Pressan - 18.05.1989, Blaðsíða 17

Pressan - 18.05.1989, Blaðsíða 17
t’ C 1' t ' r r w ;* > , r f m Vh » - Fimmtudagur 18. maí 1989 17 PRESSU MOL&R ÍÍjöldi manns mun streyma hingað til Iands í tengslum við komu páfans um næstu mánaða- mót. Töluvert verður um erlenda fjölmiðlamenn, en einnig virðast t.d. mjög margir bandarískir kaþól- ikkar ætla að koma hingað. Ástæð- an fyrir því er eflaust sú, hve miklu auðveldara er fyrir þá að komast í námunda við trúarleiðtoga sinn á íslandi en þegar hann er á ferð í fjölmennari löndum. Hótel á Reykjavíkursvæðinu eru löngu orð- in fullbókuð og það sama má segja um hótel í Keflavík og Hótel Örk í Hveragerði, því ferðamennirnir láta sig ekki muna um að aka nokkra kílómetra til að komast í háttinn í þessari pílagrímaferð... d ^^■thygli vakti að Hólmfríður Karlsdóttir, fyrrum Ungfrú heim- ur, var ekki viðstödd þegar keppnin um Ungfrú ísland fór fram á mánu- dagskvöldið. Ástæðan mun vera sú að Hólmfríði og eiginmanni hennar var stórlega misboðið á fegurðar- samkeppninni i fyrra. Þegar þau hjónin komu á Hótel ísland kom nefnilega í Ijós að Hólmfríði var sem heiðursgesti ætlað sæti við sér- stakt borð með öðru mektarfólki, en þar var hins vegar ekki gert ráð fyrir eiginmanninum, sem var boð- ið sæti annars staðar í húsinu... e ^^íðastliðið haust fór Heilsu- hæliö í Hveragerði að bjóða upp á megrunarnámskeið með nýstárlegu sniði. Aðferð AA-manna var notuð og gengið út frá því að ofátið væri sjúkdómur og fitan þess vegna sjúkdómseinkenni. Hver sjúklingur dvelur í fjórar vikur á hælinu og lærir þar m.a. að breyta afstöðu sinni til matar og láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Minni áhersla er lögð á það kapp við kílóin, sem einkennir yfirleitt megrunarkúra, enda litið á þetta sem viðhorfs- breytingu til frambúðar en ekki skammtímasvelti. Það er heldur ekkert verið að vigta sjúklingana nótt sem nýtan dag, því vigtun fer einungis fram einu sinni í viku. Franr til þessa hefur verið fullskip- að á námskeiðin og hafa nokkrir tugir íslendinga þegar lokið „pró- gramminu“... TONLEIKAFÖR SYKURMOLANNA ER HAFIN BENTUIAUSTUR! Nú eru Sykurmolarnir, fyrsta ís- lenska súpergrúppan, lagðir af stað í enn eina frægðarförina (von- andi!), til að breikka sjóndeildar- hringinn, spila matarmikla rokk- tónlist og framfylgja stefnuskrá sinni, sem lítur svona út: „HEIMS- YFIRRÁÐ EÐA DAUÐI“. Minna dugar „Molunum" ekki, enda vilja- sterkt fólk og ákveðið upp til hópa í þessari landsins frægustu hljóm- sveit. Þau eru núna stödd í V-Þýska- landi en þaðan liggur leið þeirra til Litháen, þá vika hjá birninum í austri, og síðan til nágranna hans í Eistlandi. Finnland er Iíka á dag- skrá og síðustu tónleikarnir í Evr- ópu, áður en þau fara til Bandaríkj- anna, eru svo á tónleikahátíð í París. Sérstök athygli skal þó vakin á tónleikunum í Helsinki, en þar mun ameríski gæðarokkarinn Lou Reed verða með Sykurmolunum og einnig breska hljómsveitin Trans- vision Vamp. I Ameríkuförinni verða hvorki meira né ri^inna en New Order og Public Image Limit- ed (PIL) í för með Sykurmolunum. Sykurmolarnir hafa þegar lokið upptökum á nýrri breiðskífu sem ætlað er að koma út er líða fer að jólum. Við Frónbúar fengum BENTU I VESTUR! hressilegan forsmekk að nýju plöt- unni á tvennum kveðjutónleikum í Tunglinu um síðustu mánaðamót. Þar spiluðu Björk hin stuttklippta og félagar öll nýju lögin við mikinn fögnuð áheyrenda. Það er deginum Ijósara að nýja platan kemur til með að standast Life‘s too good fyllilega snúning og sennilega gott betur. En þar með er ekki sagt að gengi plötunnar sé fyrirfram gull- tryggt, því lánið innan poppbrans- ans er fallvalt og hreinlega nóg að hitta á breskan tónlistargagnrýn- anda í fúlu skapi. Vald bresku tón- listarpressunnar er geysilega mikið og það voru jú menn innan hennar sem vöktu athygli á Sykurmolunum á sínum tíma. En sem betur fer eru þeir ekki einráðir. Það sem eftir lifir árs verður tími mikilla ferðalaga og álags fyrir Sykurmolana og jafnvel tími mikillar spennu þegar nýja platan kemur út, því erfitt er að fylgja jafngóðri plötu og Life‘s too good eftir. En þetta kemur allt saman í Ijós. Hér á eftir eru dagsetningar á tón- leikaför Sykurmolanna fram í ágúst og er ferðalöngum bent á að klippa þær út og setja á góðan stað í ferða- töskunni. Góða skemmtun!! Sykurmolarnir munu koma fram með ameríska gæðarokkaranum Lou Reed á tónleikum i Helsinki. MAÍ 21. Vilnius (Litháen) 22. Kiev 23. Kiev 25. og 26. Moskva 28. og 29. Leningrad 31. Tallin (Eistland) JÚNÍ 3. Helsinki (L. Reed + T. Vamp) 10. París Festival 14. Los Angeles (+ N. Order + PIL) 16. Irwin 17. San Diego 18. Los Angeles 21. Salt Lake City 23. Denver 25. Kansas City 26. Minneapolis 29. Milwaukee 30. Chicago JÚLÍ 1. Detroit 3. Darien 5. Cleveland 7. Toronto 10. Boston 11. Bristol 12. og 13. Long Island 14. Philadelphia 15. Washington DC 17. Long Island 19. Rutherford EFTIR: GUNNAR ÁRSÆLSSON STAÐGREIÐSLA 1989 NÁMSMANNA- SKATTKORT Breytt fyrirkomulag HVERJIR EIGA RÉTT Á NÁMSMANNA- SKATTKORTI? Rétt á námsmannaskattkorti árið 1989 eiga þeir námsmenn, fæddir 1973 eða fyrr, sem stundað hafa nám á vormisseri og nýtt hafa lítið sem ekkert af persónuafslætti sín- um á þeim tíma og ekki flutt hann til maka. BREYTT ÚTGÁFU- FYRIRKOMULAG Sú breyting hefur verið gerð að í ár þarf ekki að sækja sérstak- lega um námsmannaskattkort nema í undantekningartilvik- um. Ríkisskattstjóri mun á grund- velli upplýsingafráskólum um það hverjir teljast námsmenn og frá launagreiðendum um nýtingu persónuafsláttar þeirra gefa út námsmannaskattkort og senda til þeirra sem rétt eiga á þeim í byrjun júní nk. Námsmenn við erlenda skóla þurfa hins vegar að sækja sérstaklega um námsmanna- skattkorttil ríkisskattstjóra. Útgáfu námsmannaskatt- korta annast staðgreiðsludeild ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,150 Reykjavík. Sími 91 -623300. BREYTTUR GILDISTÍMI Gildistíma námsmannaskatt- kortsins hefur verið breytt. Nú er heimilt að nota námsmannaskatt- kortið frá útgáfudegi til og með 31. desember 1989 í stað júní, júlí og ágúst eins og áður. Athugið að námsmanna- skattkort gefin út á árinu 1988 eru ekki lengur í gildi. BREYTT MEÐFERÐ PERSÓNUAFSLÁTTAR Á námsmannaskattkorti 1989 kemur fram heildarfjárhæð per- sónuafsláttar sem kortið veitir rétt til en ekki mánaðarleg fjárhæð eins og áður. Við ákvörðun stað- greiðslu korthafa ber launagreið- anda að draga þennan afslátt frá eftir þörfum þar til hann er upp- urinn, samhliða persónuafslætti námsmanns samkvæmt aðal- skattkorti og skattkorti maka hans ef þau eru afhent honum. RSK RtKISSKATTSTJÓRI

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.