Pressan - 22.02.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 22. febr. 1990
3
Þ
egar erlend handknattleiks-
landslið koma hingað til lands þykir
það að vonum vænn biti fyrir hótel-
in. Undanfarið þegar landslið hafa
komið hingað upp hefur keppend-
um verið fundinn samastaður á
Holiday Inn-hótelinu. Þykir hótelið
hafa náð góðum viðskiptum þar,
enda gistir íslenska landsliðið einn-
ig á Holiday Inn fyrir leiki. . .
Þ
ing Norðurlandaráðs fer
fram í nýbyggðum og glæsilegum
ráðstefnusölum Háskólabíós eftir
rúma viku. Höfum við heyrt að
komið hafi í Ijós að við hönnun
byggingarinnar hafi láðst að leita til
sérfræðinga á sviði ráðstefna, en
byggingunni er öðrum þræði ætlað
hlutverk ráðstefnumiðstöðvar.
Vegna þessa skorti alla aðstöðu fyrir
tæknimenn í sölunum. Ráðstefnu-
miðstöðvar spretta upp í nágranna-
löndunum og þar er viðurkennt lág-
marksskilyrði að gert sé ráð fyrir
flóknum búnaði af ýmsu tagi við
hönnun s.s. fyrir tæknibúr, túlkun-
arklefa, o.fl. Allt þetta skortir hins
vegar í Háskólabíói...
■ gær hélt Félag leiðsögu-
manna hátíðarfund í Holiday Inn.
Tilefnið var fyrsti alþjóðadagur
leiðsögumanna, en alþjóðasam-
band þeirra átti einnig fimm ára af-
mæli. Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, er heiðursfélagi
Félags leiðsögumanna á íslandi, og
hélt hún ávarp á fundinum. Leið-
sögumenn gera fleira en að funda í
tilefni þessa dags. Um helgina verð-
ur almenningi boðið upp á ókeypis
ferðalag með leiðsögn um
Reykjavík. Ferðirnar verða farnar
frá Hlemmi á laugardaginn klukkan
tvö eftir hádegi. Islenskir leiðsögu-
menn vilja gera átak í sambandi við
ferðaþjónustu á íslandi. Þeir eru
óánægðir með að sífellt fleiri út-
lendingar vinna hér sem fararstjór-
ar. Þetta telja þeir slæma þróun, því
útlendingarnir séu ekki eins hæfir
til að kynna landið auk þess sem ís-
lendingar missi þarna atvinnutæki-
færi...
e
^^vo virðist sem Islendingar séu
í æ ríkari mæli að snúa sér aftur að
lesmáli í frístundum. Frá bókasöfn-
um berast nefnilega þær fréttir að
þróunin sé að snúast við og eftir
samdrátt í útlánum bóka á síðustu
þremur árum hafi orðið mikil út-
lánsaukning á síðasta ári. . .
o
^ÍFinn þeirra sem hingað til
lands komu með Václav Havel, for-
seta Tékkóslóvakíu, var Martin
Palous, fulltrúi samtakanna Borg-
aravettvangs. Meðal þess sem
Palous tjáði blaðamanni Pressunnar
var að markmið Borgaravettvangs í
kosningunum 8. júní væri ekki að
sigra, heldur að stuðla að lýðræðis-
legum kosningum í Tékkóslóvak-
íu ...
M
manudaginn mæta norræn-
ir húsnæðismálaráðherrar til fundar
í Reykjavík, en þeir koma á undan
öðrum sem taka þátt í Norðurlanda-
ráðsþingi. Húsnæðismálin tilheyra
félagsmálaráðuneytinu á íslandi.
Eftir fund ráðherranna verður farið
með þá í skoðunarferð um Reykja-
vík, út í Viðey og í Svartsengi. ..
lenn eru sífellt að fá hug-
myndir fyrir Reykjavíkurborg.
Nýjasta hugmyndin mun vera sú að
borgin kaupi Reiðhöllina. Þessi
skoðun er viðruð í nýjasta frétta-
bréfi Fáks og þar bent á að Reið-
höllin, sem varð gjaldþrota í haust,
sé nú í eigu opinberra sjóða og
banka og hægt að fá hana á hag-
stæðu verði og kjörum ...
1|
m aramotin skipti Sam-
vinnuskólinn á Bifröst um nafn
og heitir nú Samvinnuháskólinn.
Skólinn hefur starfað sem háskóli
síðastliðið eitt og hálft ár og útskrif-
ar í vor sína fyrstu rekstrarfræð-
inga, 33 talsins. Nafnbreytingin
komst ekki á fyrr en um áramótin.
Meðalaldur nema í rekstrarfræði
við Samvinnuháskólann er 28 ár.
Háskólinn leggur áherslu á að nem-
endur hafi reynslu úr atvinnuiífinu
og er að því leyti frábrugðinn Há-
skóla íslands. Stúdentspróf úr hag-
fræði- eða viðskiptadeildum er skil-
yrði til þess að komast beint inn í
rekstrarfræðideild. Fólk sem ekki
hefur stúdentspróf, en þriggja ára
framhaldsskólanám að baki, getur
byrjað í eins árs undirbúningsnámi
fyrir rekstrarfræðina. Meðal náms-
greina sem kenndar eru við Sam-
vinnuháskólann eru markaðsfræði,
fjármálastjórnun, starfsmanna-
stjórnun, framleiðslustjórnun,
stefnumótun og lögfræði. Ragn-
heiður Björk Guðmundsdóttir,
formaður skólafélagsins, segir að fá-
ir þekki nýjar aðstæður við skólann
sem nú er orðinn háskóli og sjálfs-
eignarstofnun .. .
A
^ÉPftir nýafstaðið þing íslenskra
kvikmyndagerðarmanna er ekki
alltof bjart yfir mönnum þar á bæ og
jafnvel talað um að vorinu í íslenskri
kvikmyndagerð sé að ljúka. Ekki
eru þó allir á þeirri skoðun og vestur
á Bíldudal eru menn ekki sammála
því að farið sé að hausta. Þar er nú
unnið að gerð tveggja leikinna
spennumynda. Aðstandandi ann-
arrar þeirra, Valdimar Ottósson,
segir í samtali við Vestfirska
fréttablaðið að ekki sé ákveðið
hvernig myndinni verði komið á
framfæri, en líklega verði hún sett á
spólur sem síðan verði leigðar
út. . .
I PRESSUNNI í dag er viðtal við
þrjá Slóvaka, sem voru hér staddir
með Havel forseta. Þessir menn
óskuðu eftir að fá að sjá sjónvarps-
fréttir á laugardagskvöldið til að sjá
hvernig fjallað yrði um heimsókn
forseta þeirra hingað til lands og var
auðvitað orðið við þeirri ósk. í frétt-
um Stöðvar 2 var meðal annars
rætt við Vilborgu Dagbjartsdótt-
ur, rithöfund og kennara, sem sagði
meðal annars að „þetta væri stór
dagur í lífi sósíalista". Slóvökunum
var mjög brugðið við þessa yfirlýs-
ingu og sögðust vona að konan væri
sú eina í hópi þeirra, sem tóku á
móti forseta og fylgdarliði, sem hrif-
ist enn af sósíalismanum ...
1 * - fiÉA
‘4
k < • .. rw
VEITINGASTAÐÖR A HEIMSVISU
yandaður veitingastaður - þægilegt umhverfi og þjónusta eins og hún gerist best.
Á matseðli er lögð áhersla á tilbrigði við hefðbundna matargerð, sem byggð er
á reynslu frönsku meistaranna.
í>ú getur valið um þrjá mismunandi matseðla. í fyrsta lagi hinn hefðbundna
„a la carte“, í öðru lagi 3ja rétta matseðil og í þriðja lagi svokallaðan
„smökkunarseðil“, þar sem valdir eru 8 réttir með tilheyrandi úrvals víntegundum.
OPNUNARTÍMI
Setrið er opið á fimmtudags-,
föstudags- og laugardagskvöldum
frá kl. 19.00.
Vinsamlega pantið borð tímanlega
í síma 84168.
ASGEIR HELGIERLINGSSON
nam matargerðarlist bæði hérlendis og
í Frakklandi. Hann vann í tvö ár hér
heima, undir handleiðslu Fran^ois
Fons og í Frakklandi vann hann á
þekktum veitingastað í borginni Nime.
• SIGTÚNI 38 • SÍMI: 91-689000