Pressan


Pressan - 18.05.1989, Qupperneq 23

Pressan - 18.05.1989, Qupperneq 23
Fimmtudagur 18. maí 1989 23 Nýgift leiðast þau Jón Óttar og Elfa út úr Dómkirkjunni. Elfa Gisladóttir og Karl Axel, sonur hennar, við háborðið i brúðkaupsvelsl- unni. Goði Sveinsson dagskrárstjórj, Páll Magnússon fréttastjóri og kona hans Hildur Hilmarsdóttir, Ragna Ólafsdóttir námsstjóri, Guðný B. Richards, framkvæmdastjóri listasviðs Stöðvar 2, og Óiafur H. Jónsson aðstoðar- sjónvarpsstjóri. Hjörleifur Kvaran, framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar Reykjavikurborgar, Ástríður Thorarensen, hjúkrunarfræðingur og borgar- stjórafrú, og Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Frjáls framtaks. Gestirnir Tveir ráðherrar mættu í brúð- kaupið í Dómkirkjunni og í veisl- una á eftir. Forsætisráðherrann Steingrímur Hermannsson og fjár- málaráðherrann Ólafur Ragnar Grímsson, ásamt eiginkonunt sín- um, Eddu Guðmundsdóttur og Guðrúnu Þorbergsdóttur. Borgar- stjórinn í Reykjavík, Davíð Odds- son, var einnig þarna með konu sinni, Astríði Thorarensen. í kirkjunni mátti líka sjá Jóhann- es Nordal Seðlabankastjóra og frú Dóru Nordal og manninn með mörgu andlitin, Jóhannes Krist- jánsson, eftirhermuna vinsælu. Af embættismönnum innan kerfisins má t.d. nefna Georg Ólafsson verð- lagsstjóra og frá einkageiranum voru m.a. Magnús Gunnarsson, forstjóri Sambands íslenskra fisk- framleiðenda, og nafni hans Magn- ús Hreggviðsson hjá Frjálsu fram- taki. Ekki vantaði heldur fólk úr menningarlífinu. Úr þeim geira voru t.a.m. þau Inga Bjarnason leikstjóri, Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður og rithöf- undarnir Sigurður A. Magnússon og Thor Vilhjálmsson. Tónskáld voru þarna a.m.k. tvö, eða þeir Leifur Þórarinsson og Atli Heimir Sveinsson, en einnig tónlistarmenn- irnir Herdís Hallvarðsdóttir og Gísli Helgason. Af fjölmiðlafólki má t.d. nefna þær Herdísi Þorgeirsdóttur, rit- stjóra Heimsmyndar, og Arnþrúði Karlsdóttur, fyrrverandi sjónvarps- fréttamann. Og auðvitað var tölu- vert af þekktu starfsfólki á Stöð 2 og öðrum, sem tengjast sjónvarps- stöðinni á einhvern hátt. í þeim hópi voru Ómar Ragnarsson, fréttamaður með meiru, og Helga Jóhannsdóttir, eiginkona hans, Páll Magnússon fréttastjóri og kona hans Hildur Hilmarsdóttir, Hallur Hallsson fréttamaður, Hans Kristján Árnason stjórnarformað- ur, Helgi Pétursson, dagskrárgerð- ar- og tónlistarmaður, Páll Baldvin Baldvinsson, Svavar Egilsson og Sigríður Guðmundsdóttir. Veislan Stundin í Dómkirkjunni var afar einföld en hátíðleg. Prestur var séra Halldór Gröndal, en svaramenn voru þau Björg Ellingsen, móðir Jóns Óttars, og Gísli Alfreðsson, faðir Elfu. Eftir athöfnina var haldið í Skíðaskálann i Hveradölum, bæði í einkabílum og rútum, og hafði þar verið skreytt fallega utan dyra, m.a. með bleikum slaufum meðfram af- leggjaranum upp að húsinu. Ef veð- urguðirnir hefðu ekki skrúfað frá vetrarveðrinu í misgripum hefði skreytingin þó eflaust notið sín enn betur. Innan dyra tók Bryndís Schram á móti gestunum, en hún var veislu- stjóri í brúðkaupinu. Veitt var kampavín og fékk fólk sér síðan sæti við uppdekkuð borð, spjallaði saman og hlustaði á hljóðfæraleik nokkurra tónlistarmanna á meðan þess var beðið að brúðhjónin kæmu úr myndatöku. Von bráðar gengu þau Jón Óttar og Elfa í salinn og eftir að skálað hafði verið fyrir þeim hélt Bryndís Schram stutta ræðu. Framreiddur var glæsilegur og gómsætur matur með viðeigandi veigum, en á meðan á borðhaldinu stóð tóku gestirnir af og til lagið. Hefti með söngtextum var við hvern disk svo það þýddi ekkert að afsaka sig með því að segjast ekki kunna textann. Einnig voru fluttar ræður, en um klukkan ellefu um kvöldið mættu hjálparsveitarmenn og skutu upp flugeldum til heiðurs brúðhjónunum. Eftir það héldu menn í bæinn — saddir og sælir, með bros á vör. Brúðhjónin mæta í veisluna í Skiðaskálanum í Hveradölum Bryndís Schram veisIustjóri heldur ræðu. í forgrunni má m.a. sjá Georg Ól- afsson verðlagsstjóra. Atli Heimir og Bryndís kankast á, en á bakvið þau má m.a. sjá Önnu Valdi- marsdóttur sálfræðing. Rithöfundarnir Sigurður A. Magnússon og Thor Vilhjálmsson og hjónin Jó- hannes og Dóra Nordal. Tveir fyrrverandi koilegar á rikissjónvarpinu, Ómar Ragnarsson og Hrafn Gunnlaugsson, ásamt eiginkonum sinum, Eddu Kristjánsdóttur og Helgu Jóhannsdóttur.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.