Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 6

Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ný þýsk-íslensk / íslensk-þýsk orðabók eftir Steinar Matthíasson BÓKAÚTGÁFA BRAUTARHOLTI 8 • 105 REYKJAVÍK SÍMI 562 3370 • FAX 562 3497 • idnu@idnu.is ÁRNI Magnússon félagsmálaráðherra telur að fara eigi varlega í breytingar á jafnréttislögum, inntur eftir viðbrögðum við ummælum dómsmála- ráðherra í Morgunblaðinu í gær. Þar var haft eftir dómsmálaráðherra, Birni Bjarnasyni, að jafnrétt- islögin væru barn síns tíma. Tilefni ummælanna var niðurstaða kærunefndar jafnréttismála, sem heyrir undir félagsmálaráðuneyti, um að dóms- málaráðherra hafi brotið gegn jafnréttislögum með því að skipa Ólaf Börk Þorvaldsson í embætti hæstaréttardómara en ekki Hjördísi Hákonar- dóttur. „Það má kannski segja það um alla skapaða hluti, öll mannanna verk, að þau séu börn síns tíma. Annars eru þetta tiltölulega ný lög, fjögurra ára gömul. Án þess að ég vilji útiloka það með öllu að það kunni að vera þörf á því að þróa þessa lög- gjöf þá tel ég að þetta mál sem slíkt kalli ekkert sérstaklega á það. Mér finnst þetta mál ekki kalla á neina sérstaka endurskoðun laganna,“ segir Árni. Hann segir álitið endanlegt í stjórnsýslunni, en það sé svo undir málsaðilum komið hvort málið verður rek- ið fyrir dómstólum. Árni kveðst enga skoðun hafa á því hvort niðurstaða kærunefnd- arinnar hafi verið rétt. „Það hefur verið mitt mottó í sam- skiptum mínum við þær úr- skurðarnefndir sem undir fé- lagsmálaráðuneytið heyra að ég hvorki skipti mér af starfi þeirra né niðurstöðunni. Þær eiga að vera sjálf- stæðar í stjórnsýslunni og það er mikilvægt að þær séu það,“ segir Árni. Eigum talsvert í land í jafnréttismálum „Ég er hvorki hneykslaður né hissa á þessum ummælum dómsmálaráðherra. Það eru skiptar skoðanir á þessu ákvæði laganna og það hefur svo sem komið upp áður að menn hafa velt fyrir sér hvort þetta er réttasta framsetningin. Menn hafa velt fyrir sér þessari túlkun laganna að það beri að beita jákvæðri mismunum ef karlar í viðkomandi starfi eru fleiri en konur eða öfugt. Það hefur hver sína skoðun á því. Þessum lögum er hins vegar ætlað að tryggja jafnrétti kynjanna. Það er meginmarkmiðið með þeim. Ég tel að við eigum talsvert í land í jafnréttismálum og vil fara mjög hægt í allar breytingar sem gætu orðið til þess að draga úr árangri á því sviði,“ segir Árni. Í fullu samræmi við nágrannalöndin Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmda- stýra Jafnréttisstofu, segir löggjöf um jafnan rétt og stöðu karla og kvenna vera í fullu samræmi við það sem gerist í nágrannalöndunum. „Þessi lög eru frá 2000, löggjöfin var í heild sinni endurskoð- uð þá og hún er í samræmi við það sem er að gerast í kringum okkur. Auðvitað má alltaf endurskoða lögin, en aðrar þjóðir eru ennþá með sína jafnrétt- islöggjöf sem gengur út á sértækar aðgerðir. Við stöðuveitingu ber að líta til kynja- og jafnréttis- sjónarmiða. Álit kærunefndarinnar virðist vera af- dráttarlaust í þessu tilviki,“ segir Margrét María. Félagsmálaráðherra um gagnrýni dómsmálaráðherra á jafnréttislöggjöfina Málið kallar ekki á sérstaka endurskoðun Árni Magnússon HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 45 ára karlmann í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás í Básum í Þórs- mörk í fyrra. Maðurinn var ákærður fyrir að kýla annan mann, hrinda honum í jörðina, slá og sparka í hann liggjandi með þeim afleiðingum að hann kinnbeins- og kjálkabrotnaði auk þess sem tennur hans brotnuðu. Að mati dómsins var árás ákærða óvænt og stórfelld og afleiðingar hennar gríðarmiklar fyrir brotaþola. Þurfti hann að gangast undir að- gerðir vegna beinbrota í andliti og glíma við sjóntruflanir vegna árás- arinnar. Var ákærði dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 300 þúsund krónur í bætur. Eins árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás BÍLALEIGAN Hertz ætlar að bæta um 20–25% við bílaflota sinn frá síðasta sumri til að anna mikilli eftirspurn næsta sumar. Vilhjálmur Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóri Hertz, segir að bókanir séu að berast óvenju snemma þetta árið og allt stefni í metár hjá fyrir- tækinu. Í fyrrasumar var bílaleigan með um 850 bíla en í sumar mun flotinn telja yfir þúsund bíla. „Við gætum eflaust bætt við okkur fleiri bílum yfir sumarið, eftirspurnin er það mikil.“ Hann segir ferðamenn frekar hafa tilhneigingu til að ferðast á fólksbílum en í hóp- ferðabílum. Stefnir í metsumar hjá bílaleigum VIÐRÆÐUM Samiðnar og Rafiðn- aðarsambands Íslands (RSÍ) við vinnuveitendur hefur verið frestað fram yfir páska. Eru viðræðurnar mislangt komnar varðandi horfur á samningsundirskrift. Finnbjörn Hermannsson, formað- ur Samiðnar, segir að ákveðið hafi verið að hitta samninganefnd Sam- taka atvinnulífsins næst á fundi þriðjudaginn 13. apríl. Telur hann ágætar líkur á að samningar takist í þeirri viku án þess að til átaka komi. Að því loknu verði gengið til viðræðna við ríkið og aðra viðsemjendur iðn- aðarmanna. Samningur Samiðnar við Reykjavíkur gildir fram í október í haust. Samninganefnd Rafiðnaðarsam- bandsins átti sinn annan fund með Félagi íslenskra stórkaupmanna í gærmorgun eftir að þeim viðræðum var vísað til sáttasemjara. Sá hópur nær yfir vel á annað hundrað raf- virkja og tæknimanna hjá heildsölum og þjónustufyrirtækjum í kringum þá. Þrýst á viðræður við ríkið Guðmundur Gunnarsson, formaður RSÍ, segir að í þessum viðræðum sé unnið að lausn nokkurra sérkrafna. Skýr krafa sé uppi um að halda í markaðslaunakerfið og deilt sé um út- færslu á því. Rafiðnaðarmenn hafa einnig verið í viðræðum við Orkuveitu Reykjavík- ur. Þeim hefur ekki verið vísað til rík- issáttasemjara en að sögn Guðmund- ar eru önnur sjónarmið uppi en í viðræðum við stórkaupmenn og heild- sala. Til greina komi að gera samning aðeins til eins árs og komast að hlið rafiðnaðarmönnum hjá öðrum orku- og fjarskiptafyrirtækjum en samn- ingar þeirra renna út síðar á þessu ári. Þá hefur samninganefnd RSÍ verið í viðræðum við Reykjavíkurborg og beðið er eftir viðræðum við samninga- nefnd ríkisins, vegna starfsmanna á Landspítalanum og RÚV. „Við mun- um þrýsta á að þessar viðræður fari í gang eftir páska,“ segir Guðmundur. Viðræðum við félög iðnaðarmanna frestað KANÍNUR hafa til margra ára hreiðrað um sig í Öskju- hlíðinni. Nú, eftir til- tölulega mildan vetur, koma þær sprækar fram á sjónarsviðið og fanga at- hygli þeirra sem erindi eiga um Öskjuhlíðina. Margir tengja kanínur við páskahátíðina fram- undan en skyldu kanínur yf- irleitt hafa nokkrar áhyggj- ur af hátíðarhöldunum? Þessi sem hér er virtist í það minnsta sallaróleg og sat á steini í vætunni og skoðaði nánasta umhverfi sitt athugulum augum. Kafloðin kanína í Öskjuhlíð Morgunblaðið/Brynjar Gauti VINNA við Fáskrúðsfjarðar- göng, jarðgöng milli Fá- skrúðsfjarðar og Reyðarfjarð- ar, er á áætlun. Göngin eru orðin 3.762 metra löng, eða um tveir þriðju af heildar- lengd ganganna sem er 5.694 metrar. Að sögn Ásgeirs Loftsson- ar, staðarstjóra Ístaks, hefur gengið hægar að komast í gegnum jarðlög í þeim enda ganganna sem liggur frá Reyðarfirði. Undanfarnar vik- ur hafi hins vegar gengið álíka hratt að komast í gegn- um jarðlög beggja vegna. Sá endi ganganna sem liggur frá Fáskrúðsfirði er orðinn 1.942 metra langur en Reyðarfjarð- arhlutinn er 1.820 metrar. Ás- geir segir að göngin séu á áætlun. „Við reiknum með gegnumslagi í haust,“ segir Ásgeir og á við að gangaend- arnir nái saman í haust. Vinnu við göngin miðar vel áfram HLÉ hefur verið gert á við- ræðum grunnskólakennara og samninganefndar sveitarfélaga fram yfir páska og næsti fundur er boðaður miðvikudag- inn 14. apríl hjá ríkissáttasemj- ara. Á vefsíðu Kennarasambands Íslands segir Finnbogi Sig- urðsson, formaður Félags grunnskólakennara, að „him- inn og haf“ skilji samningsaðila að en kjarasamningar kennara hafa verið lausir frá síðustu mánaðamótum. Finnbogi segir að hingað til hafi viðræður einkum snúist um túlkun á gildandi kjara- samningi. Á samningafundi sl. föstudag hafi aðilar þó lýst sig sammála um að reyna til þrautar að ná samkomulagi í vor. Lagði sáttasemjari fram hugmyndir um viðræður sem miðast við að ljúka samningum við grunnskólakennara fyrir miðjan maí. Aðeins sex málum vísað til sáttasemjara Deila kennara og sveitarfé- laga er aðeins eitt af sex mál- um sem vísað hefur verið til ríkissáttasemjara frá áramót- um. Að sögn Elísabetar S. Ólafsdóttur, skrifstofustjóra hjá embætti sáttasemjara, eru þetta óvenjufá mál miðað við svipaðan tíma í fyrri kjaradeil- um og hve margir samningar eru lausir. Bendir hún á að eft- ir páska sé aðeins einn og hálf- ur mánuður þar til sumarfrí hefjist á vinnumarkaðnum. Mikið ber á milli í við- ræðum kennara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.