Pressan - 22.02.1990, Blaðsíða 32
PRESSU
b .........................
Davíð Oddsson í fararbroddi, veit-
ir færri byggingarlóðir fyrir ein-
staklinga á ári en vinstrimenn
gerðu þegar þeir voru við stjómvöl-
inn 1978—1982. A þeim árum var
að meðaltali úthlutað 630 bygging-
arlóðum á ári, en síðan eru lóðiril-
ar 406 að meðaltali frá 1983 og til 1.
okt. 1989. I’etta er jafnmikið og út-
hlutað var í horgarstjórnartíð Birg-
is Isleifs Gunnarssonar, sem út-
hlutaði 407 lóðum á ári að meðaltali
á árunum 1975—1977. Skýring
þessa er á huldu, en menn sem vel
þekkja til lóðamála hjá borginni
telja hugsanlegt að skýringin sé
hækkun gatnagerðargjalda árið
1982. Nú sé nóg af lóðum, en fólk
hafi ekki efni á að byggja þær. Kn
hver sem skýringin er hrósar borg-
arstjóri sér af þvi að hafa fullnægt
lóðaeftirspurn . . .
L
■ Heyrst hefurað andstaða með-
al þingmanna og ráðherra Aljrýðu-
bandalagsins við þátttöku Islend-
inga í undirbúningi fyrir sameigin-
legt evrópskt efnahagssvæði fari
vaxandi og kunni að verða alvar-
legri ásteytingarsteinn í ríkisstjórn-
arsamstarfinu en áður hefur verið
talið. Þekkt er andstaða Hjörleifs
Guttormssonar og Ragnars Arn-
alds við þá stefnu alþýðuflokks-
manna að renna sem hraðast í átt
að evrópska Evrópubandalagsrisan-
um með þátttöku í viðræðum EFTA
og EB. Ráðherrarnir Svavar Gests-
son og Steingrímur J. Sigfússon
munu vera sama sinnis og er búist
við að þetta komi upp á yfirborðið á
næstu vikum. Jafnvel svo að krafist
verði sérstakra skilyrða af hálfu Abl.
í stjórnarsáttmála gegn „Evrópu-
væðingunni". Öðrum þræði sé þetta
svo ögrun við formanninn, Ólaf
Ragnar Grímsson, sem er fylgj-
andi aukinni Evrópusamvinnu.
Þetta kom m.a. skýrt fram á fundi
þingflokks og framkvæmdanefndar
flokksins í vikunni. . .
P
■ rofkjörsslagurinn hjá Al-
þýðuflokknum í Hafnarfirði fer
harðnandi og flokksmenn sækja
stíft fram í efstu sætin. Alls gefa 25
flokksmenn kost á sér í 10 efstu
sætin, þar á meðal allir fimm nú-
verandi bæjarfulltrúar flokks-
ins. Það vekur ennfremur athygli
hvað þetta er ungur listi. Elsti
frambjóðandinn er 48 ára og af
þessum 25 eru fjórtán manns 35
ára og yngri og sá yngsti er 23
ára . . .
b
^^^rottför Goða Sveinssonar,
dagskrárstjóra Stöðvar 2, Páls
Baldvins Baldvinssonar aðstoð-
ardagskrárstjóra og Jóns Gunn-
arssonar auglýsingastjóra af
Stöð 2 til Sýnar hf. er mikil blóð-
taka fyrir Stöð 2. Þessir menn voru
nefnilega í þeirri stöðu að kaupa
inn allt erlent efni fyrir stöðina og
höfðu sambönd á innlendum
auglýsingamarkaði. Það má því
segja að þeir hafi góð sambönd
bæði hvað varðar markaðsöflun og
auglýsingar. Þekking þeirra og
reynsla flytjast nú yfir til Sýnar og
það getur orðið erfiður biti að
kyngja fyrir Stöð 2 . . .
r
■ eykjavikurborg seldi nýlega
lóð fyrir atvinnuhúsnæði í Skeif-
unni á 14,4 milljónir auk gatna-
gerðargjalda. Að sögn Hjörleifs
B. Kvaran, forst.manns laga- og
stjórnsýsludeildar borgarinnar, var
þessi leiö meðal annars farin þar
sem orörómur var um að nálægar
atvinnulóðir, sem var úthlutaö,
heföu verið seldar. A þann hátt
heföu úthlutunarhafar, sem greiddu
aðeins gatnagerðargjöld, grætt á
lóöunum. Borgin hefur áður boðið
út lóðir, til dæmis Völundarlóðina
við Skúlagötu og lóðina á Lauga-
vegi 149. I vetur stóð styr í borgar-
stjórn um lóð við Lágmúla 6—8,
sem þykir ámóta verðmæt og lóðin
sem seld var í Skeifunni. Lágmúla-
lóðinni var úthlutað á hefðbundinn
hátt til borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins. Nú er hins vegar kom-
ið áþreifanlegt verðdæmi fyrir slík-
ar lóðir og Hjörleifur telur ekki úti-
lokað aö verömætar lóðir fyrir at-
vinnuhúsnæöi verði seldar í fram-
tíðinni, þó að hefðin sé áfram sú að
úthluta þeim . . .
1»
það gengur erfiðlega að fá
fólk á lista fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar á Sauðárkróki. Sauö-
krækingum finnst bæjarstjórnar-
málin of tímafrek. Talið er að Al-
þýðuflokkurinn hafi sinn mann
kláran í efsta sætið en flestir flokk-
arnir eiga í meiri vandræðum en oft
áður með að fylla lista sína. Sérlega
illa gengur að fá konur til starfa á
Sauðárkróki, eins og víða annars
staðar . .
c
^^amþykkt var á miðstjórnar-
fundi ASI í gær að óska eftir tilnefn-
ingu frá öllum landssamböndum
ASI í verktakanefnd. Þessi nefnd á
að athuga mál verktaka og sérlega
að sporna við þeirri þróun að sífellt
fleiri gerist verktakar án þess að
gera sér grein fyrir hvað í því felst.
Það mun vera frekar óvenjulegt aö
óskað sé eftir tilnefningu fulltrúa frá
öllum landssamböndunum og sýnir
það að nefndin er talin mikilvæg . .
í^íýleg skoðanakönnun sem
gerð var í grunnskólunum sýnir
að meðal þriggja helstu áhugamála
nemenda á aldrinum 12—15 ára er
hestamennska. Á hverjum vetri er
150 nemendum boðið að sækja
námskeið í hestamennsku á vegum
tómstundastarfs í skólum og komast
jafnan mun færri að en vilja. Helsta
áhugamál nemendanna var tónlist
og næst í röðinni komu íþróttir . . .
Innan knattspyrnudeildar Vals
heyrum við að ríkt hafi upplausn-
arástand frá því í haust. Frá því
Eggert Magnússon, fyrrum for-
maður deildarinnar, tók við for-
mennsku hjá Knattspyrnusam-
bandi Islands hefur knattspyrnu-
deild Vals verið nánast stjórnlaus.
Við brottför Eggerts mun einnig
hafa komiö í Ijós að skuldir deild-
arinnar voru mun hærri en menn
á þeim bæ áttu von á. Einn leik-
manna hefur þegar yfirgefið hið
sökkvandi skip, Lárus Guðmunds-
son, sem fyrir nokkrum dögum
gekk til liðs við Stjörnuna í Garða-
bæ. Önnur knattspyrnufélög nýta
sér stjórnleysið hjá Val og eru þegar
farin að bera víurnar í reynda leik-
menn. Við heyrum nöfn Sævars
Jónssonar og fyrirliðans Þor-
gríms Þráinssonar einkum nefnd
í þessu sambandi, sem myndi þýða
það fyrir meistaraflokkinn að vörn-
in hryndi eins og hún leggur sig . . .
Frá Kaupmannahöfn
kemstu fljótt og
örugglega til
áfangastaða um heim
allan
Kaupmannahafnarflugvöllur er einn besti
tengiflugvöllur í heimi. Þaðan fljúga á hverjum degi yfir
200 vélar á vegum SAS til borga um heim allan.
Auk þess njóta farþegar með SAS og einkum þeir sem
s ferðast á EuroClass, meiri og betri aðbúnaðar á
s Kaupmannahafnarílugvelli en aðrir farþegar.
k
o
o
Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína
Flugfélag athafnafólks
Laugavegur 3, simi 62 22 11