Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 38
MINNINGAR
38 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Steinunn Þor-steinsdóttir
fæddist i Ólafsvík 28.
júní 1924. Hún lést á
Landsspítalanum í
Fossvogi sunnudag-
inn 28. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Kristín
Sigríður Sigurgeirs-
dóttir, f. á Arnar-
stapa 8.10. 1898, d.
10.5. 1976, og Þor-
steinn Guðmundsson,
f. í Fróðárhreppi
16.10. 1895, d. í
Ólafsvík 22.5. 1957.
Systkini Steinunnar eru: Guðrún,
f. 8.10. 1920, d. 18.7. 1921, Sig-
urður Ríkharð, f. 16.1. 1926, d.
28.9. 1998 og Geir, f. 13.9. 1931.
Steinunn giftist árið 1941 Lár-
usi Guðmundi Sveinssyni, f. 19.3.
1919, en hann drukknaði 27.9.
1947. Börn þeirra eru: 1) Kristín,
f. 24.3. 1942, maki Snæbjörn Að-
alsteinsson, börn þeirra eru; a)
Steinunn, f. 30.12. 1960, maki
Magnús Þórarinsson, börn þeirra
Steinar Bjarki, f. 30.7. 1983 og
Kristín, f. 16.4. 1987. b) Aðal-
steinn, f. 29.10. 1962, maki Elsa
Sigurbjörg Bergmundsdóttir,
synir þeirra Snæbjörn, f. 21.4.
1987 og Hólmkell Leó, f. 12.3.
1991. c) Lára Guðmunda, f. 28.6.
1969, maki Magnús Þorsteinn
Magnússon, synir þeirra eru
Nikulás Snær, f. 14.2. 1995 og Pat-
rekur Snær, f. 15.3.2004. 2) Þór-
heiður, f. 10.1. 1945, búsett í Dan-
mörku, maki Kurt Christian
Hilbrecht. Börn þeirra eru: a)
Lárus Bjarne, f. 13.9. 1966, b) All-
an, f. 5.10. 1971, maki Helle Have,
dóttir þeirra er Ellen, f. 14.1. 2003
og c) Thor, f. 21.4. 1975, unnusta
Krestina Skirl. Seinni eiginmaður
Steinnunnar var Haukur Sig-
tryggson, f. 1.9.
1924, d. 21.3. 1998.
Börn þeirra eru: 1)
Lára Guðmunda, f.
15.7. 1950, d 17.5.
1951. 2) Þorsteinn
Reynir, maki Kristín
Bjargmundsdóttir.
Börn þeirra eru: a)
Steinunn, f. 12.11.
1972, dóttir hennar
Anna Kristín Krist-
insdóttir, f. 30.8.
1996, og b) Haukur,
f. 2.8. 1978. 3) Guð-
björn Smári, f. 12.12.
1953. 4) Rut, f. 10.1.
1960, búsett i Danmörku, maki
Peter Lund. Börn þeirra eru
Heiða Kristín, f. 31.8. 1983, Jenný
Lára, f. 17.5. 1985 og Lína Katrín,
f. 14.11. 1994. 5) Hilmar Þór, f.
18.3. 1961, maki Sigurbjörg Jóns-
dóttir. Börn þeirra eru Helga, f.
18.6. 1985, Fannar, f. 17.4. 1988
og Jón Haukur, f. 12.10. 1992.
Steinunn, eða Steina Þorsteins
eins og hún var venjulega kölluð,
ólst upp hjá foreldrum sínum í
Efstabæ í Ólafsvík. Á unglingsár-
um eftir að hún lauk barnaskóla-
námi stundaði hún bæði fiskvinnu
og vann sem vinnukona í Reykja-
vík í fáein ár. Rétt fyrir tvítugt
kynntist hún fyrri manni sínum og
hófu þau búskap í Garðarshúsi í
Ólafsvík. Árið 1946 byggðu þau
sér einbýlishús sem þau nefndu
Arnarhvol nú Ennisbraut 8 í
Ólafsvík. Steina bjó alla sína ævi í
því húsi eða þar til haustið 1998 er
hún fer á Dvalarheimilið Jaðar
nokkrum mánuðum eftir að hún
missti seinni mann sinn Hauk Sig-
tryggsson.
Útför Steinunnar fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
10. apríl og hefst athöfnin klukk-
an 14.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku mamma, blessuð sé minn-
ing þín.
Smári.
Þó látinn sért, þú lifir nú
á landi hans er gaf þér trú.
Þar munu vinir mæta þér
á meðan biður eftir mér.
Þó sorgin heim mig sækir nú
þá samt ég bíð í von og trú.
Ó, vilt þú Guð mér vera hjá
og vota mína þerra brá.
Á kveðjustund við komun nú
og krjúpum öll í þökk og trú.
Við biðjum hann, sem alheim sér
um eilífð vaka yfir þér.
(Elínborg B. Vagnsdóttir.)
Okkur langar að minnast móður
okkar, ömmu og langömmu Steinu,
eins og hún alltaf var kölluð, nokkr-
um orðum. Mamma var alltaf glöð og
hress, alveg sama hversu erfitt lífið
var fyrir hana. Við minnumst alla tíð
heimsókna hennar og pabba til Dan-
merkur og hversu gaman var fyrir
okkar börn að kynnast þeim þó að
þau ættu heima langt í burtu. Alltaf
voru þau tilbúin að taka á móti okkur
og barnabörnunum er við komum til
landsins. Við þökkum fyrir allt,
mamma mín. Þín verður sárt saknað.
Rut og Heiða.
Kær mágkona okkar hefur nú
kvatt.
Það var stutt á milli Miðbæjar og
Efstabæjar í Ólafsvík og náin tengsl
á milli barnanna sem ólust upp í
þeim húsum á millistríðsárunum og
tengdust traustum vináttuböndum í
leik og störfum við þær þjóðfélags-
aðstæður sem víðast tíðkuðust í sjáv-
arþorpum á Íslandi.
Börnin uxu úr grasi og gerðust
fullorðið fólk og hún Steina í Efsta-
bæ, eins og hún var jafnan kölluð á
þeim tíma, varð konan hans Lárusar
bróður okkar. Við fylgdumst með
hvernig þau um tvítugt hófu búskap
af miklum dugnaði og myndarbrag,
reistu sér fljótlega glæsilegt ein-
býlishús, í næsta nágrenni við heim-
ili okkar, og eignuðust tvær yndis-
legar dætur, sem voru fyrstu
systkinabörn okkar og gleðigjafar
allra í föðurfjölskyldunni. Lárus
stundaði sjóinn af miklu kappi sem
skipstjóri, en Steina sá um dæturnar
og heimilishaldið. Efnahagurinn fór
ört batnandi og lífið virtist brosa við
þessu unga fólki með fögur fyrirheit
um framtíðina í þessu vaxandi sjáv-
arþorpi. En þá skall örlagaaldan yf-
ir. Lárus drukknaði ásamt bróður
sínum Sigurði og öðrum skipverja
við innsiglinguna að Ólafsvíkurhöfn
og Steina var orðin ekkja með 2 dæt-
ur, 2ja og 4 ára, aðeins 25 ára að
aldri.
Bjartsýni og létt lund Steinu
fleytti henni yfir hina miklu erfið-
leika, og naut hún samheldni fjöl-
skyldunnar. Hóf hún þá störf utan
heimilisins. Eftir fá ár naut hún
þeirrar gæfu að kynnast góðum
manni Hauki Sigtryggssyni, útgerð-
armanni í Ólafsvík, og gengu þau í
hjónaband. Var það okkur öllum
fagnaðarefni að þar tókst vel til og
hve vel hann reyndist dætrum Lár-
usar.
Mikil og góð tengsl voru alla tíð
milli heimilis foreldra okkar og
Steinu og Hauks, enda stutt á milli.
Ekki aðeins dætur hennar og Lár-
usar voru þar tíðir gestir heldur
einnig börn hennar af síðara hjóna-
bandi, sem voru jafn kærkomin á
heimili foreldra okkar.
Það var líka gaman að umgangast
Steinu. Hún bjó yfir smitandi gleði
og átti auðvelt með að umgangast
fólk á öllum aldri, náði alls staðar
tengslum og var afskaplega vinsæl.
Heimili hennar og Hauks stóð nán-
ast um þjóðbraut þvera, þar var
ávallt opið hús fyrir vini og kunn-
ingja, auk þess fjölda sjómanna og
aðkomumanna sem störfuðu við út-
gerð Hauks og áttu við hann erindi.
Einnig stóð heimili þeirra í næsta
nágrenni við hús héraðslæknisins,
þangað sem margir áttu erindi en að-
eins lítil og þröng biðstofa þar fyrir
hendi. Fóru því margir til Steinu og
sátu þar á eins konar biðstofu og
þáðu kaffi og uppörvandi spjall með-
an beðið var þar viðtals við lækninn.
Að leiðarlokum kveðjum við kæra
mágkonu með virðingu og þökk eftir
langa samleið. Börnum hennar og
fjölskyldum þeirra vottum við inni-
lega samúð.
Blessuð sé minning Steinunnar
Þorsteinsdóttur.
María, Solveig og Sæunn.
Það fyrsta sem ég man eftir voru
kökurnar, kleinurnar, mikið af þeim
og alltaf heitar. Mikill fjöldi fólks í
mat og kaffi alla daga ársins og
mörgum sinnum á dag, alltaf fullt af
fólki. Þarna dvaldi ég ungur löngum
stundum, alltaf með mjólkurglas og
borðaði heita kryddköku, núna verð
ég að baka sjálfur mínar kryddkökur
eftir uppskrift þinni, Steina mín, sem
ég fékk hjá þér í fyrra. Á seinni árum
var alltaf stoppað hjá Steinu og var
þá mjólkurglas sett á borðið og
kryddkaka við hliðina.
Núna hugsar maður með undrun
til baka hvernig þú, Steina mín, hafð-
ir bæði krafta og tíma til að taka á
móti öllu þessu fólki sem datt inn í
mat eða kaffi. Alltaf vissir þú, Steina,
margt um ættfræði, hverjir voru
skyldir okkur, hvernig þeir tengd-
ust. Hafði ég gaman af að hlusta og
spurði margt um eldri tíma.
Steina hafði ákveðnar skoðanir og
var hún ekki að fela þær ef hún var
spurð.
Elsku frænka, þakka þér fyrir all-
ar þær stundir sem ég átti hjá þér.
Fjölskyldu þinni sendum við innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ómar og fjölskylda.
STEINUNN
ÞORSTEINSDÓTTIR Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
EGILÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Garðvangi,
Garði,
lést föstudaginn 1. apríl.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn
10. apríl kl. 14.00.
Baldur Konráðsson, Guðrún Agnarsdóttir,
Sigríður Baldursdóttir, Kjartan Valdimarsson,
Líney Baldursdóttir, Óskar Guðjónsson,
Sævar Baldursson.
Ástkær stjúpfaðir minn og bróðir,
PÉTUR PÁLSSON,
Skálahlíð,
áður Túngötu 39,
Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 10. apríl kl. 14.00.
Birgir Steingrímsson,
Gunnar Pálsson,
Páll Pálsson,
Gísli Pálsson,
Jóhannes Pálsson,
Sigrún Hansdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
KRISTÍN JENSDÓTTIR,
Víðilundi 24,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
sunnudaginn 4. apríl.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 13. apríl kl. 13.30.
Kristján Stefánsson,
Guðrún Kristjánsdóttir, Antonío Orpínell,
Kristján Kristjánsson, Sigrún Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar og móðursystir,
ELÍSABET HALLGRÍMSDÓTTIR,
Eyjaseli 3,
Stokkseyri,
lést á Ljósheimum, Selfossi, þriðjudaginn
30. mars sl.
Útförin fer fram frá Kotstrandarkirkju laugar-
daginn 10. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Minningarsjóð Ljósheima.
Högna Sigurðardóttir,
Móeiður Sigurðardóttir,
Andrea Oddsteinsdóttir.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður
og afa,
BJARNA EINARSSONAR
fyrrverandi bæjarstjóra á Akureyri
og aðstoðarforstjóra Byggðastofnunar,
Brekkugerði 30,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við Jóni Snædal lækni og hjúkrunarfólki á Landa-
koti fyrir frábæra umönnun og stuðning við okkur í veikindum hans.
Gíslína Guðrún Friðbjörnsdóttir,
Anna Margrét Bjarnadóttir, Gísli Rúnar Jónsson,
Einar Björn Bjarnason,
Guðrún Þóra Bjarnadóttir, Gunnlaugur Jón Rósarsson
og barnabörn.