Pressan - 22.02.1990, Side 4
4
Fimmtudagur 22. febr. 1990
llUlræði
af óútskýrðu ofbeldi
Skemmdarverk, líkamsárásir, átök, innbrot,
eignaspjöll, þjófnaöir, kynferðisafbrot, sifja-
spjöll, nauöganir, rán, gripdeildir, sjálfsvíg,
manndráp, morð.
Gamlar konur rotaöar og rændar ellilaunun-
um, miðborgin einsog vígvöllur, limlestir
menn á víö og dreif, lögreglan ráöalaus gagn-
vart óöum bullum sem engu eira.
Allt í hers höndum.
Þetta eru ekki fréttir frá Suður-Ameríku,
Rúmeníu, Beirút í Líbanon eöa torgi hins himn-
eska friðar.
Nei, nei. Ástæöulaust aö leita langt yfir
skammt og sækja vatniö yfir lækinn, einsog
þaö er kallað.
Þetta eru ósköp einfaldlega fréttir úr vinaleg-
um smábæ á norðurhjara veraldar þar sem
menn áttu sér í dentíð drauma um fagurt
mannlíf í skjóli símastaura sem sungu í sól-
skininu og uröu grænir aftur.
Þetta eru dagvissar fréttir úr höfuðborg ís-
lenska lýöveldisins; Reykjavík, og vígvöllurinn,
sem er einsog valköstur á nóttunni en sorp-
haugur á morgnana, er miðbærinn í Reykjavík.
Átthagar mínir.
Þarna er ég fæddur og uppalinn og þarna hef
ég alið allan minn aldur í vel meira en hálfa öld.
Á löngum lífsferli hef ég átt þess kost aö
fylgjast með mannlífinu á „rúntinum", mannlífi
sem löngum virtist fremur taka miö af loftvog-
inni en ööru.
Þegar loftvogin féll hvarf fólkið úr Austur-
strætinu og þegar kólnaöi lagöist Austurstræt-
iö í dvala.
En um leið og sá til sólar var einsog lífsanda
blásiö í götuna af þeim fítonskrafti aö iðandi
mannlíf kviknaöi þar á hraða Ijóssins.
I meira en 150 ár var þessi gata alfaraleið og
jafnvel athvarf bæjarbúa. Embættismenn á
spássértúrum, heiðurshjón á göngu, flagarar
viö iöju sína, daöurdrósir aö gefa falskar vonir,
ungt fólk aö draga sig saman, eöa segja hvert
ööru upp, ósofnir bankamenn að skunda í
vinnuna til móts viö þá sem eyða dögunum í
þaö aö „berjast í bönkum", einsog þaö er kall-
aö, útsofnir mangarar aö opna búöirnar sínar til
aö selja kaupglööum vegfarendum nauðsynja-
vöru eöa ójaarfa, Ijóöelskir reikunarmenn meö
furöulega kokkteila á skrítnum flöskum,
blómarósir, trúbadúrar, drukknir gleðimenn og
frelsaöir gútemplarar.
Ungir og gamlir, fallegir og Ijótir, blankir og
ríkir, góöir og vondir fylltu Austurstræti ásamt
meö lífgjafa sínum, blessaðri sólinni, þegar
hennar naut viö eöa þá í notalegri rökkur-
stemmningu annarra árstíða.
Nú er þetta liöin tíö.
Miðbærinn í Reykjavík hefur skipt um hlut-
verk.
Nú þjónar hann ööru mannlífi en áöur, eöa
einsog segir í fjölmiðlum:
— Miðbærinn er uppspretta ofbeldis, voöa-
verka, líkamsárása, átaka og eignaspjalla.
Rómantíkin heyrir sögunni til.
Farvell Frans.
Og nú vaknar spurningin:
Hvernig í ósköpunum stendur á þessu?
Sem betur fer eru meiri líkur á því aö rökræn
og vitsmunaleg svör fáist nú en áður, því nú
hefur þjóöin á aö skipa vösku liði sál-, félags-,
atferlis- og afbrotafræðinga sem vinna aö því
höröum höndum aö komast til botns í því sem
á sænsku hefur verið kallað „problem" og hef-
ur til skamms tíma verið svo framandi hugtak
á íslandi aö enn er ekki til nothæf þýöing á orö-
inu.
Enn sem komið er hafa félagsfræðilegar
rannsóknir á voöaverkum, ofbeldi, limlesting-
um, nauðgunum og manndrápum aöallega
beinst aö því aö kanna hvort þetta geti virki-
lega verið tilfelliö og síðan aö reyna aö komast
til botns i því hvaö þeir séu eiginlega gamlir
sem láta svona.
Þornaðir fylliraftar, einsog ég, hugsa aftur-
ámóti sem svo:
— Er ekki hugsanlegt aö þetta lið hafi fengiö
sér rækilega í staupinu áöur en þaö lét til skarar
skríða, kannske pillu eða tvær, óþverra í æö
eöa kók í nefið?
Spyr sá sem ekki veit.
Þó maður geti auövitaö ekki tjáð sig faglega
á félagsfræðilegu plani, þá verö ég aö segja aö
ég sakna þess aö ekki skuli gerð viðamikil
rannsókn á því hvort limlestingar og önnur
voðaverk séu yfirleitt framin af allsgáðu fólki.
Eöa er þaö hugsanlegt aö þaö sé öðru frem-
ur drukkiö fólk og dópaö sem stendur aö þeirri
skeggöld og skálmöld sem nú virðist ríkjandi í
litla vinalega bænum á noröurhjara veraldar?
Ég er nefnilega kominn á þá skoðun á gam-
alsaldri aö þeir sem ekki geta drukkið og dópað
án þess aö veröa óalandi og óferjandi í mann-
legu samfélagi veröi bara að hætta aö drekká
og dópa, þó þaö sé nú aö vísu vondur kostur.
Hinum sem geta drukkið og dópaö dægrin
löng „án þess aö komi niðurá neinum" óska ég
svo hjartanlega til hamingju og óska þeim
langra lífdaga.
Guö láti gott á vita.
NY/R B/LAR A HAGSTÆÐU VERÐ/
HRINGDU OG VIÐ KOMUM MEÐ BÍLINN TIL ÞÍN
BÍLALEIGAN
' Nissan Micra, Mazda 323, Toyota Cor-
olla, Nissan Sunny, Lada 1500 Station
»FJÓRHJÓLADRIFSBÍLAR: Subaru Sta-
tion, Toyota Tercel, Lada Niva, Range
Rover, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol,
Toyota Landcruiser, Ford Econoline
>5-12 SÆTA: Mitsubishi Pajero (5—7),
Nissan Patrol (7), Toyota Hiace (11),
Toyota Litace (8), Ford Econoline (12)
Í GEYSIR
sími: 688888
Suðurlandsbraut 16, Reykjavík,
gengið inn frá Vegmúla.