Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 1
Skelfing þagnarinnar Rætt við kvikmyndaleikstjórann Peter Segal | Fólk í fréttum Fjögur sérblöð í dag Páskar |Ég þoli ekki fargan  Listin er mannbætandi Íslenski fjár- hundurinn í góðum metum Viðskipti | Samvinna hjá risum í sjávar- útvegi Úr verinu | Deilt um djúpkarfann Börn | Páskaþrautir STOFNAÐ 1913 98. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is BANDARÍSKAR herflugvélar skutu í gær flugskeyti og 225 kg sprengju á bænaturn og múr umhverfis mosku í írösku borginni Fallujah og sjónarvottar sögðu að allt að 40 manns hefðu fallið. Uppreisnarmenn úr röðum súnníta veittu harða mótspyrnu í Fallujah og átök bandarískra hermanna og vopnaðra sveita sjítaklerksins Muqtada Sadrs breiddust út. Ali Sistani, æðsti klerkur íraskra sjíta, hvatti til þess að vandamál Íraks yrðu leyst með frið- samlegum hætti og að allar fylkingarnar forð- uðust aðgerðir sem gætu leitt til enn meiri blóðsúthellinga. Alls hafa yfir 200 Írakar, 34 bandarískir her- menn og tveir frá öðrum löndum beðið bana í átökum sem geisað hafa víða um landið síðustu fjóra daga. Yfir 550 Írakar hafa særst frá því á sunnudag þegar sveitir Sadrs hófu uppreisn og bandarískar hersveitir blésu til sóknar í Fall- ujah, 200.000 manna borg sem einkum er byggð súnnítum. Óljósar fregnir um mannfall Bandaríski undirofurstinn Brennan Byrne sagði að herþyrla hefði skotið flugskeyti á bænaturn mosku í miðborg Fallujah eftir að uppreisnarmenn hefðu hafið skothríð á her- menn úr byggingunni og sært fimm þeirra. Orr- ustuflugvél varpaði síðan sprengju á svæðið um- hverfis moskuna. „Ef þeir nota moskuna til hernaðar er hún ekki lengur guðshús og við gerum árás,“ sagði Byrne. Annar bandarískur herforingi sagði að þótt guðshús ættu að njóta verndar samkvæmt Genfar-sáttmálanum væru slíkar árásir réttlæt- anlegar ef þau væru notuð til árása. Sjónarvottar sögðu að bænaturninn hefði skemmst og múr umhverfis moskuna eyðilagst en skemmdir hefðu ekki orðið á aðalbygging- unni. Fréttamaður AP sá bíla flytja lík og sært fólk af svæðinu. Ekki var vitað hversu margir féllu í árásinni þar sem hinir látnu og særðu voru flutt- ir í íbúðarhús í grenndinni og moskur. Sjónarvottar sögðu að árásin hefði verið gerð eftir að fólk hefði safnast saman í moskunni til síðdegisbæna. Uppreisnarmennirnir í Fallujah veittu harða mótspyrnu þegar bandarískir hermenn réðust inn í miðborgina. Beitt var flugvélum og skrið- drekum í árásum á hús þar sem talið var að upp- reisnarmenn hefðu falið sig. Læknir í Fallujah sagði að sextán börn og átta konur hefðu beðið bana í loftárásum á hús þeirra seint í fyrrakvöld. Átökin í Írak harðna enn og breiðast út AP Bandarískir hermenn leita skjóls bak við undirstöðu járnbrautarbrúar í bardaga við uppreisn- armenn í írösku borginni Fallujah. Uppreisnarmenn veittu harða mótspyrnu í borginni í gær. Loftárás á bænaturn og múr umhverfis mosku í Fallujah Bagdad, Fallujah. AFP, AP.  Harðir bardagar/12 DANSKT fyrirtæki hefur fundið upp þjófa- vörn fyrir sumarbústaðaeigendur en hún er í stuttu máli þannig, að sé brotist inn í sum- arbústaðinn hringir farsíminn og tekur við myndum af vettvangi. Innbrot í sumarhús í Danmörku eru meira en 7.000 á ári og ósjaldan er ekki bara stolið, heldur unnar á þeim miklar skemmd- ir. Vonast er til, að á því verði þó einhver breyting til batnaðar með nýju þjófavörn- inni en uppistaðan í henni er myndavél, sem hringir í farsímann strax og vart verður við óboðinn gest í sumarhúsinu. Sendir hún einnig myndir af honum. Sagði frá þessu á fréttavef Berlingske Tidende. Farsími varar við þjófum ÞESSI bjúgnefja var í hópi fjögurra sem sáust á vappi á leirunum við Höfn í gær en fuglinn er flækingsfugl hér við land og mun þetta vera í annað sinn sem staðfest er að bjúgnefja hafi sést við Ísland. Það gerðist síðast 31. mars 1954 á Reyðarfirði. Að sögn Brynjúlfs Brynjólfssonar, fuglaáhugamanns á Höfn, sem sat fyrir fuglunum og tók þessa mynd, eru þeir á að giska ársgamlir. Bjúgnefja er vaðfugl og algeng í Dan- mörku, S-Svíþjóð, Hollandi og Belgíu en nafn sitt dregur hún af uppbrettu nefinu. Flækingsfuglanefnd heldur utan um skráningu á sjaldgæfum fuglum og verður henni tilkynnt um fundinn. Bjúgnefja sást eftir fimmtíu ár ♦♦♦ TASSOS Papadopoulos, forseti Kýpur- Grikkja, hvatti þá í gærkvöldi til að hafna áætlun Sameinuðu þjóðanna um samein- ingu Kýpur í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer á eyjunni síðar í mánuðinum. „Ég skora á ykkur að leggjast eindregið gegn áætluninni 24. apríl,“ sagði Papado- poulos í tilfinningaþrunginni ræðu sem send var út í útvarpi og sjónvarpi. Samkvæmt áætluninni á að sameina Kýp- ur eftir 30 ára skiptingu eyjunnar til að hún geti öll gengið í Evrópusambandið 1. maí. Hafni annaðhvort Kýpur-Grikkir eða Kýp- ur-Tyrkir áætluninni fær aðeins gríski hluti eyjunnar aðild að ESB. Kýpur-Grikkir Forsetinn leggst gegn áætlun SÞ NÝR heildarkjarasamningur að- ildarfélaga Starfsgreinasambands- ins við ríkið var undirritaður um miðnætti. Samningurinn gildir til loka mars 2008 og kemur í stað 14 mismunandi samninga einstakra félaga sem áður giltu. Talning at- kvæða í dag um verkfallsheimild á sjúkrastofnunum sem átti að koma til 16. apríl er þar með úr sögunni. Mótframlag ríkis hækkar úr 6% í 11,5% Í tilkynningu frá Starfsgreina- sambandinu segir að markmið samningsins hafi verið að færa kjaraumhverfi félagsmanna nær því sem gildi um aðra starfsmenn ríkisins og að meginatriði í kröfu- gerð aðildarfélaganna séu nú í höfn. Samkvæmt samningnum hækk- ar mótframlag ríkisins í lífeyris- sjóð til jafns við framlag til rík- isstarfsmanna, úr 6% í 11,5%. Ný launatafla gildir frá og með 1. mars sl. Tekin verður upp ný 20 flokka launatafla með sex starfs- aldursþrepum og verða laun sam- kvæmt henni á bilinu 96 þúsund krónur á mánuði til 187.608 frá 1. mars að telja. Sameiginlegt mat samningsað- ila á kostnaðaráhrifum á inn- færslu í launatöflu er að hann sé að meðaltali um 2% frá undirritun en auk þess komi til almenn launahækkun sem geti ekki orðið lægri en 3,25%. Laun hækka árlega til ársins 2008 Grunnkaupshækkun á samn- ingstímanum er þannig að 1. jan- úar 2005 hækka laun um 3%, 1. janúar 2006 um 2,5%, 1. janúar 2007 um 2,25% og 1. janúar 2008 til 31. mars 2008 um 0,5%. Frá 1. janúar 2005 hækkar mótframlag ríkisins í sameignarsjóði í 9%. Frá 1. janúar 2006 verður iðgjald rík- isins 10,25% og 1. janúar 2007, 11,5%. Meðal annarra atriða í kjara- samningnum verður réttur til launa í veikindum aukinn, framlag atvinnurekenda til starfsmennta- mála er nú samningsbundið og nemur framlagið 0,57% af heild- arlaunum SGS félaga í sérstakan sjóð, Þróunar- og símenntunar- sjóð. Slysatryggingar eru bættar verulega í samningnum og bóta- fjárhæðir auknar til samræmis við kjör ríkisstarfsmanna og réttur foreldra í fæðingarorlofi aukinn, m.a. að starfsmaður njóti réttinda til greiðslu sumarorlofs. Til viðbótar við aðalkjarasamn- ing verða gerðir fjölmargir stofn- anasamningar og er gert ráð fyrir að þeim verði lokið í meginatrið- um fyrir 15. maí nk. Langri samningslotu lokið „Þetta er góður samningur,“ sagði Halldór Björnsson, formað- ur Starfsgreinasambandsins, um miðnættið í gær. „Það hefur tekist í meginatriðum að fá nýja launa- töflu og lífeyrissjóðinn í höfn á samningstímanum auk margra annarra atriða.“ Þórunn Sveinbjörnsdóttir, vara- formaður Eflingar, sagðist vera sátt við samninginn. Löng og ströng samningslota væri loks að baki. „Sá áfangi að jafna réttindi ríkisstarfsmanna er nú í augsýn. Þar má nefna veikindarétt, trygg- ingar starfsmanna, fræðslumál, t.d. námsleyfi og að lokum lífeyr- issjóðinn. Auk þess sem launa- hækkanir á tímanum munu skila okkar fólki betri stöðu.“ Heildarkjarasamningur SGS við ríkið var undirritaður um miðnætti Lífeyrisréttindin jöfnuð „Þetta er góður samningur,“ segir formaður Starfsgreinasambandsins ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.