Vísir - 24.09.1981, Page 12
12
VISIR
Fimmtudagur 24. september 1981
Fjallamaraþonkeppnin:
flöeins
sveítir
af atian
luku
keppni
Fjallamaraþon-keppni
á vegum Landssambands
hjálparsveita skáta og
Skátabúðarinnar fór
fram um síðustu helgi. 18
sveitir frá hinum ýmsu
björgunarsveitum
spreyttu sig á því að
ganga á einum degi frá
Landmannalaugum til
Þórsmerkur og síðan að
lokinni einnar nætur hvíld
úr Mörkinni yf ir á Fimm-
vorðuháls.
Tvær af fjórum
kvennasveitanna luku
keppni, en hinsvegar að-
eins sex af fjórtán
sveitum karlanna. Þessi
afföll sýna glöggt hve
erfið þessi þraut er, því
aðeins vel þjálfað fólk
tók þátt í keppninni.
Hér á síðunni birtast
nokkrar myndir sem
teknar voru meðan á
keppni stóð.
Við Þröngá. Frá hægri: Magnús Dan, Arnór Guðbjörnsson, Heigi Benediktsson og Andrés Bridde.
Sigurliðin taka við verðiaunum, frá vinstri: Magnús Dan Bárðarson, Andrés Þór Bridde, Vilborg
Hannesdóttir og Anna Lára Friðriksdóttir.
Linda Björnsdóttir og 1 Rannveig Andrésdóttir koma á áfangastaö við Alftavatn.
Tryggvi Páll Friöriksson færir þreyttu liðinu flatkökur meö osti
um leiðog hann hvetur til dáða.
Texti og
myndir:
je