Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÁVÖXTUNARKRAFA verðtryggðra ís- lenskra ríkisskuldabréfa hélt áfram að lækka í gær, þriðja daginn í röð. Krafan lækkaði síðastliðinn fimmtudag strax eftir að greint var frá því að ríkisskuldabréf yrðu hæf til uppgjörs og vörslu hjá alþjóðlega uppgjörsfyrirtækinu Clearstream Banking. Krafan lækkaði einnig á föstudeginum og aftur í gær, en skráningin hófst í gær. Á fimmtudag og föstudag í síðustu viku lækkaði ávöxtunarkrafan um allt að 0,20% og í gær lækkaði hún um allt að 0,07%, mis- munandi eftir tegund skuldabréfa. Húsbréf hafa lækkað mest um 0,16% frá mánaða- mótum og ríkisbréf um mest 0,11%. Vonir um frekari lækkun Snorri Jakobsson, hagfræðingur hjá KB banka, segir að kaup erlendra fjárfesta á ís- lenskum ríkisskuldabréfum muni væntan- lega aukast jafnt og þétt. Vonir séu bundnar við að ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa haldi áfram að lækka og að raunvextir hér muni þá lækka enn frekar. Ávöxtunar- krafa ríkis- skuldabréfa lækkar enn  Jákvæð áhrif/12 LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ deCODE til- kynnti í gær að það hygðist afla allt að 100 milljónum Bandaríkjadala með skuldabréfa- útboði, eða 7,2 milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu á að- allega að nota féð til að setja aukinn kraft í þróun lyfja og greiningartækni, sem og í al- mennan rekstur fyrirtækisins. Í tilkynningunni segir að útboðið verði háð skilyrðum á markaði og öðrum skil- yrðum. Þá segir að skuldabréfin verði boðin stofnanafjárfestum til kaups og verði með breytirétti í hlutabréf í deCODE á verði sem verður ákveðið í samningum á milli de- CODE og kaupenda bréfanna. Þá segir að deCODE ætli sér að veita kaupendum rétt til að kaupa aukalega 25 milljóna dala virði af skuldabréfum, eða sem samsvarar 1,8 milljörðum króna. deCODE í 7,2 milljarða skulda- bréfaútboð VARÐSKIPIÐ Ægir stóð togarann Gullver NS 12 að meintum ólöglegum veiðum í gær og vísaði skipinu til hafnar á Seyðisfirði þar sem lögreglan tók á móti því. Löggæslu- menn á varðskipinu mældu möskvastærð poka botnvörpu togarans og reyndust möskvarnir of þéttriðnir. Togarinn var að karfaveiðum með fiskibotnvörpu út frá Austfjörðum, um 14,5 sjómílur suðvestur af Hvalbak. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni eru gerðar skyndi- skoðanir um borð í skipum og var um eina slíka að ræða í gær. Togarinn kom að landi um kl. 20 í gær- kvöldi og samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Seyðisfirði stóð í gærkvöldi til að taka skýrslu af skipstjóra og fá gögn frá varðskipinu vegna málsins. Togari stað inn að meint- um ólögleg- um veiðum RÚMLEGA tvítugur karlmaður, sem var handtekinn vegna grófrar líkamsárásar á sextán ára dreng á laugardag, var aftur handtekinn í gær í tengslum við líkamsárás í húsi við Hverfisgötu í Reykjavík. Árásarmaðurinn, sem er nýkominn á reynslulausn eftir 10 mánaða af- plánun 2 ára fangelsisdóms fyrir aðra grófa líkamsárás, auk gæslu- varðhalds, gekk laus eftir að hér- aðsdómur hafnaði gæsluvarðhalds- kröfu lögreglunnar vegna árásarinnar. Hafði móðir drengs- ins lýst áhyggjum sínum af því að maðurinn gengi laus. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar í Reykjavík var ráðist á mann á miðjum aldri í húsinu við Hverfisgötu í gær og barst lög- reglu tilkynning um málið um kl. 18.30. Maðurinn, sem hlaut minni- háttar meiðsl að sögn lögreglu, var fluttur á slysadeild en fékk að fara heim í gærkvöldi. Þrír menn eru í haldi lögreglu vegna málsins og verða þeir yfir- heyrðir í dag. Ekki liggja fyrir hver tengsl árásarmannanna eru við hinn slasaða. Pilturinn sem varð fyrir lífs- hættulegri árás á laugardag var út- skrifaður af gjörgæsludeild Land- spítalans í gær. Ekki þurfti að gera aðgerð á honum en þörf er á áfram- haldandi sjúkrahúslegu. Móðir drengsins, Unnur Millý Georgsdóttir, varð fyrir miklum vonbrigðum með niðurstöðu hér- aðsdóms varðandi gæsluvarð- haldskröfu lögreglu og segir son sinn óttast mjög árásarmanninn. „Það er stórt áhyggjuefni og sið- ferðislega rangt að maðurinn skuli ganga laus,“ segir hún. Ekki æskilegt fyrirkomulag Samkvæmt almennum hegning- arlögum, eftir breytingar árið 1999 m.a. á grundvelli álits umboðs- manns Alþingis, er gert ráð fyrir því að brot á reynslulausn sé dæmt í einu lagi með nýju broti. Að mati Valtýs Sigurðssonar, héraðsdómara og setts fangelsis- málastjóra, er þetta fyrirkomulag ekki æskilegt. „Ég er þeirrar skoð- unar að við lagasetninguna hafi verið horft of mikið til þess að vax- andi málahraði hjá dómstólunum gæti réttlætt þetta fyrirkomulag, þ.e. að það væri í lagi að bíða uns dómur gengi í hinu nýja máli þar sem þá yrði metið hvort reynslu- lausn hefði verið rofin. Aðaltil- gangur breytinganna var að kveða á um að þetta væri ákvörðun dóm- ara en ekki Fangelsismálastofnun- ar. En ég tel ekkert því til fyrir- stöðu að dómari á vakt ætti að geta gert þetta þegar í stað á grundvelli fyrirliggjandi játningar.“ Ungur piltur kominn af gjörgæslu eftir líkamsárás dæmds afbrotamanns Árásarmaðurinn aftur í haldi vegna líkamsárásar TÚLÍPANAR eru vinsælasta blómið í ár, að sögn Gísla Jóhannssonar garðyrkjubónda í Dalsgarði í Mosfellsdal. Hann segir að gulir túlípanar seljist alltaf vel fyrir páskana og svo séu bleikir og hvítir vinsælir í tengslum við fermingar. Árlega eru ræktaðir um 160 þús- und túlípanar í Dalsgarði. Sigfríð Lárusdóttir, sem þar starfar, hlúir að túlípönum, sem eru í þann veginn að fara á markað. Morgunblaðið/Golli Túlípanar í öllum regnbogans litum í tísku EIN helsta ástæðan fyrir háu verði samheitalyfja hér á landi eru ákvarðanir lyfjaverðsnefndar sem samþykkir samheitalyf á svo til sama verði og frumlyfin, í stað þess að verðleggja þau u.þ.b. 20% lægra eins og eðlilegt væri, segir Inga J. Arnardóttir, deildarstjóri lyfja- deildar Tryggingastofnunar ríkis- ins (TR). „Það er í gildi opinbert lyfjaverð á Íslandi, ákveðið af lyfja- nefnd sem er undir ráðuneytinu. Það er hún sem setur hámarksverð- ið og reglur lyfjaverðsnefndar eru þannig að þeir samþykkja sam- heitalyf á eiginlega sama verði og frumlyfin, og þess vegna er verðið svona hátt hérna.“ Verðmunurinn um 5% Í skýrslu Ríkisendurskoðunar stendur að verð samheitalyfja sé ákvarðað út frá verði frumlyfja og að jafnaði sé það 10–15% lægra. Þetta segir Inga hreinlega rangt, munurinn sé miklu minni, og hún segist efast um að hann nái 5%. „Ef lyfjaverðsnefnd treysti sér til að setja reglur þar sem þeir segðu að samheitalyf ættu að vera 20% ódýrari en frumlyfin, þá væru þau 20% ódýrari á Íslandi.“ Hún telur ekki að slíkur verð- munur muni hamla lyfjafyrirtækj- unum. Hún segir íslenska markað- inn aðeins brot af markaði íslenskra lyfjaframleiðanda. „Þeir hætta ekk- ert að framleiða þó að verðið hér þurfi að vera eitthvað lægra. Ég held að það skipti þá ekkert miklu máli í heildina. En auðvitað eru þeir ekkert að selja þetta á lægra verði en þeir komast upp með.“ Inga segir að ekki standi til að rannsaka hvernig sá mikli munur sem er á sumum lyfjum á Íslandi og hinum Norðurlöndunum er til kom- inn. Hún segir að TR hafi hins vegar sent erindi til lyfjaverðsnefndar 16. febrúar sl. þar sem farið er fram á að þeir endurskoði verðlagningu á samheitalyfjum með tilliti til verðs í nágrannalöndunum. TR hefur enn ekki borist svar við erindi sínu. Inga staðfestir að lyfjafram- leiðslufyrirtæki veiti lyfjakeðjunum afslátt, en að sá afsláttur skili sér að einhverju leyti til sjúklinga. Ríkið greiði alltaf hið opinbera hámarks- verð. Þó hafi ríkið getað lækkað sinn hlut í lyfjaverði vegna afslátt- arkjara sem sjúklingarnir njóta. Samheitalyf ættu að vera 20% ódýrari en frumlyf  Töpuðu/6 ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.