Pressan - 18.05.1989, Page 11
Fimmtudagur 18. maí 1989
11
talar við svoleiðis fólk, “ sagði
hann. „Ég mundi varla lifa af nótt
í þorpi steinsnar héðan í burtu,“
bætti hann við, „en í hvaða borg
vesturlanda sem er gæti ég lifað
góðu lífi, ég færi bara á Holiday Inn
eða Sheraton og þar mundi ég ör-
ugglega hitta sálufélaga með svipuð
áhugamál og sams konar þekkingu.
Hann gæti verið frá hvaða landi
sem er, bara ekki úr afkima í menn-
ingarlegu tilliti. “
Önnur dýrategund
Manni eins og þessum myndi
aldrei nokkru sinni detta í hug að
kvænast konu úr lágstéttum lands
síns. Hann ætti ekkert sameiginlegt
með henni annað en þjóðernið.
Margt fólk úr hærri stéttum lítur á
landa sína í lágstétt sem nánast aðra
dýrategund. Eg hef verið á heimil-
um í fleiri en einu landi þarna
eystra, þar sem þjónustufólk var
aldrei ávarpað með nafni, því var
sigað með bendingum og hrópum
eins og hundum. Hundelskur mað-
ur myndi aldrei tala við dýrið sitt
með þeim þjósti sem margir þarna
temja sér gagnvart þjónustuliði.
Þetta á raunar meira við um önnur
lönd þarna eystra en Filippseyjar,
þar sem pólitisk vitund hefur vakn-
að á síðustu árum og fólk lætur síð-
ur bjóða sér ofríki en áður. í því
landi, eins og Thailandi og öðrum
kapítalískum ríkjum austursins, er
gjáin á milli stétta hins vegar
jafnóbrúuð og annars staðar, og
enginn fer þar yfir til giftingar. Það
er því varla að undra, að þegar von
er á manni að vestan með fullar
hendur fjár og í leit að konu til að
búa með sér við kjör sem fátækl- -
inga getur ek ki dreymt um að öðlast
í eigin landi, að þá er ekki fárra
freistað. í mörgum tilvikum, sér-
staklega í Thailandi og á löndum
kínverska menningarsvæðisins, en
síður á Filippseyjum, þarf fólk að
yfirvinna verulega fordóma gegn
hvítu fólki til að geta hugsað sér
slíkan ráðahag, en þegar litið er til
annarra kosta verður valið auðvelt
fyrir marga.
Augu eins barns
Það er í rauninni ekki nokkur
leið að lýsa því ástandi sem stór
hluti íbúa Suðaustur-Asíu, og raun-
ar margra annarra heimshluta, býr
við og á enga Ieið út úr. Sú stað-
reynd, að 40 þúsund börn deyja úr
fátækt á hverjum degi, og ekki fá
þeirra í mannhafi þessa heimshluta,
segir eitthvað en lítið þó. Sjálfur
skildi ég þetta lítið, þrátt fyrir lestur
meira en hundrað bóka, fyrr en ég
horfði í augu ungra barna sem
þekktu ekki æsku sem annað en
tólf tíma strit á hverjum degi, og
ekki hvíld sem annað en tímann
þegar hungrið var verst. Eftir það
mun ég aldrei setjast í dómarasæti
yfir fátækum manni. Ekki einu
sinni þeim sem selur dóttur sína í
vændi. Og þaðan af síður yfir dótt-
ur sem vill gagnast heimili sínu á
þann eina máta sem hún getur. Ég
„Hér ríkja allir
þeir fordómar
sem vænta mó ó
útkjálkum og við
það bætist svo
minnimáttarkennd
þessarar dverq-
þjóðar, sem brýst
út í hlæailegri
sjálfumgleði og
dapúrlegri
heimsku um
umheiminn/7
er hins vegar tilbúinn að segja eitt
og annað um þá vesturlandabúa,
sem eyða hundruðum þúsunda í
ferðalög til þess eins að svala losta
á líkama þessara stúlkna. Þeim
dytti víst fæstum í hug, að víkja lít-
ilræði að þeim fyrir ekki neitt. Það
sagði mér raunar kona í Hollandi,
sem rannsakaði þessi mál í austur-
löndum, að karlrembur, fullar af
kynþáttahroka, væru fjölmennar í
hópi viðskiptavina þessara kvenna.
Þetta gefur þeim víst einhverja til-
finningu um yfirburði, blessuðum
mönnunum.
Frétt Pressunnar
I síðustu viku var Pressan með
frétt um þessi mál. Hún var ekki
síðri en það sem lesa hefur mátt í
evrópskum blöðum og þá sérstak-
lega þýskum blöðum á síðustu
fimm eða tíu áruni. Myndin sem
svona frétt gefur er hins vegar verri
en engin ef rnenn vilja skilja hvað
þarna er á ferðinni. Það er einkum
tvennt sent svona fréttir snúast um.
í fyrsta lagi er það auðvitað kyn-
ferðislega hliðin á málinu, sem gerir
það spennandi, og oft gefst þá til-
efni til að birta myndir af fallegu,
fáklæddu kvenfólki. í öðru lagi er
svo gefið í skyn, að einhver gusa úr
mannhafi Asíu geti gengið yfir
landið og mengað þennan göfuga
kynstofn sem útlendingar eru svo
dónalegir að vita ekkert um og hafa
engan áhuga á. Fréttir af þessu tagi
gera hins vegar ekkert til þess að
skýra þetta flókna mál. Aðeins eitt
atriði úr fréttinni skal nefnt. í fyrir-
sögn og meginmáli var sagt að 150
hefðu komið frá Thailandi og Fil-
ippseyjum til íslands og i rauninni
gefið í skyn að verulegur hluti þessa
hóps væri konur sem eiginlega
hefðu verið keyptar hingað. Þetta er
svipað og þegar dönsk blöð skýrðu
frá þeirri staðreynd, að íslendingar
hafa oft komist i kast við lögin þar
ytra og margir misnotað danska vel-
ferðarkerfið, og greindu frá því i
fyrirsögn slíkrar fréttar, að þúsund-
ir íslendinga legðu leið sína til Dan-
merkur á hverju ári. Okkur hinum
liði þá sjálfsagt eitthvað svipað og
thailenskum kjarneðlisfræðingi,
sem litin væri eins og vændiskona.
Þó vorkenni ég þeim menntamanni
öllu minna en þeim sem enga von á
um að ala börn til annars en hungurs
og fátæktar, nema með því að bind-
ast einhverjum útlendingi, og verða
síðan fyrir háði og spotti samferða-
manna fyrir vikið. Þessar konur
hafa flúið það ofbeldi og fátækt
sem stéttlæg kúgun í heimalöndum
þeirra skapaði til þess að verða svo
fyrir því ofbeldi sem fordómar
heimskunnar skammta þeim í þjóð-
félögum sem þykjast betri.
Það er svo hinn gleðilegi hluti
þessa máls, að víða hafa hjónabönd
af þessu tagi lukkast með ágætum.
Sumar af þessum konum hafa lent
í hinum verstu hremmingum, en
annars staðar hafa þær fundið það
sem þær leituðu að, tækifæri til
þess að ala börn til annars en ör-
birgðar og kúgunar. Um leið hafa
margir evrópskir karlmenn fundið
góðan lífsförunaut og viðkomandi
þjóðfélög hafa auðgast fyrir vikið.
HÓTEL
LOFTLEIÐUM
ER
GJALDEYRIS-
AFGREIÐSLA
OPINÁ
ÓTRÚLEGU STU
TÍMUM
Já, það er ekki ofsögum sagt
af þjónustu Landsbankans
við erlenda
jafnt sem innlenda ferðamenn.
Gjaldeyrisafgreiðslan
á Hótel Loftleiðum
er opin sem hér segir:
Mánudaga - föstudaga
kl. 8:15-16:00 og 17:00-19:15.
Laugardaga og sunnudaga
kl. 8:15-19:15.
Á sama tima eru afgreiddar
ferðatryggingar.
Að öðru leyti er almenn afgreiðsla
opin á venjulegum tímum:
Mánudaga-föstudaga kl. 9:15-16:00 og
fimmtudaga síðdegis kl. 17:00-18:00.
Verið velkomin,
- hvenær sem er.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna