Pressan - 18.05.1989, Page 27

Pressan - 18.05.1989, Page 27
Fimmtudagur 18. maí 1989 27 sjónvarp FIMMTUDAGUR 18. maí Stöð 2 kl. 21.30 MACKINTOSH MAÐUR- INN**/2 (The Mackintosh Man) Bandarísk spennumynd frá árinu 1973. Leikstjóri: John Huston. Að- alhlutverk: Paul Newman, James Mason og Peter Vaughn. Einn besti leikstjóri Bandaríkj- anna, John Huston, leikstýrir þess- ari afbragðsnjósnamynd. Breskur starfsmaður leyniþjónustunnar reynir að hafa hendur í hári áhrifa- mikils njósnara innan breska þings- ins. Til að komast að kjarna máls- ins lætur hann handsama sig og varpa sér í steininn. Tilgangurinn er að kynnast njósnara þar, sem þekk- ir moldvörpuna í þinginu. Myndin er byggð á skáldsögu Desmonds Bagley, Gildrunni. Ágætiskvik- mynd í alla staði ef ekki kæmi eitt til: Þetta hefur allt verið gert áður. Stöð 2 kl. 23.40 SVAKALEG SAMBÚÐ*/. (Assault and Matrimony) Bandarísk mynd frá 1987. Leik- stjóri: Jim Fawley. Aðalhlutverk: Jill Eikenberry og Michael Tucker. Hjón ein bregða á það ráð að losa sig úr sambúðinni með fremur ofsa- fengnum hætti. Edgar þolir ekki nöldrið í konunni og hún kennir honum um vansæld sína. Sæmileg spennumynd sem rís sjaldan úr meðalmennsku. FÖSTUDAGUR 19. maí Stöð 2 kl. 21.10 SYNDIN OG SAKLEYSIÐ** (Shattered Innocence) Bandarísk mynd frá 1987. Leik- stjóri: Sandor Stern. Aðalhlutverk: Melinda Dillon, Jonna Lee, John Pleshette, Dennis Howard og Nad- ine van der Velde. Átakanleg mynd, lauslega byggð á lífi klámdrottningarinnar Shaunu Grant. Myndin segir frá unglings- stúlku sem flýr að heiman og dreymir um frægð og frama. Hún ratar í einfeldni sinni inn á brautir kláms og eiturlyfja. Líf hennar er hið hörmulegasta þar til hún kynn- ist eiturlyfjasala sem er staðráðinn í að segja skilið við fyrra líferni. Saman reyna þau að flýja aðstæður sínar en það gengur ekki alveg sam- kvæmt áætlun. Þetta er ágæt kvik- mynd sem jaðrar þó á stundum við að minna á siðapredikun. Alls ekki við hæfi barna. Ríkissjónvarpið kl. 22.30 FALLVÖLT FRÆGÐ** (The Harder They Come) Jamaisk biómynd J'rá 1973. Leik- stjóri: Perry Henzell. Aðalhlutverk: Jimmy Cliff, Carl Bradshaw, Janet Bartley og Bobby Charlton. Jimmy (Jlitt er einn frægasti reggae-tónlistarmaður sem komið hefur frá Jamaíka í gegnum árin. Hann leikur hér í mynd um reggae-söngvara sem heldur til stór- borgarinnar í leit að frægð og frama. Hann á erfitt uppdráttar og frægðin lætur á sér standa. Tæp- lega er þessi mynd ómetanlegt framlag til kvikmyndalistarinnar, en hún er þess virði að fylgjast með henni, þótt ekki væri nema fyrir frábæra tónlist. Stöö 2 kl. 23.15 EINN Á MÓTI ÖLLUM** (Only the Valiant) Bandarískur vestri frá árinu 1950. Leikstjóri: Gordon Douglas. Aðal- hlutverk: Gregory Peck, Barbara Peyton og Gig Young. Gregory Peck leikur herforingja í bandaríska riddaraliðinu sem þarf að hreinsa sig af ásökunum um að hafa sent undirmann sinn út í opinn dauðann til að Iosna við samkeppni um hylli ungrar stúlku. Peck leysir náttúrulega málið með því að sýna hugrekki sitt í því að slátra indíán- um á báða bóga. Fremur meðal- mennskuleg kvikmynd í alla staði. Stöð 2 kl. 01.00 FURÐUSÖGUR II**/, (Amazing Stories) Bandarísk sjónvarpsmynd. Leik- stjórar: Steven Spielberg, Peter Hy- ans og Danny DeVito. Aðalhlut- verk: Robert Blossom, Lukas Haas, Hregory Hines, Danny DeVito o.fl. Þessi mynd kemur úr smiðju Ste- vens Spielberg en er skipt í þrjár sjálfstæðar myndir, sem allar eiga það sameiginlegt að innihalda mjög furðulega atburði. Danny DeVito leikstýrir m.a. fyrstu mynd sinni hér. Ohætt er að mæla með mynd- inni þótt kafiarnir séu misgóðir. 20. maí Ríkissjónvarpið kl. 21.45 IÐGRÆNN SKÓGUR*** (The Emerald Forest) Leikstjóri: John Boorman. Aðal- hlutverk: Powers Booth, Meg Fost- er og Charley Boorman. Ein af bestu myndum hins þekkta leikstjóra Johns Boorman er hér á ferðinni. Bandarískur verk- fræðingur vinnur við stíflugerð í Amazon-frumskóginum. Dag nokkurn týnist sjö ára sonur hans og hefst þá hættuleg og erfið leit. í ljós kemur, eftir margra ára leit, að sonurinn hefur alist upp meðal frumbyggja í skógunum. Myndin er öðrum þræði hvöss ádeila á þá stefnu manna, að eyða regnskógun- um í gróðaskyni. Ótrúlega falleg kvikmyndtaka og sterkt handrit prýða þessa afbragðsspennumynd. Stöð 2 kl. 21.45 MÓDURÁST* * (Love Child) Bandarísk kvikmynd frá 1982. Leikstjóri: Larry Pearce. Aðalhlut- verk: Amy Madigan, Beau Bridges og McKenzie Phillips. Fremur væmin mynd sem fjallar um stúlku sem dæmd er til fangels- isvistar og á þar með á hættu að missa nýfætt barn sitt. Hún þarf að berjast um yfirráðarétt við föður- inn, sem vill fá barnið. Óþarflega gróf mynd, byggð á sannsögulegum atburðum. AIls ekki við hæfi barna. Ríkissjónvarpið kl. 23.35 HVER MYRTI F0RSETANN?*** (Winter Kills) Bandarísk sakamálamynd frá 1979. Leikstjóri: WilUam Richert. Aðal- hlutverk: Jeff Bridges, John Hu- ston, Anthony Perkins, Sterling Hayden og Eli Wallach. Forseti Bandaríkjanna er ráðinn af dögum og yngri bróðir hans, sem sættir sig ekki við niðurstöðu rann- sóknar í málinu, fer að leita lausnar á eigin vegum. Hann kemst fljótt að því að margir eru ekki ýkja hrifnir af framtaki hans, því málið reynist vafasamara en virðist í fyrstu. Þetta er góð sakamálamynd og jaðrar í henni við svarta kímni á köflum. Leikstjórinn John Huston á snilld- arleik sem ríkur faðir Jeffs Bridges. Stöð 2 kl. 00.10 REKKJARPARTÝ* (National Lampoon’s Class Re- union) Bandarískur farsi frá 1982. Leik- stjóri: Michae! Miller. Aðalhlut- verk: Gerrit Graham, Michael Lerner og Fred McCarren. Sorglega ófyndin mynd um bekkjarafmæli sem raskast þegar morðingi fer að ganga i skrokk á bekkjarfélögunum fyrrverandi. Satt að segja er maður varla hissa á manninum fyrir að vera morðóður eftir að hafa gengið í skóla með því fáránlega fólki sem prýðir þessa mynd. Forðist með öllum tiltækum ráðum. SUNNUDAGUR 21. maí Stöð 2 kl. 23.05 MEÐ ÓHREINAN SKJÖLD** (Carly’s Web) Bandarísk sakamálamynd frá 1987. Leikstjóri: Kevin Inch. Aðalhlut- verk: Daphne Ashbrook, Carole Cook, Gary Grubbs og Bert Ros- ario. Lágtsettri skrifstofudömu í dómsmálaráðuneytinu berst kvört- un frá indíána þess eðlis að flutn- ingabíll með sojabaunir hafi ekki skilað sér til hans og sé horfinn. Stúlkan ákveður að aðstoða mann- inn og kemst fljótt að því að bíllinn . er geymdur í lögreglustöð skammt undan. Málin fara að fiækjast veru- lega þegar mútumál meðal banda- riskra stjórnvalda virðist tengjast týnda bílnum. Ágæt sakamála- mynd með nokkuð góðum sögu- þræði. Miðlungs að öðru leyti. dagbókin hennar Það er eitthvað ógeðslega alvar- legt að henni mömmu. Ég held, að hún þurfi að fara til sálfræðings á allra allra næstu dögum, því ástandið fer versnandi. Ég var ferlega sein að fatta hvað var að gerast. Samt hefði ég kannski átt að kveikja á perunni um páskaleytið, þegar hún kom heim með þrjár rúllukragapeysur handa mér — gjörsamlega upp úr þurru. Það var náttúrulega ekki normalt. Hún hefur nefnilega predikað það manna mest að „börn“ (það er nú soldið hallærislegt, en henni finnst ég sko ennþá vera ,,barn“...) eigi aldrei að fá gjafir á milli afmælis- daga og jóla. Hún og amma á Eini- melnum hafa næstum slegist út af þessu, því mamma þolir ekki „gjafaæðið" i Einimelsslektinni, eins og hún kallar það. Til að byrja með notaði ég rúllu- kragapeysurnar ofsa mikið, en núna er sem betur fer farið að hlýna pínu pons svo ég er ekki eins oft í þeim — og þannig kom klikkunin í mömmu í ljós! Hún var sítuðandi í ntér yfir þvi að ég væri ekki í peys- unum, sem hún hefði gefið mér, og ég skildi ekkert hvaða röfl þetta var í manneskjunni. Það var þá, sem ég tók eftir nýju kremdollunum á bað- inu. Þetta voru sjúklega dýr hrukkukrem til að nota á hálsa á kellingum. Og mamma, sem hefur varla nennt á setja á sig varalit og maskara, hvað þá meira! Ég spurði pabba hvort hann hefði tekið eftir dýru kremdollun- um og hann barasta signaði sig í bak og fyrir og sagði „Guð-minn-almáttugur, Dúlla mín, hún mamma þín er komin með hálsinn á sér á heilann, minnstu ekki á það ógrátandi, sjö-níu-þrett- án og allt það... Það er ekki einu sinni hægt að fara með hana í bíó lengur. Hún sér ekkert nema sléttu hálsana á ungu Ieikkonunum og verður gjörsamlega miður sín. Og hún á svo bágt með að horfa upp á hvíta marsípanhálsinn á þér, elsk- an.“ Ég meina það!!! Ég vorkenni pabba ofsalega. Hann er búinn að fylgjast með þessar' geðveiki miklu lengur en ég, enda er maðurinn farinn að grána rosalega. Ég liélt að það myndi kannski gleðja mömmu að minnast á gráu hárin hans pabba, en það var greinilega vitlaus taktík hjá mér. Ég veit ekki hvert hún ætlaði að kom- ast! Hún veinaði á mig að kallar yrðu bara sætari með hverju árinu, en konur yrðu hrukkóttar á hálsin- um og kringum augun og enginn vildi þær og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta var alveg meiriháttar sjúkt kjaftæði. Þau eru sko bæði orðin eldgömul (rúmlega fertug, takk fyrir kærlega og gleðileg. jól!!!) og verða bara að sætta sig við það. Fortíðin var þeirra tími, en nánasta framtíð tilheyrir mér ogt mínu hálsslétta liði. Þannig er nú lífið og það þýðir ekkert að vera með einhvern æsing út af því. Eftir tíu ár verð ég orðin 26 ára útbrunnið gamalmenni, en ekkierég með neitt vesen út af því!

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.