Pressan - 22.02.1990, Blaðsíða 9

Pressan - 22.02.1990, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 22. febr. 1990 9 HÁSKÖLANEMAR f OPINBERUM BOÐUM á framabraut Fór sjólfur í gamla daga „Ég veit ekkert hvað þetta kost- aði, þetta voru á milli 200 og 300 manns, en kostnaðurinn er aðailega skattar af áfengi sem renna til ríkis- ins,“ segir Davíð Oddsson. Ástæð- una fyrir því að laganemum var boðið segir borgarstjóri vera að þetta hafi verið gert fyrr og nemar hafi sjáifir leitað eftir því, eins og venjan er um nánast öll hanastéls- boð. Borgarstjóra fannst eðliiegt að halda hófið, enda hafi laganemar áður komið í kokkteil hjá borginni. Davíð Oddsson minnist þess meðal annars að lagadeildin þáði boð borgarstjóra þegar hann var sjálfur í lagadeild, þá var Geir Hallgríms- son borgarstjóri, en hann er lög- fræðingur. Lagadeild háskólans var boðið i hana- stél á vegum borgarstjóra siðastliðinn föstudag. Tilefnið var árshátið laga- nema siðar um kvöldið. Þetta er eitt af mörgum boðum þar sem stúdentar við Háskéla íslands hafa verið gestir opin- berra stofnana. Kokkteilboð ffyrir 300 manns geta kostað frá 250.000 krónum upp i 500.000 krénur ef vin er keypt á innkaupaverði. stúdentana getur verið mjög mis- munandi, en þar sem veitt er vín og borgað fullu verði hlýtur hann að vera mikill. Sem dæmi um verð á ríkisreknu hanastéli má nefna veislu utanríkisráðherra fyrir 180 viðskiptafræðinema í fyrra. Sú veisla kostaði 146.813 krónur, en þar var vínið keypt á kostnaðar- verði. EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR - MYNDIR: EINAR ÓLASON Við aðrar deildir er minna um veisluhöld af þessu tagi. Til dæmis munu stúdentar úr guðfræðideild og heimspekideild ekki vera sérlega eftirsóttur félagsskapur í opinberum móttökum. Félagsvísindadeild fer einnig varhluta af boðum, nema hvað nemendur hjá Hannesi Hólm- steini Gissurarsyni fengu að skoða Höfða í boði hjá Davíð Oddssyni eft- ir að borgarstjóri hafði haldið þeim fyrirlestur. ,,Ég held það hafi verið veitt eitthvert vín þá,“ segir Hannes Hólmsteinn, „enda finnst mér það gott að ríki og borg haldi uppi reisn og bjóði í stöku boð innan marka velsæmis." Þetta eru bara boð Gunnar Sturluson, formaður Ora- tors, félags laganema, vildi ekki segja hversu oft lagadeiidinni væri boðið í opinberar móttökur. „Þetta eru bara boð, við höfum ekkert meira um það að segja. Þetta er samt ekki oft á vegum hins opin- bera, kannski einu sinni eða tvisvar á ári. Að meðaltali einu sinni held Boð af þessu tagi eru einstaklega óvinsælt umræðuefni meðal þeirra sem í þau komast. Á skrifstofu Ora- tors, félags laganema, fengust fyrst þau svör að ekki væri vitað til þess að neinn frá Orator hefði áhuga á að ræða við Pressuna. En laganemar eru trúlega þeir sem oftast verða þess heiðurs aðnjótandi að drekka ókeypis brennivín með borgarstjór- um, bankastjórum, ráðherrum og öðrum fyrirmönnum. Dýrar veislur Viðskiptafræðinemar munu ekki vera mikiir eftirbátar laganema við að sækja móttökur, en þá eru með- talin boð frá einkafyrirtækjum. Kostnaðurinn við veisluhöld fyrir

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.