Pressan - 27.10.1988, Side 20

Pressan - 27.10.1988, Side 20
20 Fimmtudagur 27. október 1988 AA er alkóhólistum leið til bata. Er AA leið fyrir þig og þína? Opinn kynningarfundur í Háskólabíói sunnudag kl 14. AA-deildirnar í Reykjavík STEFNUUÓS skal jafna gefa í taeka tíð. VETRAR DEKKIN Nú er veturinn framundan og tímabært að búa bílinn til vetraraksturs. Athugaðu vel kosti þess að aka á ónegldum vetrarh jólbörðu m. Þeim fækkar stöðugt sem aka á negldum. Farðu varlega! Gatnamálastjórinn PRESSU MOLAR ú er Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, í veik- indafríi frá þingstörfum og á_ þing er sestur varamaðurinn Asgeir Hannes Eiríksson, pylsusali með meiru. Ásgeir fær tvær vikur til að láta á sér bera og til að undirstrika elju sína sýndi hann blaðamanni Hagkaupspoka fullan af pappír. „Hér eru öll málin sem ég ætla að flytja. Það verður alveg örugglega tekið eftir því að ég er á þingi. “ Eins gott að Ásgeir Hannes var ekki með poka frá Miklagaröi... ■■k.aupmáttur opinberra starfs- manna er um þessar mundir ekki miklu meiri en hann var í janúar 1987, var í september um það bil 4% hærri en 21 mánuði áður. Á þingi BSRB lá hins vegar fyrir plagg sem sýndi að sumir höfðu eflst meira en aðrir. Þannig var kaup- máttur Ijósmæðra 12% hærri og kaupmáttur starfsmanna stjórnar- ráðsins 7% hærri, en á hinn bóginn höfðu tollverðir, símamenn og póstmenn staðið í stað. Mönnum farnast því best við að taka á móti börnunum og stjana í kringum pólitíkusana... Þ tölvurn; að er ekki ofsögum sagt að töTvurnar séu að taka yfir líf okkar og það opinbera er eitt skýrasta dæmi þess. Einn „viðskiptavina“ Gjaldheimtunnar í Reykjavík þurfti í gær að fá uppgefna stöðu sína gagnvart stofnuninni og hringdi því þangað. En viti menn, engar upplýsingar var að fá úr þeim búðum þar sem tölvurnar höfðu dottið úr sambandi og maðurinn því beðinn að hringja aftur i dag... óstureyðingar eru mikið hita- mál, sem fólk tekur yfirleitt afstöðu til þvert á pólitískar línur. Athygli vakti á síðasta þingi þegar Borgara- flokkurinn setti fram frumvarp gegn fóstureyðingunum. Það náði ekki fram að ganga fremur en ann- að sem stjórnarandstaðan lagði fram á þinginu. Aðalhöfundur frumvarpsins var Hulda Jensdóttir, forstöðumaður Fæðingarheimilis- ins, en hún er varaþingmaður og sit- ur í stjórn Borgaraflokksins. Borg- araflokksmenn hyggjast leggja frumvarpið aftur fram á þessu þingi, en með nokkrum breyting- um. Albert Guðmundsson mun hafa beðið Huldu að lagfæra frum- varpið... Búningahöfundur sýningarinnar á Æviniýrum Hoff- manns lét svo um mœlt að einna erfið- ast hefði verið að láta Kristin söngv- ara Sigmundsson líta út eins og lítinn og vœskilslegan doktor. Það er varla neitt áhlaupaverk heldur, því Kristinn er tröll að vexti. En á þessari mynd sýn- ist okkur hann ekki gleyma að beygja sig í hnjánum. Það virðlst rikja bræðrabandalag milli þessara tveggja tenóra sem hittust í Þjóðleikhúsinu að lokinni frumsýningu á Ævintýrum Hoffmanns um síðustu helgi. Sennilega hafa þeir lika nóg að spjalla, því báðir tveir hafa sungið sömu rulluna, hlutverk Hoffmanns sem óperan er kennd við. Magnús Jónsson söng Hoffmann i Þjóöleikhúsinu 1966, en Garðar Cortes syngur í samsýningu íslensku óperunnar og Þjóðleikhússins sem nú er á fjölunum. Mynd: Grimur Bjarnason.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.