Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 52

Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 52
ÍÞRÓTTIR 52 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁKVEÐIÐ hefur verið að hleypa af stokkunum næsta vetur keppni í norrænni deild í knattspyrnu karla með tólf liðum frá þremur þjóðum, Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Gengið er út frá því að fjögur bestu knattspyrnulið hverra þess- ara þriggja þjóða taki þátt í henni. Leikið verður í þremur fjögurra liða riðlum þar sem tvær efstu þjóðirnar komast áfram úr hverj- um riðli. Á næsta stigi verður síðan leikið í tveimur þriggja liða riðlum og loks um sigurlaunin í kross á milli riðla. Leikið verður á þriðju- dögum og laugardögum og er ætl- unin að ná til knattspyrnuþyrstra íbúa landanna þriggja í gegnum sjónvarp, enda standa vonir til þess í fyllingu tímans að mótið verði vænleg tekjuleið fyrir félögin tólf sem taka þátt hverju sinni. Að baki keppninni standa knatt- spyrnusambönd Danmerkur, Nor- egs og Svíþjóðar en auk þess hefur Knattspyrnusamband Evrópu lagt blessun sína yfir keppnina sem mun bera það rammnorræna heiti Royal League. Keppnin hefur verið á teikniborðinu um allnokkurt skeið. Áætlað er að flautað verði til leiks 20. nóvember og síðan leikið jafnt og þétt fram í apríl en reikn- að er með að úrslitaleikurinn fari fram 21. eða 22. apríl 2005. Um er að ræða tilraunaverkefni þjóðanna þriggja. Eftir fimm ár verði fram- hald keppninnar metið í ljósi reynslunnar. Norræn knattspyrnudeild af stað næsta vetur DUNCAN Ferguson, hinn skapbráði skoski landsliðs- maður hjá Everton, hefur ver- ið úrskurðaður í fjögurra leikja bann og þá þarf hann að greiða 1,3 millj. ísl. kr. í sekt fyrir framkomu sína í leik gegn Leicester á dögunum. Hann tók þýska leikmanninn Steffen Freund hálstaki eftir að hann hafði fengið að sjá rauða spjaldið fyrir grófan leik. Síðan sýndi hann áhorf- endum lítilsvirðingu. Fergu- son byrjar að taka bann sitt út 19. apríl. Hans síðasti leikur verður gegn Chelsea tveimur dögum áður og síðan mun hann ekki leika meira með Everton á leiktíðinni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Fergu- son fær langt bann fyrir að ráðast á leikmann á leikvelli. Ferguson í fjögurra leikja bann  SIGFÚS Sigurðsson kemur inn í lið Magdeburg í kvöld þegar það mætir Wallau Massenheim í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Sigfús hefur misst af tveimur síðustu leikj- um Magdeburg, gegn Stralsunder og Kronau/Östringen, vegna meiðsla í hné og eins gat hann ekki gefið kost á sér í íslenska landsliðið í handknattleik í leikjunum við Frakka í síðustu viku.  ÞÁ mætir Nenad Perunicic, félagi Sigfúsar, til leiks á ný eftir að hafa verið frá keppni síðan í október vegna alvarlegra meiðsla í öxl.  ALEXANDER Petersson var með sex mörk þegar lið hans HSG Düss- eldorf vann TuSpo Obernburg, 34:25, í suðurhluta þýsku 2. deildar- innar í handknattleik. Düsseldorf hefur yfirburðastöðu í deildinni og fátt virðist geta komið í veg fyrir að liðið leiki í efstu deild á næstu leiktíð.  HALLDÓR Sigfússon kom lítið við sögu og náði ekki að skora þegar lið hans Friesenheim gerði jafntefli við TSG Ludwigsburg-Oßweil, 26:26, í suðurhluta þýsku 2. deildarinnar. Friesenheim siglir lygnan sjó um miðja deildina.  KRISTJÁN Helgi Jóhannsson, sem hefur leikið með Keflvíkingum í knattspyrnunni undanfarin ár, er genginn til liðs við 1. deildarlið Njarðvíkur. Kristján lék alla leiki Keflvíkinga í 1. deild í fyrra og hann á að baki 60 leiki í efstu deild, 44 með þeim og 14 með ÍA.  NJARÐVÍKINGAR hafa styrkt hóp sinn talsvert fyrir átökin í 1. deildinni í sumar. Þeir hafa meðal annars fengið Alfreð Jóhannsson að láni frá Grindavík og til þeirra er kominn serbneskur miðjumaður, Milan Janosevic.  SILJA Úlfardóttir, hlaupakona úr FH, keppti á sínu fyrsta utanhúss- móti í Bandaríkjunum á þessu ári um síðustu helgi. Hún hljóp 200 m á 24,15 sek., sem er 13/100 úr sek. frá hennar besta. Aðstæður voru slæm- ar auk þess sem í ljós kom að kepp- endur hlupu 201 metra í stað 200.  BELGINN Erik Gerets var í gær ráðinn þjálfari þýska knattspyrnu- liðsins Wolfsburg í stað Jürgens Röbers sem rekinn var úr starfi eftir 5:1 ósigur liðsins á heimavelli fyrir Stuttgart um helgina. Gerets missti starf sitt hjá Kaiserslautern í febr- úar en hann var áður þjálfari PSV í Hollandi. Gerets gerði samning við Wolfsburg sem gildir til ársins 2006.  ÞÝSKA meistaraliðið Bayern München hefur gert samnning við ír- anska sóknarmanninn Vahid Has- hemian, samherja Þórðar Guðjóns- sonar hjá Bochum. Hashemian gerði þriggja ára samning við Bæjara og er kaupverðið 2 milljónir evra. Ír- aninn, sem er 27 ára, hefur skorað 12 mörk á leiktíðinni fyrir Bochum. FÓLK Thierry Henry, framherjinn frábæri hjá Arsenal sem lék síðasta hálftím- ann í leiknum gegn United. „Ég er auðvitað vonsvikinn að fá ekki að byrja leikinn en ég virði ákvarðanir knattspyrnustjórans. Ég er hins vegar afar óhress með vinnubrögð enska knattspyrnusambandsins. Við spilum fjóra leiki á átta dögum og það sér hver heilvita maður að það gengur ekki upp. Við erum mennskir en ekki vélmenni,“ segir Henry. George Graham, fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal, spáir sínu gamla liði sigri gegn Chelsea. „Ég held að leikmenn Arsenal komi mjög grimmir til leiks eftir tapið gegn United og þeir vilja sýna og sanna hvers megnugir þeir eru. Ég hef samt hrifist af frammistöðu Chelsea og ef eitthvert lið getur haldið Arsenal frá því að skora á Highbury er það Chelsea. Ég trúi því hins vegar ekki að Arsenal spili tvo leiki í röð án þess að skora,“ segir Graham. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði Arsenal beið lægri hlut fyrir Man-chester United í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á laugardag- inn og spurning er hvort sá ósigur kemur til með að hafa einhver eft- irköst hjá liðsmönnum Arsenal fyrir slaginn á Highbury í kvöld. Freddie Ljungberg og Jose Antonio Reyes verða eftir allt saman í hópi Arsenal fyrir leikinn en þeir meiddust í leikn- um við United og var reiknað með því að þeir yrðu frá í þrjár vikur. Arsenal stendur óneitanlega vel að vígi eftir jafnteflið á Stamford Bridge og ekki síður fyrir þá stað- reynd að liðið hefur haft ógnartak á Chelsea undanfarin ár. Chelsea hef- ur ekki tekist að leggja Arsenal í síð- ustu 17 viðureignum liðanna og eðli- lega er það sterkt vopn í sálarstríði liðanna fyrir leikinn. „Það er engin ástæða til að fyllast einhverri depurð þó svo að illa hafi farið á móti Manchester United. Ég er alveg sannfærður um að við rífum okkur upp og mætum fullir sjálfs- trausts í leikinn við Chelsea,“ segir mark Chelsea í fyrri leiknum á High- bury og vonandi fær hann að spreyta sig í byrjunarliðinu í kvöld en Eiður hefur skorað tvö mörk gegn Arsenal í fjórum viðureignum liðanna í vetur. „Þetta er mitt síðasta tækifæri til að sigra Arsenal sem knattspyrnu- stjóri Chelsea,“ sagði Claudio Rani- eri, knattspyrnustjóri Chelsea, og glotti þegar hann tjáði sig við blaða- menn um leikinn gegn Arsenal en framtíð ítalska stjórans er, eins og margoft hefur komið fram, í mikilli óvissu hjá félaginu. Chelsea verður án fyrirliða síns, Marcel Desailly, sem er í banni en að öðru leyti getur Ranieri teflt fram sínu sterkasta liði. „Auðvitað hef ég trú á mínum mönnum og eftir frammistöðu þeirra í fyrri leiknum sýndi liðið að við get- um staðið uppi í hárinu á Arsenal. Okkur hefur vegnað vel í útileikjum í Meistaradeildinni og því skyldi það ekki halda áfram á Highbury. Það er auðvitað slæmt fyrir okkur að vera án Desaillay en maður kemur í manns stað og ég mun velja þá 11 bestu sem völ er á eins og ég geri alltaf,“ segir Ranieri. Beckham í banni David Beckham verður fjarri góðu gamni í liði Real Madrid sem sækir Mónakó heim en fyrirliði enska landsliðsins tekur út leikbann. Madrídingar mæta til leiks með tveggja marka forskot en þar sem Mónakó tókst að skora tvívegis á Bernebeu dugar þeim að vinna 2:0 eða 3:1 sigur til að komast áfram. Meiðsli hafa herjað á leikmanna- hóp Mónakó og þrír þeirra missa að öllum líkindum af leiknum í kvöld, varnarmaðurinn Sebastien Squillaci, gríski miðju- maðurinn Akis Zikos og argentínski miðjumaðurinn Lucas Bernardi. „Við erum komnir til Mónakó til að sigra og í framhaldinu vil ég frek- ar mæta Chelsea heldur en Arsenal í undanúrslitunum,“ segir Roberto Carlos sem var á skotskónum með liði Real Madrid um helgina. Fernando Morients, framherji Mónakó, er sá leikmaður sem Frakkarnir stóla á að geti fleytt sínu liði áfram en Morientes er í láni frá Real Madrid. „Ef bæði lið spila af 100% styrk þá vinnur Real Madrid en við verðum bara að komast yfir 100% og þá eig- um við möguleika á að slá þá út,“ segir Morientes sem hélt lífi í sínum mönnum þegar hann minnkaði mun- inn í 4:2 í fyrri leiknum á Spáni en hann hefur skorað 18 mörk í 32 leikj- um á tímabilinu. Reuters Robert Pires skorar jöfnunarmark Arsenal gegn Chelsea í fyrri Evrópuleiknum á Stamford Bridge – með skalla, án þess að John Terry, fyrirliði Chelsea, komi vörnum við. Tvær spennandi viðureignir í Meistaradeild Evrópu – í London og Mónakó „Síðasta tækifæri mitt til að vinna Arsenal“ MIKIL spenna er í loftinu fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu en þá kemur í ljós hvaða tvö lið tryggja sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Í Lundúnaborg, nánar tiltekið á High- bury, eigast við grannaliðin Arsenal og Chelsea sem skildu jöfn, 1:1, í fyrri leiknum á Stamford Bridge og Mónakó fær Real Madrid í heimsókn en Real hafði betur í fyrri leiknum á Bernabeu, 4:2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.