Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
HAFNARHÚS
Opi› daglega 10-17
Frost Activity - Ólafur Elíasson
(til 25. apríl)
Egill Sæbjörnsson – Sófinn
(til 18. apríl)
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
KJARVALSSTA‹IR
Opi› daglega 10-17
Liti› lengra – Horft í gegn
Sams‡ning barselónskra
listamanna.
Corpus lucis sensitivus -
Erla fiórarinsdóttir
Myndir úr Kjarvalssafni
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
ÁSMUNDARSAFN
Opi› daglega 13-16
Píramídarnir –
Gu›n‡ Gu›mundsdóttir
Ásmundur Sveinsson -
Nútímama›urinn
Einn a›gangseyrir gildir samdægurs í hús
Listasafns Reykjavíkur; Hafnarhús,
Kjarvalssta›i og Ásmundarsafn.
Frítt er fyrir börn undir átján ára aldri
og fyrir alla safngesti á mánudögum.
Listasafn Reykjavíkur ver›ur opi› alla
páskadagana á hef›bundnum opnunartíma.
Lei›sögn í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstö›um
annan í páskum kl. 15.00.
Opi› alla páskana
í Listasafni Reykjavíkur
Kjarvalssta›ir vi› Flókagötu
Hafnarhús, Tryggvagata 17
Ásmundarsafn vi› Sigtún
TRYGGINGASTOFNUN ríkisins
birti í gær viðmiðunarverðskrá sam-
bærilegra lyfja en frá og með næstu
mánaðamótum verður tekið upp við-
miðunarverð lyfja með sambærileg
klínísk meðferðaráhrif í þremur
kostnaðarsömustu lyfjaflokkunum;
magalyfjum, blóðfitulækkandi lyfj-
um og geðdeyfðarlyfjum. Aðgerðirn-
ar eru hluti af ráðstöfunum sem heil-
brigðisráðuneytið, TR og
lyfjaverðsnefnd kynntu um mánaða-
mótin í þeim tilgangi að lækka lyfja-
kostnað á árinu um 450 milljónir
króna.
Saman í viðmiðunarflokk fara
jafngild lyf í sambærilegum styrk-
leika og lyfjaformi en leyfð eru
ákveðin vikmörk í styrkleika og
pakkningastærð að því er getið er
um í viðmiðunarverðskrá. Sam-
kvæmt reglugerð sem heilbrigðis-
ráðherra hefur staðfest er TR ætlað
að miða greiðslur við útreiknað við-
miðunarverð lægsta smásöluverðs í
hverjum viðmiðunarflokki. Í tilkynn-
ingu frá Tryggingastofnun segir að
með breytingunni sé vonast til að
aukin samkeppni leiði til þess að
verð lyfja sem séu fyrir ofan viðmið-
unarverð lækki og læknar hagi ávís-
unum sínum þannig að sjúklingar
greiði ekki meia en þörf sé á.
Geta komist hjá hækkun
með því að skipta um lyf
Í flestum tilvikum skiptir ekki
máli fyrir sjúkling hvaða lyf hann
notar innan viðmiðunarflokks, þó
geta verið undantekningar þar á.
Læknir getur sótt um lyfjaskírteini
út á brýn læknisfræðileg rök. Ef
sjúklingur er að nota ódýrasta lyfið í
viðkomandi lyfjaflokki breytist hlut-
deild hans ekkert með reglugerðar-
breytingunni. Ef sjúklingurinn hefur
notað dýrara lyf og heldur því áfram
eftir breytinguna verður hann að
greiða hærri hlutdeild því þátttaka
Tryggingastofnunar miðast við
ódýrasta lyfið í flokknum.
Sem dæmi um hámarksgreiðslu
sjúklings fyrir lyf í tilteknum flokki
magalyfja hækkar hlutur sjúklings
fyrir Nexium 20 mg, 56 stk. úr kr.
4.950 í kr. 6.306 frá og með 1. maí eða
um 1.356 krónur. Hlutur lífeyrisþega
í sama lyfi hækkar um sömu krónu-
tölu, er nú 1.375 kr. en verður 2.731
kr. um næstu mánaðamót. Hækkun-
in nemur tæpum 99% hjá lífeyris-
þega en rúmum 27% hjá öðrum.
Sjúklingur getur hins vegar komist
hjá þessari hækkun með því að nota í
staðinn lyfið Lanser sem hefur sam-
bærilega virkni og Nexium.
TR birtir viðmiðunarverðskrá sambærilegra lyfja í þremur flokkum
Dýrari lyfin lækki með
aukinni samkeppni
!"
#
$!!%
#"
# #"
# ' %% ( !)
*+!%
' %% ( !)
#""
"
#
#"
"
"
!
"
! "
RÍKISSTJÓRN Íslands hefur sam-
þykkt að senda flutningavél með
hjálpargögnum til Afganistan, þegar
Ísland tekur við stjórn alþjóðaflug-
vallarins í Kabúl 1. júní næstkom-
andi. Ríkið mun standa straum af
kostnaðinum við flugið og hafa ís-
lensk hjálparsamtök þegar hafist
handa við að safna hjálpargögnum.
Meðal þess sem verður sent eru
sjúkrarúm, hjólastólar, lyf og annar
sjúkrabúnaður.
Þorbjörn Jónsson, sendiráðunaut-
ur í utanríkisráðuneytinu, segir að
umfang verkefnisins sé ekki ljóst
enn, þar sem það liggi ekki fyrir
hversu mikið af hjálpargögnum
verði safnað. Hjálparstofnun kirkj-
unnar og Rauði kross Íslands séu
byrjuð að safna hjálpargögnum, auk
þess sem Barnaheill hafi sýnt verk-
efninu áhuga. Einnig er í athugun
hvort Pharmaco taki þátt í að senda
lyf til landsins.
„Hugmyndin er að stjórnvöld
kosti flug á gögnum sem hjálparsam-
tök leggja til. Ég veit að Hjálpar-
stofnun kirkjunnar hefur fengið lof-
orð fyrir gömlum sjúkrarúmum,
hjólastólum og hækjum og öðru sem
er til í miklu magni á hjúkrastofn-
unum hér á landi, en kæmi að miklu
betra gagni annars staðar,“ segir
Þorbjörn. Þá sé einnig verið að safna
búnaði á fæðingarstofu, eins og ný-
burakassa, fæðingarrúmi og öðru.
Hann segir að verkefnið sé í burð-
arliðnum og því sé ómögulegt að
segja til um hversu stóra vél þurfi að
leigja, en að íslenskt flugfélag muni
sjá um flutninginn. Ekki sé hægt að
segja til um kostnaðinn á þessu stigi
þar sem hann fari eftir umfanginu.
Miðað er við að flogið verði með
hjálpargögnin um svipað leyti og
þegar Íslenska friðargæslan tekur
við stjórn flugvallarins í Kabúl 1.
júní. Þeir starfsmenn sem héðan
verða sendir munu þegar verða
komnir til Afganistan til að undirbúa
starfið á flugvellinum, áður en Ísland
tekur formlega við yfirstjórninni.
„Okkur finnst ágætt að nota tæki-
færið þegar við tökum við stjórn á
þessum flugvelli að koma með öðrum
hætti inn í uppbyggingu í landinu,“
segir Þorbjörn.
Stjórnvöld kosta flug með
hjálpargögn til Afganistan
ÞRIÐJU umferð í undanrásum í
landsliðsflokki á Skákþingi Íslands
lauk í gærkvöld í OR-húsinu þannig
að Helgi Áss Grétarsson vann
Braga Þorfinsson og Hannes Hlífar
Stefánsson og Þröstur Þórhallsson
gerðu jafntefli. Fjórmenningarnir
eru því allir með einn vinning og
tefla til þrautar í bráðabana í dag kl
13.
Í kvenaflokki vann Anna Björg
Þorgrímsdóttir Elsu Maríu Þor-
finnsdóttur og Lenka Ptácniková
vann Júlíu Rós Hafþórsdóttur.
Harpa Ingólfsdóttir vann Hallgerði
Helgu Þorsteinsdóttur og Guðlaug
Þorsteinsdóttir og Sigurlaug Reg-
ína Friðþjófsdóttir gerðu jafntefli.
Staðan er þannig að Harpa er með
3½ vinning, Anna Björg og Lenka
eru með 3 vinninga, Sigurlaug 2½
vinning, Guðlaug og Hallgerður
með 2 vinninga og Elsa María og
Júlía engan vinning.
Morgunblaðið/Ómar
Yngsti keppandinn á Íslandsmóti kvenna í skák, Hallgerður H. Þorsteinsdóttir, 11 ára, hefur náð 2 vinningum eftir
4 umferðir. Á þriðjudag sigraði hún Önnu Björgu Þorgrímsdóttur. Hér teflir hún við Guðlaugu Þorsteinsdóttur.
Bráðabani tefldur í dag
LANGFLESTAR hálendisleiðir
eru lokaðar allri umferð vélknúinna
ökutækja þar sem hætta er á vega-
skemmdum vegna aurbleytu, sam-
kvæmt upplýsingum frá Vegagerð-
inni. Akstur er þó heimilaður inn í
Þórsmörk, um Uxahryggi og Kalda-
dal en þessar leiðir eru einungis fær-
ar jeppum. Fyrir þá sem vilja kom-
ast á snjó til aksturs er jeppafært
upp að Langjökli um Kaldadalsveg
og á Suðausturlandi er jeppafært
upp á Skálafellsjökul. Norðanlands
er hægt að komast í snjó á Trölla-
skaga með því að fara upp á Lágheiði
sem er fær öllum bílum.
Langflestar hálend-
isleiðir lokaðar
TÆPLEGA fertugur maður var
dæmdur í 50.000 króna sekt í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að
hafa látið það viðgangast á vinnustað
sem hann var verkstjóri á, að maður
stjórnaði þar vinnuvél án þess að
hafa tilskilin réttindi.
Verkstjórinn var fundinn sekur
um brot á lögum um öryggi á vinnu-
stöðum, en auk þess að hafa látið við-
gangast að réttindalaus maður
stjórnaði tilgreindri vinnuvél þótti
hann hafa gerst brotlegur við sömu
lög með því að hafa ekki séð um að
vinnuvélin væri þá búin öryggisbelti
og veltigrind, en stjórnandi vélarinn-
ar varð undir henni þegar hún valt
ofan í skurð í nóvember árið 2002.
Verkstjórinn var auk sektarinnar
dæmdur til að borga allan sakar-
kostnað málsins, þar með talin
80.000 króna málsvarnarlaun skip-
aðs verjanda síns.
Sektaður
vegna brots
á lögum
um öryggi