréttanna er nýbirt könnun hjá Kópa- vogsbæ sem unnin var af IBM og hef- ur hún ásamt öðrum nýjum könnun- um verið borin saman við tvær launakannanir Reykjavíkurborgar. Enginn ágreiningur er til staðar um túlkun niðurstaðna, en í frétt Mbl. sem birtist 27. mars sl. gætir nokkurs misskilnings. Í fréttinni var haft eftir mér eft- irfarandi: „...séu notaðar sömu for- sendur og notaðar eru við að finna muninn í öðrum sveitarfélögum er munurinn í Reykjavík 7%, sem er meira í takt við muninn í öðrum sveit- arfélögum, segir Hildur.“ Í símtali milli landa varði ég nokkr- um tíma í að útskýra fyrir blaðamanni hið gagnstæða, að ástæða fyrir því að þessi þekkta tala, 7%, sem er niður- staða launakönnunar Reykjavíkur- borgar þar sem miðað var við launa- gögn 2001, sé ekki sambærileg við þær tölur sem birst hafa sem niður- stöður síðari tíma launakannanna annarra sveitarfélaga, sé einmitt að hún er ekki fundin með sambæri- legum hætti. Þessi tala er eingöngu sambærileg við fyrri könnun Reykja- víkurborgar frá 1995, sem sýndi kyn- bundinn launamun upp á 15,5%. Til- gangur síðari könnunarinnar var að meta breytingar frá því að fyrri könn- unin var gerð eða með öðrum orðum, leggja mat á árangur stefnumörkun- ar og aðgerða Reykjavíkurborgar til að draga úr launamun kynja sem gripið hafði verið til í margvíslegu formi. Því var algerlega nauðsynlegt að endurtaka könnunina með ná- kvæmlega sama hætti, þ.e. sömu breytum og talið hafði verið eðlilegt að nota sex árum áður af Félagsvís- indastofnun Íslands. Hins vegar voru niðurstöður settar fram með ítarlegri hætti, bæði með og án þeirra breytna sem síðan hefur orðið almennari samstaða um að ekki sé eðlilegt að nota. Því hefur öðrum einnig verið unnt að bera nýjar launa- kannanir annarra sveitarfélaga sam- an við niðurstöður Reykjavíkurborg- ar að sömu forsendum gefnum, svo sem gert hefur verið. Kemur þá í ljós að hjá þeim sveitarfélögum sem hafa gert umræddar launakannanir er kynbundinn launamunur mestur hjá Reykjavíkurborg. Það kemur okkur, sem þar störfum ekki á óvart, en sýn- ir kannski betur en flest annað hversu risavaxið verkefni borgin tókst á hendur í kjölfar fyrri launakönnunar- innar við að leiðrétta launamun kynja sem á mörgum áratugum var orðinn djúpstæður og samgróinn stofnana- gerð borgarinnar.“ Athugasemd frá Hildi Jónsdóttur, jafnréttisráðgjafa Reykjavíkurborgar Ekki ágreiningur um túlkun Viðskiptaháskólinn á Bifröst kynnir námsframboð skólans á meistarastigi í dag, þriðjudaginn 6. apríl kl. 17, á Grand hóteli, Reykjavík. Námið er byggt þannig upp að unnt er að stunda það með vinnu en líka sem fullt nám. Alls eru 30 einingar bundnar í nám- skeiðum og 15 eða 30 einingar í ritun meistararitgerðar, eftir því hvort valið er 45 eininga eða 60 eininga nám. Stysti mögulegi námstími er 45 eininga meist- aranám á 13 mánuðum. Við viðskiptadeild eru tvær línur, MS-nám í viðskiptafræði og MA- nám í hagnýtum hagvísindum. Í samvinnu við Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri er boðið upp á sérhæfingu á sviði umhverfis- og auðlindahagfræði og svæðafræði og í samvinnu við Reykjavík- urAkademíuna er boðið upp á menningar- og menntastjórn- unarlínu. Í lögfræðideildinni er boðið upp á meistaranám á tveim- ur sviðum; ML-nám í lögfræði og MS-nám í viðskiptalögfræði. Svölurnar, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja verða með félagsfund í Borgartúni 22, 3. hæð kl. 20 í dag, þriðjudaginn 6 apríl. Gestur fundarins, Gerður Gunn- arsdóttir, listamaður og fé- lagskona, segir frá verkum sínum í Kína í máli og myndum. Gerður á tvö listaverk á opinberum stöðum í Kína sem hún hefur unnið. Félag CP á Íslandi heldur fræðslufund í dag, þriðjudaginn 6. apríl kl. 20, á Háaleitisbraut 11– 13, (húsi Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra). Fjallað verður um vanlíðan og lélega sjálfsmynd vegna fötlunar og hegðunarvanda- mál. Fyrirlesarar eru: Inga Hrefna Jónsdóttir, sálfræðingur á Reykja- lundi, Guðríður Haraldsdóttir, sál- fræðingur á skólaskrifstofu Mos- fellsbæjar, og Katrín Einarsdóttir, sálfræðingur á Greiningar og ráð- gjafarstöð ríkisins. Einnig mun Hildur Bergsdóttir, nemi í fé- lagsráðgjöf, kynna niðurstöður könnunar sem hún gerði í sam- starfi við Greiningarstöðina og CP félagið. CP er skammstöfun fyrir cerebral palsy (einnig nefnt heilalömun) sem vísar til skaða sem verður á heila á meðgöngu, í fæðingu eða rétt eftir fæðingu. Afleiðingar eru hreyfihömlun en fleiri fatlanir fylgja o.fl., segir í fréttatilkynn- ingu. Ný lífssjón fundar í dag Ný lífs- sjón, samtök fólks sem vantar á út- limi og aðstandenda þeirra, verða með opinn fund í dag, þriðjudaginn 6. apríl kl. 20, í sal Lionsfélagsins Fjörgynjar á 2. hæð í Grafarvogs- kirkju. Í DAG Afríkutrommunámskeið í Wal- dorfsskólanum Lækjarbotnum Christina Aspequist frá Svíþjóð verður með Afríkutrommu nám- skeið sem stendur í eina viku í Waldorfsskólanum Lækjarbotnum (ca 20 mín. akstur frá Reykjavík). Þeir sem ekki vilja vera í viku á námskeiðigeta komið fimmtudag- inn 8. apríl (skírdag) kl. 10–17, kostar það 4.500 kr. ásamt hádeg- ismat. Föstudaginn 9. apríl verður Afríkutrommusýning kl. 14 og svo stutt námskeið fyrir börn sem kostar kr. 1.000. Æskilegra er að mæta með trommu með sér. Skráning er hjá Melkorku Frey- steinsdóttur á melkorkaedda- @simnet.is. Alþjóðleg próf í spænsku Föstu- daginn 14. maí nk. verða haldin al- þjóðleg próf í spænsku á Íslandi. Háskólinn í Reykjavík annast framkvæmd prófanna á vegum Menningarmálastofnunar Spánar (Instituto Cervantes) og háskólans í Salamanca. Farið er yfir prófin á Spáni. Prófin verða haldin við Há- skólann í Reykjavík. Frestur til að innrita sig rennur út hinn 15. apríl. Prófað verður á þremur þyngdar- stigum: Certificado Inicial, Dip- loma Básico og Diploma Superior. Certificado Inicial er hugsað fyrir byrjendur í spænsku sem hafa verið í skipulegu spænskunámi í eitt til tvö ár í framhaldsskóla. Diploma superior er ætlað þeim sem hafa BA-próf í spænsku eða samsvarandi tungumálakunnáttu, þekkingu á menningu Spánar. Próftökugjald er 7.600 kr. fyrir Certificado Inicial, 9.990 kr. fyrir Diploma Básico og 12.350 kr. fyrir Diploma Superior, sem að auki innifelur 3 klst. undirbúnings- námskeið fyrir prófin. Á NÆSTUNNI LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að árekstri á Hringbraut rétt vestan Snorrabrautar/Bústaða- vegar laugardagskvöldið 3. apríl um kl. 19.30. Þar rákust saman tvær fólksbifreiðir, Honda Civic og Peug- eot 206. Þeir sem geta gefið frekari upplýsingar eru beðnir að hringja í síma 569 9000. Árekstur í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum að árekstri á gatnamótum Hamrabergs og Reykjanesbrautar í Hafnarfirði þann 1. apríl um kl. 16.55. Þar lentu saman Kia Saphira og Jeep Grand Cherokee. Þeir veg- farendur er kunna að hafa orðið vitni að atburði þessum eru beðnir um að hringja í síma 525 3300. Lentu saman á gatnamótum Árekstur varð á gatnamótum Hamrabergs og Reykjanesbrautar 1. apríl sl. kl. 6.55. Þar lentu saman Kia Saphira og Jeep Grand Cher- okee. Eru þeir er kunna að hafa orð- ið vitni að atburðinum beðnir um að hafa samband í síma 525 3300. Lýst eftir vitnum NÁMSKEIÐI í íslensku fyrir út- lendinga við frumgreinadeild Tækniháskóla Íslands lauk 1. apríl sl. Það hófst 3. febrúar, stóð í 9 vik- ur og var samtals 36 tímar. Síðasta tímanum var varið í menningarferð í Perluna þar sem Sögusafnið var skoðað. Síðan voru skírteini afhent yfir kaffibolla uppi á 4. hæð. Á myndinni eru þátttakendur, taldir frá vinstri: Krjúpandi: Ivan frá Mallorca og Taru frá Finnlandi. Standandi: Nihan frá Tyrklandi, Soffía kennari, Johanna frá Finn- landi, Jenny frá Svíþjóð, Frida frá Svíþjóð, Andreina frá Venesúela, Thure frá Noregi, Mathilda frá Sví- þjóð, Pinar frá Tyrklandi, Esper- anza frá Filippseyjum, Alina frá Póllandi og Elzbieta frá Póllandi. Á myndinni er ekki Tatjana frá Eist- landi. Kennarar á námskeiðinu voru Steinar Matthíasson og Soffía Guðný Guðmundsdóttir. Luku námskeiði í íslensku MJÓLKURSAMSALAN og dótt- urfélög hennar hafa undirritað vá- tryggingasamning við Sjóvá- Almennar tryggingar hf. Jafnframt hafa Emmessís hf. og Sjóvá- Almennar gert samning um vá- tryggingar. Báðir samningarnir eru til 3 ára og fela í sér umfangs- mikla vátryggingarvernd. Sjóvá- Almennar munu jafnframt sinna ýmsum forvörnum í samstarfi við fyrirtækin í þeim tilgangi að draga úr líkunum á tjónum. Á myndinni eru Bjarni Ólafsson ráðgjafi hjá Sjóvá-Almennum, Sveinn Segatta, forstöðumaður fyr- irtækjasviðs Sjóvár-Almennra, Vil- helm Andersen, forstöðumaður fjármálasviðs Mjólkursamölunnar í Reykjavík, og Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri Emmessíss hf. Mjólkursamsalan semur við Sjóvá- Almennar um vátryggingavernd ÚT er komið 13. tbl. af Barnagát- um. Sem fyrr er þar að finna krossgátur, þrautir og gátur sem ætlaðar eru byrjendum. Lausn fylgir hverri gátu í blaðinu. Útgefandi er ÓP-útgáfan og fæst heftið í öllum helstu bóka- búðum og söluturnum. Barnagátur komnar út AÐALFUNDUR Félags íslenskra rafvirkja lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu félagsmanna Starfs- greinasambandsins við samninga- nefnd ríkisins um réttmætar kröfur um sambærileg réttindi í lífeyrismál- um og aðrir opinberir starfsmenn. Bent er á að samningar RSÍ við ríkið runnu út seinna en samningar SGS og af þeim ástæðum séu viðræður RSÍ skemmra á veg komnar. „Fari svo að félagsmenn Starfsgreinasam- bandsins komi til með að standa í eldlínunni á undan rafiðnaðarmönn- um í þessari baráttu munu rafiðn- aðarmenn líta svo á að um sameig- inlega baráttu sé að ræða og munu þeir einhuga stilla sér að baki Starfs- greinasambandsfólkinu með fullum stuðningi,“ segir í ályktuninni. Styðja baráttu SGS Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.