Pressan - 22.02.1990, Page 17
Fimmtudagur 22. febr. 1990
17
Y
áratug má meðal annars sjá tíðni
slysa á börnum á ákveðnu árabili og
samanburð á tíðni slysa fyrir og eftir
að umferðaröldur hafa verið settar
upp. Samanburður á ákveðnum göt-
um á árunum 1979 til 1987 sýnir að
þar sem ekki voru settar upp öldur
jókst slysatíðni úr 8,6 slysum að
meðaltali 1979—1983 í 10 slys að
meðaltali 1984—1986. í götum þar
sem settar voru hraðahindranir
reyndist slysatíðni að meðaltali 14,8
á árunum 1979—1983 en lækkaði
niður í 7,50 eftir að hindranirnar
voru settar á árunum 1984—1987.
Þessar athuganir sýna því 50%
slysafækkun á meðal barna þar sem
hraðahindranir voru settar upp.
Lækjargatan
svartur blettur
Verstu staðirnir eru ekki alltaf ná-
kvæmlega þeir sömu ár eftir ár en
sumir koma þó sifellt fyrir. Þar á
meðal er Lækjargatan frá Lækjar-
torgi að Skólabrú. Á þessum stutta
kafla urðu 65 óhöpp á árunum
1983—1987, þar af fjögur þar sem
alvarleg slys eða dauðsföll hlutust
af.
Þá má benda á staðinn Laugar-
nesveg við Laugaveg, sem er nokk-
urn veginn fyrir neðan sjónvarps-
húsið. Þar varð 51 óhapp á árunum
1983—1987, þar af fjögur alvarleg
slys eða dauð^föll.
Annar staður sem benda má á er
gatnamót Vesturlandsvegar og
Höfðabakka. Á árunum 1983 til
1987 urðu alls 169 óhöpp þar, fjögur
alvarleg slys eða dauðsföll og 12
minniháttar slys. Þá má benda á
gatnamót Suðurlandsbrautar,
Laugavegar og Kringlumýrarbraut-
ar, þar sem 142 óhöpp urðu á þessu
árabili, þar af 9 alvarleg slys og
dauðsföll og 21 minniháttar slys.
Borgar sig á átta
dögum
Flestar endurbæturnar kosta frá 5
þúsund krónum (skilti) upp í milljón
en þær borga sig í færri óhöppum á
skömmum tíma, samkvæmt áætl-
um umferðardeildar. Það kostaði til
dæmis 56.000 krónur að loka mið-
eyju á Laugavegi við Laugarnesveg
(sjá kort), og samkvæmt áætlunum
umferðardeildar borgaði sú endur-
bót sig á átta dögum í færri óhöpp-
um. Aðrar umbætur borga sig á allt
frá mánaöartima og upp í ár.
Dýrasta lagfæringin er að gera
tveggja hæöa gatnamót. Einn þeirra
staða þar sem slík gátnamót myndu
flýta mjög fyrir umferð er á mótum
Vesturlandsvegar og Höfðabakka
og myndi slíkt kosta um 150 milijón-
ir. Gunnar H. Gunnarsson verkfræð-
ingur, sem hefur umsjón með um-
ferðartölvubankanum, telur að slík
breyting borgi sig upp á um það bil
tíu árum í færri óhöppum og slys-
um.
Að sögn Þórarins Hjaltasonar eru
slík tveggja hæða gatnamót á aðal-
skipulagi borgarinnar og hann telur
líklegt að gerð verði tillaga um
þessa framkvæmd, þegar næst
verður gerð fimm ára framkvæmda-
áætlun um vegamál, sem borgin
gerir í samvinnu við vegagerðina.
Óráðið hvað gert
verður á árinu
Þórarinn segir ekki ákveðiö
hvaða svartblettir verði lagfærðir á
árinu, en. líklega verði haldið áfram
með þessa þrjátíu sem gerð var til-
laga um á síðasta ári. Borgarráð hef-
ur að vísu frestað tillögum um fjórar
þessara lagfæringa. Fjárveitingin,
sem er 6 milljónir, veitir ekki mikið
svigrúm, en Þórarinn segTr einhverj-
ar lagfæringar greiðast af öðrum
gjaldaliðum,. þ.á m. umferðarljós,
gangbrautarljós og skilti. Alls er
ákveðið að verja um sjötíu milljón-
um til málaflokka er heyra undir
umferðarmál hjá Reykjavíkurborg í
ár, þaö er máiaflokka eins og um-
feröarljósa, gangbrautarljósa, um-
ferðaralda, skiltabrúar og hliðar-
skilta auk svartblettanna.
Kostnaðurinn flyst
á sjúkrastofnanir
Á síðasta ári var aðeins hægt að
lagfæra 18 svartbletti vegna lítillar
fjárveitingar og það þó að garð-
yrkjudeild greiddi fyrir tvær lagfær-
ingar. Af þessum rúmlega sjötíu
milljónum sem borgin veitir í um-
ferðarmál fara sex í að lagfæra sfaði
sem eru sérstaklega hættulegir. Það
þýðir að einungis minnstu lagfær-
ingar eru mögulegar; ef dýrari fram-
kvæmdir bættust við kostaði þaö
tugi milljóna, jafnvel hundruð. Með-
an þeir peningar fara í annað halda
árekstrarnir áfram, stórir og smáir,
og útgjöldin þeirra vegna fara á aðra
gjaldaliði, eins og tryggingar og
sjúkrastofnanir.
lys, 4 alv. Miðeyju lokað, 50% bót borgar sig
thöpp, 2 alv. slys. 30% bót, girt í miðeyju borg-
ir af 1 alv. slys. Steinalda,
ÚRVAL AF HEIMILISTÆKJUM, T.D. KAFFIVÉLAR,
BRAUÐRISTAR, ÖRBYLGJUOFNAR, GUFUSTRAUJÁRN,
HRÆRIVÉLAR O.FL. 0.FL.
MARGAR GERÐIR AF LJÓSUM 0G KÖSTURUM.
PERUR í MIKLU ÚRVALI.