Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 28

Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 28
DAGLEGT LÍF 28 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÉG heyrði kenningu um daginn sem segir að ef karlmenn og konur myndu skiptast á að eignast börn, þá myndu hjón aldrei eignast nema þrjú börn, þ.e. fyrst væri það konan, síðan maðurinn, síðan konan en svo stopp: karlmaðurinn gæti þetta aldrei aftur! Ég heyrði líka kenningu um að það væri af náttúrunnar völdum að nýfædd börn væru alltaf líkust föður sínum, þetta væri til að efla og tryggja tengslin við þá (eða til að forða þeim frá efasemd- um?!). Svo hef ég heyrt að hugsanlega væru gen annars foreldris svo ráðandi að barnið líktist bara öðru þeirra. Hvað sem þessu öllu líður þá bíð ég alla vega spennt eftir því að sjá hvernig þú átt eftir að þróast og þroskast í útliti. Annað sem ég þóttist reynd- ar viss um áður en þú fæddist var að þú yrðir í meyjarmerk- inu. Ég las mér því allt til um það merki og talaði við tvær konur sem báðar eiga börn í Meyjunni. „Hlý, kelin, vandlát, þrjósk og reglusöm voru lýs- ingarorð sem báðar konurnar notuðu.“ Allt þarf að vera í röð og reglu sagði önnur og há- vaðasamt fólk eða mikill mann- fjöldi á ekki mikið við Meyjuna, sagði hin. Allt þetta sagði ég við pabba þinn að væri trygg- ing fyrir því að þú yrðir eins og hann. Ætli það verði ekki þann- ig, sagði ég við hann, að þar sem ég get verið svo mikil skvetta, munu allir halda að ég ráði öllu hér á heimilinu, en hið rétta verður að ég verð með Meyju og Vog og þið munuð stjórna þessu öllu! Við förum bara fínna í hlut- ina sagði pabbi þinn. Honum leist greinilega ágætlega á þessa lýsingu. Þú fæddist hins vegar tíu dögum fyrir áætlaðan fæðingardag og ert því lítið ljón.  DAGBÓK MÓÐUR  Meira eftir viku. F ullorðnir eiga það til að spyrja ung- linga: „Hvenær átt þú að fermast?“ Líkt og það sé skylda eða lögmál að fermast. Nær væri að spyrja: „Ætlar þú að fermast?“ En þar sem flestir fermast gleymist oft að orða spurninguna á þennan hátt. Félagslegur þrýstingur á fermingar er töluverð- ur, en nauðsynlegt er að virða ákvarðanir þessara ungmenna. Ferming felst m.a. í því að ganga í full- orðinna manna tölu og fylgja henni gjafir sem gera unglinginn fjárhagslega sjálfstæðari en áður. Ákvöðun um að fermast ekki hefur því oft hlið- armerkingu: „Að tapa af gjöfunum“ eins og það hefur verið orðað. Þeir sem vilja ekki fermast á trúarlegum forsendum, hafa möguleika á að fermast borgaralega. Þeir fara á nám- skeið og fá fræðslu sem á að nýtast þeim í lífinu og þeir geta haldið veislu við útskrift. Nokkrir unglinga ákveða að fermast hvorki trúarlega né borg- aralega eða að halda veislu. Um- hverfið gerir samt ráð fyrir að flestallir fermist. Fjölmiðlar gefa út sérstök fermingarblöð og í ótal auglýsingum eru freistandi ferm- ingartilboð. Það þarf því sennilega að vera með sterk bein í nefinu til að standast allan þennan þrýsting og ganga gegn straumnum. Kemur mörgum á óvart Þórhildur Stephensen er fædd 1990 og gæti því fermst núna í vor ef hún vildi. Hún hefur aftur á móti ákveðið að ganga ekki til prests til að fermast. Hún er í 8. K. í Hvassaleitisskóla og hún veit ekki annað en öll bekkjarsystkini hennar muni fermast í Grensáskirkju. „Ég er ekki alin upp í kristinni trú og er ekki skírð, þannig að ég sé ekki tilganginn í því að vera að fermast,“ segir Þórhildur. Ef hún hefði viljað, hefði hún mátt fermast, fjöl- skyldan hefði ekki staðið gegn því, en hún ætlaði sér aldrei að fermast. „Margir skólafélagar eru hissa á því að ég ætli ekki að fermast, m.a. vegna þess að maður fær mikið að gjöfum,“ segir Þórhild- ur og að flestir virði ákvörðun hennar, bæði jafn- aldrar og fullorðnir. Mikil umræða er meðal skólafélaga um allt það sem tengist fermingum, eins og veislur, fatnað og gjafir. „Stelpur tala t.d. mikið um hárgreiðslur og annan undirbúning en ég tek eðlilega ekki þátt í því,“ segir Þórhildur og að ef til vill finn- ist henni það pínuleiðinlegt að geta það ekki. „Mér finnst of mikið gert úr þessu í samfélaginu,“ seg- ir hún. Umræður um tilvist Guðs Þórhildur segist taka þátt í umræðum um tilvist guðs, en sjálf hafi hún aldrei trúað á guð. Henni finnst aftur á móti at- hyglin á gjafirnar sem fylgi ferming- unni vera of mikil og getur ekki hugsað sér að ferm- ast bara til að fá gjafir. Þetta er hennar afstaða og aðrir verða að virða hana. Einhverjir fermast ef til vill fyrst og fremst vegna gjafanna, en það er einnig skiljanlegt því mikið er í húfi. Aukabónusinn er í flestum tilfellum betra fjárhagslegt sjálfstæði. En þess ber að geta að sum börn hafna þeim hluta fermingarinnar og einbeita sér fyrst og fremst að hinum trúarlega þætti. Ástæðurnar á bak við ákvarðanir um að fermast eða fermast ekki geta því verið nokkrar. Færri fermast í Svíþjóð Þórhildur gerir sér þó dagamun í páskafríinu, því hún fær ferð til Svíþjóðar frá foreldrum sínum. „Ég ætla að heimsækja vinkonur mínar þar,“ segir hún og að hún hafi búið í Svíþjóð milli fimm og tólf ára aldurs. „Það eru mun færri sem fermast í Svíþjóð heldur en á Íslandi,“ segir hún og að engin af vin- konum hennar ætli að fermast. Þórhildur fylgir ákveðinni hefð því fermingar eru sjaldgæfar innan fjölskyldu hennar; foreldrar hennar eru ekki fermd og fæst systkini þeirra. Henni þótti aftur á móti gaman að læra krist- infræði í skóla. „Mér fannst ágætt að læra um þetta, og ég hefði einnig vilja læra meira um önnur trúarbrögð, siði og venjur,“ segir hún. Þórhildi finnst skólinn ágætur og af áhugamálum hennar má nefna funk-dans sem hún lærir í Kram- húsinu, hestamennsku og fótbolta. Eftir grunn- skóla áformar hún að fara í Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem hún ætlar í kórinn. „Seinna gæti ég svo hugsað mér að læra fatahönnun,“ segir hún að lokum. Ákvað að fermast ekki guhe@mbl.is  UNGLINGAR | Þórhildur er á fermingaraldri en velur að fermast ekki. Hún tekur þátt í umræðum um tilvist Guðs og hún virðir ákvarðanir jafnaldra sinna um að fermast. Vinakaka nokkur, sem geng-ur undir nafninu Hildur,fer nú eins og eldur í sinuum landið. Ekki er ljóst hvar eða hvenær loginn var tendr- aður, hér heima eða erlendis, en þessi leikur sem er ekki ólíkur keðjubréfa- leiknum, gengur út á það að vinur eða vinkona kemur í heimsókn til ein- hvers sem er honum kær, spjallar og færir viðkomandi deig að gjöf, sem gert er eftir sérstakri uppskrift. Við- takandinn skal annast deigið í tíu daga, hræra í því og hugsa um leið fal- lega til gefandans. Einnig skal „gefa Hildi að borða“ svo hún vaxi og dafni á þessum tíu dögum. Hún gerjast því á „náttúrulegan hátt“. Á tíunda degi er svo komið að því að viðtakandinn uppsker fyrir erfiðið, og skal hann þá baka úr aðeins einum fimmta af deig- inu en hina fjóra hlutana skal færa vinum að gjöf, sem halda áfram að bera Hildi áfram á milli vina. Þetta hefur á sér blæ hins kærleiksríka boðskapar að margfalda og gefa og á vissan hátt er sama deigið alltaf gefið áfram, barasta endalaust ef enginn hættir að gefa deig af sinni hræru! Og þeir sem hafa smakkað segja Hildi vera óvenju bragðgóða og safa- ríka súkkulaðiköku. Hildur Hildur á ekki að vera í ísskáp. Hildur dafnar best við stofuhita. 1. dagur: Þú færð Hildi frá vini þín- um. 2. dagur: Hrærðu í Hildi 2–3 sinnum yfir daginn. 3. dagur: Hrærðu aftur í Hildi 23 sinnum yfir daginn. 4. dagur: Hildur er svöng. Gefðu Hildi 2 dl af hveiti, 2 dl mjólk og 2,5 dl af sykri. 5. dagur: Hrærðu í Hildi 2–3 sinnum yfir daginn. 6. dagur: Hrærðu í Hildi 2–3 sinnum yfir daginn. 7. dagur: Hrærðu í Hildi 2–3 sinnum yfir daginn. 8. dagur: Hrærðu í Hildi 2–3 sinnum yfir daginn. 9. dagur: Hildur er aftur svöng. Gefðu henni það sama og síðast. Deildu Hildi síðan í 5 jafna hluta (ca 2 dl hver hlutur). Gefðu fjóra hluta ásamt uppskriftinni. Fimmti hlutinn verður eftir hjá þér. 10. dagur: Hildur nr. 5 er svöng. Gefðu Hildi 1,5 dl olíu, 2,5 dl sykur 3,5 dl hveiti, 1 tsk. salt, 100 g hakkaðar hnetur 100 g saxað súkkulaði, 2 tsk. lyftiduft, 3 egg 2 rifin epli, 2 msk. kanil. Hrærðu vel saman. Settu Hildi í form og bakaðu við 170 °C í u.þ.b. 50 mín.–1 klst. (miðað við blástursofn). Góða skemmtun með Hildi! Með kærri kveðju frá vini.  BAKSTUR|Vinur gefur deigið og viðtakandi annast það og hugsar fallega til gefandans Kærleikskakan Hildur Kökugerð: Bakstur getur verið skemmtilegur og ekki spillir fyrir þegar vináttan er látin koma þar við sögu. khk@mbl.is Örfáar hitaeiningar Gómsæta bökunardufti› frá - einfaldlega létt og gott!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.