Pressan - 22.02.1990, Qupperneq 15
Fyrir nokkru fflutti útff lutningsffyrirtæk-
ið Marbakki hf. inn verulegt magn aff
fullunninni raekju ffró Kanada og seldi
hana áffram til Bretlands sem islenska
vöru. Raekjan var tekin úr erlendu um-
búðunum, sett i umbúðir fyrirtaekisins og
siðan seld til Bretlands og ffleiri landa
sem ffullunnin islensk fframleiðsla, toll-
frjálst.
EFTIR KRISTJÁN PÉTURSSON, FYRRV. TOLLGÆSLUSTJÓRA
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI, ÁSAMT ÓMARI FRIÐRIKSSYNI
MYND: EiNAR ÓLASON
Skv. fríverslunarsamningum ís-
lands við EB fær pilluð íslensk rækja
frjálsa tollmeðferð innan EB-landa
ef uppruni hennar er íslenskur. Rík-
isstofnanir hafa velt málinu fyrir sér
í rúmt ár án þess að komast að nið-
urstöðu. Forstjóri Marbakka segir
að þetta hafi verið mistök þeirra og
hann hafi ekki endurtekið þennan
leik. En því er haldið fram að tölu-
vert sé um ólöglegan útflutning af
þessu tagi og fyrirspurnir hafi borist
að utan vegna þessa.
Höfundur greinarinnar hefur um
nokkurt skeið kannað hvernig út-
flutningur þessi á sér stað. Upphaf
málsins má rekja til þess að upp
komst, að Marbakki hf. flutti inn
iausfrysta, pillaða rækju frá Kanada
árið 1988 og seldi hana til Bretlands
undir merkjum fyrirtækisins sem ís-
lenska vöru. Til að rækja frá íslandi
njóti tollfrjálsrar meðferðar innan
EB-landa verður hún að vera full-
unnin hérlendis og fullnægja gæða-
kröfum Ríkismats sjávarafurða
(reglur þessar er að finna í bókun 6
í fríverslunarsamningnum varðandi
einhliða fríðindi fyrir íslenskar sjáv-
arafurðir).
Samkvæmt framansögðu ætti að
vera loku fyrir það skotið að Mar-
bakki hf. fengi svokallað EUR.l-skír-
teini sem gefið er út af ríkistollstjóra
og er flutningsskírteini sem notað er
í fríverslun á milli íslands og ríkja
innan EB og EFTA. Tollstjóraemb-
ættið gefur skírteinin út á þeirri for-
sendu að rækjan hafi verið veidd af
íslenskum skipum. Á sérstökum reit
er tekið fram að ísland sé uppruna-
land vörunnar. Undir það ritar út-
flytjandinn.
Rangar upplýsing-
ar útflytjanda
Af þessu er Ijóst að rangar upplýs-
ingar útflytjanda um uppruna vör-
Marbakki hf.
kcypti tilbúna
rækju frá Kanada,
umpakkaði og
seldi til Bretlands
sem íslenska vöru,
tollfrjálst
Fyfirspurnir hafa
borist að utan
vegna ólöglegs
útflutnings á
rækju. Embættis-
menn velta málinu
fyrir sér i heilt ár
án niðurstöðu.
Rúm 150 tonn
fullunninnar rækju
keypt frá Kanada
á siðustu tveimur
árum. Fórþað
tollfrjálst inn á
£ vrópumarkað
sem íslensk
sjávarafurð?
unnar og meðferð hennar gera hon-
um kleift að koma rækjunni til Bret-
lands og fleiri EB-landa tollfrjálst en
Kanadamenn þurfa að greiða um
17% toll til að koma vörunni inn á
EB-markaðinn beint.
Þetta á sér stað með þeim hætti að
í fyrstu gefur Ríkismat sjávarafurða
út heilbrigðisvottorð fyrir rækjuna.
Þar er ekki kannað sérstaklega
hvaðan hún er upprunnin. Því næst
kemur utanríkisráðuneytið til skjal-
anna en það veitir útflutningsleyfi.
Þar töldu menn sig ekkert vita um
uppruna vörunnar þar sem slíkt er
ekki tiltekið á vottorði löggiits mats-
manns ríkismatsins. Þar er því ein-
göngu gengið úr skugga um að sölu-
verð rækjunnar sé í samræmi við
það sem gengur og gerist á mark-
aðnum og að tryggilega sé gengið
frá greiðsluskilmálum. Ef sérstakar
umkvartanir berast um útflutning
sem brýtur í bága við samninga við
EB fer ráðuneytið af stað og kannar
málið. Það átti sér stað í umræddu
tilfelli vegna útflutnings Marbakka á
Kanadarækjunni. Sú athugun hefur
nú staðið yfir í rúmt ár án niður-
stöðu. Vísar ráðuneytið á ríkismatið
sem það segir að eigi að ganga úr
skugga um að farið sé að reglum.
Hlýtur að vekja athygli að Mar-
bakkamálið er búið að velkjast á
milli ráðuneyta og stofnana á annað
ár án þess að úrlausn fáist. Nokkrir
embættismenn voru settir í málið
en komust lítt áfram þar sem óhugs-
andi er við núverandi skipulag að
finna út hvort tilbúinni rækju sem
flutt er inn í landið er umpakkað hér
og hún send á Evrópumarkað undir
íslenskum merkjum.
Tugmilljóna-
útflutningur?
Fjárhagslegur ávinningur Mar-
bakka er augljós; um 17% tollur,
sem Kanadamenn hefðu þurft að
greiða, fellur niður, sé varan flutt frá
Islandi sem fullunnin íslensk vara.
Jón Guðlaugur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Marbakka, segir að
hér hafi eingöngu verið um 20 tonn
að ræða sem fóru á Bretlandsmark-
að.
Samkvæmt upplýsingum frá hag-
stofunni var flutt inn verulegt magn
af fuliunninni rækju frá Kanada í
gegnum Bandaríkin árið 1988 eða
rúmlega 70 tonn. Á sama ári voru
flutt út til EB-landa rúm 30 tonn fuli-
unninnar rækju héðan til Danmerk-
ur, 22 tonn til Bretlands, 11 tonn til
Frakklands og 10 tonn til Þýska-
lands. Á síðasta ári voru fiutt til ís-
lands 82 tonn af fullunninni rækju
beint frá Kanada. Ekki hefur tekist
að fá upplýsingar um hverjir fluttu
inn eða hvort þeirri rækju hefur að-
eins verið umpakkað hér og hún
síðan send inn á Evrópumarkað eða
eitthvað annað. Ber augljóslega
brýna nauðsyn til að kannað verði
hver meðíerð rækjunnar hefur ver-
ið og hvort sami aðili eða fleiri hafi
komið hér við sögu. Ef öllu þessu
magni hefur verið komið úr landi á
röngum forsendum er hér um að
ræða útflutning fyrir tugi milljóna
króna.
Vísar hver á annan
Þegar höfundur greinarinnar var
að afla upplýsinga um málið var leit-
að til viðkomandi ráðuneyta og
stofnana. Virtust menn ýmist ekki
vita neitt eða vildu hreinlega ekki
veita upplýsingar. Svo virðist sem
viðkomandi ríkisstofnanir treysti í
blindni hver annarri og enginn beri
endanlega ábyrgð á mistökunum.
Vísaði hver á annan. Hefur þó feng-
ist staðfest að fyrirspurnir hafa bor-
ist að utan frá um þennan ólöglega
útflutning. Kunnugir telja að ólög-
legur útflutningur, af þessu tagi hafi
verið stundaður í verulegum mæli.
Auk þess að vera lögbrot kann slíkt
að skaða hagsmuni íslendinga al-
varlega vegna fríverslunarsamn-
inga við EB og EFTA.
in9. land)
UMSÓKN UM
IRTEINI
9. land) (valfrjá/s
n,fylling)
n9)
i,a 09 le9und slykkja';
vörufegund
jjjjfcýrtngaré bakhlið
í56345
•J'nsókn udi Hutningsskirteini til nota 1 fr-
ÍSLANDS 'VerS'Un milli
l3ndS’ rik'aöandalags eða ,a„d
,SAi _________________
‘a-PPrunnar | eða'tds
ÍSLAND
7 Afhugasemd/r
Útflytjandi verður að fylla út svona skirteini þegar
fluttar eru tollfrjálsar sjávaVafurðir á
Evrópumarkað, Skilyrði er að varan feé jslensk. Á
skírteininu er skýrt tekið fram að ísland sé
upprunaland vörunnar. Yfirvöld viröiJst hafa fá rað
til að koma í veg fyrirað útflytjendur Vnisnoti þetta
skv. núverandi reglum og eftirliti.
([< m3o. s. frv 1 (valfrjá/s
útfylling)
ningar I