Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 53
FÖSTUDAGURINN LANGI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 53
DISCOVERY CHANNEL
10.00 Diagnosis Unknown 11.00 Ancient Clu-
es 11.30 Conspiracies 12.00 Dinosaur Hunt-
ing 13.00 Storm Force 14.00 Extreme Mach-
ines 15.00 Hooked on Fishing 15.30 Rex Hunt
Fishing Adventures 16.00 Scrapheap Chal-
lenge 17.00 Remote Madness 17.30 A Bike is
Born 18.00 Son of God 19.00 Ray Mears’ Ext-
reme Survival 20.00 Dicing With Death 21.00
American Chopper 22.00 Extreme Machines
23.00 Medical Detectives 23.30 Medical De-
tectives 0.00 Exodus from the East 1.00 Rex
Hunt Fishing Adventures 1.30 Mystery Hunters
2.00 Dinosaur Hunting 3.00 Time Team
EUROSPORT
9.30 Cycling 10.30 Football 13.30 Snooker
14.30 Cycling 15.30 Snooker 16.00 Football
18.00 Snooker 21.00 Rally Raid 21.15 Xtreme
Sports 21.45 News 22.00 Football 22.15
Strongest Man 23.15 News
HALLMARK
9.45 Tidal Wave: No Escape 11.15 The Setting
Son 12.45 Blind Ambition 14.30 Betrayal
16.00 Tidal Wave: No Escape 17.45 Just
Cause 18.30 Final Jeopardy 20.00 Dead
21.30 Sworn To Vengeance
MGM MOVIE CHANNEL
9.35 The Facts of Life 11.15 The Honkers
12.55 Operation Lookout 14.30 The Elim-
inators 16.10 Man of La Mancha 18.15 Ext-
remities 19.45 The Godsend 21.10 In Dan-
gerous Company 22.45 Meatballs 4 0.15 The
Rift 1.35 Hawaii
NATIONAL GEOGRAPHIC
10.00 Search for the Afghan Girl 11.00 The
Science of Waves 12.00 Spinner Dolphins
13.00 Insects from Hell: Invaders 13.30 Se-
conds from Death: the Sinking of Hms Cov-
entry 14.00 The Search for Kennedy’s Pt-109
15.00 The Vanishing Tattoo 16.00 The Kill
Zone 17.00 Raising of the Hunley 18.00
Crocodile Chronicles: Outback Invasion 18.30
The Mummy Road Show: Mummies Inside Out
19.00 Built for the Kill: Claws 20.00 The Sea
Hunters: the Princess Sophia Tragedy 21.00
Deadly Arts: Aikido *mortal Combat* *final
Episode* 22.00 Rwanda’s Forgotten Tribes
*lost Tribes* 23.00 Mars: Dead or Alive? - the
Landings 0.00 The Sea Hunters: the Princess
Sophia Tragedy
TCM
19.00 The Ice Pirates 20.35 Demon Seed
22.10 Savage Messiah 23.50 Brotherly Love
1.40 Trial 3.25 Short - MGM 40 Anniversary
ANIMAL PLANET
10.00 Parklife: Africa 10.30 Parklife: Africa
11.00 Wild Rescues 11.30 Wild Rescues
12.00 Battle for the Gibbons 12.30 The Turtles
of Saziley 13.00 Emergency Vets 13.30 Emer-
gency Vets 14.00 Pet Rescue 14.30 Pet
Rescue 15.00 Breed All About It 15.30 Breed
All About It 16.00 Wild Rescues 16.30 Animal
Doctor 17.00 The Planet’s Funniest Animals
17.30 Amazing Animal Videos 18.00 Parklife:
Africa 18.30 Parklife: Africa 19.00 Miami Ani-
mal Police
BBC PRIME
10.30 Doctors 11.00 Eastenders 11.30 Anti-
ques Roadshow 12.00 Ground Force 12.30
Garden Invaders 13.00 Teletubbies 13.25
Balamory 13.45 Bits & Bobs 14.00 Binka
14.05 The Really Wild Show 14.30 The Wea-
kest Link 15.15 Big Strong Boys 15.45 Anti-
ques Roadshow 16.15 Flog It! 17.00 Ainsley’s
Gourmet Express 17.30 Jack Dee - Sent to Si-
beria 18.30 Dad’s Army 19.00 Copenhagen
20.30 Ballykissangel 21.30 Dad’s Army 22.00
Louis Theroux’s Weird Weekends 23.00 Jour-
neys to the Bottom of the Sea 0.00 Land of
the Tiger 1.00 Japanese Language and People
1.30 Suenos World Spanish 1.45 Suenos
World Spanish 2.00 The Money Programme
2.30 The Money Programme 3.00 Follow Me
ÝMSAR STÖÐVAR
07.15 Korter Morgunútsending
fréttaþáttarins í gær (endursýningar
kl. 8.15 og 9.15)
10.15 Kortér Útsending úr Hlíð-
arfjalli. Endursýnt 11.15, 12.15
13.15 Kortér Útsending úr Hlíð-
arfjalli Endursýnt 14.15, 15.15
16.15 Kortér Útsending úr Hlíð-
arfjalli Endursýnt 17.15, 18.15,
19.15 og 20.15
18.15 Kortér Fréttir, Um helgina
og Sjónarhorn. (Endursýnt á klukku-
tíma fresti til morguns)
20.30 Fasteignir
21.00 Kvöldljós Kristilegur um-
ræðuþáttur frá sjónvarpsstöðinni
Omega.
22.15 Korter (Endursýnt á
klukkutíma fresti til morguns)
DR1
10.00 Tidens tegn - TV på tegnsprog 11.00
Haven i Hune (9:10) 11.30 Rabatten
(14:35) 12.00 Langfredags-gudstjeneste
12.50 Barracuda 12.50 Grumme historier
om grusomme børn 13.00 Scooby Doo
13.20 Boogie i Vietnam 14.20 Håndbold:
DM semifinale 2 (k), direkte 16.00 Fjernsyn
for dig 16.00 Fredagsbio 16.10 Den lille
røde traktor 16.20 Muldvarp og hans venner
16.30 TV-avisen med Sport og Vejret 17.00
Disney’s Tarzan 17.20 Charles’ tante (kv -
1959) 19.00 TV-avisen 19.15 Fredagsfilm:
Meet the Parents (kv - 2000) 20.55 The
Astronaut’s Wife (kv - 1999) 22.40 Boogie i
Vietnam 23.40 Godnat
DR2
12.55 Vers og viser fra Vartov 12.25 Dil se -
fra hjertet (kv 1998) 15.10 Mord på labo-
ratoriet - Death of an Expert Witness (6:6)
16.15 Brassed Off (kv - 1996) 18.00 Det
vilde Australien (1:6) 18.50 Al den kærlighed
(1:2) 19.30 Den halve sandhed - Pressen
(3:8) 20.00 Golf: US Masters 20.30 Deadl-
ine 20.50 Golf: US Masters 22.30 Præsiden-
tens mænd - The West Wing (66) 23.10
Godnat
NRK1
10.00 Løsning påskenøtter 10.05 Norske
filmminner: Shetlandsgjengen 11.35 Heltene
fra Telemark (2:3) 12.25 Profil: Tre muntre
herrer i Roma (2:3) 13.15 Hokus pokus
14.50 Markuspasjonen 16.00 Barne-tv
16.00 H.C. Andersens eventyr: Snødronn-
ingen 16.25 Magga og Lille-Bobs 16.30
Laura Trenter: Hjelp! Ranere! 17.00 Dagsre-
vyen 17.30 Påskenøtter 17.45 Ville mødre
18.15 Venneprøven 19.15 Påskekrim: Krim-
inalsjef Foyle - Foyle’s war: War games 20.55
Løsning påskenøtter 21.00 Kveldsnytt 21.15
Tilfeldig vitne - Passer By (1:2) 22.15 Singel
og sang - Walk On By (6:8) 23.05 Michael
Moores USA (6:12)
NRK2
12.05 Svisj: Musikkvideoer og chat 15.40
Patch Adams (kv - 1998) 17.30 Store Studio
nachspiel 18.00 Siste nytt 18.10 Michael
Palin i Sahara (2:4) 19.05 Fakta på lørdag:
Smilet i øyet 20.25 Youkali hotell 21.10 Dav-
id Letterman-show 21.55 MAD tv 22.35 Svisj
metall 01.00 Svisj: Musikkvideoer og chat
SVT1
06.00 Bolibompa 06.01 På väg till Blåkulla
06.05 Har den äran, Långöra 06.30 Linnea i
målarens trädgård 09.30 Debatt 10.30 Mat-
iné: Järnjätten 11.55 Tv-huset 13.25 Berg-
man och filmen 14.25 Så såg vi påsken då
14.30 Beethovens Diabellivariationer 16.00
Bolibompa 16.01 Myror i brallan 16.30
Ducktales 17.00 Tillbaka till Vintergatan
17.30 Rapport 17.50 Seriestart: Den gömda
konsten 18.00 Bergman och teatern 19.00
Tennis: Davis Cup 21.00 Fredagsbio: Betty
tur & retur 21.50 Rapport 21.55 Golf: US
Masters
SVT2
10.00 Nybyggare i tredje åldern 10.25 Upp-
drag granskning 11.25 Plus 11.55 Kobra
12.40 K Special: Edith Piaf 14.35 De blin-
das rike 14.25 Möte med Hasse Ekman
15.30 Judisk påskmåltid 16.00 Aktuellt
16.15 Mellan himmel och jord 17.00 Om
konsten att bygga ett hotell i is 17.40 Filmen
om Stockholms stadion 18.00 Tennis: Davis
Cup 19.00 Aktuellt 19.15 Sportnytt 19.30
Retroaktivt 20.00 Tennis: Davis Cup
AKSJÓN
FÓLK Í FRÉTTUM
A
dam er einstakur
náungi, jarðbundinn
og alveg áberandi heil-
steyptur af Hollywood-
leikara að vera.
Náungi sem allir kunna vel við,“
segir Peter Segal, góðvinur hans og
leikstjóri tveggja síðustu mynda
hans Anger Management og 50
First Dates en sú síðarnefnda var
frumsýnd hér á landi um síðustu
helgi og er nú vinsælasta mynd
landsins. Skjall er krónískur kækur
þeirra í Hollywood, eins og bak-
tjaldaþættir og „gerð mynd-
arinnar“ þættir sýna glöggt. Væri
hæglega hægt að fylla heilt svona
viðtal af þessum innantóma og fyr-
irsjáanlega lofsöng, sem oftar en
ekki virðist samin af markaðs-
möðkum. En blaðamaður Morg-
unblaðsins trúði Segal og hans
hlýju orðum í garð Sandlers er við
Segal ræddum saman á þriðjudag-
inn var. Moggamaðurinn hafði líka
ýmislegt fyrir sér, hafði lesið sér til
um að þeir væru í reynd mjög góðir
vinir, þótt þeir hefðu ekki þekkst
lengi. Vinskapurinn myndaðist við
gerð Anger Management. Um það
var rætt hversu vel þeir hefðu náð
saman Segal og Sandler og því kom
það engum á óvart er fyrirtæki
Sandlers Happy Gilmore réð Segal
til að leikstýra næstu mynd Sand-
lers, 50 First Dates. Og samvinnan
heldur svo áfram því Segal hefur
þegar verið ráðinn til að leikstýra
fangelsismyndinni The Longest
Yard, sem er endurgerð sam-
nefndrar myndar frá 1973 með
Burt Reynolds, mynd sem þegar
hefur verið endurgerð í Bretlandi
undir nafninu Mean Machine, þá
með fautanum Vinnie Jones.
Gamanmynd þarf
að vera fyndin
Sigurganga Sandlers er með ein-
dæmum og er óhætt að fullyrða að
hann sé nú einhver farsælasti gam-
anleikari samtímans. Myndir hans
urðu þegar vinsælar vestra, enda
var hann orðinn þekkt sjónvarps-
stjarna þegar hann birtist í sínu
fyrsta aðalhlutverki í Billy Madison
árið 1995.
En það tók hann nokkurn tíma
að ná hylli áhorfenda utan Banda-
ríkjanna og segja má að það hafi
ekki tekist fyrr en með The Wedd-
ing Singer árið 1998 en síðan hefur
hann líka ekki stigi feilspor hvað
vinsældir varðar.
Segal lítur því eðlilega á það sem
mikið gæfuspor að hafa fengið
tækifæri til að vinna með Sander.
Og segir hann að þeir nái vissulega
mjög vel saman.
– Er það vegna þess að þið eruð
með svipaðan húmor?
„Já vissulega, en ekki bara það
heldur höfum við almennt mjög líka
sýn á hvað góð gamanmynd þarf að
hafa.“
– Og hvað þarf góð gamanmynd
að hafa?
„Augljóslega að vera fyndin.
Hæfilega klikkuð en einnig mann-
leg. Áhorfandinn verður að geta
sett sig í spor söguhetjanna, fund-
ist sem þeir hafi allt eins getað lent
í þessum sömu spaugilegu að-
stæðum.“
Dreymir um að vinna
með Tom Hanks
Og Peter Segal er náungi sem
virðist hafa stúderað gamanmynd-
ina talsvert mikið. Í það minnsta
hefur hann helgað sig gríninu síðan
hann lauk námi í kvikmynda- og
sjónvarpsmyndagerð.
Fyrst um sinn skrifaði hann og
leikstýrði fyrir sjónvarp en fékk
svo stóra tækfærið er honum
bauðst að leikstýra þriðju Naked
Gun myndinni sem bar undirtitilinn
33 1/3: The Final Insult. Seint verð-
ur þeirrar myndar getið í sögubók-
um en næsta mynd hans á meiri
séns því hún sló rækilega í gegn og
gerði skammlífa stjörnu úr ungum
grínista úr Saturday Night Life
þáttunum, Chris Farley heitnum.
Myndin sú hét Tommy Boy og var
frumsýnd 1995. Þar léku fleiri Sat-
urday Night Live hetjur, Dan
Akroyd og David Spade, en Segal
segir það hafa verið draum sinn frá
unga aldri að fá að vinna með þess-
um óborganlegu grínistum og nú sé
hann aldeilis að rætast því Sandler
er enn einn Saturday Night Live-
leikarinn sem Segal vinnur með og
í næstu mynd þeirra saman The
Longest Yard, verður Chris Rock
einnig í stóru hlutverki.
Segal segist jafnframt sækja
áhrifin lengra aftur, jafnvel alla leið
aftur til þeirra Charles Chaplins og
Harolds Lloyds en einnig til bresku
snillinganna í Monty Python. Hver
er þá besta gamanmyndin sem
hann hefur séð?
„Ætli það sé ekki Young Frank-
enstein eftir Mel Brooks. Hlæ mig
máttlausan í hvert sinn sem ég sé
hana.“
– Áttu þér einhvern draumagam-
anleikara sem þig langar að vinna
með í framtíðinni?
„Tom Hanks var alltaf einn af
mínum eftirlætis gamanleikurum
og það rifjaðist upp fyrir mér þegar
ég sá hann í The Ladykiller Coen-
bræðra hversu góður hann er í slík-
um hlutverkum. Ég væri því sann-
arlega til í að gera eina góða gam-
anmynd með honum.“
Sandler er hlýðinn
Segal segir það auðvelt verk fyr-
ir sig að stýra Sandler. Hann láti
óvenjuvel af stjórn af grínista að
vera, fylgi meira að segja handrit-
inu að mestu leyti og hlýði leik-
stjóranum í einu og öllu, jafnvel
þótt hann eigi sjálfur þátt í hand-
ritinu og sé framleiðandi.
– En er ekki erfitt samt fyrir fólk
að handa andlitinu á tökustaðnum
þegar menn eins og Sandler og
Rob Schneider fara hamförum?
„Jú, og ekki er ég barnanna best-
ur í þeim efnum, á til að skella upp
úr á mjög krítískum augnablikum.“
– Og það reynir væntanlega mik-
ið á þá sem sjá um hljóðvinnsluna,
að eyða þessum hlátri hjá tökulið-
inu?
„Já, þeir kvarta gjarnan undan
þessum óvelkomna skarkala. En
þetta er samt ávísun á góða gam-
anmynd. Ef engin hlær á töku-
staðnum, hverjar eru þá líkur á að
áhorfendur hlæi? Og ekki veit ég
hræðilegri martröð en þöglan bíó-
sal.“
Engin martröð hræði-
legri en þögull bíósalur
Peter Segal gerir gamanmyndir, gjarnan með Adam Sandler í aðal-
hlutverki. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við Segal um Sandler,
spaugið og nýjustu mynd þeirra 50 fyrstu stefnumótin.
skarpi@mbl.is
Hlegið á tökustað. Peter Segal slær á létta strengi ásamt aðalleikurum 50 First Dates, Sandler og Barrymore.
Adam Sandler velur gjarnan Peter Segal til að leikstýra myndum sínum
QUENTIN Tarantino
langar til að leikstýra
næstu James Bond-
myndinni, sem byggð
verður á bók Ians
Fleming, Casino
Royale. Hann hvetur
framleiðendur Bond-
myndanna til þess að
gefa sér tækifæri. „Ég
fæ ekki séð að þeir
hafi neinu að tapa,“
segir hinn hógværi
leikstjóri.
Tarantino vill fá að
gera eina mynd áður
en Pierce Brosnan
hættir að leika Bond,
James Bond. Og hann
vill fá að hafa hana að-
eins öðruvísi, að sínum hætti, án
þess þó að það skaði á nokkurn hátt
ímynd hetjunnar, njósnara hennar
hátignar, 007, sem kynnir sig aldrei
öðru vísi en Bond, Jam-
es Bond.
Tarantino myndi
leggja áherslu á sögu-
þráð frekar en spreng-
ingar og tæknibrellur.
Brosnan sjálfur lýsti
því nýverið yfir að hann
vildi einmitt meiri sögu
en minna af spreng-
ingum og tæknibrell-
um, eitthvað í líkingu
við sögu Flemings, Cas-
ino Royale, en þar sé að
finna meira um Bond
sjálfan en í nokkurri
annarri bóka hans.
Skopstæling á Casino
Royale var gerð árið
1967 með Peter Sellers
og David Niven í aðalhlutverkum.
Myndin heitir einnig Casino Royale
en sú telst sjaldnast með öðrum
Bond-myndum.
Ef einhver gæti gert
Bond svalan á ný væri
það Quentin Tarantino.
Tarantino vill gera
Bond-mynd