Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 22
AKUREYRI 22 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í NIÐURSTÖÐUM skýrslu verk- efnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar, er lagt til að gerður verði svokallaður vaxtarsamningur frá 2004 til 2007 sem byggist á nýj- um aðferðum við að styrkja hag- vöxt einstakra svæða. Með vaxt- arsamningi er átt við skipulagt samstarf einkaaðila og opinberra aðila til þess að tryggja framgang þess sem lagt er til að gert verði. Samningurinn taki mið af sambæri- legum aðferðum, sem best hafa tekist erlendis. Einnig er að finna m.a. 20 forgangstillögur. Tillög- urnar voru kynntar á fundi á Ak- ureyri í gær. Sigmundur Ernir Rúnarsson, formaður verkefnisstjórnarinnar, sagði, þegar hann fylgdi skýrslunni úr hlaði, að hópurinn hefði haft að leiðarljósi að auka fjölbreytni starfa á svæðinu en áhersla jafn- framt verið lögð á að byggt yrði áfram á helstu stoðum sem fyrir væru. Gert er ráð fyrir að fyrst um sinn verði fjármögnun vaxtarsamn- ingsins að mestu frá ríkinu, en á síðari stigum verði hlutur einka- aðila, stofnana og sveitarfélaga á svæðinu hærri. Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður verði um 40 milljónir króna, þar af greiði ríkið 30, sveitarfélög 5 og einkaaðilar og stofnanir 5 milljónir. Nýjungar Margar af nefndum tillögum bera merki um nýjungar s.s. er varðar háskóla Sameinuðu þjóð- anna, líftækninet, stjórnsýslu fisk- eldismála, endurbætur í samgöngu- málum og aðkomu OECD að byggðamálum. Sigmundur sagði til- lögur hópsins um þær leiðir sem farnar yrðu, um margt nýjung á sviði byggðamála hér á landi, ekki síst hvað varðar uppbyggingu í formi svokallaðs vaxtarsamnings þar sem lögð er áhersla á klasa á sviði mennta og rannsókna, á heilsusviði, ferðaþjónustu og á sviði matvæla. Hann kvað tillögurnar taka mið af sambærilegum áherslum víða erlendis í fjölmenni eða fámenni, þar sem lögð er aukin áhersla á að efla byggðakjarna með markaðstengdum aðgerðum þar sem atvinnulíf ber uppi hagvöxt svæðisins. Það er mat verkefnisstjórnar að Eyjafjarðarsvæðið eigi sér mikla möguleika til vaxtar og þróunar og aukinnar samkeppnishæfni, með þeim aukna fjölbreytileika og bætt- um lífskjörum sem því fylgir. Það er jafnframt mat og framtíðarsýn verkefnisstjórnarinnar að fyrir árið 2020 verði íbúatala Eyjafjarð- arsvæðisins um 30.000 „í fjöl- skylduvænu samfélagi sem verður eftirsótt vegna góðrar þjónustu, möguleika til menntunar og nýt- ingu frítíma, sem byggist á fjöl- breyttu, framþróuðu, sérhæfðu og samkeppnishæfu atvinnulífi með sterk alþjóðleg tengsl,“ eins og seg- ir í niðurstöðum verkefnisstjórnar. Samkvæmt umræddum tölum er því gert ráð fyrir að íbúum svæð- isins sem og atvinnutækifærum fjölgi árlega að meðaltali um 2,3%. Í maí 2002 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002–2005. Samkvæmt henni er lagt til að unn- ið verði að sérstakri byggðaáætlun fyrir Eyjafjörð með það að mark- miði að efla þetta öflugasta þétt- býlissvæði utan höfuðborgarsvæð- isins sem byggðakjarna fyrir Norður- og Austurland. Í árslok 2002 skipaði Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og við- skiptaráðherra fimm manna verk- efnisstjórn til að gera tillögu til ráðherra um stefnumörkun byggðaáætlunar fyrir Eyjafjörð. Í verkefnisstjórnina voru skipuð: Formaður Sigmundur Ernir Rún- arsson ritstjóri, Björn Snæbjörns- son, formaður Einingar-Iðju, Ak- ureyri, Hilda Jana Gísladóttir, kennari og fjölmiðlamaður, Ak- ureyri, Laufey Petrea Magn- úsdóttir, aðstoðarskólameistari, Ak- ureyri og Jón Helgi Pétursson, sparisjóðsstjóri, Grenivík. Starfs- menn verkefnisstjórnarinnar voru Baldur Pétursson, iðnaðarráðuneyti og Guðmundur Guðmundsson, Byggðastofnun. Gert var ráð fyrir að verkefninu lyki eigi síðar en við lok ársins 2004. Rúmlega 40 manns störfuðu í 7 mismunandi starfs- hópum á vegum verkefnisstjórn- arinnar, þar sem ýmsir komu að, m.a. fólk frá öðrum ráðuneytum og stofnunum þeirra, atvinnulífi, laun- þegum, sérfræðngar og fleiri. Einn- ig voru fengnir erlendir sérfræð- ingar til landsins og farnar voru kynnisferðir utan. Jafnframt hafði verkefnisstjórnin samvinnu við bæjaryfirvöld og fulltrúa sveitarfé- laga á svæðinu og nálægum byggð- arlögum. Hugmyndabanki Þar sem þetta eru tillögur verk- efnisstjórnar til ráðuneytisins, mun iðnaðar- og viðskiptaráðherra á næstunni yfirfara þessar tillögur og meta þær og kalla eftir samstarfi við viðeigandi aðila, s.s. önnur ráðuneyti, bæjaryfirvöld á Ak- ureyri, sveitarfélög á svæðinu og atvinnulífið. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra sagðist í gær vonast til þess að sumar tillögurnar kæmust sem fyrst til framkvæmda, svo sem tillagan um vaxtarsamn- inginn en einnig mætti líta á tillög- urnar sem einskonar hugmynda- banka að framkvæmdum, sem meta þyrfti með skilvirkum og markviss- um hætti á næstunni í samvinnu við ýmsa aðila. Tillögur verkefnisstjórnar um byggðaáætlun fyrir Eyjafjörð kynntar Hagvöxtur einstakra svæða verði styrktur Morgunblaðið/Kristján Margmenni á Ráðhústorgi: Í tillögunum er m.a. gert ráð fyrir að Akureyri verði ákjósanlegasti áningarstaðurinn fyrir fjölskyldufólk á Íslandi. Morgunblaðið/Kristján Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, heilsaði upp á Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fyrir kynningarfund Verk- efnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar. „SAMHLIÐA því að starfsemi vaxtarsamnings komi til fram- kvæmda, er afar brýnt að ráð- ist verði í aðgerðir á einstaka sviðum,“ segir í niðurstöðum verkefnisstjórnarinnar. For- gangstillögum er skipt í fimm flokka. I Mennta- og rannsóknaklasi 1. Háskóli Sameinuðu þjóðanna starfræki sérstakan skóla á sviði auðlindalíftækni við Háskólann á Akureyri. 2. Efling náms og rannsókna á háskólastigi. 3. Efling framhaldsskólanáms á verk- og tæknisviði.  Einnig verði unnið gegn brottfalli úr námi og náms- framboð til einstaklinga með stutta formlega menntun verði aukið. II Heilsuklasi 1. Efling endurhæfingar á svæðinu. 2. Akureyri verði miðstöð neyðarþjónustu Norð- urskautssvæðisins. 3. Uppbygging heilsutengdrar upplýsingatækni.  Fjórðungssjúkrahúsið verði einnig eflt. Globodent, þekk- ingarfyrirtæki á sviði tann- lækninga, verði byggt upp svo og heilsutengd ferða- þjónusta. III Ferðaþjónustuklasi 1. Heilstætt markaðsátak. 2. Akureyri verði fjöl- skylduvænn ferðamanna- staður. 3. Tengja Norðurland alþjóð- legum samgöngum.  Snjóframleiðslubúnaði verði komið upp í Hlíðarfjalli. Demantshringur Norðursins og rekstur Sinfoníuhljóm- sveitar Norðurlands og Leikfélags Akureyrar verði treystur. IV Matvælaklasi 1. Stofnað verði líftækninet. 2. Höfuðstöðvar Matvælastofn- unar Íslands verði á Ak- ureyri. 3. Flytja stjórnsýslu fiskeld- ismála til Akureyrar. V Önnur svið 1. Stytting akstursleiðarinnar milli Akureyrar og Reykja- víkur sem og innan svæðis. 2. Stóriðjuuppbygging verði á Eyjafjarðarsvæðinu og/eða Norðurlandi. 3. Bætt gagnavinnsla er varðar vinnumarkað og atvinnulíf á einstaka svæðum landsins. 4. OECD verði fengið til ráð- gjafar á sviði byggðamála er nái til dreifbýlis og þéttbýlis. 5. Kynningarráðstefna um kla- samyndun með alþjóðlegri þátttöku. 6. Almenningssamgöngur á Norðurlandi efldar. 7. Áhersla verði lögð á samein- ingu og samstarf sveitarfé- laga. 8. Fjölgað verði störfum á veg- um ríkisins á Eyjafjarð- arsvæðinu og skipaður verði starfshópur vegna þess. Forgangs- tillögur Morgunblaðið/Kristján Sigmundur Ernir Rúnarsson formaður kynnti niðurstöður og tillögur Verkefnisstjórnar byggðaáætlunar Eyjafjarðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.