Morgunblaðið - 06.04.2004, Qupperneq 54
ÍÞRÓTTIR
54 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Snæfell – Keflavík 65:79
Stykkishólmur, úrvalsdeild karla, Inter-
sport-deildin, þriðji leikur í úrslitum um
Íslandsmeistaratitilinn, mánudagur 5. apr-
íl 2004.
Gangur leiksins: 3:0, 5:8, 7:14, 11:18,
19:20, 23:23, 29:29, 27:33, 27:39, 29:41,
32:41, 34:43, 38:46, 41:46, 44:51, 44:58,
45:62, 46:65, 50:67, 52:71, 54:74, 55:78,
58:79, 65:79.
Stig Snæfells: Sigurður Á. Þorvaldsson 16,
Dondrell Whitmore 15, Edward Dotson
14, Corey Dickerson 9, Lýður Vignisson 5,
Hlynur Bæringsson 3, Bjarne Ó. Nielsen
3.
Fráköst: 27 í vörn – 9 í sókn.
Stig Keflavík: Magnús Þ. Gunnarsson 17,
Derrick Allen 14, Sverrir Þór Sverrisson
13, Fannar Ólafsson 13, Gunnar Einarsson
7, Nick Bradford 6, Arnar F. Jónsson 5,
Jón N. Hafsteinsson 4.
Fráköst: 35 í vörn – 12 í sókn.
Villur: Snæfell 12 – Keflavík 19.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og
Leifur Garðarsson, mjög góðir.
Áhorfendur: 820
Staðan er 2:1 fyrir Keflavík og liðin
mætast fjórða sinni á laugardaginn og þá í
Keflavík.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Milwaukee – Toronto ...........................90:83
Sacramento – Houston.........................99:94
Detroit – Indiana ..................................79:61
Washington – Boston .......................112:102
Minnesota – Memphis ..........................90:82
San Antonio – LA Lakers ...................95:89
New Jersey – Atlanta ........................106:89
Seattle – New Orleans .........................96:88
Utah – LA Clippers..............................97:92
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla
Efri deild, B-riðill:
FH – Stjarnan.......................................... 8:0
Atli Viðar Björnsson 16., 44., 86., Allan
Borgvardt 10., 38., Ármann Björnsson 48.,
Jónas Grani Garðarsson 85., Sigmundur
Ástþórsson 89.
Stórsigur Hafnarfjarðarliðsins þar sem
Atli Viðar gerði þrennu og Allan Borg-
vardt tvö mörk.
Staðan:
ÍA 5 4 0 1 15:9 12
Keflavík 4 3 1 0 11:5 10
Þróttur R. 5 3 1 1 11:8 10
FH 5 3 0 2 14:10 9
Valur 4 2 0 2 7:3 6
Fram 4 1 1 2 10:8 4
ÍBV 5 1 1 3 12:12 4
Stjarnan 6 0 0 6 2:27 0
Neðri deild, A-riðill:
Leiknir R. – Fjölnir................................. 1:2
Fjölnismenn eru með fullt hús það sem
af er og með kunna markatölu, 14:2.
Staðan:
Fjölnir 4 4 0 0 14:2 12
ÍH 3 2 0 1 5:4 6
Leiknir R. 3 1 1 1 4:3 4
Víðir 3 1 1 1 3:5 4
Sindri 2 0 0 2 2:8 0
BÍ 3 0 0 3 1:7 0
Reykjavíkurmót kvenna
Neðri deild:
HK/Víkingur – ÍR ................................... 7:1
Staðan:
HK/Víkingur 4 4 0 0 17:4 12
Fjölnir 3 2 0 1 15:3 6
Þróttur R. 4 2 0 2 7:12 6
Fylkir 3 0 1 2 2:8 1
ÍR 4 0 1 3 3:17 1
HK/Víkingur er sigurvegari í neðri
deild, hefur unnið alla fjóra leiki sína og
með fína markatölu, 17:4.
England
Leeds – Leicester.................................... 3:2
Michael Duberry 11., Mark Viduka 13.,
Alan Smith 86. – Paul Dickov 77., Muzzy
Izzet 79. Rautt spjald: Mark Viduka 90.
(Leeds).
Staðan:
Arsenal 30 22 8 0 58:20 74
Chelsea 31 22 4 5 58:24 70
Man. Utd 30 19 5 6 56:30 62
Liverpool 31 13 10 8 46:31 49
Newcastle 31 12 12 7 45:33 48
Birmingham 31 12 10 9 37:36 46
Aston Villa 31 12 8 11 39:36 44
Charlton 30 12 7 11 41:39 43
Southampton 31 11 9 11 34:29 42
Fulham 31 11 8 12 42:40 41
Middlesbro 31 11 8 12 37:39 41
Tottenham 31 11 4 16 40:48 37
Bolton 31 9 10 12 34:48 37
Everton 31 8 10 13 38:45 34
Man. City 31 7 11 13 42:43 32
Blackburn 31 8 7 16 42:52 31
Portsmouth 30 8 6 16 32:45 30
Leicester 31 5 13 13 41:55 28
Leeds 31 7 7 17 32:62 28
Wolves 31 5 9 17 27:66 24
Svíþjóð
Elfsborg – Örgryte.................................. 1:2
Trelleborg – Djurgården........................ 2:2
Örebro – Halmstad.................................. 2:5
LEIÐRÉTTING
Áslaug Eva Björnsdóttir, Akureyri, varð
þriðja í alpatvíkeppni kvenna á Skíðamóti
Íslands. Hún varð önnur í stórsvigi og
fjórða í svigi.
HAUKUR Ingi Guðna-
son, knattspyrnumaður
hjá Fylki, verður vænt-
anlega ekki mikið með
liði sínu í deildinni í
sumar. Hann meiddist á
hné í leik með Fylki
gegn FH í æfingamóti á
Spáni á föstudaginn og
hann var ekki ánægður
með það sem kom út úr
rannsókn hjá lækni hér
heima í gær.
„Þetta voru nú ekki góðar frétt-
ir sem ég fékk,“ sagði Haukur Ingi
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. „Svo virðist sem fremra
krossband sé slitið í hægra hné og
báðir liðþófarnir farnir,“ sagði
sóknarmaðurinn snöggi.
Hann sagði að hnéð yrði
speglað í dag og síðan
tækju við þriggja vikna stíf-
ar æfingar til að búa sig
sem best undir krossbands-
aðgerðina. „Mér skilst að
menn eigi í slíku í eina sex
mánuði þannig að þetta eru
allt annað en góðar fréttir,“
sagði Haukur Ingi.
Hann lék lítið með Fylki
í æfingamótinu, hálfan leik
gegn Fram, hvíldi síðan alveg í
leiknum gegn Val og átti að spila
hálfan leik gegn FH. „Þetta gerð-
ist bara strax á þriðju mínútu. Ég
var lítið með í mótinu vegna þess
að ég hafði fundið fyrir eymslum í
vöðvafestingum í hægra hné,“
sagði Haukur Ingi.
Haukur Ingi væntanlega
lítið með í sumar
Haukur Ingi
Guðnason
TORFI Alexandersson hefur vakið
mikla athygli fyrir mjög svo líflega
framkomu á hliðarlínunni í leikjum
Snæfells og Keflavíkur fram til
þessa, en Torfi er maðurinn með
lukkuskeifuna, íklæddur jakkaföt-
um í rétta litnum, lit Snæfells, eld-
rauðum, og hvetur Snæfell hverja
stund á meðan leikir liðsins standa
yfir. En hver er sagan á bak við
skeifuna sem hefur reyndar misst
mátt sinn í undaförnum tveimur
leikjum?
„Ég vinn hjá Jarðborunum rík-
isins og var á ferð með bor við
Geysi og fann þessa skeifu. Hún
var tekin með á næsta leik sem við
unnum, og að sjálfsögðu málaði ég
skeifuna í rétta litnum, en hún er
gulllituð,“ sagði Torfi en hann er
bróðir Hlyns Bæringssonar, leik-
manns og fyrirliða Snæfells.
„Skeifan virkaði gríðarlega vel í
leikjunum gegn Njarðvík en það
var farið að sjást í silfurlitinn í
öðrum leiknum gegn Keflavík og
það er ekki liturinn sem við sætt-
um okkur við í ár sem lið,“ sagði
Torfi og veifaði nýmálaðri lukku-
skeifu og brosti.
„Ég veit að við munum fara alla
leið og fögnum titlinum í fimmta
leiknum þrátt fyrir að ekki hafi
gengið sem skyldi gegn Keflavík í
kvöld. Við þekkjum ekki orðið
uppgjöf,“ sagði Torfi en þess ber
að geta að Alda Pálsdóttir, eig-
inkona Bárðar Eyþórssonar, þjálf-
ara Snæfells, saumaði jakkafötin á
Torfa.
Silfurliturinn á „lukkuskeif-
unni“ er ekki rétti liturinn
DEILDARMEISTARAR Snæfells
áttu fá svör í sóknarleiknum gegn
Keflavík að þessu sinni þar sem að
Corey Dickerson var gjörsamlega
tekinn úr umferð frá upphafi til
enda og með 79:65 tapi misstu
leikmenn Snæfells heimaleikja-
réttinn úr höndunum til Keflvík-
inga sem geta tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn á heimavelli næsta
laugardag.
Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæ-
fells, var að vonum ekki sáttur við
leik sinna manna. „Við vorum að
hlaupa á þeirra hraða og skotvalið
hjá okkur var í einu orði sagt
skelfilegt. Það gekk fátt upp í
leiknum sem við höfðum lagt á
ráðin með fyrir leikinn og við
flýttum okkur allt of mikið í sókn-
inni,“ sagði Bárður en taldi að lið-
ið hefði átt svör við því að Dicker-
son var tekinn nánast úr umferð í
leiknum. „Við erum með fullt af
möguleikum í þessari stöðu sem
við köstuðum bara frá okkur, en
þrátt fyrir skell á heimavelli mun-
um við mæta til Keflavíkur í það
erfiða verkefni að leggja þá að
velli – og það án Corey Dickerson
sem verður líklega úrskurðaður í
leikbann. Keflavík mun án efa
pressa á okkur á laugardag en við
munum nota næstu daga til þess
að hvíla okkur og undirbúa okkur
sem best fyrir næsta leik. Það
mun mæða mikið á þeim Hafþóri
Gunnarssyni, Dondrell Witmore
og Lýði Vignissyni ef Dickerson
verður ekki með. Keflavík mun
sækja hart að þeim og vissulega
er verkefnið gríðarlega erfitt en
ekkert er ómögulegt í íþróttum.
Ég hef trú á mínu liði sem hefur
oft séð það svart í úrslitakeppn-
inni fram að þessu,“ sagði Bárður
Eyþórsson en hann skoðaði leikinn
á ný gaumgæfilega á myndbandi í
gær og trúði vart eigin augum.
„Við verðum að stjórna hraðanum
gegn Keflavík annars er voðinn
vís og það sáu það allir að í þess-
um leik réðum við ekki við hrað-
ann sem við ætluðum okkur að
leika á.“
Sóttum ekki að körfunni
Lýður Vignisson, leikmaður
Snæfells, sagði að varnarleikurinn
hefði verið í lagi sem oftar en í
sókninni hafi liðið ekki náð áttum.
„Kannski var spennustigið of hátt
að þessu sinni. Við hittum afar illa
og hættum að sækja að körfunni.
Það má segja að við leystum illa
úr því þegar Corey Dickerson var
tekinn svona stíft en ég get ekki
sagt að baráttan hafi ekki verið til
staðar.
En núna erum við með bakið
upp að veggnum og verðum að
leggja Keflavík að velli í næsta
leik, hvernig sem við verðum
mannaðir í þeim leik. Ég neita að
trúa því að þetta hafi verið síðasti
heimaleikur okkar í vetur,“ sagði
Lýður.
Skelfilegt
skotval
Það var að venju mikil spenna ogstemning í Hólminum fyrir
leikinn, áhorfendur, sem sumir
hverjir voru komnir
langt að, búnir að
troðfylla húsið löngu
fyrir leik. Nú var
komið að þriðja leik
og það lið sem færi með sigur af
hólmi stæði vel að vígi, sérstaklega
væri staða Keflavíkur sterk ef sigur
ynnist á útivelli.
Snæfell skoraði fyrstu þrjú stig
leiksins og var það í fyrsta og eina
skiptið sem heimamenn höfðu for-
ystuna í leiknum. Fyrsti leikhluti var
hreint út sagt frábær körfubolti
tveggja góðra liða, mikill hraði, góð
hittni og fínn varnarleikur. Staðan
eftir fyrsta fjórðung var 23:23 og lof-
aði góðu um framhaldið.
Annan leikhlutann hófu gestirnir
afar vel, voru vel stemmdir, léku
grimman varnarleik svo heimamenn
komust lítt áleiðis og var skor heima-
manna ekki nema níu stig í leikhlut-
anum. Á þessum kafla lögðu Keflvík-
ingar grunninn að sigri í leiknum, en
staðan í hálfleik var 32:41, gestunum
í vil. Á upphafsmínútum síðari hálf-
leiks var dálítið batamerki á Snæfell-
ingum, sem náðu að minnka muninn
í fjögur stig um miðjan fjórðunginn.
En þá kom frábær kafli gestanna
sem skoruðu 14 stig gegn 3 stigum
Snæfells og höfðu sautján stiga for-
skot fyrir síðasta fjórðung. Gestirnir
héldu áfram sínum kraftmikla leik
og náðu mest tuttugu og tveggja
stiga forskoti upp úr miðjum leik-
hlutanum og voru með leikinn í sín-
um höndum. Snæfell mætti ofjörlum
sínum í þessum leik og verður að
hrósa Keflvíkingum fyrir góðan leik.
Hólmarar verða nú að bretta upp
ermar og mæta tvíefldir til leiks á
laugardaginn í Keflavík. Nú eru
Snæfellingar í fyrsta skipti í þessari
úrslitakeppni komnir með bakið upp
að vegg og verða þá að sýna úr
hverju þeir eru gerðir.
Í liði Snæfells átti Sigurður Á.
Þorvaldsson mjög góðan leik í fyrri
hálfleik og skoraði öll sín sextán stig
fyrir leikhlé. Dondrell Whitmore lék
einnig mjög vel framan af en lítið
kom frá honum í síðari hálfleik eins
og Sigurði. Edward Dotson lék einna
best heimamanna, bæði í vörn og
sókn. Var frákastahæstur með fjór-
tán alls. Lítið kom út úr Corey Dick-
erson í leiknum, var hann t.a.m.
langt undir sínu meðaltali í stiga-
skorun. Hlynur Bæringsson lék einn
sinn slakasta leik fyrir Snæfell í
langan tíma, var einungis með 9 frá-
köst og skoraði þrjú stig. Hafþór
Ingi Gunnarsson og Lýður Vignis-
son fundu sig heldur ekki.
Hjá gestunum átti Magnús Þ.
Gunnarsson afar góðan leik og setti
niður þrjá þrista í síðari hálfleik á
góðum augnablikum. Derrick Allen
var að vanda mjög öflugur undir
körfunni, ógnaði mikið í sókninni og
var sterkur í fráköstunum. Fannari
Ólafssyni gekk mjög vel að gæta
Hlyns Bæringssonar í þessum leik.
Jón N. Hafsteinsson átti fínan leik,
sérstaklega var hann öflugur í frá-
köstunum.
Sverrir Þór Sverrisson átti stór-
leik í vörninni og hélt Corey Dicker-
son vel niðri í leiknum. Minna bar á
Gunnar Einarssyni og Nick Brad-
ford í þessum leik en í undanförnum
leikjum.
Morgunblaðið/Sverrir
Það hefur verið mikil stemning hjá stuðningsmönnum Snæfells að undanförnu.
Hér má sjá Torfa Alexandersson í rauðum jakkafötum veifa lukkuskeifunni.
Keflvíkingar
hafa betur, 2:1!
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
KEFLAVÍK sigraði Snæfell með 79 stigum gegn 65 í þriðja leik lið-
anna í úrslitarimmunni um meistaratitlinn í körfuknattleik karla í
Stykkishólmi í gærkvöldi. Þar með eru Keflvíkingar komnir í þægi-
legri stöðu því liðinu nægir sigur á laugardaginn kemur á heimavelli
sínum til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.