Pressan


Pressan - 18.05.1989, Qupperneq 6

Pressan - 18.05.1989, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 18. maí 1989 Stór hópur fólks á íslandi, sem annars staðar á Vestur- löndum, telur sig eiga allt undir því að nöfn hans og andlit birtist nógu oft i fjöl- miðlum. Sérstaklega er talið mikil- vægt að komast í sjónvarpið, sem allir trúa að sé áhrifamesti fjölmið- illinn. Ákafinn við að koma sér á síður dagblaða, tímarita og á sjón- varpsskjáinn fékk nýlega nafn á ís- lensku. Fyrirbærið er kallað athyglissýki. Dæmi um athyglissýki er þegar eiginkona stjórnmálamanns skrifar í grein í dagblaði að hún hafi verið í útlöndum nýverið og þar hafi „beinstífir” dátar reynt að kíkja upp undir stutta pilsið sem frúin klæddist. Annað dæmi er af leik- stjóra sem gerir heimildarmynd fyr- ir sjónvarpið um heimsókn dægurlagasöngvara til íslands. í myndinni ber meira á leikstjóran- um, vinum hans og vandamönnum en söngvaranum sem var tilefnið. Athyglissýki er sjúkdómur af sama stofni og stelsýki og áfengis- sýki. Það er umdeilt hvort sjúk- dómurinn er nokkuð annað en siðferðisbrestur. Sá athyglissjúki lætur stjórnast af hégóma, sá stel- sjúki af ágirnd og alkóhólistinn af hóglífi. Menningarsjúkdómur Ennfremur eru þessir sjúkdómar að einhverju leyti háðir samfélags- aðstæðum. Fjölmiðlar eru for- senda athyglissýki á svipaðan hátt og stórmarkaðir freista þjófa og gnótt brennivíns eykur mönnum þorsta. Til að komast að raun um hvort athyglissýki er menningar- sjúkdómur verður að fara aftur í tímann og líta á aðstæður þegar nú- tímafjölmiðlun tók að mótast. Ljósmyndir ruddu sér til rúms um miðja 19du öld og þóttu bylt- ingarkennd nýjung. Margir litu svo á að með ljósmyndatækninni væri mönnum í fyrsta sinn gert mögulegt að festa brot úr veruleikanum á pappír. Og hvaða veruleika var vin- sælast að setja á pappír? Jú, fyrst og fremst voru teknar rnyndir af mönnum og konum sem þannig vildu tryggja sér einhverskonar ódauðleika. Ljósmyndir af lands- lagi, svo dæmi sé tekið, voru ekki nærri eins eftirspurðar og andlits- myndir. íslendingar voru fljótir að til- einka sér tækni og siði Evrópubúa og átti það ekki síst við um ljós- myndun. Þvers og kruss um sveitir landsins sendu menn ljósmyndir af sér. Með þeim hætti var vinarhugur staðfestur og sjálfsagt þótti mönn- um til þess koma að vita af sér í ramma uppá vegg eða hillu í fjar- lægu héraði. Gömul saga Þann 8da október árið 1844 sendi Ein frægasta setning heimsbókmenntanna er „cogito, ergo sum" sem ó ís- lensku útleggst „ég hugsa og því hlýt ég að vera til". Höfundur setningarinn- ar er franski 17du aldar heimspekingurinn René Descartes og staðhæfingin var lokaniðurstaða hans í glímunni við efann um sjólfan sig og tilveruna. Ef Descartes væri nútímamaður, óöruggur með sjólfan sig og í vafa um stöðu sína, myndu vangavelturnar leiða til annarrar niðurstöðu: „Televisus, ergo sum" sem ó íslensku mætti þýða „ég er í sjónvarpinu og því hlýt ég að vera til". EFTtR: PÁL VILHJÁLMSSON — TEIKNING: ARNÞÓR HREINSSON Gísli læknir Hjálmarsson á Arn- heiðarstöðum bréf til Jóns Sigurðs- sonar I Kaupmannahöfn. Gísli var einlægur aðdáandi Jóns og saknaði hans. í bréfinu segir meðal annars: „llla fórstu með mig, bróðir minn, að unna mér ekki að sjá af þér ge- fjes-myndina. Viljir þú ég skuli nokkru sinni minnast þín framvegis í bænum og andvörpum, þá láttu hana koma að sumri. Hugur minn hressist við það að sjá hismi það nærri mér, því ekki er sagt, hvenær fundum okkar ber saman.” „Ge- fjes” er danskt gamanyrði um and- lit sem Gísli klæðir sárindi sín. Það er ekki ósennilegt að um- kvörtun Gísla stafi að hluta til af af- brýði. Hann gæti hafa frétt að einhver annar hefði fengið mynd af Jóni með vorskipunum. Jón Sig- urðsson vissi hvað klukkan sló þeg- ar almannatengsl voru annarsvegar. Fram á þessa öld mátti á bæjum víða um land sjá andlitsmyndir af Jóni sem hann sendi á sínum tíma. Móttökurnar sem ljósmynda- tæknin fékk á íslandi undirstrika að landsmenn voru á sama menn- ingarstigi og Evrópubúar. í frum- stæðari samfélögum er Iitið með tortryggni á Ijósmyndun og hvers- kyns myndatöku. Þar óttast menn að tapa hluta af sjálfum sér þegar þeir eru festir á filmu. Þessu er þver- öfugt farið í nútímaþjóðfélagi, seg- ir bandaríski rithöfundurinn og gagnrýnandinn Susan Sontag. „Sjónvarpsframkoma" í snjöllum ritgerðum Sontag, teknar saman í bókinni On plioto- graphy, segir frá þeirri öfugþróun sem leiddi til þess að veruleikinn tók að apa eftir ljósmyndun og síð- ar sjónvarpi. Ljósmyndin hætti að vera skrásetjari veruleikans og varð að fyrirmynd hans. Það er litið svo á að maður bæti við sig eiginleikum í sjónvarpi, að minnsta kosti þeir sem búa yfir góðri „sjónvarpsfram- komu”. Það er líka talað um að myndast vel eða taka sig vel út á skjánum. Við þetta bætist að heimur sjón- varpsins er áferðarfallegri og meira spennandi en nokkurs annars fjöl- miðils. Meginhluti þess sjónvarps- efnis sem er framleitt á Vesturlöndum hefur hreint skemmtigildi að markmiði, er bein- Iínis búið til til að drepa tímann fyr- ir fólki. Það er ekki sjálfsagt mál að sjón- varpið skuli einkum vera skemmti- atriði. Ástæðuna fyrir stöðu sjónvarpsins í dag má rekja til að- stæðna í Bandaríkjunum fyrir þrem til fjórum áratugum, en Bandaríkin eru í senn fyrirmynd sjónvarpsmenningar Vesturlanda og stærsti framleiðandi sjónvarps- efnis í heiminum. Auglýsingamennska Bandaríski blaðamaðurinn Ben Bagdikian færir sannfærandi rök fyrir því í bókinni The media mono- poly að hagsmunir og kröfur aug- lýsenda móti sjónvarpið á afgerandi hátt. Á árdögum sjón- varps, segir Bagdikian, var litið á það sem framhald af menningar- starfsemi sem fyrir var. Sjónvarpið tók upp og sýndi leik- verk sem fjölluðu á alvarlegan og raunsæjan hátt um knýjandi úr- lausnarefni samtímans, það gerði heimildarþætti um misrétti milli kynþátta og félagshópa og beindi athyglinni að skúmaskotum stór- borga. Bandarískur almenningur tók þessu sjónvarpsefni vel og það þótti auka mönnum skilning á sam- félaginu sem þeir bjuggu í. Dagskráin breyttist þegar sjón- varpsstöðvar leituðu til fyrirtækja um að kosta útsendingar. Stórfyrir- tæki sáu sér leik á borði og gegn því að kosta tiltekna sjónvarpsdagskrá fengu þau áhrif á innihaldið. Bagdikian nefnir dæmi um sígar- ettufyrirtæki sem kostaði gerð framhaldsþáttar. Fyrirtækið krafð- ist þess að illmennin í þáttunum reyktu ekki sína tegund og ekki mátti sýna atriði þar sem aðalper- sónurnar notuðu sígarettur til að lýsa reiði eða vanþóknun, til dæmis með því að kasta frá sér hálfreyktri sígarettu. Tannkremið og tilveran Alvarlegt sjónvarpsefni er sem eitur í beinum auglýsenda. I Banda- ríkjunum er dagskráin reglulega rofin til að koma að auglýsingum. Sjónvarpsefni ,sem á trúverðugan máta lýsir gleði og sorg, von og eymd nútímamannsins verður ekki rofið til að koma þeim skilaboðum til áhorfandans „að ef þú bara burstar tennurnar með kol- geit-tannkremi verður tilveran bjartari”. Umgjörð auglýsingarinn- ar undirstrikar fáránleika hennar og áhorfandinn skellir upp úr. Auglýsendur leggja á það áherslu að umhverfi auglýsingarinnar, sjónvarpsdagskráin, falli vel að stíl og anda auglýsingamennskunnar. Sjónvarpssápur eins og Dallas og Dynasty eru sérstaklega þénanlegar þessu markmiði. Sögupersónurnar eru staðlaðar steríótýpur og efnis- þráðurinn ein allsherjar endur- tekning. Fólkið í framhaldsþáttunum er fallegt, konurnar kynþokkafullar og mótleikararnir karlmenni. Aug- lýsingin um kolgeit og betri tilveru fellur eins og flís við rass að þessari sjónvarpsmenningu. Auglýsingasjónvarp framleiðir og heldur við fyrirmyndarheimi þar sem allt er ljúfara og einfaldara en í hversdagsleikanum. Svo spenn- andi er þessi heimur að meirihluti þjóðarinnar sest á hverju kvöldi vikunnar fyrir framan kassann sinn og glápir. Það er þess vegna eftir nokkru að slægjast að komast í sjónvarpið. Matteusarlögmólið Það sem skilur að athyglissjúka og aðra sem birtast í sjónvarpinu er að þeir fyrrnefndu sækjast eftir at- hyglinni á meðan hinir eru kallaðir til. Það þarf ekki endilega að vera hégómi sem knýr þann athyglis- sjúka áfram. Oft eru það beinharð- ir hagsmunir. Rithöfundurinn selur fleiri bækur ef hann kemur fram í sjónvarpi, kaupahéðnar fá ókeypis auglýsingu fyrir vörur sínar, stjórn- málamaðurinn heldur sjónvarps- viðtal rakta leið til vinsælda og skemmtikraftur að markaðsgildi sitt hækki. í nútímasamfélagi skiptir höfuð- máli að „láta vita af sér”. Þetta er lykilatriði fyrir menn og konur sem á einn eða annan veg byggja af- komu sína á því að vera þekkt eða fræg. Hugsi maður út í það eru þeir töluvert margir sem þannig er ástatt um og fer fjölgandi. Það er kallað matteusarlögmálið sem sker úr um hverjir fá inni í sjón- varpinu og hverjir ekki. Lögmálið hljóðar á þessa leið í nýju biblíunni: „Yður er gefið að þekkja leynda dóma himnaríkis, hinum er það ekki gefið. Því að þeim, sem hefur, mun gefið verða, og hann mun hafa gnægð, en frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefurl’ (13:10—12.) Þeir sem þekkja leyndardóma sjónvarpsins og hafa þegar náð at- hygli þess fá meiri athygli og um- fjöllun en hinir sem engri athygli ná fá alls enga umfjöllun og eru dæmdir til gleymsku. I þeirri aðstöðu myndi Descartes stynja þungan og hugsa upphátt á latínu: „Non televisus, non sum.” Á íslensku: Ég er ekki í sjónvarpinu og því er ég ekki til.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.