Pressan - 22.02.1990, Page 31
Fimmtudagur 22. febr. 1990
31
FIMMTUDAGUR
22. febrúar
Stöð 2 kl 22.10
KOBBI KVIÐRISTA
(Jack the Ripper)
Bresk sjón varpsrnynd
Leiksljóri Duvicl Wickes
Aöulhlutverk Michael Cuine, Jane
Seymour, Armand Assanle, Ray
McAnully oJl.
Mynd sem fjallar um eltingaleikinn
við Jack the Ripper, byggð á seinni
tíma rannsóknum á morðunum og
nýtirsérsömuleiðis seinni tíma vitn-
eskju til að reyna að komast nær því
hver var morðinginn og hvað lá að
baki hræðilegum glæpum hans. Kn
það breytir litlu, þetta er eilíft dular-
mál, enda kannski ekki gaman að
því að öðrum kosti.
Stöð 2 kl. 23.50
DRAUGAR
FORTÍÐAR •k-k-kVi
(The Mark)
Bresk bíómynd
Gerö /.967
Leiksljóri Guy Green
Adalhlutverk Sluarl Whitmun,
Maria Schell, Rod Steiger
Hér er mynd unr mann sem komist
hefur í hann krappan. Hann er kyn-
feröisafbrotamaður, öfuguggi var
það víst kallað fyrir tíma sálfræöing-
anna, sem losnar úr fangelsi og
reynir að bæta ráð sitt. Það er hins-
vegar erfiðara en menn halda að
gera slíkt. Stuart Whitman, sem
leikur manninn ógurlega, fékk til-
nefningu til Óskarsverðlauna fyrir
leik sinn í myndinni. Hörkumynd,
en bara fyrir fullorðna.
FEinK'Si
eftir Mike Atkinson
o.ÞAZHA KE-MVR ST&R/
n/esfa n-Os/.,.
FUSTUDAGUR
23. febrúar
Stöð 2'kl. 22.00
SÆLUDAGAR
Bundarísk bíómyhd
Gerd B)7S
Leikstjóri Terrence Malick
Adalhlulverk Richard Gere,
Brooke Adams, Sam Shepurd,
Lindu Manz
Ástarþríhyrningurinn er viöfangs-
| efni þessarar myndar, en þó ekki
nema að hálfu leyti. Hitt meginvið-
fangsefnið er landslag og fólk í
landslagi, enda fékk myndin Ósk-
arsverðlaun fyrir kvikmyndatöku á
sínum tíma. Hún missir sín því
nokkuð í sjónvarpi en á að standa
íyrir sínu engu að síður. Segir af fá-
tækum Chicago-búa sem keppir um
ástir stúlku við ríkan en hlédrægan
Texas-búa. Sagan gerist í miðvestur-
ríkjunum um aldamótin og baksvið
hennar er hveitiuppskerutíminn.
Sjönvarpið kl. 22.50
KÆLIKLEFINN ***
(The Cold Room)
Baridurísk sjónvarpsmynd
Gerd 19H4
Leikstjóri Jumes Dearden
Adallilulverk George Segal,
Amanda Pays, Warren Clurk
Ruglingslegur reyfari um stúlku á
háskólaaldri sem þvælist með föður
sínum til Austur-Þýskalands, kemst
þá að því að hún er komin í vond
mál, maðurinn í næsta herbergi er
flóttamaður og hún þarf að fást við
verkefni sem geta orðið henni fjötur
um fót svo ekki sé meira sagt. Frem-
ur slöpp mynd, kannski nærri með-
allagi.
LAUGARDAGUR
24. febrúar
Stöð 2 kl. 21.20
ÞRÍR VINIR **
(Three Amigos)
Bandarísk bíómynd
Gerð im>
Leikstjóri John Landis
Aðalhlutverk Sleve Marlin, Chevy
Chase, Martiri Short, Patrice Mart-
inez
Þetta er svona mynd sem Banda-
ríkjamenn kalla ,,one-joke-movie”,
byggir á því aö brandararnir koma
allir frá sama sjónarhorni, byggja á
samskonar misskilningi o.s.frv. Hér
segir af þremur náungum sem eru
kvikmyndastjörnur á tímum þöglu
myndanna, þar leika þeir í vestrum
og svo eru þeir sendir til Mexíkö, að
þeir halda til að vera skemmtilegir
smástund. Svo er þó ekki; gert er
ráð fyrir að þeir losi þorp eitt við
bófa og illmenni sem herja á þaö. Þá
eru góð ráð dýrog skiljanlegt þetta
með brandarana sem koma allir úr
sömu átt.
Sjónvarpið kl. 21.45
DJÖFLAHÆÐ
Áströlsk sjónvarpsmynd
Gerð 19H7
Leikstjóri Steve Mason
Aðalhlutverk Peter Hehir, Mary
Haire, John Flaus
Ung systkini flytjast til frændfólks
síns þegar móðir þeirra fer á spítala.
Þau eiga eftir að lenda þar í ýmsum
ævintýrum.
Stöð 2 kl. 23.05
HÚSIÐ
Á 92. STRÆTI ★ ★★ Vi
(The House on 92nd Street)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1945
Leikstjóri Henry Hathaway
Aðulhlutverk William Eythe, Lloyd
Nolun, Signe Husso, Leo G. Currol
Hér er á feröinni hörkumynd af
gamlaskólanum. Reyfari með heim-
ildamyndarívafi, þar sem notast er
við sannsögulegar heimildir og
myndin tekin á stöðum þar sem sag-
an raunverulega gerðist. Þetta er
niósnamynd sem segir af Banda-
ríkjamanni sem tekur aö sér aö
njósna fyrir nasista í Bandaríkjun-
um á tímum síðari heimsstyrjaldar-
innar. Hann er þó tvöfaldur i roðinu,
því hann starfar í raun og veru fyrir
Bandaríkjamenn og lætur vesalings
Þjóðverjana alltaf hafa vitlausar eða
einskis nýtar upplýsingar. Svo dreg-
ur til tíðinda þegar atómsprengjan
kemur inn í myndina. Þá er eins gott
að gera enga vitleysu.
Sjónvarpið kl. 23.20
VÍSUNDA-VILLI0G
INDÍÁNARNIR **
(Buffalo Bill and the Indians)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1976
Leikstjóri Robert Altman
Aöallilutverk Paul Newmun, Burt
Ijjncaster, Joel Grey, Geraldine
Cliuplin
Myndin hefur líka gengið undir
nafninu sögutími Sitting Bulls. Alt-
man setur fram þá kenningu að Vís-
unda-Villi hafi verið svindlari, að
hann hafi aldrei gert þaö sem menn
segja hann liafa gert, s.s. reynir að
níða niður goðsögn. Þessa hug-
mynd gælir Áltman viö í tvo tíma
samfleytt, sem gerir myndina þreyt-
andi.
Stöð 2 kl. 00.35
FÍFLDJÖRF
FJÁRÁÆTLUN *%
(How to Beat
the High Cost of Living)
Baridarisk bíómynd
Gerð 1980
Leikstjóri Robert Scheere
Aðalhlutverk Susan Saint-Jumes,
Jarie Curtin, Jessica Lange,
Richard Benjamin
Varla oröum eyöandi á þessa mynd
sem fær lægstu einkunn. Hún segir
frá þremur húsmæðrum sem liugsa
upp vafasamar leiöir til aö treysta
fjárhaginn svo þær þurfi ekki að
skera niöur innkaupin. Yndislega
spennandi eða hitt þó heldur.
dagbókin
hennar
dZ/OL
Nú er anima á Kinimelnum end-
anlega orðin ga-ga. Hún las í ein-
hverju blaði að maöur gæfi svindlað
á ellinni og oröiö unglegri og ung-
legri með hverjum degi — og nú er
hún hörð á |)ví að gefa þessari að-
ferð séns. Greyiö hefur náttúrulega
engu að tapa, svo þetta er kannski
skiljanlegt, og þetta hefði ekkert far-
ið í taugarnar á mér, ef tveir strákar
i mínum bekk hefðu ekki endilega
þurft að labba framhjá, þegar sendi-
ferðabíllinn kom með heilsuræktar-
tækin. Þeir ætluöu að kafna úr
hlátri og eru búnir að kjafta í aílan
bekkinn.
Kg skil ekkert í henni ömmu að fá
sér Jjessi tæki, því það stóð ekkert
um það í greininni að vöðvabúnt
væru unglegri en annaö fólk. Það
var bara sagt að fólk ætti aö reyna
hressilega á líkamann, t.d. með því
að fara í göngutúr, en amma tekur
allt með svo svakalegu trompi.
(Mamma segir að þaö séu bara til
tveir litir í lífinu hjá ömmu: svart og
livítt. Það sé allt annaðhvort æ<Si
eða ógeð!) Kn kellingin er líka orðin
soldið mikiö gömul, svo hún hefur
líklega haldið að hún þyrfti að gera
meira en að fara í göngutúr til að
veröa ungleg og fersk.
Það er nú ekki nema vika síöan
amma keypli tækin, en hún er striix
farin að hlaupa í spegilinn á morgn-
ana til að gá hvort hrukkunum er
eitthvað að fækka. Auðvitað er and-
litið alltaf eins og þá hendist hún
eins og vitlaus manneskja í klifru-
grindina, sem hún lét festa á vegg-
inn í þvottahúsinu. Það teygir hún
sig út og suöur og hangir eins og sig-
in ýsa, þangaö til hún smellir sér á
þrekhjóliö og hjólar fleiri, fleiri kíló-
metra. Þá eru það lóöin, sem hún
lyftir bæði standandi, sitjandi og
liggjandi til að virkja alls konar
vöðva, sem örugglega höfðu ekki
hugmynd um að þeir væru til í
kroppnum á henni fyrir sjö dögum.
(Pabba fannst þetta með lóöin ein-
um of langt gengið hjá ömmu, en
hún sagðist sko ekki ætla að vera
með einhverja slepjuhandleggi,
þegar lærvöðvarnir og kálfarnir
væru orönir eins og grjót!)
Það er hins vegar ekki nóg með
að amma hegði sér eins og asni á
bakviö lokaöar dyr. Hún er farin að
stunda Vesturbæjarlaugina á hverj-
um einasta degi — manneskja, sem
hefur ekki svo mikiö sem átt sund-
bol í hundrað ár! Kn þaö væri svo
sem í lagi að hún rifjaði upp sund-
tökin, ef hún þyrfti ekki aö láta allan
heiminn vita meö því aö skokka (já,
skokka!) upp eftir í þeim skærapp-
elsínugulasta jogging-galla, sem
nokkru sinni hefur verið framleidd-
ur, og með ennisband í stíl.
Mamma og pabbi eru búin að fá
nokkrar upphringingar frá vinkon-
um ömmu, sem eru alveg í rusli yfir
þessu. Þær halda aö hún sé orðin
kölkuð og galin. Kn það er jafnvon-
laust að ætla aö koma vitinu fyrir
hana ömmu og að færa Esjuna norð-
ur í land. Þaö er bara verst aö hún
veröur fyrir svo ógeðslegum von-
brigöum eftir smátíma, þegar hún
fattar að hrukkurnar haggast
ekki. . .