Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 29
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 29
1 4 4 4
Ertu að leita
þér að nýjum
skóm?
Frábærar, fjörugar og fjölbreyttar
ævintýraferðir fyrir útskriftarhópa
og alla sem vilja upplifa ævintýr
Upplýsingar í síma 562-7700
www.travel-2.is
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
JAPANSKI hönnuðurinn Miki
Fukai var í hópi þeirra fjölmörgu
fatahönnuða sem sýndu hönnun
sína á fatnaði
fyrir næsta haust
á tískuvikunni í
London, sem
haldin var seinni
hluta febr-
úarmánaðar.
Fukai valdi sér
hins vegar efni-
við sem ekki er
vitað til að er-
lendur fatahönn-
uður hafi áður kosið að sýna á
tískuviku í London, íslensku ullina,
sem finna mátti í peysum, kjól,
hatti, hönskum og prjónaðri kápu.
Íslenska fyrirtækið Ístex var
meðal helstu stuðningsaðila hönn-
uðarins, og að sögn Karin Atlason,
markaðsstjóra Ístex, er það hluti af
stefnu fyrirtækisins að vinna með
ungum hönnuðum í þeim tilfellum
þar sem sérkenni íslensku ullar-
innar falla vel að hugmyndum hönn-
uðarins. „Við unnum með Miki og
hennar fólki allt frá því snemma í
haust við að prófa mismunandi
gerðir af garni og ræddum hönn-
unina út frá því,“ segir Karin og tel-
ur línu Fukai gefa fyrirtækinu
tækifæri á að nálgast hóp ungra
tískuunnenda víða um heim.
Fukai sjálf hefur verið önnum
kafin frá því tískuvikunni lauk, m.a.
við að kynna línu sína í París og
eins við að útbúa kynningarlínu fyr-
ir Japansmarkað. „Ég vildi senda
frá mér línu sem einkenndist af
þykkum og efnismiklum klæðum og
þegar ég sá íslensku ullina fyrst þá
féll ég samstundis fyrir þyngdinni
og olíukenndri áferðinni,“ er haft
eftir Fukai í fréttatilkynningu frá
Ístext. En þetta er þriðja árið sem
Fukai, sem áður starfaði fyrir hönn-
uðinn Justin Oh, sýnir eigin hönn-
un.
TÍSKA | Íslensk ull á tískuviku í London
ca
tw
al
ki
ng
.c
om
Hnésíður kjóll, þykk og hlýleg peysa og kápa, allt úr íslenskri ull.
Féll fyrir olíu-
kenndri áferð
ullarinnar
Hönnuðurinn:
Miki Fukai.