Pressan - 27.10.1988, Side 22

Pressan - 27.10.1988, Side 22
22 Fimmtudagur 27. október 1988 mm 06 TANÞURHREINN KEITH RICHARDS MEÐ NÝJA PLÖTU Keith Richards. Þegar maður heyrir nafnið detta manni ósjáií- rátt i hug tómar viskiliöskur, marijúanastautar, heróinspraut- ur, já ailt dóp milli himins og jarðar. Það eróhætt að segja að hér á árum áður hafi Keith Richards drukkið allt sem rann og reykt það sem brann. En menn endast ekki endalaust við svoleiðis líferni og nú segist hann vera „skraufþurr“ og „tandurhreinn“. Það erlíka nauð- synlegt þegar menn eru að gefa út sína fyrstu sólóplötu eftir um aldarfjórðungsveru í hljómsveit eins og Rolling Stones. Nýja platan hans Keith heitir Talk is Cheap. — Hvernig tilfinning finnst þér að gera þina fyrstu sóló- plötu eftir allan þennan tima í Rolling Stones? „Skrýtið, en mig langaði alltaf til að gera þetta. Það að ég geri þessa plötu þýðir þó jafnframt að Rolling Stones hafa orðið á mistök. Ég gat ekki haldió hljómsveitinni saman einn míns liðs þannig að ég réðst í að gera þessa sólóplötu núna.“ — Einu sinni var haft eftir þérad vonandi kæmist þú aldrei i þá aðstöðu aó þurfa að gera upp á milli Rolling Stones og þin, þ.e.a.s. hvort hljómsveitin ætti að vinna úr lagasmíðum þinum eða þú sjálfur fyrir þig persónulega. „Þetta er rétt og stundum var virkilega erfitt að vera i þessari aðstöðu. En nú eru Rolling Stones hættir að starfa saman, a.m.k. i augnablikinu, þannig að þetta vandamál erekki lengurtil staðar.“ — Nú hefur þú verið að taka upp fyrirsjáifan þig i gegnum ár- in. Attir þú mikið af lögum á lager? „Eiginlega ekki. Öll lögin fyrir Talk is Cheap voru samin á sið- asta ári. Ég á hinsvegar dágóð- an slatta af lögum sem eru ætl- uð Stones, en þau snerti ég ekki þegarég varað gera plötuna. Ég vildi algerlega aðskilja mig Stones með þessari plötu. “ — Finnst þérað þú sért kom- inn i samkeppni við Mick Jagger? „Nei, langt fráþvi. En fólk get- ur alveg tekið hlutina þannig — og ég veit ekki hvað Mick finnst um þetta. Það er kannski út af þessari plötu minni að við fylgd- um ekki okkar síðustu plötu, Dirty Work, eftir." — Mick vildi ekki fara i tón- leikaför eftir Dirty Work en nú er hann sjálfur að spila i Japan og er á leið til Ástraliu. Hvað finnst þér um þetta? „Allt í þessu fína. Hann má fara til Ástralíu eða hvert sem hann vill með þessa bjána- hljómsveit sina. Eg vil hafa það Keith Richards: Ég kemst af án Rolling Stones. samt á hreinu að mérþykir mjög vænt um Mick, en þaó má segja að hann sé í einskonar andlegri herkví, því ég á orðió töluvert erfitt með að ná til hans. Mick Jagger er ekki hamingjusamur sem Mick Jagger. Hann er upp- tekinn við að leika einhvern ann- an.“ — En hvað með þig sjálfan? Þarft þú ekki að leika hlutverkið Keith Richards og koma fram eins og fólk býst við af þér? „Ég hef ekki hlutverk til að leika, það er ómögulegt fyrir mig og væri mjög vandræða- legt. Það er t.d. ekki hægt að leika einhver rokkstjörnuhlut- verk í kringum menn eins og Charlie Watts sem verður skeif- ingu lostinn þegar hann heyrir orðið. En Brian Jones fór illa á þessu og drap sig á þvjað vera rokkstjarna. “ — Nú velta margir þvi fyrir sérhvort Rolling Stones komi til með að spila saman á ný. En verður það ekki bara til að græða nokkrar milljónir dollara i viðbót? „Ég veit ekki hvað skal segja um það hvort Rolling Stones koma til með að spila saman á ný. Og það er sama hvað við græðum mikið, það fer alltaf rosalegur peningur i að halda hlutunum rúllandi. Peningareru ekki allt í lífinu. Þeir gera þig ekki hamingjusaman og þeir geta skapað mikil vandamál. Ég vareinmitt að tala um það við strákana sem spila með mér á plötunni að ég hefði verið miklu verr staddur en þeir í æsku. Fjölskylda mín var miklu fátækari en þeirra og pabbi vann eins og hestur vió að afla fjölskyldunni tekna og borga leiguna. Fyrir mér er fólkið í kringum mig miklu mikilvægara en pen- ingar og jafnvel rokk og ról. “ — Hvernig er heilsan ann- ars? „Segðu mér hvað þér finnst. “ — Þú litur a.m.k. vel út. „Ég hef lifað lífinu eins og ég vildi að það yrði. Og ég er hér i dag vegna þess að ég hef lagt það á mig að finna út hver ég raunverulega er.“ — En ert þú mjög bundinn af því að hafa verid meðlimur Roll- ing Stones? „Fyrirþað fyrsta hef ég aldrei verið neitt annað, alveg frá því ferill minn byrjaði. En síðastlið- in tvö árhefég þurft að takast á við að vera ekki í Rolling Stones og það gekk nærri mér. En þetta hefur byggt upp sjálfstraustið og sýnt mérað ég kemst af án hljómsveitarinnar. OgefRoll- ing Stones koma saman á ný vonast ég til að verða betri „rúll- andi steinn“. “ (Útdráttur úr viðtali i „Rolling Stone“.) úr hæstaréttqrdómum FYRIRFÓR SÉR EFTIR FRELSISS VIPTINGU OO SVELTI í dómi hæstaréttar, uppkveðnum 20. júní 1938, var dæmt í máli ákæruvaldsins á hendur manni nokkrum er meðal annars var gefið að sök að hafa með slæm- um aðbúnaði átt þátt í að vinnukona á heimili hans stytti sér aldur. Þann 16. september 1936 kom á sýslumannsskrifstofuna á Eski- firði maður er hér verður nefndur Jón Jónsson og tilkynnti þar að stúlka að nafni Helga Helgadótt- ir, sem dvalið hafði á heimili hans, hefði horfið þá um nóttina. Lét sýslumaður þegar hefja leit að stúlkunni. Var spurst fyrir um hana og hennar leitað næstu daga, árangurslaust. Við rann- sókn málsins varð fljótlega vart orðróms um að ekki hefði verið allt með felldu um meðferð á, stúlkunni. Miðvikudaginn 30. september var sýslumanni tilkynnt að nokkr- ir drengir þættust hafa orðið varir við lík á sjávarbotni rétt við bryggju kaupstaðarins. Var slætt eftir líkinu og reyndist það vera af Helgu. Helga réðst i vist til þeirra hjóna Jóns og konu hans Sigríðar Sigurðardóttur í vetrarbyrjun árið 1934, en þá áttu þau heima í Reykjavík. Helgu var svo lýst að hún hefði verið vönduð og góð í sér, óframfærin en ímyndunarfull og umtalsill um fólk. Af vitnis- burðum fólks var talið mega álykta að hún hefði verið öðruvísi og vesælli en annað fólk. í janúar- mánuði 1935 réð Helga sig sem vertíðarstúlka til Grindavíkur en kom ekki þangað á tilsettum tíma og þegar hennar var vitjað neitaði hún að fara og bar því við að sér hefði borist uppsögn símleiðis. Við rannsókn málsins báru vitni að Helga hefði talið eftir á að þau hjón hefðu að líkindum látið hringja til sín uppsögnina. Vorið 1935 lentu þau hjón á hrakhólunt með húsnæði og dvöldu á ýmsum stöðum í Reykavík um tíma. Fólk er var í sambýli með þeim á þeim tíma bar síðar að Helgu hefði lið- ið illa i vistinni, verið hrædd við hjónin, horuð og illa til fara. Hún hefði jafnframt verið kúguð og ekki þorað að tala við annað fólk af ótta við þau hjónin. Eitt vitnið, kona nokkur er þau bjuggu í sam- býli við, bar að hún hefði boðið Helgu kaffi er hún stóð við að þvo þvott. Hefði Helga ekki þorað að þiggja það nema frúin stæði vörð á meðan. Um vorið var hún föluð í kaupavinnu af tveimur bændum í Flóa. Húsfreyja af öðrum bæn- urri fór sjálf til fundar við Helgu og virtist hún taka vel í að fara en sagðist þurfa að bera málið undir húsráðendur. Eftir það tjáði hún húsfreyjunni kjökrandi að ekki gæti af því orðið að hún réði sig til hennar. Húsfreyjan talaði þá við Jón, en hann hafði sagt útilokað að hún gæti farið þar eð hún væri annars staðar ráðin. Húsráðendur á hinum bænum í Flóanum þekktu Helgu vel enda hafði hún verið þar í kaupavinnu mörg sum- ur þar á undan og hafði ráðgert að fara þangað enn á ný. Bóndinn hélt til Reykjavíkur til fundar við Helgu en hitti þar mann fyrir er sagði honunt að Helga væri farin austur á firði og kæmi áreiðan- lega ekki til hans þetta sumarið. Þá um vorið hættu þau hjón að greiða henni kaup og gerðu við hana skriflegan samning sem aldrei kom þó fram í málinu. Samkvæmt frásögn þeirraafhon- um átti hún að hafa fæði og fatn- að en ekki kaup. Gerðu þau henni tvo kosti, annaðhvort að fara, éða ganga að samningnum og undir- rita hann. Helga tók seinni kost- inn, þótt hún færðist undan í fyrstu. Sá fatnaður, sem Helga fékk, var að mestu uppgjafaflíkur af Sigríði og að henni látinni nefndur „fataræflar" í uppskrift- argerð hreppstjóra Eskifjarðar- hrepps. Fljótlega svipti Sigríður hana lika frídögum þeim, sem um hafði verið samið að hún ætti. Þau hjón sendu Helgu í kaupa- vinnu norður í Skagafjörð sumar- ið 1935 og lagði Sigríður svo fyrir að kaup Helgu yrði greitt sér og var svo gert. Haustið 1935 fluttu þau hjón með Helgu arustur til Eskifjarðar. Mörg vitni þar báru um orðróm er gengið hafði um illa meðferð á Helgu, hún hefði verið ófrjáls ferða sinna og höfð innilokuð, en þau gátu ekki rökstutt það með dæmum. Nokkur vitni gátu þó skýrt ítarlega frá, meðal annars hefði Helga sagt vitni að hún væri daglega barin og hún hefði sést með ýmsa áverka og henni hefði í vitna viðurvist verið hótað líkam- legum refsingum. Þá var ljóst, af framburði vitna, að Helga hefði verið algjörlega einangruð, ekki talað við nokkurn mann og yfir- leitt verið Iæst inni á heimili þeirra hjóna þegar þau fóru að heiman. Við likskoðun fundust nokkrir áverkar svo sem gamalt mar á hendi og bólga og sár á öðru eyra. Var talið að þann áverka hefði hún hlotið skömmu fyrir dauða en hann hefði ekki getað verið bein dánarorsök. Einnig kom fram að líkið var mjög innanmag- þrátt fyrir holdafar líksins, að hún hefði liðið skort á heimili þeirra. Hins vegar þótti sannað að þau hefðu með refsiverðum hætti svipt hana frelsi hennar, lokað hana inni, komið í veg fyrir vist- ráðningu hennar til annarra og látið hana afsala sér umsömdu kaupi sínu. Allt þetta sýndi að þau hefðu beint og óbeint kúgað hana og í reynd svipt hana frelsi til að ráða sér og ráðstafa högum sínum á annan hátt en þau vildu. Voru þau hjón Sigríður og Jón, hvort um sig, dæmd til 8 mánaða betr- unarhússvinnu. Ákæruvaldið áfrýjaði dómi Einnig kom fram að líkið var mjög innan- magurt og sagði m.a. í skýrslu rannsóknar- stofu um líkskoðunina að konan hefði líklega soltið um lengri tíma... urt og sagði m.a. í skýrslu rann- sóknarstofu um líkskoðunina að konan hefði líklega soltið um lengri tíma og líklega einskis mat- ar neytt síðustu tvo sólarhringana fyrir andlátið. Ákæra var gefin út á hendur þeim hjónum og var dæmt í mál- inu fyrir héraðsdómi þann 7. apríl 1937. í niðurstöðum dómsins var talið að þeim yrði ekki gefið að sök að hafa verið völd að dauða Helgu, áverkar hennar yrðu ekki raktir beint til þeirra og ekki þætti sannað að henni hefði verið mis- þyrmt. Ekki þætti heldur sannað, héraðsdóms til hæstaréttar. í dómi hæstaréttar var tekið fram að Helga hefði ekki gert verulegar tilraunir til að komast af heimilí þeirra hjóna. Samt sem áður þætti mega fallast á það álit hér- aðsdóms að aðbúnaður Helgu á heimili þeirra og atlæti það er hún bjó þar við hafi verið þannig lag- að að það hefði'lamað algjörlega viljaþrek hennar til að taka ákvörðun um vistarstað sinn. Jón var dæmdur til 4 mánaða fanga- vistar og greiðslu sektar en Sigríð- ur hafði látist áðúr en dómur hæstaréttar féll.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.