Pressan - 27.10.1988, Blaðsíða 10

Pressan - 27.10.1988, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 27. október 1988 í einni af bókum Jules Verne, Geimferð Hektors Servadacs kapteins, sitja tveir breskir liðsforingjar á kletti við Gíbraltar og tefla. Þeir sitja eins og Búdda- líkneski við skáktaflið og leika asalaust, líkt og sæmir breskum offíserum og alvarlega þenkjandi skák- mönnum, án allra tímatakmarkana, þetta fjóra Ieiki á viku. Um hermennskuna sér undirfor- ingi, sem einnig hefur þann starfa að skenkja skákmönnunum viskí með reglulegu millibili. Á meðan þeir tefla kemur ýmislegt upp á. Á jörðina rekst halastjarna og allt endasteypist. Kletturinn rifnar frá jörðinni ásamt með skákmönn- um, undirforingja og fjórtán óbreyttum hermönnum og tekur að snúast með halastjörnunni í sporbaug kringum jörðu. Undir- foringinn tilkynnirað sólarhring- urinn hafi styst um helming, þyngdaraflið minnkað niður í einn áttunda og ýmis vandkvæði fylgja í kjölfarið á þeim breyting- um. En skákmennirnir koma sér og taflmönnunum í réttar skorð- ur, gæta þess að fáni heimsveldis- ins sé á sínum stað og sökkva sér aftur niður í taflmennskuna eftir fáorðar athugasemdir um undan- gengna atburði. Það eitt breytist að viskíið berst þeim tíðar en áður vegna þess að sólarhringurinn hefur styst. Með þessu móti losna skákmennirnir við ýmis leiðinda- mál sem franski liðsforinginn Servadac lendir í á sama tíma, því einnig hann lenti á halastjörn- unni, en hafði ekki skákina til að dreifa huganum. Raunsæi er yfirleitt ekki fyrir- ferðarmikið i sögum Jules Verne, en þó er ekki laust við að í þessari ögn langsóttu lýsingu felist nokk- Jóhann Hjartarson; miðað við marga útlenda kollega sína virðast ís- lensku skákmennirnir vera furðulega „normal". ur sannleikskjarni — vegna skák- arinnar hafa ýmis smástríð nátt- úrunnar lítil sem engin áhrif á liðsforingjana ensku. Hún er þeim traust vörn gegn djöfuldómi og hvimleiðri uppfinningasemi umheimsins. í tímans rás hefur hinn hugsandi maður fundið upp á ýmsu til að auðga tilveru sína og verja sig þrálátum leiðindum. Þar á rneðal er vissulega fátt, kannski ekki neitt, sem hefur jafnvoldugt aðdráttarafl fyrir þá sem ánetjast og skákin. Eitthvað til samjöfn- uðar má kannski finna hjá ákafa- fólki um tónlist, forföllnum pen- ingapúkum, drykkjumönnum og óforbetranlegum spilasjúkling- um. Mannspilunum l'ylgir hins vegar ol't einhver von um ábata, gróðavon, sem sjaldnast er tilfell- ið í skákinni. Fyrir hinn gegn- sýrða skákmann eru flest önnur viðfangsefni óþolandi tilgangs- laus og leiðinleg í samanburði við þær gáfnaorrustur sem hann heyr ' á skákborðinu. Skák, og þar er helst hægt að sjá skyldleika í tónlist og hreinni stærðfræði, er glæsilega gagns- laus og fánýt iðja. Áþreifanlegur afrakstur hennar er enginn, praktískt gildi hennar ekki neitt; það er ekki einu sinni víst að hún sé jafnþroskandi tómstunda- gaman og margir æskulýðsfröm- uðir vilja halda fram. Heimur skákarinnar er lokaður á allar hliðár, öll lögmál hennar vita innávið. Það að ýtálrékubbum'á sextíu og fjórum reitum er fyrir skákmanninum takmark í sjálfu sér, heil vídd sem hægt er að týna sér í, og mannfélagið, pólitíkin, hin daglega togstreita og pot — allt er þetta óþrifalegt óg óklárt við hliðina á hinum tæru lögmál- um skáklistarinnar. Þarna er álagafjötur sem margir hafa skynjað, til dæmis bolsévikkinn Lenín, sem eitt sinn var kominn á Iremsta hlunn með að gefa bylt- ingardrauma upp á bátinn fyrir skákborðsframa. í staðinn varð Lenín líklega slyngasti skákmað- ur í samanlagðri heimspólitík- inni. Það er kannski erfitt fyrir leik- manninn, sem gutlar við skák- borð og horfir með lotningu á fléttur og flækjur meistaranna, að ímynda sér að skákin geti verið varhugaverð iðja; árátta, ástríða, heltekning, sem stundum stappar nærri sinnisveiki. Reitirnir eru Garri Kasparov; heitir lika Weinstein og er af qyðingaættum, íikt og fleiri heimsmeistarar i skák. Fischer fann gyð- ingunum það meðal ann- ars til foráttu hvað þeir voru illa klæddir. Það á þó varla við um Kasparov. sextíu og l'jórir, á þeim ganga þrjátíu og tveir trékubbar í ýmsar áttir — svona horfir þetta við þeim óinnvígðu sem fussa og sveia yfir fánýti leiksins, en fyrir þá sent hafa tekið sýkina að einhverju marki er þetta alheimsorrusta sem aldrei verður til lykta leidd; óaf- látlega sitja duttlungafullir ridd- arar, sporléttir biskupar, digrir hrókar og drápsglöð drottning á svikráðum við ósjálfbjarga kóng. Mannfallið er óskaplegt og engin furða að skáktaflið skuli Iöngum hafa verið vinsælt tákn fyrir glim- una við manninn með ljáinn, í ljóðum, sögum og kvikmyndum.’ Möguleikarnir eru líka hérumbil ótæmandi; það er sagt að fyrstu fjórir Ieikirnir, tveir á hvítt og tveir á svart, geti verið á 197.299 vegu. Að því leytinu er skákin sumsé hreint ómæli og tilbrigði hennar örugglega ekki tæmd í fyrirsjáanlegri framtið. Um upprunaskáklistarinnar er sárálítið vitað. Þetta er ævaforn leikur og dularmagn hans eftir því. Það er til dæmis enginn hægðarleikur að skýra það út hvers vegna $kákin er eitt.af þrem- ur viðfangsefnum mannsandans þar sem vitað er að menn hafi náð framúrskarandi árangri strax á barnsaldri. Hinar greinarnar tvær eru tónlist og stærðfræði. Átta ára gamall gat Mozart stært sig af tónsmíðum sem seint falla í gleymsku. Um stærðfræðinginn mikla Karl Friedrich Gauss er sagt að hann hafi leyst reikningsdæmi áður en hann fór að tala. Þeir voru engir viðvaningar skák- mennirnir sem tefldu í New Orleans fyrir 150 árum, en samt lék hinn tólf ára gamli Paul Morphy sér að þeim eins-ogJcött- ur að mús. Þetta eru hálar brautir þroska og sálarfræða og ekki lík- legt að í bráð fáist svör við því hvers vegna þessi taumlausa, mjög svo afmarkaða sköpunar- gáfa kemur fram í barni, sem að öðru leyti er kannski rétt eins og önnur börn, óþekkt og gráðugt. Mikhael Tal; varð heims- meistari aðeins 23 ára, en hélt titlinum aðeins i eitt ár. Hefur siðan átt heldur óblíða ævi, en bætir oft upp með snilld- inni það sem skortir á út- haldið. Oft eiga undrabörn líka erfitt uppdráttar þegar þau komast til vits og ára; Morphy og Mozart eyddu báðir síðari hluta skammrar ævi í baráttu við djöfla og smádjöfla. Eins og fyrr sagði er skáktaflið gamalþekkt tákn i heimsbók- menntunum. Fyrir mörgum öld- um líkti skáldið Ómar Kajam hlutskipti manna við skáktafl (þýðing Magnúsar Ásgeirssonar): / daga og nœtur skiptist skákborð eitt. Af skupavöidwn er þar manntafl þreytt. Þau fœra oss til og fella oss, gera oss nwt, og frú og kóngi er loks í stokkinn þeytt. I slyngutn höndum lirekst vor peðasveit, til liœgri og vinstri, í blindni, af reit á reit. En sá sem fieygðiþér á þetta borð, Hann þekktir taflið allt, Hann veit, HANN veit. Hitt er hins vegar fágætara að heil skáldverk fjalli um skák og skákáráttu. Eitt slíkt hefur raunar verið þýtt á íslensku, Manntafl eftir Austurríkismanninn Stefan Zweig, og fjallar einmitt um skák- ástríðu sem orðin er háskasamleg. Söguþráður Manntafls er kannski þekktari en svo að hann þurfi að rekja — þvi hefur verið haldið fram að fyrirmynd aðalsögu- hetjunnar sé íslendingur — en í fangelsi hefur taflsýkin gripið hann slíkum heljartökum að hún er orðin að hreinum geðklofa, taumlausri baráttu svartra og hvítra trékubba, sem geisar í huga þessa annars geðprúða manns þegar skáktaflið er annars vegar. Minna þekkt en kannski ekki síðri er skáldsaga Vladimirs Nabokovs, Vörn Ljúsíns, sem fyrst var prentuð árið 1929. Auk þess að vera áhugamaður um fiðrildi og rithöfundur var Nabo- kov þessi hönnuður skákdæma og leikskákmaður alla sina tíð, enda Boris Spasski; skákin er harður húsbóndi. Það tók Spasski lancjan tima að jafna sig eftir einvigið við Fischer 1972 og á skákborðinu hefur hann i raun aldrei náð sér á strik siðan. skýtur skákin sífellt upp kollinum í verkum hans. Vörn Ljúsíns er tvenns konar. Annars vegar er hún, rétt eins og til dæmis Tarrasch-vörn, sterkt kerfi varn- arleikja sem gerir Ljúsín þennan nær ósigrandi á skákborðinu. Hins vegar er það sjálft skáktaflið sem er vörn Ljúsíns gegn tor- ræðum og fjandsamlegum heimi, andveröld — heimur sem reistur er til höfuðs sjálfum heiminum. Ljúsín er í raun ófær um að lifa, hann er „lebensuntuchtig", svo notað sé stórt þýskt orö. Skákin cr fyrir honum skiljanlegur og klár heimur andspænis hinum óskiljanlega raunveruleika. Annars er hann ekkert annað en sá góðlegi og frómi Ljúsín, gegn- sósa af nikótíni, örmagna eftir skákyfirlegur næturinnar, líkami hans samsömuð árátta, sundur- tærandi ástríða. Skákin gleypir hann með húð og hári, þegar reit- unum sextíu og fjórum sleppir er varla hægt að segja að hann sé til; fólk sem hann mætir á götunni hreyfir sig eins og taflmenn, fyrir auguni hans leysast gangstéttirnar upp í hvíta reiti og svarta. Sögupersónur þeirra Zweigs og Nabokovs eru máski svolítið ýkt tilfelli. En það vantar svosem ekki að hinir raunverulegu skákmeist- arar séu á köflum ærið skrítnir, svo ekki sé meira sagt. Náttúrlega er erfitt að greina hvort kom fyrst, hænan eða eggið; urðu þeir veilir í skapi vegna skákarinnar eða magnaði skákin einungis upp skapgerðarveilur sem fyrir voru? Það virðist altént algengt að til að komast í allra fremstu röð skák- meistara þurfi menn að hafa þeg- ið í vöggugjöf vænan skammt af einæði, mónómaníu. Það er kannski ekki sjálft viðfangsefnið sem veldur-, en vissulega má gera því skóna að framúrskarandi skákmenn, ekki síður en stór- skáld, þurfi að háfa í sér eitthvert frækorn brjálseminnar, sem síðan getur orðið hin litskrúðugasta og ægilegasta jurt þegar eitthvert jafnvægi raskast. Frægasta dæmið er líklega Bobby Fischer, Viktor Kortsnoj; af árangri hans ao dæma er hann enn i sárum eftir einvigið við Jóhann. Eða er hann einfaldlega að verða of gamall? undrabarn og kannski mesti skák- maður allra tíma. Skákin var Fischer upphaf og endir tilver- unnar. Af ýmsum ummælum Fischers verður ljóst að skákin er eini mælikvarðinn sem hann kann að nota á umheiminn. Hann vill til dæmis ekkert hafa með konur að gera — ástæðan? Konur kunna ekki að tefla skák! Lítum á nokkur ummæli sem höfð eru eftir Fischer í viðtölum sem tekin voru fáeinum árum áður en hann varð heimsmeistari: Um konur: Allar konur eru veikgeðja. Þcer eru heimskar í samanburði við karlmenn. Þœr œttu ekki að tefla skák. Þœr eru eins og byrjendur. Þcer tapa alhaf fyrir karlmönnuin. Það er ekki til sú skákkona i heiminum sem ég gceti ekki unnið þótt ég gcefi henni báða riddarana í forgjöf. Um gyðinga (Fischer er sjálfur gyðingur): Það eru of margirgyð- ingar í skákinni. Þeir hafa rúið skákina öllum glcesibrag. Þeir klceða sig illa. Ég get ekki fellt mig við það. Um menntun: Maður lœrir ekki neitt í skólutn. Það er bara tímasóun. Kennararnir eru heimskir. Og konur cettu ekki að vera kennarar. Þcer geta ekki kennt. Það œtti ekki að neyða neinn til að ganga í skóla. Ég man ekki neitt sem ég lcerði i skóla. Þau tvö og hálft ár sem ég var í menntaskólá fóru í súginn. Ég þurfti að umgangast mikið af heimskum krökkum. Kennararnir eru ennþá heimskari en krakkarn- ir. Helmingurinn af þeim er brjál- aður. Ég hefði hœtt áður en ég varð sextán ef þeir hefðu leyft mér það. Um ferðalög með neðanjarðar- Iestum: Það er allt fullt af skít. Krakkarnir sjá að e'g er í fallegum skóm, svo þeir reytta af ásettu ráði að stíga á tcernar á mér. Fólk kem- ur þangað inn í vinnugallanum, eins og skepnur, það er skelfilegt. Fólk situr og gónir á mann, algjör hryllingur. Um framtíðina, þegar hann yrði heimsmeistari: Fyrst cetla ég að ferðast um heiminn og halda sýningar. Ég ce/la að fara fram á áður óheyrðar fjárhæðir. Síðan œlla ég að koma heim á lystiskipi. Á fyrsta farrými. Þegar ég kem heim ætla ég að byrja að endur- skipuleggja skákina eins og hún leggur sig. Ég œtla að hafa minn eigin skákklúbb. Það verður stíll yfir því. Menn verða að vera al- me'nnilega klœddir til að komast inn. Engir rónar. Þvínœst œtla ég að kaupa mér bil, ,svo ég þurfi ekki að ferðast með neðanjarðar- KONUR ÆTTU EKKI AÐ TEFLA SKÁK!

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.