Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 59

Morgunblaðið - 06.04.2004, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 59 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15Sýnd kl. 10.15. B.i. 16 ára. (Píslarsaga Krists) HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 4.30. Íslenskt tal. Páskamynd fjölskyldunnar Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Besta frumsamda handrit www .regnboginn.is Sýnd kl. 8. Síðasta sýningSýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. (Píslarsaga Krists) HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd kl. 6. Með íslensku tali Kl. 10.10. Síðasta sýning Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.40. Páskamynd fjölskyldunnar EIN af athyglisverðustu myndum síðasta árs verður frumsýnd á mynd- bandi og mynddiski hér á landi og kemur á leigurnar á morgun. Er hér um að ræða hina sögulegu Í Ameríku (In America) mynd eftir írska kvik- myndagerðarmanninn Jim Sheridan sem á að baki myndir á borð við Vinstri fótinn og Í nafni föðurins. Fjallar myndir um raunir ólög- legra írskra innflytjenda í Bandaríkj- unum og gerist á níunda áratug síð- ustu aldar. Sagan er að hluta sönn, því Sheridan byggir hana að nokkru á því sem kom fyrir í hans eigin fjöl- skyldu, og skrifaði handritið ásamt dætrum sínum. Aðalhlutverkin eru í höndum tveggja af athyglisverðustu ungu leikurum Breta, Samönthu Morton og Paddy Considine. Morton þekkja flestir úr Minority Report og Sweet and Lowdown Woody Allens en Considine er þekktastur fyrir aukahlutverk í 24-Hour Party People en var einnig í hinni mögnuðu A Ro- om For Romeo Brass. Myndin hefur hlotið allmörg verð- laun og tilnefningar, þ. á m. þrjár til- nefningar til Óskarsverðlauna. Í vikunni kemur einnig út, bæði á mynddiski og myndbandi, lokamynd- in í Matrix-þríleiknum, Byltingin. Söludiskurinn er eins og gefur að skilja uppfullur af ítarefni um mynd- ina og gerð hennar en myndin sjálf var að margra mati betri en End- urhlaðin, önnur myndin. Þá kemur út í vikunni önnur útgáf- an með úrvali bestu atriða í 70 mín- útum en fyrsta útgáfan, sem kom út fyrir jólin, seldist í vel yfir 10 þúsund eintökum. Undraland (Wonderland) er hin at- hyglisverðasta mynd sem fulllítið fór fyrir í bíó hérlendis. Um er að ræða mynd sem lýsir því helvíti sem klám- myndaleikarinn John Holmes lenti í þegar farið var að halla undan fæti, eiginkonan búin að gefast upp á hon- um og hann flæktur í morðmál. Val Kilmer þykir fara á kostum sem klámmyndaleikarinn kunni og Lisa Kudrow, Phoebe úr Vinum, sýnir auk þess á sér nýja dramatíska hlið. Þá kom í gær út myndin Vanar stelpur (Wisegirls) með þeim Miru Sorvino og Mariuh Carey en hún fjallar um stelpu sem vinnur á næt- urklúbbi í eigu mafíunnar og verður vitni að morði. Ekki má svo gleyma barnamynd- unum tveimur sem koma út í vikunni en það eru Lindgren-myndir um grallaraspóana Emil í Kattholti og Maddit. Þá ber að geta að sakamálamyndin S.W.A.T. með Samuel L. Jackson og Colin Farrell er enn vinsælust á leig- unum, en hefur fengið harða sam- keppni frá Steve Martin-grínmynd- inni Bringing Down The House og nútímavestranum Once Upon A Time in Mexico, framhaldinu af Desperado og El Mariachi. In America og Matrix á leigurnar í vikunni Innflytjendaraunir                                                              ! "#    ! "#    ! "#  ! "#  ! "#  ! "#  ! "#      $  ! "#  ! "#  $    ! "#  ! "#   % &  % &  % % % ' &  % &  % % &  &  &  &  ' &  '                  !     "  "  # "    $   %   &'' (   ) * +    !  ,      # - " ./0 12 .34 - " ./0 12 536    ! ! 7" 83 9   (     ""       Í Ameríku: Ungir Írar í örvænting- arfullri leit að ameríska draumnum. skarpi@mbl.is MOLESTING Mr. Bob kvaddi sér fyrst hljóðs á Músíktilraunum árið 2000 og lék þá níðþungt og beljandi rokk sem minnti helst á þá eðlu sveit Napalm Death. Þá um sumarið kom út sex laga plata með sveitinni á vegum MSK, úgáfu Mínus, og eru gæði hennar vel yfir meðallagi. Síðustu ár er eins og sveitin hafi legið í hálfgerðum dvala en Elli trymbill hefur m.a. verið upptekinn með harðkjarnarokksveitinni I Adapt. Á þessari fjögurra laga stuttskífu hefur hljómi sveitarinnar verið um- turnað. Jarðýtunni hefur verið lagt fyrir tilraunakenndara farartæki og er afrakstur þeirra skipta góður – mjög góður meira að segja. Lögin fjögur eru mismunandi eins og þau eru mörg. Í fyrsta laginu er t.d. skemmtilega „kits“ hljómborðs- leikur og lagið melódískt keyrslu- rokk. Krummi söngvari er líka farinn að syngja og fer ansi hátt upp tónstig- ann. Annað lagið er öllu myrkara og í báðum lögunum eru gerðar skemmti- legar raddtilraunir. Þriðja lagið er líklega brjálaðast með snöggum takt- skiptingum en fjórða lagið er hiklaust tilkomumest – stingur algerlega í stúf við það sem á undan hefur komið þar sem fer sveimkennd og seiðandi raf- tónlist! Einhverra hluta vegna koma Blood Brothers upp í hugann þegar hlustað er og Mínus reyndar líka, en ekkert endilega vegna tónlistarinnar, öllu frekar vegna hugmyndafræðinnar – og áræðninnar. Haunting and Heart- breaking songs er nefnilega vel frum- leg og tónlistin „Bob“-tónlist fyrst og fremst. Þessi diskur kemur eins og skratt- inn úr sauðarleggnum en er að sönnu velkominn. Fínt „stöff“. Tónlist Breyttur Bob Molesting Mr. Bob Haunting and Heartbreaking Songs Bubby Records Haunting and Heartbreaking Songs er önnur plata rokksveitarinnar Molesting Mr. Bob. Sveitina skipa Krummi Jóns (rödd), Höddi (gítarar), Skúli (bassi) og Elli Bang (slagverk). Þeim til aðstoðar er 306. Lög eftir meðlimi en textar eru eftir Krumma. Upptökustjórn var í höndum sveitarinnar og Hálfdáns. Hljóðblöndun og hljóm- jöfnun var í höndum 306. Hálfdán sá um hljóðritun og -vinnslu og var 306 honum til aðstoðar við hljóðvinnsluna. Arnar Eggert Thoroddsen „ÞÆR eru mjög spenntar. Ég hef leyft þeim að fylgjast með hvernig hefur gengið og sendi þeim mynd af biðröðunum sem mynduðust þegar miðasalan hófst og þeim kom allur þessi áhugi nokkuð á óvart,“ segir Ísleifur Þórhallsson um komu breska stúlknabandsins Sugababes en það mun halda tónleika í Höllinni á skírdags- kvöld, næsta fimmtudag. Stelpurnar hafa lýst yfir áhuga sínum á að kynnast íslensku nætur- lífi og hafa að sögn Ísleifs sett stefn- una á að lyfta sér svolítið upp annað kvöld en þær koma til landsins á morgun. „Við skulum bara vona að þær komist einhvers staðar inn,“ segir Ísleifur og hlær en þær stúlk- ur eru allar undir tvítugu og þykja enda afar efnilegar. Sugababes hafa verið á tónleika- ferð um Bretlandseyjar síðustu daga og vikur, sem hefur mælst mjög vel fyrir og vakið töluverðra athygli fjölmiðla. Þykja stúlkurnar standa sig vel í lifandi flutningi og hefur komið mörgum á óvart að þær geti bara sungið býsna vel – ólíkt mörgum öðrum viðlíka stúlkna- og strákaböndum um þessar mundir sem oftar en ekki dansa og herma eftir tónlistinni sem leikin er af bandi. Á tónleikum Sugababes sé hins vegar allt lifandi og lífrænt. Uppselt hefur verið á alla tónleika þeirra á túrnum en hér heima segir Ísleifur að enn sé hægt að fá miða. „Það eru innan við þúsund mið- ar eftir,“ segir Ísleifur en býst við að þegar byrjað verður að hleypa inn á tón- leikana kl. 18 á miðvikudag verði sárafáir miðar enn óseldir. „Þetta verður svo gott sem fullt og stemningin eftir því frábær, trúi ég. Eitt stórt partí. Í dag verður byrjað að koma upp græjum og sviðinu, enda mikið verk.“ Það hefur ekki gerst oft undanfarið að hér sé boðið upp á hrein- ræktaða popptónleika. Ísleifur segir þetta því hafa verið svolitla tilraunastarfsemi hjá sér sem hafi gengið upp. „Venjan er að flytja inn rokkbönd eða þau sem teljast sögufræg. Það þykir örugg- ara að veðja á slíka hesta í þessum bransa. Mig langaði bara að breyta til, prófa að bjóða upp á eitthvað annað og það virðist sem stór og breiður hópur fólks sé mjög þakk- látur fyrir það, krakkarnir, foreldr- arnir og allt þar á milli.“ Sugababes koma til Íslands á morgun Ætla út á lífið Sugababes eru mikið fyrir djammið – rétt eins og aðrir unglingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.